Morgunblaðið - 27.10.1973, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKT0BER 1973
Q Róbert Bork nýskipaður dómsmálaráðherra Bandaríkjanna á fundi
með fréttamönnum. Myndin var tekin, þegar Bork tilkynnti, að rann-
sókn Watergate-málsins yrði haldið áfram og að Henry Petersen
aðstoðardómsmálaráðherra hefði yfirumsjón með henni.
[j Nokkrir arabískir öfgamenn lögðu undir sig banka I Beirut í Líban
on fyrir stuttu og tóku þar 25 starfsmenn og viðskiptavini sem gísla.
Kröfðust þeir 10 milljónir dollara lausnargjalds og að allir handteknir
skæruliðar Araba yrðu látnir lausir, en hótuðu að drepa gíslana ella.
Lögreglunni tókst af yfirbuga ofbeldismennina, og hér er verið að færa
einn þeirra í varðhald.
Einn starfsmanna bankans í Beirut særðist í átökum arabísku
öfgamannanna og lögreglumanna, og sést hann hér á leið til sjúkra-
húss.
Q William Ruckelshaus
varð að láta af embætti að-
stoðardómsmálaráðherra
vegna ágreinings við
Nixon forseta. Hann lét
það það þó ekki á sig fá,
heldur skrapp í sjóstanga-
veiði og sést hér með
aflann.
□ Mynd þessi er tekin
af mótmælaaðgerðum fyrir
framan Hvíta húsið í
Washington, þar sem þess
var krafizt, að Nixon for-
seti léti af embætti, eða
honum vísað frá. Fremst er
maður með Nixon-grímu,
sem hvetur ökumenn til að
þeyta bílflautur sínar til
stuðnings kröfunni um
brottvikningu forsetans.
|V|I
\\|H Jj
i Hk
□□□UTAN ÚR HEIMI
□ Nóbelsnefndin sænska hefur að undanförnu verið að skýra frá því, hverjir verði heiðraðir að þessu
sinni I árlegri úthlutun Nóbelsverðlaunanna. Mennirnir þrír á þessari mynd skipta með sér efnafræði-
verðlaununum, en þeir eru, talið frá vinstri: Brian D. Josephson frá Bretlandi og Bandarikjamennirnir
Ivar Giaever og Leo Esaki. Allir eru þeir doktorar í efnafræði.