Morgunblaðið - 24.11.1973, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NOVEMBER 1973
7
Sadat stendur einn
EFTIR
IRENE BEESON
TTl^Pf
V>--v - v /
THE OBSERVER
Sadat og Kissinger ræðast viS í Kafró,
ÞETTA var dýrðarstund í lífi
Anwars Sadats forseta. Mikill
mannfjöldi hyllti hann með
hrópum og köllum, er hann ók um
Kaíró til að ávarpa þjöðþingið við
opnun þess. Það gerðist 16.
október, 10 dögum eftir að
eg.vpzki forsetinn hefði heimilað
hernum að ráðast vfir Su ezskurð.
Þessi mynd minnti helzt á það,
þegar Gamal Abdel Nasser var á
hátindi vinsælda sinna. Þó var
þar um grundvallarmismun að
ræða. Nasser, þessi ungi
b.vltingarsinnaði leiðtogi, hafði
verið hylltur og virtur alla tíð frá
því hann tók við völdum í Egypta-
landi. A fyrstu þremur forsetaár-
um sfnum hafði Sadat hvorki ver-
ið hylltur né dáður, jafnvel ekki
virtur. Egypzka þjóðin sneri við
honum baki vegna þess, að hann
virtist ófær um að efna loforð sitt
um að hefja „frelsisstríðið".
Þegar hann svo skvndilega varð
við sffelldum kröfum þjóðarinn-
ar, allt frá árinu 1967, um að fá að
berjast til að endurheimta virð-
ingu sína og landsins, varð hann
þjöðhetja.
Þegar Sadat samþykkti vopna-
hlé 22. október batt hann ekki
eingöngu enda á bardagana, held-
ur einnig á þá þjóðareiningu, sem
hann hafði sjálfur vakið. Seinni
ákvarðanir hans — óskýranleg al-
úð hans í garð Bandaríkjanna og
skyndileg endurupptaka stjórn-
málasambands við Washington;
einhliða ákvörðun hans um að
undirrita vopnahlé við israel sam-
kvæmt bandariskri forskrift —
vörpuðu ljósi á veikleika þessa
nýja dýrðarljóma, sem lék um
Sadat. Öánægjualda reið yfir
landið. Nú var tími til að berjast,
ekki sýna óvininum undanláts-
semi, sagði almennigsálitið.
Spennan jiikst áþreifanlega 9.
nóvember, þegar birting sex liða
samkomulagsins staðfesti grun-
inn um, að rikisstjórnin hefði
blekkt þjóðina með því að neita
því stöðugt, að Súezborg og þriðji
herinn egypzki væru einangruð
bak við umsátur Israela. Breytt-
istspennan í ákafa reiði, þeg-
ar fulltrúar ísraela komu
saman við „Kilometre 101“, vega-
merkið við þjóðveginn frá Kafró,
til samningaviðræðna — ekki svo
ýkjafjarri úthverfum höfuð-
borgarinnar. í opinberum
fréttum hafði jafnan verið gert
lítið úr sókn israela inn í Egypta-
land, og Sadat sjálfur lýst þvf vfir
að þar væri aðeins um smá-
vægilegar aðgerðir að ræða og
auðvelt að hrekja herlið israels á
brott. Fréttir um fundina við
Kilometre 101 voru fyrsta stað-
festingin, sem Egyptar fengu á
því, hve vel israelum hafði orðið
ágengt Eg>T)talandsmengin við
Súezskurðinn og á því. hve rangar
upplýsingar stjórnin hafði gefið
um gang styrjaldarinnar. Iietjan
Sadat riðar til falls. Völd hans
hanga nú i bláþræði, þjóðin vill
gefa honum tækifæri til að reyna
að leysa málin á sómasamlegan
hátt.
