Morgunblaðið - 24.11.1973, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÖVEMBER 1973
Dr. Dixie Lee Ray og Magnús Kjartans-
son á fundi með fréttamönnum eftir
undirritun samningsins í Ráðherra-
bústaðnum.
af rekstri jarðgufuafl-
stöðvanna á Geysers jarð-
hitasvæðum í Kaliforníu, en
þar er notuð þurr gufa,
2. Rannsóknir á sviði nýjunga í
jarðhitaleitartækni og á nýj-
um aðferðum til að meta
orkuforða jarðhitasvæða.
3. Athuganir á svonefndri
óbeinni hitun með jarðhita í
kerfum með tvöfaldri hita-
rás, og þróun þessarar
tækni.
4. Mat á hagnýtingu jarðhita-
kerfa til raforkuvinnslu.
5. Rannsóknir á möguleikum
þess að vinna orku úr heitu,
þurru bergi.
6. Framleiðslu á fersku vatni
úr söltu, heitu vatni.
7. Athuganir á ávinningi og
kostnaði við mismunandi
aðferðir til hagnýtingar
jarðhitaorku og kerfis-
greiningu á þessum aðferð-
um.
Eins og þessi upptalning ber
með sér, er þess að vænta, að
upplýsingaskipti, samkvæmt
samningi þessum, geti orðið
okkur mjög gagnleg. Til dæmis
má taka 7. liðinn hér að ofan,
framleiðslu ferskvatns úr söltu,
heitu vatni. Þar er í rauninni
um að ræða sams konar fram-
leiðslu og i þeirri saltverk-
smiðju, sem talað er um að
reisa á Reykjanesi. Munurinn
er sá, að í Bandaríkjunum er
það ferska vatnið, sem sótzt er
eftir, en saltinu er fleygt.
Þróun nýrrar jarðhitaleitar-
tækni og endurbætur á aðferð-
um til að meta orkuforða jarð-
hitasvæða eru einnig mjög
mikilvæg atriði fyrir okkur.
Þess er að vænta, að í kjölfar
mjög aukinnar áherzlu á jarð-
hitarannsóknir í Bandaríkjun-
um og víðar fari miklar fram-
farir á þessum sviðum í næstu
framtíð.
Eftir að samningurinn hafði
verið undirritaður, að þeim
Magnúsi Kjartanssyni iðnaðar-
ráðherra og Fredrick Irving
sendiherra Bandaríkjanna hér
á landi viðstöddum, svöruðu
ráðherrann og dr. Ray nokkr-
um spurningum fréttamanna.
Framhald á bls. 18
um möguleika á samvinnu á
þessu sviði. Tók ráðherra þessu
vel og í júlí kom hingað sendi-
nefnd bandarískra jarðhitasér-
fræðinga til frekari viðræðna
og er samningurinn nú undir-
ritaður í framhaldi af þessum
viðræðum.
Samningurinn fjallar um
gagnkvæm skipti á upplýsing-
um á sviði jarðhitafræða og
jarðhitanýtingar. Gert er ráð
fyrir beinum samskiptum sér-
fræðinga hvors landstil þess að
stuðla að hugmynda- og gagna
skiptum og örari framþróun í
nýtingu jarðhita.
Samningurinn er gerður til
fimm ára. Framkvæmd hans er
háð fjárveitingum hvors aðila
um sig til þeirra mála, er hann
fjallar um. Hann er uppsegjan-
legur með uppsagnarbréfi af
hálfu hvors aðila um sig með
sex mánaða fyrirvara. Það, sem
ísland mun einkum leggja af
mörkum í samvinnu þessari,
eru upplýsingarum:
1. Reynslu í hönnun og rekstri
mannvirkja, er nýta jarðhita
til iðnaðar.
2. Vinnslu raforku úr jarðhita,
þar á meðal hönnun og
byggingu stöðva og rekstur
þeirra.
BANDARÍKIN: U pplýsingaskipti
um hagnýtingu jarðhita
Samningur undirritaður í gær
1 GÆR var undirritaður
samningur milli kjarnorku-
málanefndar Bandarfkjanna og
Orkustofnunar um upplýsinga-
skipti varðandi hagnýtingu
jarðhitaorku. Samninginn
undirritaði dr. Dixie Lee Ray
forstjóri kjarnorkumála-
nefndarinnar og Jakob
Björnsson af hálfu Orku-
stofnunar.
