Morgunblaðið - 24.11.1973, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.11.1973, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. NÖVEMBER 1973 22 Minning: Ruth Inger Krist ensen Einarsson ENGINN má sköpum renna. Unga húsfreyjan á Teigi er látin. Helfregnin barst að morgni hins 15. nóvember, á afmælisdegi eiginmanns hennar, Matthíasar Einarssonar að Teigi í Mosfells- sveit. Aðdragandinn var ekki langur, en snemma á sxðastliðnu sumri kendi hún nokkurs lasleika, en að hausti var ljóst að þetta var alvar- legs eðlis. Þungbær er hverjum sú lífsreynsla að missa konu frá ungum bornum, en Inger heitin var aðeins nýlega 36 ára, er hún lézt. Inger Kristensen Einarsson er fædd í Danmörku á eyjunni Falstri þann 10. nóvember 1973 og ólst þar upp. Var hún næstelzt fjögurra barna þeirra hjónanna Amalie og Tómasar Kristensen og ólst upp með foreldrum sínum í hópi samhentra systkina. Danskir bændur eru taldir með hagsýnustu og dugmestu búhöld- um, sem við höfum spurnir af. Kosti þessa ágæta fólks hafði hún erft og áunnið sér í ríkum mæli. Inger heitin tók snemma til hendi, og um fermingu var hún t Móðir okkar' SIGURBJÖRG JAKOBSDÓTTIR, frá Siglufirði, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, laugardaginn 24. nóvemberkl. 10.30. komin til sjálfstæðra starfa. Lagði hún gjörva hönd á margvísleg störf og varð fljótt eftirsótt. Að loknu prófi frá hxismæðra- skóla 1957 tók hún þá ákvörðun, að yfirgefa ættland sitt og kynn- ast öðrum þjóðum. Henni bauðst þá starf í Noregi, en ekki tókust um það samningar. Þá sá hún auglýsingu frá íslandi, sem varð henni afdrifarík, og raunar var framtíð hennar ráðin er hún ákvað að fara þangað. Hingað kom hún svo þann 5. nóvember 1957 og hóf störf með konu minni á stóru heimili hér að Reykjum. Inger heitin bættist hér í hóp nokkura landa sinna, sem ílengzt hafa hér í Mosfellshreppi við ágætan orðstir og vinsældir. Um störf hennar hér á heimil- inu þarf ekki að fjölyrða, kostir hennar komu fljótt í ljós, og öll störf voru unnin af hagsýni og dugnaði. Einar Matthías Einarsson var heimilismaður á Reykjum á árun- um fyrir stríðið er hann vann að hitaborunum og nú dvaldi hann hér einnig og vann að því, að stofna og byggja upp fyrirmyndar alifuglabú, nýbýlið er hann nefndi Teig, á landi er hann hafði fest kaup á úr landi jarðarinnar Efrahvols. Örlög og framtíð hinnar dönsku stúlku réðust endanlega á næstu mánuðum því að vorið 1959 settu þau Inger og Matthías saman bú sitt á nýbýlinu. I sameiningu tók- ust þau á við hin margslungnu verkefni og telst alifuglabúið Teigur tvímælalaust í fremstu röð að allri gerð og þar er tækninni beitt á öllum sviðum. Augljós myndarskapur er þar úti sem inni og vel fyrir öllu séð enda voru þau hjón samtaka um allar fram- kvæmdir. Hlýlega íbúðarhúsið var svo byggt eftir líkani, sem húsbónd- inn dverghagi smfðaði sjálfur en hin unga húsmóðir mótaði allt innanstokks af sérstakri smekk- vísi með blómaræktun og fá- gætum listmunum. Blómaherbergið og trjágarður umhverfis húsið ber glöggt vitni um dugnað þeirra hjóna og smekkvísi. Inger féll aldrei verk úr hendi því auk þess að stýra stóru heimili, gaf hún sér tíma til ræktunar og hannyrða og síðast en ekki sízt var hún stoð og