Morgunblaðið - 27.10.1973, Side 1
32 SIÐUR
242. tbl. 60. árg. LAUGARDAGUR 27. OKTOBER 1973 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
20.000 Egyptar í gildru
á austurbakka Súezskurðar
Sayed Ismail, utanrfkisráðherra Egypta f fjarveru Sayats, býður yfirmann friðargæzlusveita S.Þ.,Finnann
Ansio Silasvuo, velkominn til Kaíró f gær.
Stórbættur viðskiptajöfn-
uður Bandaríkjanna
Tel-Aviv, Moskvu, Kaíró og
Washington, 26. okt. AP—NTB
MESTA spennan milli Bandarfkjanna og Sovétríkjanna vegna ástands-
ins við Súezskurð virðist nú liðin hjá, og hafa bandarísk hernaðaryfir-
völd byrjað að draga úr þeim viðbúnaði, sem fyrirskipaður var í gær,
þrátt fyrir það að Brezhnev, leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins,
skýrði frá þvf I dag, að Sovétrfkin hefðu sent fulltrúa að beiðni Egypta
til að fylgjast með, að deiluaðilar héldu vopnahléð. Skv. upplýsingum
bandarfska varnarmálaráðuneytisins áttu Bandaríkjamenn von á
þessu ogsegja aðhér sé um að ræðaum 100 manna óvopnað lið.
Washington 26. október — AP
VIÐSKIPTAJÖFNUÐUR Banda-
rfkjanna við útlönd var f septem-
bermánuði hagstæður um 873
milljónir dollara, og er það hag-
stæðasti greiðslujöfnuður eins
mánaðar, sem verið hefur í átta
ár. Kom þetta jafnvel viðskipta-
málaráðuneytinu í Washington á
óvart, og segja talsmenn þess, að
þetta séu mestu gleðitfðindi í
bandarfsku efnahagslffi á þessu
heldur dapurlega ári.
Otflutningur jókst um 7.4%
miðað við mánuðinn áður, og inn-
flutningur minnkaði um 7.4%.
Þessi útkoma septembermánaðar
í fullum rétti
til að skjóta
Jóhannesarborg, 25. október,
NTB.
Suður-afrískur rannsóknar-
dómari kvað í dag upp þann úr-
skurð, að lögreglumennirnir, sem
skutu 11 svarta námuverkamenn
til bana við Western Deep Level
námuna í siðasta mánuði, hafi
verið í fullum rétti til að hefja
skothríð. Dómarinn sagði, að
lögreglumennirnir hefðu verið að
gegna skyldustörfum og ekki
aðhafst neitt, sem hægt sé að telja
refsivert.
Hann sagði, að bæði lögreglan
og eigendur námunnar hefðu
reynt að semja við verkamennina
og skothríð hefði ekki verið hafin
fyrr en þeir gerðu árás á lögreglu-
sveitina.
veldur þvi einnig, að viðskipta-
jöfnuðurinn fyrir fyrstu níu mán-
uði ársins er hagstæður um 153
milljónir dollara, en árið áður
hafði hann verið óhagstæður um
4.810.500.000 dollara á sama tíma
bili. Eru því taldar góðar líkur á
þvi, að viðskiptajöfnuður þessa
árs verði í heild hagstæður, en
árið 1972 var hann óhagstæður
um 6 milljarða dollara og árið
1971 um 2 milljarða.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna var kallað saman til fundar í
kvöld að fjalla um kæru E&ypta
um ný vopnahlésbrot Israela.
Atti fundur þess að hefjast kl.
01.00 að ísl. tíma. Nú er talið víst,
að ástæðan fyrir því, að Sadat bað
Bandaríkjamenn og Sovétmenn
um að senda eftirlitssveitir á
vopnahléssvæðið og sendi þessa
kæru til Öiyggisráðsins, sé sú, að
það sé staðreynd að ísraelar haldi
öllum 3ja her Egypta í gildru á
austurbakka Súezskurðar, eða
alls um 20 þúsund manns, með
gífurlegt magn vopna og annarra
hergagna.
ÖRVÆNTING EGYPTA
Fregnir af ástandinu á þessu
svæði eru fremur óljósar, en
Haim Herzog hershöfðingi, tals-
maður herstjórnar ísraela, skýrði
frá því í sjónvarpi í kvöld, að
Israelar hefðu Egyptana alveg í
hendi sér og að Egyptarnir fullir
örvæntingar, vegna vatnsskorts
og matarskorts, gæfust upp
hundruðum saman. Þá skýrði
ísraelskur fréttamaður frá þvf, að
frægur ísraelskur hershöfðingi
hefði boðið Egyptunum opna og
örugga leið heim, ef þeir vildu
leggja niður vopn. Egyptarnir
hafa nú að sögn ísraela gert ítrek-
aðar tilraunir til að brjóta sér leið
gegnum ísraelsku vfglinuna,
en mistekizt og þeir beðið mikið
manntjón. Egyptarnir munu nú
vera algerlega sambandslausir
við umheiminn og herforingjar
þeirra sagðir hafa misst alla
stjórn á mönnum sínum. lígyptar
hafa ekkert sagt um stöðuna
þarna, en sem fyrr segir, virðast
egypzkir ráðamenn mjög örvænt-
ingarfullir vegna ástandsins.