Á síðustu árum hefur áherzla
á jarðhitarannsóknir og jarð-
hitanýtingu í Bandarikjunum
mjög aukizt, og hefur
kjarnorkumálanefndin fengið
það verkefni að hafa yfir-
umsjón með þessum rannsókn-
um. Nefndin hefur leitað eftir
samvinnu við aðila víða um
heim, þar sem jarðhita-
rannsóknir eru stundaðar, þar
á meðal við islenzka aðila. I maf
sl. kom hingað til lands Gerald
JTohnson forstöðumaður
þessarar deildar innan kjarn-
orkumálanefndarinnar og
ræddi þá m.a. við Magnús
Kjartansson iðnaðarráðherra
3. Jarðeðlisfræðilegar rann-
sóknir á jarðhitasvæð-
um; frágang borhola,
aðgerðir til að auka afköst
borhola og notkun djúp-
dæla.
Það, sem ísland mun fá í sinn
hlut samkvæmt samningnum,
eru upplýsingar um:
1. Reynslu, sem fengizt hefur
Beztur í heimí
— sögðu þýzku sjónvarpsáhorf-
endurnir um Geir Hallsteinsson
EIN stærsta sjónvarpsstöð Vest-
ur-Þýzkalands, ARD sendi sl.
mánudag út stundarf jórðungs-
langan þátt um Geir Hallsteins-
son handknattleiksmann. Þáttur-
inn, sem þarna ræðir um, er
geysivinsæll meðal Þjóðverja og
munu margar milljónir manna
jafnan fylgjast með honum. Að-
eins þekktustu íþróttamenn
Þýzkalands hafa komið til um-
ræðu íþætti þessum.
Uppistaðan í þættinum voru
myndir frá sfðasta deildarleik
Göppingen, sem var við Leuters-
hausen. í þeim leik gerði Geir
Hallsteinsson 5 mörk og átti
frábæran leik. ÖIl mörkin, sem
Geir skoraði í leiknum, voru sýnd
f „slow motion“, svo og línusend-
ingar hans og hreyfingar, er hann
var að komast framhjá varnar-
mönnunum.
Eftir þá sýningu tóku sjón-
varpsmenn viðtöl við fólk, sem
fylgzt hafði með leiknum, og
spurði það um Hallsteinsson.
Svörin voru á eina lund: „Islend-
ingurinn er langbezti leikmaður
Göppingen." Sumir tóku svo
djúpt í árinni að segja að Geir
væri bezti handknattleiksmaður
heimsins. I viðtölum við ieik-
menn Leutershausen kom fram,
að þeir hefðu ekki kynnzt öðrum
eins hæfileikum hjá íþrótta-
manni og Geir byggi yfir. „Hann
er hreint stórkostlegur og óvið-
ráðanlegur," sögðu þeir, — „hann
er undrabarn í fþróttinni.“
Morgunblaðinu tókst að ná sam-
bandi við Geir í gær. Hann sagðist
hafa séð þátt þennan en ekkert
vitað um það áður, að hann hefði
veriðgerður, né heldur að sérstök
myndavél hefði fylgt sér allan
Ieikinn gegn Leutershausen. —
Égvar aldeilis hissa áöllu hólinu,
sem ég fékk, sagði Geir, — en nú
er bara um að gera fyrir mig að
halda ró minni, —og mfnu striki.
FÉ LAG SSKAPURINN Sam-
hjálp, sem hefur það að mark
miði að hjálpa fyrrverandi af-
brotamönnum og drykkju-
mönnum til nýs og betra lffs,
hélt almenna kynningarsam-
komu í Klúbbnum í fyrrakvöld.
Ekki þurftu þeir félagar að
kvarta yfir dræmri aðsókn
unga fólksins, þvf talið er, að
um 800 manns hafi komið á
samkomuna.
Einn félaganna í Samhjálp,
Þorvaldur Sigurðsson, sagði í
samtali við Mbl. í gær, að menn
í félagsskapnum, sent eru fyrr-
verandi drykkju- og afbrota-
menn, hefðu vitnað um eigin
reynslu og Georg Viðar hefði
stjórnað samkomunni af mikilli
prýði. Illjómsveit hvítasunnu-
manna hefði leikið og sungið
við góðar undirtektir. Einar
Gíslason safnaðarfulltrúi leiddi
fólk til bænar og mönnum,
gafst kostur á að frelsast, sem
margir gerðu.
Þorvaldur sagði, að Samhjálp
hefði nú fengið nýtt simanúm-
er, 11000 og einnig hefði félags-
skapurinn fengið gírónúmerið
11600.
Myndina tók Ljósm. Mbl. Sv.
Þorm. í Klúbbnum.
Glæsileg kvöldstund hjá Samhjálp