Morgunblaðið - 27.10.1973, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1973 31
| IÞRdTTAFRETTIR MORGUNBLABSII N$ 1
1
Vináttuleikurinn
varð að slagsmálum
LANDSLIÐSMENNIRNIR I
handknattleik eru nú komnir
heim úr sögulegri Italíuferð. Eins
og fram hefur komið í fréttum
varð ekkert af leik þeim í heims-
meistarakeppninni, sem fram átti
að fara í Rómaborg á þriðju-
daginn, og orsökin var sú, að
Itölunum hafði láðst að boða
dómara á leikinn. I staðinn léku
landsliðsmennirnir „vináttuleik"
við Itali og lauk honum með sigri
Islands 25:16.
Sá leikur varð allsögulegur, þvi
Itölunum tókst heldur ekki að
útvega dómara á þann leik, og
varð endirinn sá, að Jón Erlends-
son formaður landsliðsnefndar
HSl dæmdi leikinn með ítölskum
dómara. Upphaflega átti að leika
þennan vináttuleik til að þeir
áhorfendur, sem ætlað höfðu að
sjá HM-leikinn, þyrftu ekki að
snúa heim aftur án þess að sjá
leik. Leikurinn verður ekki skráð-
ur sem opinber landsleikur
þjóðanna, frekar var litið á hann
sem æfingu hjá islenzka lands-
liðinu.
Italirnir, jafnt leikmenn sem
áhorfendur, tóku leik þennan þó
greinilega mjög alvarlega.
Ahorfendur púðuðu á íslenzku
leikmennina, og ítölsku leik-
mennirnir spiluðu mjög gróft,
varð leikurinn því í rauninni leik-
leysa. 1 hálfleik var staðan 15:6
fyrir Island, en í siðari hálfleikn-
um hugsuðu okkar menn meira
um að sleppa án meiðsla úr slags-
málunum en að vinna leikinn með
miklum mun. Lokatölur urðu
25:16, og skoraði Einar Magnús-
son átta mörk Islands.
Sagan er þó ekki öll sögð með
þessu og mistök ítala ekki
upptalin. Að „vináttuleiknum"
loknum sendu ítalskar fréttastof-
ur út fregn um, að Island hefði
unnið Italíu 25:16 í heims-
meistarakeppninni í handknatt-
leik!
HANDKNATTLEIKSSAMRAND
Islands hefur þegar mótmælt
framkvæmd ttalanna í sambandi
við HM-leikinn, sem Islendingar
áttu að leika í vikunni. Næsta
skref HSI verður svo að senda
Alþjóðahandknattleikssamband-
inu, IHF, skýrslu um þetta mál og
kröfur HSI. Sagði Jón Erlendsson
formaður landsliðsnefndar f við-
NOKKRIR leikir fóru fram f
Reykjanesmótinu f handknatt-
leik um síðustu helgi. 1 meistara-
flokki tókst Gróttu að ná jafntefli
við FH, 23:23, í hálfleik var
staðan 13:11 fyrir FH.
I FH-liðið vantaði Viðar
Símonarson og Auðun Öskarsson,
en hjá Gróttu þá Áma Indriðason
og Finnboga Ölafsson, tvo af
beztu leikmönnum liðsins. Gróttu-
liðið virðist vera f mikilli f ramför,
og koma þeirra Björns Péturs-
sonar, Atla Héðinssonar og ívars
Gissurarsonar styrkir liðið mikið.
Þórarinn Ragnarsson meistara-
flokksmaður FH í handknattleik
hefur nú tekið við þjálfun Gróttu-
manna og fær það erfiða verkefni
að koma liðinu upp i 1. deild, en
liðið hefur staðið á þröskuldi
deildarinnar undanfarin ár.
Aðrir leikir í meistaraflokki
Reykjanesmótsins um síðustu
helgi fóru þannig, að Haukar
unnu IBK 29:15, Afturelding
vann Víði 31:21 og Breiðablik
vann Stjörnuna.
Grótta er nú komin í úrslit i 1.
flokki á móti FH og, ef Gróttu-
Monzon
hættir
keppni
HEIMSMEISTARINN í hnefa-
leikum milliþungavigtar, Argen-
tinu maðurinn Carlos Monzon,
hefur ákveðið að keppa aðeins
einu sinni enn. 8. desember n.k.
mun hann mæta kúbanska heims-
meistaranum í veltivigt, José
Napoles, í hringnum i París.
Carlos Monzon, sem nú er 31
árs, mun fá um 250 þúsund
dollara fyrir leik þennan. Hann
vann titil sinn fyrst árið 1970, er
hann sigraði þáverandi heims-
meistara, Italann Nino
Benvenuti. Síðan hefur Monzon
varið titil sinn átta sinnum,
síðaSta gegn Frakkanum Claude
Bouttierí París, 29. sept. s.I.
Þórarinn Ragnarsson þjálfar
Gróttu I vetur
mönnum tækist að sigra í úrslita-
leiknum.yrði það fyrsti mótssigur
Gróttumanna.
Á morgun fara fram niu leikir í
Reykjanesmótinu, hefjast leik-
irnir í yngri flokkunum klukkan
13.00. Fjórir leikir verða í
meistaraflokki og hefst fyrsti
leikurinn i mfl. klukkan 17.10, þá
leika Haukar — Stjarnan og
Breiðablik — IBK i a-riðli og
Afturelding — Grótta og FH-
Víðir í b-riðli.
