Morgunblaðið - 27.10.1973, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1973
| iMIIIIWIIÍirii; MORGllMBLAflSIMS 1
Fítonskrafturinn færði
unglingunum sigurinn
ÞAÐ væri fulldjúpt tekið í árinni
að segja, að íslenzka unglinga-
landsliðið í knattspyrnu hafi
ieikið betur en írska liðið f leik
liðanna f Evrópukeppni unglinga-
landsliða á Melavellinum í fyrra
kvöld. Það, sem fyrst og fremst
færði íslenzku strákunum sigur
voru leikgleðin og viljinn til að
vinna. Allan tfmann var barizt af
miklum móð, hvergi gefið eftir og
f ftonskrafturinn færði fslenzka
liðinu verðskuldaðan sigur. Sá
sigur kom fslenzka unglinga-
landsliðinu áfram f úrslit Evrópu-
keppni unglingalandsliða, en úr-
slitin fara fram í Svíþjóð næsta
vor.
Islendingarnir kusu að hafa
vindinn í bakið í fyrri hálf-
leiknum og hjálpaði vindurinn
örugglega, því fyrir leikhlé hafði
piltunum tekizt að skora tvívegis.
Með þessa góðu forystu dró liðið
sig meira í vörn í síðari hálfleikn-
um og sóttu Irarnir því eðlilega
meira. Island jók þó forystu sína í
3:0 áður en Irarnir f undu leiðina í
net Islands. Síðustu mínúturnar
sóttu trarnir af mikilli örvænt-
ingu en þeim tókst ekki að jafna
leikinn. I lokin stóðu íslenzku
piltamir uppi sem sigurvegarar,
fögnuður þeirra var innilegur
sem og hinna 550 áhorfenda, sem
dyggilega höfðu stutt piltana í
leiknum.
Strax á þriðju minútu leiksins
komst hinn eldsnöggi Víkingur,
útherjinn Óskar Tómasson, óvænt
í markfæri, en skot hans var ekki
kraftmikið og óöruggur írskur
markvörður náði að handsama
knöttinn. A 20. mínútu sóttu Is-
lendingarnir og upp úr horn-
spyrnu Gunnlaugs Kristfinns-
sonar skoruðu strákarnir gott
mark. Knötturinn hafði borizt á
milli manna inni í vítateignum,
en að lokum skaut fyrirliði ung-
lingalandsliðsins, Janus Guð-
laugsson, óverjandi skoti að
marki. Tónninn var gefinn og á
32. mínútu breyttist staðan í 2:0.
Mistök áttu sér stað í vörn Iranna,
Kristinn náði sendingu, sem
ætluð var markverði og þakkaði
Kristinn fyrir sig með því að
senda knöttinn öruggfega í netið.
Er síðari hálfleikurinn hófst
var komið blankalogn og á 15.
mfn. hálfleiksins skoraði sá mark-
Fyrsta badmintonmót vetrarins:
Síðast vann Sigurður
hvað gerist núna?
FYRSTA badmintonmót vetrar-
ins fer fram í Laugardalshöllinni
á morgun og taka flestir beztu
badmintonmenn landsins þátt í
því. I fyrra, er þetta mót fór fram,
sigraði Sigurður Haraldsson, var
það fyrsta stórmótið, sem Sigurð-
ur vann. Önnur mót síðastliðins
vetrar vann Haraldur Kornelíus-
son. Báðir þessir kappar verða
meðal þátttakenda I mótinu á
morgun, og verður gaman að sjá,
hvorum vegnar betur.
Mótið á morgun hefst klukkan
14.00 og verður leikið í einliðaleik
karla og kvenna. Þeir, sem tapa
ieikjum sínum í fyrstu umferð
karlaflokksins, halda áfram í sér-
stökum flokki.
Aðalfundur KRR
AÐALFUNDUR Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur verður haldinn
laugardaginn þriðja nóvember
næstkomandi, á Hótel Loftleið-
um. Fundurinn hefst klukkan 13,
og fundarefni er venjuleg aðal-
fundarstörf.
VALUR
heppni Kristinn Björnsson gott
mark. Óskar Tómasson gaf góða
sendingu fram völlinn, Kristinn
var með á nótunum, komst á
auðan sjó og skoraði framhjá út-
hlaupandi markverðinum. 3:0 og
sigurinn blasti við.