Ströng ritsköðun í Egyptalandi
kemur í veg fyrir, að gagnrýni á
stjórnina birtist i fjölmiðlum, en í
öðrum Arabaríkjum hafa komið
fram grunsemdir og vantraust í
garð Sadats, og skýrt hefur verið
frá ört minnkandi vinsældum
hans heima fyrir. Mörg blöð
Araba hafa gagnrýnt Sadat fyrir
að hafa, eins og blað eitt í Kuwait
orðar það; „Hvað eftir annað átt
forgöngu um að bæta samskiptin
við Bandaríkin f nafni allra
Araba, á meðan Bandaríkin halda
áfram að gefa israelum vopn, en
Aröbum aðeins loforð."
Iieilu borgarhverfin i Beirut
eru þakin veggspjöldum með
myndum af Nasser heitnum for-
seta og vígorðum hans: „Enga
uppgjöf, enga samninga, enga
viðurkenningu (á ísrael)."
„Einnig hafa flokkar vinstri
manna og kommúnista í Araba-
ríkjunum efnt til skyndifunda til
„kynna sér síðustu þróun mála".
Gaddafi ofursti, þjiiðhöfðingi í
Lýbfu, fór flugleiðis til Damaskus
og Bagdad, skömmu eftir vopna-
hléi var komið á, og var þá sagður
vera að reyna að sameina
óánægjuöflin meðal Sýrlendinga,
íraka og Palestínu-Araba til
áframhaldandi baráttu. í opnu
bréfi til Sadats gagnrýndi
Gaddafi egvpzka forsætisráðherr-
ann fyrir að taka einhliða ákvörð-
un um að hætta bardögum. „Við
börðumst til að endurheimta
landsvæðin, sem hertekin voru
1967. og nú höfum við fallizt á
vopnahlé án þess að frelsa þessi
landsvæði,41 segir Gaddafi í
bréfinu.
Gaddafi hefur ásamt stjórn
iraks ákveðið að mæta ekki til
fyrirhugaðrar ráðstefnu Araba-
leiðtoga i Algeirsborg. Segir
hann, að hlutverk þjóðhöfðingja
Arabarikjanna sé ekkert orðið.
Hafi ísraelar ekki dregið her-
sveitir sínar til baka að vopna-
hléslínunni frá 22. október fyrir
26. þessa mánaðar — annaðhvort
fyrir afskipti Bandaríkjanna eða
aðgerðir af hálfu Egypta —
breytist leiðtogaráðstefnan i Al-
geirsborg í rannsóknardóm til að
kanna aðdraganda Kilometre 101.
Núna er það Feisal konungur
Saudi-Arabíu, sem er áhrifamesti
leiðtogi Arabaog getur hann ef til
vill komið því til leiðar með oliu-
auði sínum, sem öðrum leið-
togum Araba tökst ekki að ná með
vopnavaldi. Feisal hefur einnig
beitt utanríkismálum sem vopni
til að fá Bandarfkin til að bre.vta
stefnu sinni varðandi deilur
Araba og ísraela. Saudi-Arabía
hefur aldrei tekið upp stjórn-
málasamband við Sovétríkin og er
talin allra Arabarikja mest and-
snúin kommúnisma. En Feisat
notaði tímann meðan dr.
Kissinger var í heimsókn hjá hon-
um til að senda fyrstu hamingju-
óskir sinar til stjórnar Sovétríkj-
anna í tilefni byltingarafmæl-
isins.
Sagt er nú, að Saudi-Arabía og
fleiri Arabaríkja séu að ihtiga að
taka upp stjörnmálasamband við
Sovétríkin. Sadat forseti stendur
einn — við Kilometre 101.