Stokkið í
Höllinni
KR gengst fyrir innanfélagsmóti i
stangarstökki í Laugardals-
höllinni í dag, og hefst keppnin
klukkan 13.30.
FYLKIlP
AÐALFUNDUR Knattspyrnu-
deildar Fylkis verður haldinn
næstkomandi þriðjudag í sam-
komusal Árbæjarskóla, og hefst
fundurinn klukkan 20. Fundar-
efni verður venjuleg aðalfundar-
störf.
tali við Morgunblaðið i gær, að
greinilegt væri, að italir væru
ekki færir um að sjá um leiki i
heimsmeistarakeppni, og þvi yrði
það krafa HSÍ, að þeir yrðu
dæmdir úr keppninni. Þeirri
kröfu yrði fylgt eftir af einurð og
festu og ekkert til sparað.
Lennart Widmark formaður
skipulagsnefndar IHF sagði f við-
tali við Morgunblaðið I fyrradag,
að hans skoðun væri sú, að dæma
bæri Italina úr keppninni, fram-
koma þeirra væri hneyksli. Sagði
Widmark, að mál þetta yrði tekið
fyrir af stjórn IHF, en þegar
hefði verið ákveðið að fresta leik
ttala og Frakka, sem fram átti að
fara um helgina.
Myndin er tekin í leik KR og IR á síðasta vetri og sýnir Kristinn
Stefánsson og Agnar Friðriksson í baráttu undir körfunni.
Fjögur beztu körfubolta-
liðin í eldlínunni á morgun
fram í Iþróttahöllinni annað
TEKST KR-ingum að sigra i
Reykjavíkurmótinu í körfubolta
annað árið i röð, eða verða tvö lið
eða þrjú jöfn að stigum eftir leiki
mótsins? Þessari spurningu fæst
svarað annað kvöld, en þá fara
síðustu leikir mótsins fram. Valur
leikur fyrst gegn Ármanni, og síð-
an leika KR og IR. KR-ingar
standa bezt að víei. hafa ekki tap-
að leik, en bæði Valur og ÍR hafa
tapað einum leik. Sigri KR þvf IR
annað kvöld, vinna þeir mótið, en
vinni ÍR verða þeir jafnir KR-ing
um. Þá myndi Valur einnig fá
möeuleika, þ.e. ef hann vinnur
Ármann.
Það er alveg óhætt að reikna
með tveimur höfkuleikjum að
þessu sinni. Liðin fjögur eru öll
mjög áþekk að styrkleika, og
örugglega fjögur þau beztu f ísl.
körfubolta í dag. Leikirnir fara
HVIDOVRE hefur nú náð þriggja
stiga, dýrmætri forystu í hinni
jöfnu dönsku 1. deildar keppni f
knattspyrnu. t 19. umferð sigraði
liðið Næstved með tveimur
mörkum gegn engu. Enn hafa öll
liðin, nema eitt, fræðilegan
möguleika á að hlióta Danmerk-
urmeistaratitilinn, en langt er
sfðan eins jöfn og hörð keppni
hefur verið í dönsku 1. deildinni
og nú.
Staðan að loknum 19 umferðum
var þessi:
kvöld kl. 20.
KR 3 3 0 209:191 6 stig
Valur 3 2 1 230:208 4 stig
IR 3 2 1 235:208 4 stig
A 3 1 2 215:228 2 stig
IS 4 0 4 286:327 0 stig
Þrír
kvennaleikir
EKKI verður mikið um að vera í
Reykjavíkurmótinu í handknatt-
leik um þessa helgi, en þó fara
fram þrír leikir i meistaraflokki
kvenna í dag. Víkingur leikur við
Ármann, KR mætir Fram og
Valur leikur gegn IR. Fyrsti leik-
urinn hefst klukkan 15.30.
Hvidovre 19 9 6 4 44—28 24
Randers 19 8 5 6 29—24 21
KB 19 8 5 6 35—38 21
Vejle 19 9 2 8 37—29 20
Köge 19 8 3 8 26—23 19
B 1901 19 8 3 8 40—47 19
AAB f 19 6 6 7 26—24 18
B 1903 19 6 6 7 22—24 18
Næstved 19 7 4 8 32—35 18
AB 19 7 4 8 31—34 18
Frem 19 5 7 7 34—40 17
AGF 19 5 5 9 23—33 15
Efstu liðin i 2. deild voru eftir
19 umferðir: Holbæk með 27 stig
og Slagelse og B 93 með21 stig.
Stigahæstir:
Kristinn Jörundsson IR 75 stig
Þórir Magnússon Val 69 stig
Bjarni Gunnar IS 69 stig
Birgir Guðbjörnsson KR 66 stig
Albert Guðmundsson IS 65 stig
Símon Ólafsson A 63 stig
Bflar til sölu
sími 14411
Opið í dag 10 — 4 e.h.
VOLVO 142 '73
FIAT 127 73
FIAT 128 '71 og '72
VOLKSWAGEN 1300 '72
COFSTINA 1 600 '68
MOSKVICH '68 og '72
CHRVSLER 160 '71
OPEL KADETT '66
RENAULT R4 '65
MERC. BENZ 220 '64
IMýinnfluttir bilar:
MUSTANG FASTB. '70
CHEVROLET MALIB. '70
PONTIAC FIREBIRD '70
FORD TORINO '71 .
g|» ,0< BÍLLINN bilasala
^ > ’ HVERFKftfiTU 1A -cím; iaai
Danska knattspyrnan
Næsta skref HSÍ
Spenna færist í
Reykjanesmótið