Morgunblaðið - 24.11.1973, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1973
Thors svarar fyrir-
formanns Kven-
félags Breiðholts
Ólafur B.
spurnum
Ilinn 9. október s.l. birti
Morgunblaðið úrdrátt úr ræðu,
sem Olafur B. Thors, borgarfull-
trúi flutti í borgarstjórn Reykja-
víkur, 4. október s.l. um fram-
kvæmdir i Breiðhoiti. I framhaldi
af frásögn Morgunblaðsinas af
ræðu borgarfulltrúans bárust
Lesendaþjónustu Morgunblaðsins
fyrirspurnir frá Birnu G. Bjarn-
leifsdóttur formanni Kvenfélags
Breiðholts. Hér á eftir birtast
þessar fyrirspurnir og svör Olafs
B. Thors við þeim. Fyrirspyrjandi
er beðinn velvirðingar á þvi, að
nokkur dráttur hefur orðið á birt-
ingu svaranna. í fyrsta lagi vegna
þess, að fyrirspurnirnar kröfðust
nokkurrar gagnasöfnunar og í
öðru lagi vegna þrengsla hér í
blaðanu.
Ómálaður skóli?
1) í grein Ölafs B. Thors í
Morgunblaðinu 9. okt. s.l. segir
m.a.: „... að í Breiðholti I hafi
verið lokið við skóla 1972.“
Spurning: Á skólinn þá að vera
ómálaður bæði að innan og utan?
Ef svo, hver er ástæðan?
Svar Ólafs B. Thors: Frágangur
hússins að því er málningu varð-
ar, er samkvæmt ákvörðun
arkitekta og var útboð verksins
gert í samræmi við þá ákvörðun.
nú liggja hins vegar fyrir óskir
arkitekta um, að húsið verði mál-
að að utan, og er áætlað, að fram-
kvæma það verk næsta vor. Að
því er varðar frekari innanhúss-
málningu. er það mál í athugun,
en verði af framkvæmdum á því
sviði teljast þær til breytinga á
þegarfullbyggðu húsi.
Skólamál
í Breiðholti
2) Ólafur B. Thors sagði sam-
kvæmt Mbl. 9. okt.: „... að bæta
þurfti færanlegum kennslustof-
um við Breiðholtsskólann um
sinn.“
Spurning: Hver var áætlaður
nemendaf jöldi f Breiðholti I. þeg-
ar Breiðholtsskóli var teiknaður?
Ilver hefur hann verið í reynd og
hver áætlaður næstu ár? Hvað er
kjallari skólans stór, og til hvers
var hann ætlaður, þegar skólinn
var byggður? Hver var byggingar-
kostnaður skólans?
Svar Ólafs B. Thors: Þegar
Breiðholtsskóli var teiknaður,
lágu fyrir upplýsingar um, að
fjöldi fbúða í Breiðholti I, full-
byggðu, yrði 1298, eins og raun
hefur orðið á. Þá var reiknað með
rúmlega 4 íbúum á íbúð (meðaltal
f borginni er nú um 3,5) eða 5000-
5500 manns. Samkvæmt nýjustu
íbúaskrá borgarinnar eru nú 5465
fbúar í hverfinu. Meðalfjöldi í
hverjum aldursflokki skólabarna
í borginni er rétt innan við 2% af
íbúafjölda. Breiðholtsskóli, sem
og aðrir barna- og unglingaskólar,
sem reistir eru, er miðaður við
þetta og byggður fyrir fjórar
bekkjardeildir f aldursflokki (eða
100—110 nemendur). Vitað var
þó, að barnafjöldi í Breiðholti,
eins og í öðrum ungum byggða-
hverfum færi talsvert yfir þetta
mark á vissu árabili, en tæki þó
fijótlega að lækka. Þessu hámarki
í nemendaf jölda er mætt með því
að þrísetja í stofur yngri barn-
anna, sem styttra dvelja f skóla
dag hvern og/eða með notkun
færanlegra kennslustofa. Bæði
þessi úrræði eru notuð í Breið-
holtsskóla eins og er. I Breiðholts-
skóla eru nú alls 1435 nemendur f
níu aldursflokkum eða 199 að
meðaltali í aldursflokki. í þeirri
tölu eru fáein börn úr Blesugróf,
en samt er Ijóst, að barnafjöldi í
Breiðholtshverfi er enn um 50%
meiri en meðaltalið f borginni.
Stærð Breiðholtsskóla er 25491
rúmmetri og kostaði bygging hans
138 milljónir króna. Stærð kjall-
ara er um 400 fermetrar. Þar hafa
skátar nokkurt húsnæði, eins og
ráð var fyrir gert í upphafi. Enn-
fremur eru þar geymslur skólans
og búningsklefar og snyrting er
fylgja leiksviði samkomusalar.
