Morgunblaðið - 24.11.1973, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1973
Aðeins ein jörð
Otakmörkuð þróun
óhugsandi
NYLEGA bárust fréttir um, að
bók, sem nefnist „Limits to
Growth", eða Takmörk vaxtar,
hefðí hlotið verðlaun á bóka-
sýningunni í Frankfurt. Frétt
um, að þessi bók hafi vakið
athygli, kemur ekki á óvart.
Sfðan hún kom út í marz 1972,
hefur hún verið lesin um allan
heim, birtar úr henni greinar í
blöðum, óspart vitnað i hana, og
efni hennar rætt og gagnrýnt.
Takmörk vaxtar var gefin út
af hópi vísindamanna frá
bandaríska háskólanum
Massachusetts Institute of
Technology og byggð á
rannsóknum hóps vísinda-
manna í Ameríku og Evrópu,
svokallaðs Rómarklúbbs. Var
þetta lauslega samsettur hópur
75 manna frá 25 þjóðum, þar á
meðal frægra vísindamanna á
ýmsum sviðum, iðnaðarsér-
fræðinga, hagfræðinga, félags-
fræðinga og annarra mennta-
manna. Viðfangsefni þeirra var
að gera úttekt á þróun fram-
leiðslu og mannlífs almennt á
jörðinni, með því að taka fyrir
fimm aðalþætti, sem úrslitum
geta ráðið, en þeir eru mann-
fjölgun, mengun, matvælafram-
leiðsla, iðnaðarframleiðsla og
hráefnabirgðir. Tölvur voru
mataðar á upplýsingum um
þessa þætti, í þeim tilgangi að
reyna að spá um þróun mála
fram yfir næstu aldamót, eða
nánar til tekið til ársíns 2100.
Og horfurnar reyndust, sam-
kvæmt þessu, svo sannarlega
ekki bjartar. Utkoma var ein-
faldlega sú, að ótakmörkuð
þróun væri óhugsandi á þessari
jörðu og sú skelfilega spá
boðuð, að vöxturinn hefði nú
þegar náð sínu marki og mann-
kynið stefndi hraðbyri til al-
gerar eyðileggingar á næstu
100 árum — þ.e. ef þessi vöxtur
á fyrrnefndum þáttum yrði
ekki þegar í stað stöðvaður.
Á sínum tíma birtust hér í
Mbl. samtalsgreinar þekktra
vísindamanna um þennan
vanda og ýmsa þætti hans,
undir nafninu Geimfarið jörð.
Og þar sem um allan heim er
nú haldið áfram að skrifa og
skrafa um þessi málefni, sem
varða framtíð mannkyns svo
miklu, þá munum við í þessum
þáttum, sem hér fara af stað,
halda áfram að tína til það, sem
við rekumst á athyglisvert á
þessu sviði sem inniegg í
umræður og fræðslu um þau
mál. Þetta er þó eina jörðin,
sem við eigum, og hvað um
hana verður, hlýtur að várða
okkur miklu.
Bókin Takmörk vaxtar hefur
verið mikið umdeild og
umrædd í blöðum víða um
heim, og þykja forsendur þær,
er Rómarklúbburinn gaf sér í
upphafi, víða nokkuð hæpnar.
Verður síðar í þessum þáttum
drepið á sumt af þessari gagn-
rýni. En hvað umþað. Takmörk
vaxtar og rannsóknirnar, sem
bókin er byggð á, vöktu
manninn upp við vondan
draum. Og þótt sú vakning sé
kannski nokkuð harkaleg, þá
koma þarna fram mjög gagn-
legar upplýsingar og fróðleikur
til að byggja á, svo góðmálm-
urinn er vafalaust neistaflugs-
ins virði.
Ilelztu kenningar I Takmörk
vaxtar eru í stuttu máli þessar:
1. Margir þættir mannlegra
athafna á hnettinum — einkum
mannfjölgun og iðnaðarfram-
leiðsla — hafa vaxið jafnt og
þétt, þar til nú er svo komið, að
árlegur vaxtarhraði er orðinn
geysilega mikill. Og hann á
eftir að verða illviðráðanlegri
eða óviðráðanlegur, ef ekki
verða gerðar ráðstafanir til að
koma í veg fyrir þennan sí-
margfaldaða vöxt. Mann-
fjöldinn er núna 3,6 milljarðar
og reiknað með, að hann verði 7
milljarðar um árið 2000, en 30
milljarðar árið 2075, ef mann-
fjölgunin heldur áfram með
sama hraðaog nú.
