Morgunblaðið - 24.11.1973, Page 2

Morgunblaðið - 24.11.1973, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1973 RÁÐUNEYTI OSK- AR RANNSÓKNAR VEGNA BSAB FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur sent yfirsakadómaranum I Reykjavfk bréf, þar sem þess er óskað, að hann hlutist til um, að rannsókn fari fram á meintu mis- ferli varðandi bókhald og reikn- inga Byggingasamvinnufélags at- vinnubifreiðarstjóra, sem nokkr- ir félagsmenn telja, að stjórn fé- lagsins hafi gert sig seka um. Samkvæmt upplýsingum Hall- grims Dalberg ráðuneytisstjóra, er í bréfinu getið um fund þann, sem haldinn var fyrir viku síðan í ráðuneytinu bæði með fram- kvæmdastjóra félagsins og nokkr- um félagsmönnum, svo og lög- fræðingi þeirra. Ilafi áburður um slíkt meint misferli komið fram á fundinum og telji ráðuneytið þörf á að fá úr þvf skorið, hvort þessi áburður eigi við rök að styðjast eða ekki. — Sagði Hallgrímur, að ef áburðurinn ætti við rök að styðjast, þá væri sakadóms að f jalla um það misferli. Hallgrimur kvað ráðuneytið halda áfram athugun sinni á þessu máli. Á áðurnefndum fundi hefðu báðir aðilar, framkvæmda- stjórinn og félagsmenn, haft margt að gagnrýna og mikið hefði borið á milli. Málið væri því marg- þætt og tæki tíma að athuga það. Þannig leit Dakota-vél varnarliðsins út eftir að hafa nauðlent á Sólheimasandi á miðvikudag. Engan af áhöfn vélarinnarsakaði, en vélin ertalsvert skemmd. Skorið sameiginlega úr vafaatrið- um segir brezki sendiherrann Landnýting - nýtt rit frá Landvernd HVERNIG túlka Bretar það ákvæði bráðabirgðasamkomulags- ins, er lýtur að sviptingu veiði- heimildar brezkra togara fyrir brot á samkomulaginu — mega þeir senda nýjan togara á íslands- mið í stað þess, sem strikaður var út af skrá, eða fækkar togurum á Fyrirlestur- inn um Arn ljót í dag Dr. Gylfi Þ. Gfslason flytur í dag erindi um Arnljót Ólafsson, sem nefndur hefur verið fyrsti íslenzki hag- fræðingurinn. Erindið er í til- efni af 150 ára fæðingarafmæli Arnljóts. Róbert Arnfinnsson mun lesa upp minningarljóð um Arnljót eftir Matthías Jochumsson. Fyrirlesturinn verður í hátíðarsal háskólans og hefst kl. 17 síðdegis. Tveir bátar Einars seldu í Þýzkalandi TVEIR BATAR Einars Sigurðssonar seldu fisk í Þýzkalandi í gær. Gunnar Jónsson VE seldi í Bremer- haven 64.8 lestir fyrir 106.500 mörk eða 3.4 millj. Meðal- verðið er kr. 52.30. 900 kg. af afla bátsins voru ónýt. Alsey VE seldi í Cuxhaven 53,4 lestir fyrir 77.620 mörk eða 2.5 millj. Meðalverðið var kr. 46.19. 7.2 lestir af afla báts- ins voru ónýtar. Stolin bifreið ófundin RAUÐRI Moskvich-bifreið, árgerð 1966, var stolið aðfarar- nótt sl. miðvikudags, þar sem hún stóð við Miðtún. Bifreiðin, R-5939, hefur enn ekki f undizt. Þeir, sem kynnu að geta gefið upplýsingar um ferðir bifreiðarinnar eða hvar hana er nú að finna, eru beðnir að láta lögregluna vita. Sjálfboðaliðar SJALFBóÐALIÐA vantar við byggingu nýja Sjálfstæðis- hússins í dag. laueardnu. kl. 13.