Heilsugæzlustöð
3) Ólafur B. Thors sagði: „... að
í Breiðholti I sé framkvæmdum á
vegum byggingardeildar borgar-
verkfra*ðings lokið nema unnið sé
aðhönnun Heilsugæzlustöðvar."
Spurning: Við hvað er átt? Að
horgin ráðist ekki I fleiri fram-
kvæmdir í Breiðholti I en heilsu-
gæz.lustöð?
Svar Olafs B. Thors: Byggingar-
deild borgarverkfræðings hefur
með höndum undirbúning og eft-
irlit með húsabyggingum Reykja-
víkurborgar. Samkvæmt skipu-
lagi er ekki gert ráð fyrir fleiri
byggingum, sem reistar verði á
vegum borgarinnar í Breiðholti I
utan heilsugæzlustöðvar í mjódd-
inni.
Leiksvæði
4) „... að f Breiðholti I sé lokið
við sex Ieiksvæði og næstu ár
verði unnið við tvö í viðbót.“
Spurning: Hver eru þessi sex
leiksvæði og hver þessi tvö? Verð-
ur byggður starfsvöllur í Breið-
holti I, (sbr. beiðni Kvenfélags
Breiðholts sl. 2 ár?) Hefur borgin
kannað, hvort útbúa megi ódýrt
skautasvell í Breiðholti I (sbr.
beiðni Kvenfélags Breiðholts sl. 2
ár),
Svar Ólafs B. Thors: Lokið er
við eftirtalin leiksvæði: Gæzluvöll
við Arnarbakka, opið leiksvæði
við Arnarbakka, opið leiksvæði
við Fremristekk, sparkvelli við
Arnarbakka (2), sparkvöll við
Álfabakka, körfuboltavöll við
Arnarbakka, Á næsta ári (1974)
er gert ráð fyrir, að unnið verði
við eftirtalin svæði til viðbótar:
Gæzluvöll við Leirubakka, starfs-
völl við Eyjabakka eða Dverga-
bakka. Eins og fram kemur í þess-
ari upptalningu er á áætlun næsta
árs bygging starfsvallar. Leik-
vallanefnd hefur þegar samþykkt
gerð þessa vallar, en borgarráð á
eftir að fjalla um málið. Að því er
varðar gerð skautasvells í Breíð-
holti, hafa starfsmenn borgarinn-
ar í samvinnú við áhugamenn,
gert tílraunir til þess að búa til
slfk svell, en þær tilraunir hafa
ekki tekizt sem skyldi. Veruleg
vandkvæði eru á því að dæla
nægjanlegu vatni á jörð, þannig
að það frjósi á þann hátt, að nota
megi sem skautasvell. Þessum til-
raunum er þó haldið áfram.
i---------------------------
Lesendaþjónusta
Morgunblaðsins
Gangstígar
5) „... að f Breiðholti hafi mikið
verið unnið viðgangstfga s.l. sum-
ar“.
Spurning: Telja borgaryfirvöld
að gangandi íbúum Breiðholts I,
sé tryggt nægjanlegt öryggi innan
hverfis á Ieið í verzlanir og skóla?
Hafa zebrabrautir á Arnarbakka
verið lagðar niður? Telja borgar-
yfirvöld æskilegt, að umferð
gangandi fólks í hverfinu sé
annaðhvort beint út á akbraut eða
inn á svæði, sem verið er að rækta
upp?
Svar Ölafs B. Thors: Þótt veru-
lega hafi verið unnið að gangstíg-
um í Breiðholti s.l. sumar er þó
gangstigakerfið ekki frágengið.
Samkvæmt tillögu að gatna-
gerðaráætlun frá borgarverk-
fræðingi fyrir árið 1974 er gert
ráð fyrir miklum framkvæmdum
við gangstígakerfið innan hverfis-
ins næsta ár. Að þeim fram-
kvæmdum loknum ætti gangstíg-
kerfið að vera fullnægjandi og
veita nægilegt öryggi. Fyrirhugað
var að setja malbikslag á Arnar-
bakka nú í haust og þvi voru
zebrabrautir ekki gerðar þar. Nú
er ljóst, að ekki reynist unnt að
leggja þetta lag, og því mun nú á
næstunni gerð zebrabraut. Æski-
legast er, að gangbrautarkerfið sé
sem samfelldast og því óæslilegt,
að umf erð gangandi fólks sé beint
út á akbraut eða inn á ræktað
svæði. Að því mun stefnt, að slik
samfelldni náist í gatnakerfið.
Ferðir SVR
6) „... að strætisvagnaleið nr. 12
muni fara fjórar ferðir á klst.
eftir 1. nóv.“
Spurning: Hve margar ferðir á
klst. mun leið II (Breiðholt I)
fara eftir þann 1. nóv.? Hvers
vegna hafa verið tíðari ferðir í
Árbæjarhverfi en Breiðholt I?