2. Samt sem áður eru auð-
lindunum — einkum ræktan-
legu landi og endurnýjandi
hráefnum — og hæfileikum
jarðarinnar til að eyða mengun
takmörk sett. Fyrr eða síðar
mun þessi símargfaldaði
vaxtarhraði mannfjölgunar og
iðnaðarframleiðslu renna sitt
skeið á enda og í stað þess að
stöðvast þar, þá mun hann falla
með skyndilegri og óviðráðan-
legri mannfækkun og sam-
drætti iðnaðarframleiðslu.
Samkvæmt útreikningi mun
mannkyninu halda áfram að
fjölga fram að árinu 2000, en
fækka svo um helming til 2050.
Iðnaðarframleiðslan á að
tvöfaldast fram til ársins 2010,
en hrapa svo niður fyrir það,
sem er um aldamót, á næstu 90
árum. Mengunin á að geta átt-
faldazt fram til 2050, en fara
síðan síminnkandi, vegna þess
hve dregið hefur úr iðnaðar-
framleiðslunni. En um þetta
leyti yrðu hráefnin um það bil
þrotin. Er þetta allt miðað við
óbreyttar aðstæður og
núverandi þróun.
3. Ur því að tæknilegar fram-
farir geta ekki aukið allar
okkar auðlindir í það óendan-
lega, þá væri betra að setja
vexti okkar 1 framtíðinni ein-
hver takmörk vitandi vits,
fremur en að láta náttúruna
gera það fyrir okkur með skelfi-
legum hörmungum.
Ilöfundar bókarinnar Tak-
mörk vaxtar gera samt ráð fyrir
þvf, að hægt sé að mata
tölvurnar á þáttum, sem
byggðir eru á meiri bjartsýni,
en segja, að það muni aðeins
fresta ófaraspánni um nokkra
áratugi. Því sé betra, að skekkj-
ur miði að því að hvetja til þess,
að eitthvað sé gert, fremur en
að draga úr því.
Þarna er gengið út frá ýmsu,
svo sem: 1) Að náttúruauðlind-
um séu takmörk sett. 2) Að
hægt sé að framfylgja æskilegri
fæðingartölu hjá hverri þjóð
meðan vöruframleiðslan er að
ná hámarki sinu, en fæðingar-
talan hrapi niður fyrir óskir,
þegar matarskammtur á mann
minnkar. 3) Að til sé ákveðið
magn af ræktanlegu landi og að
matvælaframleiðslunni á því
afmarkaða landi séu takmörk
sett. Gert er ráð fyrir því, að
ræktanlegt land á hnettinum sé
3,2 milljarðar hektara og þar af
sé helmingur nú í rækt, en að
0,4 hektara lands þurfi til að
tryggja hverjum manni fæðu.
Eftir þvf á matvælafram-
leiðslan að fullnægja þörfum
mannkynsis til ársins 2000, en
til ársins 2075 sé hægt að fjór-
falda uppskeruna á hvern
hektara. En til að framleiða
meiri fæðu þarf meira land. 4)
Og að lokum, að meiri mannafla
og meiri tækni þarf til að auka
afrakstur landbúnaðar og
iðnaðar, sem aftur krefst
notkunar auðlinda f ríkari mæli
á ári og eykur mengunina.
Með þessa þætti og tengsli
þeirra innbyrðis í huga komast
höfundar bókarinnar Takmörk
vaxtar að þeirri niðurstöðu, að
mengun, skortur á hráefnum og
takmörkun matvælafram-
leiðslunnar muni verða þess
valdandi, að um miðja 21.
öldina muni héimurinn standa
andspænis hraðminnkandi
mannfjölda og versnandi
lífskjörum. —. E.Pá.
Fréttabréf
frá Tálknafirði
Tálknafjarðarvegur endurbætt-
ur fyrir 2,3 milljónir króna
IIÉÐAN er það helzt tíðinda í
vetrarbyrjun, að í sumar var unn-
ið að vegabótum fyrir 2,3 millj.
við að endurbyggja Tálkna-
fjarðarveg. Var hann bæði hækk-
aður og breikkaður og er nú orð-
inn allgreiðfær, að undanteknum
nokkur hundrað metra kafla,
sem á vantar enn til þess að hann
nái inn í þorpið, og má búast við
að bið verði á frekari aðgerðum.