Það hefði þó engan veginn
verið sanngjarnt að tsland hefði
unnið leikinn með svo miklum
mun og á 22. mfnútu hálfleiksins
kom Kilkelly Irunum á blað með
góðu marki. A 30. mínútu opnað-
ist vörn Islendingana illa og
Langan var ekki í vandræðum
með að breyta stöðunni í 3:2. Það,
sem eftir lifði leiksins, sóttu Ir-
arnir en vel studdir af áhorf-
endum létu piltarnir okkar aldrei
bilbug á sér finna og unnu verð-
skuldað 3:2.
Aðeins tveir af þeim leik-
mönnum, sem voru í Faxaflóa-
hópnum fræga árið 1971, eru nú
leikmenn unglingalandsliðsins.
Janus Guðlaugsson, og Ólafur
Magnússon. Janus átti stórgóðan
leik að þessu sinni og frammi-
staða ungl.landsliðsins í leikjun-
um við Ira er honum að þakka
öðrum leikmönnum frekar.
Ölafur sýndi öryggi síðast í
leiknum og greip þá mjög vel inn
í. Hann verður á engan hátt sak-
aður um mörk þau, sem Iiðið fékk
á sig í þessum leik. Bakvörðurinn
Guðjón Þórðarson af Akranesi
sýndi góðan leik og sömu-
leiðis félagi hans af Skaganum
Ami Sveinsson á miðsvæðinu. I
framlínunni bar mest á Kristni
Björnssyni og Óskari Tómassyni,
Fyrsta
markid
Janus Guðlaugsson skorar
fyrsta mark leiksins við Ira.
Hinn markaskorari unglinga-
landsliðsins var Kristinn
Björnsson, númer 9 á mynd-
inni, sem K. Ben. tók.
báðir tveit mjög efnilegir leil
menn.
Nú er bara að halda þessur
hópi saman, ekki aðeins með leil
ina í Svíþjóð næsta vor í hug
heldur einnig vegna þess, a
öflugt unglingastarf er grunnur
inn að sterkara landsliði fullorf
inna.
Sigurður Haraldsson.
AÐALFUNDUR badmintondeild-
ar Vals verður haldinn í Félags-
heimili Vals, fimmtudaginn 1.
nóvember, og hefst kl. 20.30.
„Stóru nöfnin eru
ekki aðalatriðið”
GLEÐI fslenzku ungl ingalands-
liðspiltanna var mikil, er dóm-
arinn flautaði leikinn við Ir-
land af I fyrrakvöld. Þeir hopp-
uðu hæð sfna í loft upp af kæti
og stríðsóp þeirra voru lang-
dregin. Sennilega hefur eng-
inn fagnað eins innilega og fyr-
irliðinn Janus Guðlaugsson,
enda hafði hann unnið vel að
sigri liðs sfns. Janus hefur nú
leikið 10 unglingalandsleiki, og
þessi verður honum örugglega
lengi minnisstæður. Eftir lcik-
inn hittum við Janus að máli,
og sagði hann m.a.
— Það er í rauninni alveg
furðulegt, að við skulum hafa
náð þessum árangri. Við lend-
um á móti sterkum atvinnu-
mönnum, og trarnir hafa
örugglega hugsað um Eskimóa,
þegar þeir fréttu, að mótherj-
inn I undankcppninni væri Is-
land. Islenzka unglingalands-
liðið hefur ekki æft saman
lengi, og fyrsti leikur þess var á
móti Færeyingum I lok ágúst-
mánaðar. Sfðan hefur liðið æft
af krafti og samhugurinn hefur
öðru fremur fleytt okkur áfram
f úrslitakeppni unglingalands-
liða Evrópu. Það sannaðist vel I
leikjunum við tra, að það er
ekki aðalatriðið að hafa stór
nöfn og fræga kappa í liðinu,
meira virði er, að leikmenn
taki verkefni sitt alvarlega og
vinni saman.
Góður vilji hefði þó ekki
verið nægilegt veganesti, mikið
og fórnfúst starf unglinga-
nefndarinnar er þungt á met-
unum og henni eru unglinga-
landsliðsmennirnir þakklátir.
— -Unglinganefndin með Ama
Agústsson í broddi fylkingar,
þjálfararnir Úlafur Danivals-
son og Albert Eymundsson,
nuddarinn Sigurður Steindórs-
son, hvatning Alberts
Guðmundssonar fyrir leikinn
og hvétjandi áhorfendur í
leiknum við Ira hjálpuðu okk-
ur mikið, segir Janus. Nú er
það okkar að standa okkur f
úrslitakeppninni, þó svo að
verkefnin bar verði erfið.