Hver hefur verið viðkomustaða-
fjöldi þessara leiða hvorra fyrir
sig. I fyrsta lagi frá Grensásstöð
að hverfismörkum og í öðru lagi
hringurinn í heild? Hvernig verð-
ur þessu háttað eftir 1. nóv.?
Svar Ölafs B. Thors: Eftir leiða-
breytinguna, sem framkvæmd var
fyrir skömmu verða á leið 11
farnar 3 ferðir á klst. Þrir vagnar
annast ferðir í Árbæjarhverfi
(leið 10) og þrír í Breiðholt I
(leið 11). Vagnarnir á leið 10 ná
því að fara fjórar ferðir á klst., en
vagnarnir á leið 11 ná því ekki og
fara þeir því þrjár ferðir á klst.
Leiðin til Arbæjarhverfis er því
fljótfarnari. Þegar þessi tilhögun
komst á (1970) áttu SVR ekki völ
á fleiri vögnum. Síðan hafa SVR
eignazt nýja vagna, en jafnframt
kom þörf fyrir nýja strætisvagna-
leið í Breiðholt III, sem nú er leið
12. A þeirri leið voru farnar tvær
leiðir á klst. en eru nú fjórar á
klst. Leið 12 er lögð þannig, að
hún liggur um Breiðholt I vestan-
vert og veitir þvf þjónustu í því
hverfi, sem margir íbúar nota sér.
Leiðin kemur á þrjá viðkomustaði
í Breiðholti I af þeim átta, sem
þar eru. Hún kemur því ekki öll-
um íbúum í hverfinu að jafn mik-
lu gagni. Á hitt má líta, að göngu-
leiðir frá húsum að viðkomustöð-
um eru yfirleitt tiltölulega stuttar
í Breiðholti I. Geta margir, sem
búa inni í Arnarbakkahringnum
haft gagn af auknum ferðamögu-
leikum, sem leið 12 veitir. Til
viðbótar leiðum 11 og 12 eru farn-
ar sérstakar aukaferðir án við-
komu milli Breiðholts og mið-
bæjarins við upphaf og lok vinnu-
tíma. Ferðir þessar eru farnar
samkvæmt auglýstri tímaáætlun,
tvær á morgnana og þrjár á eftir-
miðdögum. í þeim er komið við á
nær öllum viðkomustöðum í
Breiðholti I og III.
Tala viðkomustaða:
Leið 10: Milli Grensársstöðvar
og Árbæjarhverfis 5
I Árbæjarhverfi 4.
Leið 11: Milli Grensásstöðvar
og Breiðholts I 8.
í Breiðholti I 8.
Leið 12: Milli Grensásstöðvar og
Breiðholts I 4 en voru áður 7.
Í Breiðholti I 3, í Breiðholti III
5.
Æskulýðsstarf
7) i fjölmiðlum undanfarið
hefur verið greint frá væntan-
legri aðstöðu Æskulýðsráðs
Reykjavíkur í hinum ýmsu hverf-
um borgarinnar. Þar hefur ekkert
komið fram um aðstöðu fyrir tóm-
stundastörf æskufólks I Breið-
holti I.
Spurning: Telja borgaryfirvöld
aðstiiðuna f Breiðholti I þegar
fullnægjandi? Ef ekki, hvað er
ráðgert til að bæta hana?
Svar Ólafs B. Thors: Aðstaða til
almenns æskulýðs- og félagsstarfs
í Breiðholti I er ófullnægjandi.
Skátar eru tiltölulega vel settir
með sérstakt húsnæði í kjallara
skólans. KFUM er með aðflutt
bráðabirgðahús f hverfinu, sem
talið er nægja í nokkur ár
og íþróttahús skólans er not-
að af íþróttafélagi. Æsku-
lýðsráð hefur haft mjög góða
samvinnu við skólayfirvöld á
staðnum, og haft opið hús í skóla-
anddyrinu einu sinni í viku yfir
vetrarmánuðina og tvisvar í viku
yfir sumarmánuðina s.l. l'A ár.