þar til eftir 1975, að ekki sé
minnzt á „göturnar" i þorpinu. Þó
tók sýslusjóður á sig rögg nú í
haust að undirlagi Vegagerðar
rikisins og undirbyggði nýja götu,
en við hana voru í sumar steyptir
8 grunnar nýrra íbúðarhúsa, auk
þess sem við hana standa 3 önnur
hús, sem flutt var í, sum fyrir 2
árum og lá við að flytja þyrfti
búslóðir á hjólbörum, því engin
var gatan.
Samkvæmt frétt í Mbl. í sumar,
hefur verið flogið hingað undan-
farna mánuði á spánnýjan sjúkra-
flugvöli, sem hér á að vera, en
hins vegar finnst mönnum hér
þessi frétt með nokkrum ólikind-
um, það sem ennþá er aðeins
um byrjunarframkvæmdir
að ræða, en vonir standa til að
framkvæmdum ljúki á næsta ári,
en það veltur á fjármagni og
áhuga ráðamanna. Til þess að
flugvöllurinn komi að fullum not-
um, þyrfti mikið að bæta veginn
að honum m.a. brúa eina á, en það
er kannski annað mál.
Það var ti! tfðinda nú á dögun-
um, að allir kjörgengir menn í
hreppnum, utan fjarverandi sjó-
menn, skrifuðu undir áskorunar-
skjal, sem sent var útvarpsráði
vegna breytinga á kvöldfrétta-
tíma útvarpsins og ætti það að
vera hvatning öllum almenningi
að gera slíkt hið sama, og mót-
mæla því tillitsleysi ráðamanna
útvarpsins að útiloka þorra
vinnandi fólks frá því, að heyra
fréttir útvarpsins, enda virðist
einræðisstefna ríkjandi um það
Fréttabréf
frá Mykjunesi
Sauðfjár-
slátrun
lokið
HAUSTVEÐRATTAN hefur ver-
ið heldur umhleypingasöm og
miklar rigningar öðru hvoru.
Frost hafa ekki verið mikil og er
jörð nú alveg klakalaus. Lítils
háttar snjóföl er nú á jörðu, þá
sjaldan hefursnjóað í haust hefur
það jafnan horfið strax aftur og
fram að þessu hefur verið lftiii
snjór tíl fjalla. Búið er að gera
þrjár leitir á Landmannaafrétt og
ekki vitað um fé þar eftir, munu
heimtur ;if afréttum vera óvenju-
góðar. Aftur á móti tala sumir uni
slæmar heimtur úr heimalöndum,
hvernig sem á því stendur.
Sauðfjárslátrun er nýlokið, eða
nú um mánaðamótin. Var slátrað
með mesta móti og vænleikinn
meiri en í fyrra, þö að ég hafi ekki
handbærar tölur um meðalfall-
þungann. Miklu var fargað af ám,
því nú hafa menn náð aftur þeim
fjárfjölda, er var áður en hörðu
árin gengu yfir. Undanfarin ár
hefur lambaásetningur verið all-
mikill, að vísu er sett á talsvert af
lömbum nú, en líklega eitthvað
minna en síðustu árin.
Hér voru hrútasýningar í öllum
sveitum í haust og sfðan héraðs-
sýning á hrútum. Kom því fram
mikið af fallegum hrútum. Tveir
efstu hrútarnir á héraðssýning-
unni voru frá sama manni, Sig-
urði Jónssyni, bónda á Kastala-
brekku í Asahreppi og á hann
mjög afurðagott fé. Vitanlega eru
miklu fleiri, sem eiga fallegt fé,
þó að mjög sé það misjafnt eftir
bæjum og sveitum. Fjárræktarfé-
lög eru víða starfandi og hafa
yfirleitt náð góðum árangri.
Iljá Þórarni bónda Vilhjálms-
syni í Litlu-Tungu hefur brunnið
hey í tveimur hlöðum i haust.
Mikið af heyi eyðilagðist, en
skemmdir á húsum urðu ekki
miklar. Er hér að sjálfsögðu um
mikið tjón að ræða, þö að heyið
væri brunatryggt. Fram að þessu
hefur verið unnið að framræslu
hér, enda jörð klakaiaus sem fyrr
segir, en allt að sjálfsögðu mjög
blautt eftír votviðri haustsins.
Vegir eru víða leiðinlegir, holóttir
og blautir. Er helzt svo að sjá, að
þegar nýi vegurinn er kominn yf-
ir Skeiðarársand, verði vegurinn
frá Selfossi og austur í Skafta-
fellssýslu hálf ófær. Enn hefur
mjólkurframleiðendum fækkað
hér i sveit og menn breyta fjósum
sínum í fjárhús, þessari þróun
verður ekki breytt aftur. En svo
eru aðrir að byggja fjós af full-
komnustu gerð. Fólk er nú yfir-
leitt fátt á bæjum og viða er það
svo, að ekkert má út af bera ef allt
á að geta gengið eðlilega, en von-
andi gengur allt vel.