stytta bónda sins og tók virkan þátt í búrekstri. Inger vareinaf þremur hér á landi, sem náði tökum á því vandasama verki að kyngreina hænuunga og stundaði það starf meðan heilsan leyfði. Nú er skarð fyrir skildi og vandi á höndum er hún er burt kölluð frá elskuðum eiginmanni og ungum börnum og frá mikil- vægum hlutverkum I lífi þeirra og starfi. Þau hjónin, Inger og Matthías eignuðust þrjú börn, Einar Matthias elztan, Tómas Pétur og Þóru, sem er á þriðja árinu. Inger heitin verður jarðsett að Lágafellskirkju í dag og vil ég votta vini mfnum Matthíasi og börnunum ungu innilega samúð okkar. Einnig öldruðum foreldr- um og systkinum í fjarlægð og öðrum ástvinum. Við hjónin og fjölskyldan þökkum tryggð og vináttu frá fyrstu kynnum og æ síðan og hið góða samband, sem ríkt hefur milli heimilanna. Við óskum Inger allrar blessunar handan móðunnar miklu og biðjum al- mættið að styðja og styrkja þá, sem um sárt eiga að binda. Jón M. Guðmundsson, Reykjum. INGER var borin og barnfædd í Danmörku, en kom hér fyrst, er hún var um tvítugt. Þá líklega eins og margt ungmennið aðeins til þess að kynnast landi og þjóð um tíma. En forlögin höfðu ákveðið annað^ því að á þessum árum kynntist hún hér þeim manni, sem varð hennar lífsföru- nautur, og það átti fyrir henni að liggja að lifa hér og starfa það sem eftir var ævinnar. Ég kynnt- ist Inger lítilsháttar á þessum árum og svo aftur betur síðar, er hún hafði stofnað heimili með manni sínum, Matthfasi Einars- syni, miklum dugnaðar- og syni, miklum dugnaðar- og at- orkumanni. Hennar ævi leið svo sig heimili, eiginmanni og börnun. Hún vann sín verk af stakri trúmennsku og dugnaði. Inger var heimili sinu allt, og rómaður er myndarbragurinn á heimilinu að Teigi, innan húss sem utan. Auk þess að Veita for- stöðu stóru og umsvifamiklu heimili, hvíldi á henni, ásamt eiginmanni, umsjá og uppeldi þriggja barna þeirra hjóna. Inger og Matthfas unnu saman af miklum kjarki og atorku að upp- byggingu eigin fyrirtækis, sem nú er eitt stærsta og fullkomnasta alifuglaræktarbú á Iandinu. Þetta eitt út af fyrir sig væri merkileg saga, en hér liggur meira á bak við, og það er þess vegna sem ég tek mér penna í hönd nú til þess að minnast Inger á Teigi. Mér finnst núna, þegar ég hugsa til baka, að hún hafi haft Ieynda tilfinningu fyrir því, að ævi hennaryr&ekki löng því að hún var svo óskiljanlega afkasta- mikil og eljusöm í öllum sínum verkum, að undrum sætti. Sffellt var hún að keppast við að ljúka ákveðnum verkefnum. Auk heim Sigríður Guðlaugsdóttir, Ottó R. Guðlaugsson, Stefnir Guðlaugsson. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓNA ÞÓRDÍS JÓNSDÓTTIR, frá Suðureyri, Tálknafirði, lést að kvöldi 22 nóv. að heimili sínu, Rauðalæk 71 Börn, tengdabörn og barnabörn. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför JÓNS G. JÓNSSONAR, Neðri-Hrepp, Fyrir hönd vandamanna, Kristln Jónsdóttir, Ásgeir Jönsson, Einar Jónsson. ....... ........................................ t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlá't og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, HANSÍNU GUNNARSDÓTTUR frá Vestmannaeyjum, Háteigsvegi 8, Reykjavlk. Anton Bjarnasen, Gunnar Bjarnasen, Jakob Ó. Ólafsson, Guðrún Jakobsdóttir, Sigrlður Jakobsdóttir, Ólafur Ó. Jakobsson, Abellna Gunnarsdóttir. t Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug víð andlát og jarðarför eiginkonu, dóttur, móður, systur, tengdamóður, ömmu og langömmu, VALBORGAR STEINGRÍMSDÓTTUR. Fyrir hönd okkar allra, Kristinn Guðmundsson, útvarpsvirki, Siglufirði. ilisstarfanna vann hún mikið x' fyr irtæki þeirra hjóna, því að hún var sérmenntuð í einni grein ali fuglaræktar. Hugðarefnum sfnum gat hún sinnt þrátt fyrir miklar daglegar annir. Inger var afburða hannyrðakona, listræn og smekk- vís, og hafði mikinn áhuga á alls kyns föndurvinnu, enda gædd góðri sköpunargáfu. Heimilið var prýtt fegurstu verkum allt frá fín- legustu dúkum til smærri og stærri leirmuna. Sumt af því, er hún vann og saumaði, eru hrein listaverk. Hún unni útiveru og átti þess kost að stunda hesta- mennsku og ferðalög. En þótt efnin væru góð á heimilinu á Teigi, þá voru tómstundir fáar hjá hjónunum, því að ávallt var unnið langan vinnudag og allt miðað við það að gera hag heimilisins, barnanna og annars heimilisfólks sem beztan. Inger átti fleiri áhugaefni en sköpun fallegra muna, hún unni blómum og allri ræktun trjáa og matjurta, og átti hún mjög fallegan blóma- og trjágarð við hús sitt. Einnig átti hún blómastofu innan húss, þar sem hún ræktaði suðrænar jurtir. Hjá henni mátti finna sjaldgæfustu tegundir blóma og gaman var að fylgjast með áhuga hennar á hverri nýrri jurt, sem hún var að ala upp. Á vorin beið hún eftir að jörð yljaðist af sól, svo hún gæti farið að sinna ræktunarstörfunum. Þó er mér Inger hvað minnis- stæðust í sambandi við félagsstarf í' Kvenfélagi Lágafellssóknar. Hún gekk fljólega í félagið, eftir að hún var orðin húsmóðir. Þar var hún hinn góði félagsmaður með ríka félagsvitund, enda var það á þeim vettvangi eins og alls staðar annars staðar, hún Inger hafði áhuga á öllu, sem var að gerast í félagsskapnum, bæði starfi og leik. Allar munum við félagssystur hennar eftir kvöldunum á hlýlega og fallega heimilinu á Teigi, þegar Enger tók á móti hópnum, sem var að undirbúa fjáröflunarstarf. Við munum, hvað hún var samvinnu- þýð og skemmtileg og vakti vinnu- gleði, hvarsem hún fór. Hún lagði félagi sínu mikið af mörkum og fyrir það erum við félagssysturn- ar þakklátar. Hún var sannarlega eftirbreytni verð og er hverri sveit sómi að slíkri konu. Svo dregur skyndilega fyrir sólu og þessi starfsama, unga kona verður að sætta sig við það að leggja frá sér störf, mitt í lífs- ins önn, og bíða síns skapadóms. Móti hinum þunga dómi var gengið af kjarki og lífstrú. Þegar séð var, að hverju fór, var stað- reyndum mætt með opnum augum og fullri vitund og trúnaðartrausti. Manni sínum fól hún forsjá barna og heimilis og nú verður það hans styrkur í sorg- inni að halda merki hennar uppi. Börnin hafa eignast góðan móður- arf, sem er sú vitneskja að hafa átt góða og duglega móður. Manni sínum skilur hún eftir ljúfar minningar um farsæla sambúð. Minningin um góða eiginkonu og móður mun milda söknuðinn, en aldrei verður fyllt það skarð, er unga húsfreyjan að Teigi skilur eftir. Eiginmanni hennar, börnum, foreldrum, systkinum, ættingjum og tengdafólki votta ég og maður minn dýpstu samúð. Hughrein kona