-18. Sjálfstæðisfólk! Leggið hónd á plógínn. Mætiðí dag og takið með ykkur hamra. skránni eftir því sem fleiri ger- ast brotlegir? Morgunblaðið bar þetta undir John McKenzie, sendiherra Bretlands á tslandi. Sendiherra taldi, að afstaða sinnar stjórnar til þessa máls væri afar einföld. Ríkisstjórnir beggja landanna hefðu nýverið' gert með sér samning um lausn á landhelgisdeilunni í helztu grundvallaratriðum, en eins og jafnan í slíkum samningum hefðu ekki verið tök á þvf að fara ná- kvæmlega út í einstök atriði hans. Rfkisstjórnirnar yrðu síðan að Bygginga- ráðstefna á Akureyri NÚ stendur yfir á Akureyri ráð- stefna um byggingaframkvæmdir að vetrarlagi. Er hún haldin á vegum Húsnæðismálastofnunar rfkisins, Iðnþróunarstofnunar Is- lands og Rannsóknarstofu bygg- ingariðnaðarins f samvinnu við Byggingameistarafélag Akureyr- ar. Á ráðstefnu þessari verður fjallað um þau miklu og margvís- legu vandamál, sem bygginga- framkvæmdir að vetrarlagi eiga við að strfða — einkum norðan- lands og vestan, og leitað lausna á þeim, svo að bæta megi aðstæður og styrkja þróun samfelldra bygg- ingaframkvæmda allt árið. koma sér saman um túlkun þess- ara atriða, jafnóðum og þau kæmu upp. Varðandi Northern Sky-málið benti hann á, að strax og mála- vextir lágu fyrir, ásamt stað- festingu brezka eftirlitsskipsins á þeim hefðitogaranum veriðskip að að halda heim á leið. „Okkur finnst, að skipstjóri togarans eigi að fá tækifæri til að skýra mál sitt,“ sagði sendiherrann, „og að lokinni rannsókn er það ríkis- stjórnanna beggja að ákveðahvort skipið skuli strikað af skrá eða ekki. Það er fyrst þá, sem mér finnst spurningin um það, hvort nýr togari skuli settur inn á skrána eða ekki, koma til álita. Það er alls ekki ljóst — að minnsta kosti er mér það ekki ljóst — í hvaða tilvikum það getur komið til greina að setja nýjan togara inn á skrána, það mál verða ríkisstjórnir beggja land- anna að leysa f sameiningu." Ekið á kyrr- stæða bifreið Á TlMABILINU frá kvöldi sl. miðvikudags til eftirmiðdags á föstudag var ekið utan i gráa Mercedes Bens-fólksbifreið, H- 1412, á stæði við Ilraunbæ 60 og vinstra afturbretti hennar rispað og dældað. Þeir, sem kynnu að geta gefið upplýsingar um ákeyrsluna, eru beðnir að láta lögregluna vita. LANDVERND hefur sent frá sér bókina „Landnýting“. og er hún í þriðja bókin I flokknum „Rit Landverndar". I þessari bók eru prentuð erindi sem flutt voru á landnýtingarráðstefnu Land- verndar og fleiri samtaka og stofnana 6. og 7. aprfl I ár. Erindin, sem eru 22 talsins, f jalla Landnýtíng um hina ýmsu þætti landnýting- ar, — t.d. hverjir ásælast land, hvar og hvers vegna, hvernig megi koma f veg fyrir árekstra í þessum efnum landinu sjálfu til góðs. Á kápusíðu bókarinnar seg- ir m.a. um þetta: „Sjónarmið um- hverfisverndar, efnahagsþróunar og eignarréttar þarf að samræma til að tryggja farsæla búsetu I landinu um langan aldur.“ Fyrri bækur Landverndar í þessum flokki eru „Mengun“, sem í eru erindi flutt á ráðstefnu um mengun árið 1971, og „Gróð- urvernd" eftir Ingva Þorsteins- son, sem út kom í fyrra. Það kom m.a. fram á blaðamannafundi með þeim Ilákoni Guðmundssyni, Ungir hægri menn á Norðurlöndum vilja 200 mílna efnahagslögsögu DAGANA 8.—9. nóvembers.l. var haldinn í Osló formannafundur Sambands ungra hægri manna á Norðurlöndunum (N.U.U.). A fundinum voru rædd mörg þeirra mála, sem snerta Norðurlöndin sameiginlega, en það mál, sem hvað mest bar á góma var 200 mflna efnahagslögsaga. í fréttatilkynningu frá fundin- um segir m.a.: N.U.U. skorar á ríkisstjórnir Norðurlandanna, að berjast fyrir því, að 200 sjómílna efnahagslögsága verði viður- Treg veiði en góðar sölnr FJÖGUR skip seldu sfld f Hirts- hals í gærmorgun og komst með- alverðið í tæpar 40 kr. Sfldveiði