M.G.
hvenær menn eiga að hlusta og þá
á hvað.
Framkvæmdir á vegum hrepps-
félagsins hafa engar verið frekar
en undanfarin ár, en nú er stutt
til kosninga og þá helzt von til að
fjörkippur komi í framkvæmdir,
svo að þær verði ekki kjósendum
úr minni liðnar á kjördegi.
Telja má, að læknaþjónusta hér
sé i góðu lagi, að minnsta kosti
miðað við marga aðra staði. Að
vísu er yfir fjallveg að fara, því að
læknarnir hafa aðsetur á Patreks-
firði, en þar háir mjög allri starf-
semi, hve óhentugt og úrelt
sjúkrahúsið er og skiptir það meg-
in máli, hve brýn þörf er orðin á
sérstöku dvalarheimili fyrir aldr-
aða.
Almenningur hér er langt frá
því ánægður með dreifingu
mjólkur hingað, þar sem mjólk
kemur hingað aðeins þrisvar í
viku og myndi líklega einhvers
staðar verða efnt til mötmæla-
göngu af minna tilefni, einkum
vegna þess að 40% íbúa hér eru
innan fermingaraldurs. Auk þess
eru oft ófáanlegt skyr, rjómi og
súrmjólk, hvað sem svo má segja
um gæðin. Við vorum svo lánsöm
að hingað var flutt súrmjólk, skyr
og fl. þ.h. í sumar frá Reykjavfk,
en hjartagóðir menn hafa nú sett
undir þann leka.
Hvað við kemur landbúnaði, þá
var rúml. 1000 fjár slátrað hér í
haust og erþað nokkru minna en
undanfarin ár. Meðalþungi dilka
var góður eða um 16,5 kg. Hér
hefur að undanförnu verið starf-
andi ein allsherjarverzlun, þ.e.
Kaupfélag Tálknaf jarðar, en
nýlega hefur Ólafur Magnússon,
hreppstjóri, lokið byggingu
verzlunarhúss, þar sem hann mun
starfrækja sérverzlun og verða
þar m.a. á boðstólum bækur og
ritföng og fleira í þeim dúr. Mun
verzlunin væntanlega verða opn-
uð innan skamms.
Þá má nú ekki gleyma „máttar-
stólpa byggðarlagsins“ þ.e. að
segja útgerðinni. Miklar fram-
kvæmdir eru nú hafnar við upp-
byggingu fiskimjölsverksmiðju
Ilraðfrystihúss Tálknafjarðar og
er áætlað að kostnaður verði vart
undir 5 millj. kr., þar er höfð í
huga loðnumóttaka og vinnsla á
komandi vertfð, en hér var i
fyrsta sinn tekið á móti loðnu í
fyrra, en þá gerðist það, að gamla
þróin brast undan loðnuþungan-
um og er það m.a. ný þró, sem nú
verður byggð. I sumar voru öll
hús Hraðfrystihúss Tálknafjarðar
máluð, en þrátt fyrir það, þarf
enn stórátak til þess að frystihús-
in geti fullnægt þeim auknu
kröftum, sem gerðar eru til að-
stöðu við framleiðslu á erlendan
markað. Enn eru hér aðeins gerð-
ir út tveir 300 sml. bátar, er smíð-
aðir voru 1968, annarþeirra m/b
Tálknfirðingur hefur stundað
síldveiðar f Norðursjó i haust og
aflað vel, en hinn stundar lfnu-
veiðar héðan, en afli hefur verið
mjög tregur það sem af er og
nægir hráefnið hvergi nærri til
þess að halda uppi stöðugrí vinnu
í frystihúsinu. Oft hefur hvarflað
að mönnum hér á Suðurfjörðum,
hvers vegna ekki hefur verið
ráðizt í skuttogarakaup, en eitt
slíkt skip gæti að nokkru leyst
hráefnisvanda frystihúsanna á
Patreksfirði, Tálknafirði og
Bíldudal, ef samstaða næðist um
reksturinn. Með það í huga, að nú
þegar eru 2 af hverjum 5 freðfisk-
kössum, sem út eru fluttir, fram-
leiddir á Vestfjörðum, gæti til-
vera slíks skips e.t.v. hækkað enn
það hlutfall.
J.B.