Aðsókn að þessari starfsemi er nú
slík, að til beinna vandræða horf-
ir eða u.þ.b. 160 — 190 gestir á
kvöldi, en hæfilegur hámarks-
fjöldi er 100. Þarna eru þó með-
taldir unglingar úr Breiðholti III
og standa vonir til, að þeir geti
komizt i athvarf í sínu hverfi síð-
ar í vetur. Gerðar hafa verið ráð-
stafanir til að skipta þessari starf-
semi með því að fá einnig sam-
komusal Breiðholtsskóla til
afnota. Auk þessa starfa í Breið-
holtsskóla 9 flokkar í tómstunda
starfi á vegum Æskulýðsráðs
Reykjavíkur. Innan marka núver-
andi hverfis í Breiðholti I, er þvf
miður ekki svigrúm til áætlana
um gerð félagsmiðstöðvar eftir
þvf, sem skipulagsyfirvöld hafa
upplýst. Forráðamenn æskulýðs-
mála borgarinnar hafa átt fundi
með hönnuðum skipulags hinnar
svokölluðu „mjóddar" og þar er
gert ráð fyrir rými fyrir félags-
miðstöð, sem hefði 600 fermetra
gólfflöt. Henni er ætlaður staður í
fyrsta áfanga skipulags á svæð-
inu. En að öðru leyti er ekki
ákveðið, hvort um verði að ræða
sérstaka byggingu húsnæðis I
tengslum við aðra byggingu borg-
arinnar eða sambyggt þjónustu-
byggingum einkaaðila á svæðinu.
Lögð verður rik áherzla á, að að-
staða þessi verði eins nánum
tengslum við byggðina í Breið-
holti I og verða má. Tfmamörk
með tilliti til ofanritaðs er lítið
hægt að segja um að svo komnu
máli.
Iþróttastarf
8) Hve stór fþróttasvæði eru
fyrirhuguð i Breiðholti I, II og
III, hverju hverfi fyrir sig?
Hvaða íþróttafélög fá aðstöðu í
þessum hverfum hverju fyrir sig?
Svar Ólafs B. Thors: Breiðholt
I. Þar er ekki get ráð fyrir sér
stöku íþróttasvæði. Við Breið-
holtsskóla er malbikaður hand-
knattleiksvöllur og á nærliggj-
andi leiksvæði er einn knatt-
spyrnuvöllur af fullri stærð, sem
undanfarin ár hefur verið notað-
ur til æfinga og keppni.
Breiðholt II: Þar er gert ráð
fyrir íþróttasvæði yzt í mjóddinni.
Stærð svæðisins er um 11 hektar-
ar. Áætluð mannvirki eru: einn
sérstakur keppnisvöllur, einn
malarvölluræfingavellir (grasvell-
ir), íþróttahús, sundlaug, æfinga-
svæði fyrir köst (kringlukast,
sleggjukast, spjótkast og kúli-
varp).
Breiðholt III. 1 Breiðholti III
eru íþróttasvæðin byggð f tengsl-
um við skólana. Þar verður eitt
samfellt íþróttasvæði með þrem-
ur knattspyrnuvölllum og aðstöðu
fyrir frjálsar fþróttir, samtals 4,6
hektarar. Auk þess eru malbikað-
ir handknatleiks-, körfuknatt-
leiks- og blakvellir i tengslum við
svæðið 0,3 hektarar. Auk þessa
eru sundlaug og íþróttahús tengd
svæðinu. i iþróttabandalagi
Reykjavfkur eru nú 8 félög, sem
hafa á stefnuskrá fleiri en eina
íþróttagrein og sum þeirra flestar
íþróttagreinar, sem hér eru iðkað-
ar. Það eru því að jafnaði um
10.000 fbúar á bak við hvert þess-
ara félaga. Auk þessara félaga
eru nokkur, sem einbeita sér að
einni grein íþrótta, s.s. golfi, borð-
tennis, sundi o.s.frv. Slík félög
geta aldrei orðið hverfisfélög. í
Breiðholtiergert ráðfyrir tveimur
svæðum, þar sem fþróttafélög
geta haft nokkuð alhliða íþrótta-
starfsemi, þ.e. i Breiðholti III og
Breiðholti II. í Breiðholti I er
ekki gert ráð fyrir iþróttasvæði
fyrir félag. Fyrir nokkrum árum
flutti ÍR starfsemi sína í Breið-
holt. Var því þágefið fyrirheit um
aðstöðu á fþróttavöllunum í
Breiðholti III, þegar þeir yrðu
byggðir. Nú hefur nýtt íþrótta-
félag verið stofnað í Breiðholti og
hefur það óskað eftir inngöngu í
ÍBR. Athuga þarf því sérstaklega,
hvernig afnotum þessara félaga
að íþróttamannvirkjum í Breið-
holti III verður háttað, en um það
hefur ekki verið tekin ákvörðun
enn. Ekki hefur heldur verið
áveðið hvaða félag fær afnot af
íþróttasvæðinu í Breiðholti II.
íbúafjöldi
9) Ilver er áætlaður fbúaf jöldi f
Breiðholti I, II og III, hverju
hverfi fyrirsig?
Svar Olafs B. Thors: Fjöldi fbúa
í Breiðholti I er nú um 5500 og er
áætlaður óbreyttur næstu árin, en
síðan lækkandi. Hverfið er þvf
sem næst fullbyggt, þar sem að-
eins nokkrum raðhúsum er ólok-
ið. Fjöldi íbúa í Breiðholti III er
Framhald á bls. 18