í blóma lífsins hefur kvatt. Blessuð sé minning hennar. Freyja Norðdahl. Kristín Vermunds- dóttir — Minning í dag verður til moldar borin frá Sauðárkrókskirkju Kristín Vermundsdóttir, fyrrverandi hús- freyja I Vatnshlið. Hún andaðist í sjúkrahúsi Sauðárkróks þann 11. þ.m. Kristín var fædd á Sneis á Lax- árdal ytri 20. júlí 1898. Foreldrar hennar voru Vermundur Guðmundsson og sambýliskona hans, Arnfríður Sigurðardóttir, bæði af húnvetnskum ættum. Al- bróðir Kristfnar er Jónas Vermundsson, fyrrverandi veg- hefilsstjóri á Blönduósi. Hálf- systkini Kristfnar, börn Arnfríð- ar, voru: Sigurður Berndsen — kunnur maður í Reykjavík um langa tíð —, Marsilía Jónsdóttir, einnig búsett i Reykjavík og Sól- veig Gísladóttir — bjó í Ilafnar- firði —. Börn Vermundar og Lovísu Iljálmarsdóttur voru Jakobína kona Guðmundar, sem lengi bjó í Holti á Ásum og Pétur, var búsettur á Siglufirði og Anna, sem var ráðskona um nokkurra ára skeið hjá Birni bónda Páls- syni á Ytri-Löngumýri. Kristín mun hafa verið á vegum móður sinnar til 7 ára aldurs, en flyst þá til Skagafjarðar — til Soffíu móðursystur sinnar og dvelst hjá henni í þrjú ár. Urþví fer hún til vandalausra og dvelur á ýmsum bæjum í Staðarhreppi. Á þeim árum kynntist hún, 16 til 17 ára gömul, heillandi stúlka, tilvonandi lífsförunaut sínum, Eiríki Sigurgeirssyni. Þau Eiríkur og Kristfn lögðu land undir fót á útmánuðum á því herrans ári 1917, þegar öll Evrópa var í báli og brandi, frá Vík í Sæmundarhlíð til Sauðárkróks og voru gefin saman í hjónaband af séra Ilálfdáni Guðjónssyni. Á þessum tímum var öldin önnur en nú til dags og ekki árennilegt fyrir allslaus ungmenni að stofna heimili, en þó mun í þann tið eins og á öllum tímum eldmóður ung- dómsins og ylur ástarinnar hafa blásið hinum ungu hjónum f brjóst þeim vitaðsgjafa bjartsýn- is, elju og atorku, sem átti eftir að fleyta þeim yfir allar torfærur langrar ævi og strangra og erils- samra lífdaga, svo að þau brotn- uðu ekki, en fóru með sigur af hólmi að enduðu miklu dagsverki íþágu lands og þjóðar. Þau hjónin, Eiríkur og Kristín, voru næstu þrjú árin í hús- mennsku í Vík, en árið 1920 hef ja þau búskap í Auðnum í Sæmundarhlíð og búa þar til 1928, er þau flytjast að Varma- landi. Þaðan flytja þau að Bessa- stöðum 1934 og búa þar til 1938, en flytjast síðan að Vatnshlíð á Skörðum og búa þar til 1963, fyrst sem leiguliðar, en síðar sem eig- endur jarðarinnar í félagi við syni sína. Arið 1963 brugðu þau búi og fluttust um eins árs skéið til Blönduóss, en 1964 keyptu þau sér íbúð á Sauðárkróki og dvöldu þar til síðasta vors, er þau, bæði vanheil flytja á Sjúkrahús Sauðárkróks. Börn þeirra hjóna voru: Skarphéðinn, f. 24. júlí 1917, d. 12. okt. 1973, bóndi Vatnshlíð. Ólína f. 12-9. 1918 k. Hjalta Jóns- sonar Vfðiholti. Ragnheiður f. 19- 10. -1920, k. Gissurar Jónssonar Valadal. Valdimar f. 21-2. -1921, d. 5-2. -1942. Ámi f. 7-2. -1923, skrúð- garðyrkjumeistari, k. Þóra Sæmundsdóttir, búsett f Hafnar- firði. Vermundur f. 14-2. -1925, d. 3-3 -1964, húsasmíðameistari, var kvæntur Rut Pálsdóttur. Sigurgeír f. 10-5. -1926, málari, k. Jóhanna Gunnarsdóttir, bxisett í Kópavogi. Sigríður f. 1-6. -1928, k.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.