Fýrstu hermennirnir úr friðar-
gæzlusveitum Sameinuðu þjóð-
anna komu til Kaíró i dag, en alls
er gert ráð fyrir, að þeir verði um
1700 talsins, Svíar Finnar og
Austurríkismenn. Að sögn munu
þegar vera komnir 12 menn úr
fastaeftirlitssveit S.Þ. í Kairó
á vopnahléslínuna. Brezhnev
hvatti til þess í ræðu sinni, eftir
að hann hafði skýrt frá því, að
Sovétmenn hefðu sent eftirlits-
sveit til Egyptalands, að Banda-
ríkjamenn gerðu hið sama. Sagt
er að Nixon íhugi það mál nú, en
að fremur sé ólíklegt að hann
sendi bandariska eftirlitsmenn.
50 ÞUSUND
FALLHLlFAHERMENN
James Schlesingar, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, skýrði
frá því á fundi með frétta-
mönnum, að ástæðan fyrir því, að
Bandaríkjaher var skipað í við-
búnaðarstöðu, hefði verið, að
ráðamenn i Washington hefðu
talið ýmislegt benda til þess, að
Sovétmenn væru að senda herlið
til Egyptalands. M.a. var 50 þús-
und völdum sovézkum fallhlifa-
Framhald á bls. 18
Enn fínnast hlerunartæki
Stokkhólmi 26. október — NTB
t GÆR lagði sænska öryggislög-
>eglan hald á fleiri rafeindatæki
til hlerana, i sambandi við
njósnamál það, sem nýlega komst
upp um f Sviþjóð. Sama dag
ræddi hermálanefnd þingsins til-
lögu jafnaðarmanna um, að borg-
araleg stofnun yfirtæki leyni-
þjónustustarfsemi hersins.
Maður í stað Cox
Nixon slakar enn á
Washington 26. október
AP—NTB
NIXON Bandarfkjaforseti
skýrði frá þvi á blaðamanna-
fundi f Washington seint f gær
kvöldi, að í næstu viku myndi
Bork, settur dómsmálaráðherra
skipa nýjan mann f stað Cox, til
að halda áfram rannsókn
Watergatemálsins. Forsetinn
sagði, að hann og aðrir starfs-
menn Hvfta hússins myndu
eftir mætti starfa með þessum
manni og hann fengi að starfa
algerlega sjálfstætt að
rannsókn málsins. Forsetinn
sagði, að það væri kominn tfmi
til, að þeir seku f Watergate-
málinu yrðu dregnir fyrir rétt,
en hinir saklausu hreinsaðir af
öllum grun. Forsetinn upplýsti
ekki, hver þessu maður yrði.
Þá sagði Nixon, að nú horfði
betur með frið í löndunum
nokkru sinni fyrr á sl. 20. árum.
Hann sagði ástæðu til bjartsýni
um varanlega lausn deilunnar.
Sovétríkin og Bandaríkin hefðu
komið sér saman um, að beita
áhrifum sinum við deiluaðila.
Hann tók það skýrt fram, að
stórveldin myndu ekki fyrir-
skipa varanlega samninga,
aðeins beita áhrifum sínum.
Forsetinn vildi ekki skýra nán-
ar hvað hann hefði fyrir sér í
þessu máli, en sagði aðeins, að
þessi varanlega lausn myndi
ekki koma á næstu vikum, enn
væri of langt bil milli deiluaðila
til þess, en þess væri að vænta,
að samkomulag gæti náðst á
næstu mánuðum.
Er Nixon var spurður um við-
brögð sin við ummæium og
áskorunum um, að hann segði
af sér, eða þingið ávítaði hann
opinberlega, svaraði hann því
til, að hann hefði heyrt þetta
áður, er hann hefði á fyrra
kjörtfmabili sínu neyðst til að
fyrirskipa loftárásir á N-Víet-
nam. Hann sagði að ýmsir
hefðu haldið þvf fram, að við-
búnaðarfyrirskipunin til
Bandaríkjahers i fyrradag
hefði verið sett á svið til að
draga athyglina frá Watergate-
málinu. Hann sagði, að hann
vildi, að svo hefði verið, en því
hefði ekki verið til að dreifa.
Um hefði verið að ræða alvar-
legasta hættuástand, frá því
að Kúpudeilan kom upp ’61
Bandaríkin hefðu talið allt
banda til þess, að Sovétríkin
ætluðu sér einhliða að senda
fyrir botni Miðjarðarhafs en
herlið til Egyptalands. Banda-
ríkjamenn hefðu með viðbún-
aðarfyrirskipuninni bent
Sovétstjórninni á, að það
myndu þeir ekki liða. Nixon
sagðist einnig margsinnis hafa
haft samband við Brezhnev og
þeir undir lokin komið sér sam-
an um að styðja tillögu S.Þ. um
eftirlitssveitir, sem ekki væru í
hermenn frá stórveldunum, og
síðan, að Sovétmenn og Banda-
ríkjamenn beittu sér fyrir því,
að samið yrði nú loks um varan-
legan frið. Það væri eitt mikil-
vægasta málið í heiminum í
dag. Nixon sagði, að meðan
hann gæti leyst slík mál, vegna
góðra samskipta sinna við
Sovétstjórnina, þá myndi hann
ekki hugleiða það að láta af
embætti.