BÍLAVIÐGERÐIR Bílaverkstæðið Bjarg Bjargi við Dundlaugaveg, sími 38060. Tökum að okkur allar almennar bílaviðgerðir. Bílaverkst Bjarg Bjargi, s. 38060 PLYMOUTH DUSTER '72 Til sölu DUSTER 72 vel með farinn einkabill, ekinn 28 þús mil- ur, 6 cyl. bemskiptur. blár að lit. 2ja dyra. Upplýsingar í síma 23676
ÍBÚÐ ÓSKAST Háskólastúdent og sjúkraþjálfari óska eftir 2—3 herbergja íbúð sem fyrst, erum barnlaus Reglu- semi og skilvísum greiðslum heit- ið. Sími 1 4302 ÚRVALS SÚRMATUR Súrsaðir lundabaggar, hrútspung- ar, sviðasulta, svínasulta. Úrvals- hákarl, sild og reyktur rauðmagi. Harðfiskur, bringukollar. Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2. simi 35020
KVENFÉLAG ÓHÁÐA SAFNAÐARINS Basar félagsins verður laugardag 1 des. kl 2 í Kirkjubæ. LAND ROVER DIESIL 71 til sölu á hagstæðu verði Upp- lýsingar í sima 30131
SENDIBIFREIÐ — STÖÐVARPLÁSS Hanomag sendibifreið, árg 1967, 3,3 tonn til sölu Stöðvarpláss, gjaldmælir og talstöð fylgir Sími 83839 TOYOTA CARINA til sölu árg. '72. Ekinn 21 þús km. Útvarp, Stereo-segulband Bill i sérflokki Upplýsingar i síma 92-2341 í dag og á morgun.
TILSÖLU ER MERZEDES BENS 1518 með framdrifi. Burðarmagn á palli 8 700 kg. Upplýsingar i síma 31217. FORD CORSAIR '64. Til sölu Ford Corsair '64 i góðu lagi og útliti. Litur rauður Verð 160 þús. Útb eftir samkomulagi * Uppl. í sima 23676
HALLÓ HALLÓ Ég er 21 árs sænskur piltur og vantar tilfinnanlega herbergi á leigu. Ef einhver gæti hjálpað mér, vinsamlegast hringið í sima 24950 Eftir kl. 5. 3JA HERB. góð kjallaraíbúð í Hliðunum til leigu í 6 mánuði Fyrirfram- greiðsla Tilboð merkt 6 mán. — 4706 sendist Mbl fyrir miðviku- dagskvöld
ÍSLENZKAR MYNTIR: 1 eyrir — 5 — 10 -— 25 aurar og 2 krónur. Ca. 50 000 peningar. flestir „uncirculated" Sendið nafn yrðar til afgr. Mbl. fyrir 2. des. merkt ,.Góð fjár- festing — 3275" TILSÖLU NÝ Alveyler-spildæla 1700, 1308 lítra á mín. Vélaverkstæði J. Hinriksson, Skúlatúni 6, símar 23520, 26- 590, heimasími 35994.
FISKIBÁTUR Til sölu 51 tonna bátur með 240 ha GM vél Báturinn var endur- byggður 1970 Hagstæð greiðslu- kjör. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Keflavík. Símar 92-1 263 og 92-2376. TIL SÖLU Caterpillar-vél uppgerð 100 hest- öfl, 1 550 snúninga á min Vélaverkstæði J. Hinriksson, Skúlatúni 6. simar 23520 26590. heimasími 35994.
ÓSKA EFTIR 'T. |W o rmittblabib
3ja — 4ra herb íbúð í Keflavík eða Njarðvíkum Upplýsingar í síma 1 7927 eða’Keflavik. 2631
Villum taka á leigu
verzlunarhúsnæði 50—100 fm í Breiðholti. Tilboð
sendist Mbl. merkt ,,3276"
Kiarvaismálverk
frá 1932 stærð 53X68 cm Þeir sem hafa áhuga að
kaupa þessa mynd sendi nöfn sín og simanúmer til afgr.
Mbl. merkt „Þingvellir 32" fyrir næstkomandi mánaða-
mót.
Kúplings-
dlsKar
í flestar gerðir
bifreiða
fyrirliggjandi
STORÐ H
Ármúla 24.
Sími 81430.