í Norðursjónum hefur verið mjög treg að undanförnu, og þvf hafa margir bátanna gefizt upp við veiðar og haldið heim til ís- lands. Á miðvikudagsnóttina var sæmileg veiði og sömuleiðis fengu nokkur skip síld á fimmtu- dagsnóttina, en nú er bræla á miðunum við Hjaltland. Skipin, sem seldu i gær, eru: Tálknfirðingur BA 1806 kassa fyrir 2.5 millj., Ölafur Sigurðsson AK 445 kassa fyrir 700 þús. kr., Albert GK 386 kassa fyrir 546 þús. kr. og Grindvíkingur GK 1403 kassa fyrir 1.8 millj. I dag eiga sjö skip að selja síld í Hirtshals og eru þau þessi: Víðir NK með 800 kassa, Faxi GK með 600 kassa, Fífill GK með 1100 kassa, Jón Finnsson GK með 1400 kassa, Náttfari ÞII með 1300 kassa, Svanur RE með 600 kassa og Ilöfrungur 3. AK með 1200 kassa. kennd á Hafréttarráðstefnunni 1974. Þess skal krafizt, að hvert ríki ráði náttúruauðlindum, hvort sem þær eru lifandi verur í sjón- um eða náttúruauðlindir á hafs- botninum, allt að 200 mílur frá ströndinni. Fundurinn taldi, að þó að 200 sjómílna efnahagslögsaga yrði samþykkt, þá væri vandamálin um nýtingu auðæfa hafsins óleyst. Nýting fiskstofna hafsins yrði að vera undir alþjóðlegri stjórn, til að koma í veg fyrir rányrkju einstakra ríkja. Sameinuðu þjóðirnar ættu að hafa allt eftirlit með veiðum og um leið vald til að koma í veg fyrir rányrkju. I ályktun N.U.U. segir einnig, að ferðafrelsi á hafinu megi ekki skerða, þrátt fyrir að 200 mílna efnahagslögsaga verði að veru- leika. Enda eigi að miða 200 mílna efnahagslögsöguna við nýtingu auðæfa hafsins og umráðarétt yfir þeim, en ekki siglingum. formanni Landverndar, og Ilauki Hafstað, framkvæmdastjóra sam- takanna, að þessi rit hafa mælzt vel fyrir, og þannig er t.d. „Gróðurvernd“ kennd víða í landsprófsdeildum f Reykjavík. Bækur þessar eru allar í aðgengi- legu formi, með fjölda skýringar- mynda, og er verði þeirra mjög í hóf stillt. Tilgangurinn með út- gáfunni er að auðvelda áhuga- fólki um umhverfismál að kynna sér hin ýmsu viðhorf, sem á döf- inni eru í þessum efnum hverju sinni. En auk fræðslustarfs síns um umhverfismál, t.d. með bókum eins og þessum, sinnir Landvernd markvisst öðru höfuðverkefni sínu, sem er landgræðsla, og sögðu forráðamenn samtakanna, að þátttaka alls almennings hefði verið virt í því starfi. Sögðu þeir Haukur og Hákon, að nú færu fleiri viðfangsefni að koma til sögunnar fyrir samtökin, og verða þau einmitt reifuð dálít- ið á aðalfundi Landverndar, sem haldinn er nú um helgina. Þar mun Sigurður Magnússon, for- stjóri Ferðaskrifstofu rfkisins, ræða um ferðamál, en það efni verður stöðugt tengdara náttúru- vernd. Þá ræðir Hjörtleifur Gutt- ormsson um samtök áhugamanna um náttúruvernd, og hlutverk Landverndar, en þeir Land- verndarmenn sögðu það mjög brýnt að samstarf allra félagssam- taka og stofnana, sem að þessum málum vinna verði nánari. Auk þessara umræðuefna á aðalfund- inum má nefna, að Stefán Sigfús- Framhald á bls. 18 Drukknaði HER birtist mynd af Sæmundi Helgasyni, 24 ára Reykvíkingi, sem féll fyrir borð á Þ<rmóði goða og drukknaði. Sæmundur var nýútskrifaður úr Stýrimanna- skólanum og brá sér í þessa veiði- ferð meðan hann beið eftir skips- rúmi sem stýrimaður á nýjum báti, sem ókominn er til landsins. Sæmundur heitinn var sonur hjónanna Valnýjar Bárðardóttur og Helga Sæmundssonar ritstjóra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.