Morgunblaðið - 24.11.1973, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NOVEMBER 1973
25
fclk f
fréttum
SKILAR UND-
IRSKRIFTUM
Ib Larsen, formaður Mið-
demókrataflokks Erhards Jac-
obsens í Danmörku, var að von-
um kampakátur, þegar hann
skilaði 51400 undirskriftum
til stuðnings framboði flokks
síns til innanríkisráðuneytisins
danska á dögunum. Þar hafa
menn nú hafizt handa um að
bera listana saman við lista
stuðningsmanna annarra
flokka, til að ganga úr skugga
um, að sömu undirskriftir komi
ekki fyrir á listum tveggja eða
fleiri flokka, því að þá eru þær
ógildar.
En ráðuneytið lætur sér
nægja að finna 16.480 gildar
undirskriftir, sem lög og reglur
krefjast, til að flokkurinn fái að
bjóða fram. — Sumir töldu, að
það kynni að reynast flokknum
erfitt að safna 16.480 undir-
skriftum á þeim nauma tíma,
sem til stefnu var, en flokkur-
inn safnaði þrisvar sinnum
fleiri undirskriftum en þörf var
á.
UPP MEÐBUDDUNA!
Gömul ást slokknar aldrei. Að
minnsta kosti ekki, þegar pen-
ingar eru með i spilinu. Það
hefur Alexander Dalison, eftir-
launamaður í enska bænum
Folkestone, komizt að raun um.
Þótt 19 ár séu siðan hann
fékk skilnað frá f.\Tri konu
sinni, hefur hann nýlega verið
dæmdur til að greiða henni líf-
eyri.
Alexander Dalison, fyrrum
blaðamaður og ljósmyndari,
kvæntist i fyrsta skipti árið
1936 ungfrú Susanne Therese
Steffan. 18 árum síðar skildu
þau. Ilún fékk vinnu sem ráðs-
kona hjá auðugum presti,
Walter Mayjes, á Suður-Spáni.
Nokkrum ái'um síðar
kvæntist Dalison að nýju og
hafði að mestu gleymt fyrri
konu sinni, er hann fékk óvænt
bréf frá henni fyrir nokkru.
19 árum eftir skilnaðinn
krafðist hún Iífeyris, þvi að
henni hafði lánazt að evða
öllum auði prestsins.
— Auðvitað vildi ég borga,
segir Alexander Dálison. Hann
lét málið ganga til dómstólana,
sem komust að þeirri niður-
stöðu, að honum bæri að
senda vikulega nær 3.000 ísl.
kr. til fyrri konu sinnar og
prestsins hennar á Spáni.
Alexander Dalison og
eiginkona hans, Renée, sem
hefur orðið á gamals aldri að
fara að vinna til að afla fjár,
sem bóndinn þarf að greiða
fyrri konu sinni f lífeyri.
Ilún segir: —Við höfum um
margra ára skeið lifað i fátækt.
Ég hef orðið að selja alla skart-
gripi mína og það eru ár síðan
ég hef getað ke.vpt mér nýjan
kjól.
En fyrii Alexander Dalison
hafa þessi aukaútgjöid, sem
skerða eftirlaun hans um fimm-
tung, þýtt það, að Renée, núver-
andi eiginkona hans, sem hann
gekk að eiga fyrir 13 árum,
hefur orðið að fara að vinna.
★ FARINFRÁ
yale-háskOla
Eric Segal, höfundur hinnar
geysivinsælu skáldsögu „Love
Story“, hefur sagt lausu starfi
sínu sem aðstoðarprófessor í
klassískum bókmenntum við
Yale-háskóla I Bandaríkjunum,
einn kunnasta háskólann þar i
landi. Fyrir 3‘A ári sóttist Segal
eftir prófessorsembætti við
skólann, en eftir talsvert þöf
var það veitt öðrum. í fyrra
bauðst honum annað kennslu-
starf við skólann, þannig að
hann gæti einnig tekið þátt í
ýmsum verkefnum utan skól-
ans í framfaldi af vinsældum
hans, og væri laus við rann-
sóknaskyldu. Hann tók þvl boði
ekki.
SKIPTAST A
UM
VEGABREFIÐ
DÓMARI í Los Angeles hefur
kveðið upp þann úrskurð. að
leikarinn Gary Grant og fyrr-
verandi eiginkona hans, leik-
konan Dyan Cannon. eigi að
skiptast á um yfirráðaréttinn
yfir vegabréfi döttur þeirra,
Jennifer, sem er sjö ára gömul.
Þessi úrskurður var upp kveð-
inn vegna óska Garys um að fá
framvegis að hafa vegabréf
dótturinnar alltaf í sinum fór-
um. Dyan mun fá að hafa vega-
bréfið þau árin, sem númerúð
eru oddatölu, og hefur lnin því
vegabréfið til áramöta. Gary er
nú 69 ára gamall, en Dyan er 35
ára gömul.
LILA LEE LATIN
Lila Lee, sem með dökkum,
glampandi augum og óvenju-
legri framkomu heillaði kvik-
myndahúsagesti og Hollywood-
'stjörnur eins og RudolphValen-
tino og Charlie Chaplin, er
látin, 68 ára að aldri.
Fröken Lee, stjarna þöglu
myndanna og bardagamynda á
fjórða áratugnum, lézt sl.
þriðjudag af hjartaslagi i
sjúkrahúsi f Bandaríkjunum.
Á tjaldinu vann hún sér
frægð og vinsældir sem ást-
vinur margra dáðustu stjarna
þessa tíma, en ástarævintýri
hennar í einkalífinu með
Valentino, Chaþlin og fleirum
voru a.m.k. eins umtöluð í
blöðum.
Hún hóf barn að aldri að
leika á skemmtunum og 13 ára
gömul var hún „uppgötvuð" og
gefin kvikmyndaprófun hjá
leikstjóranum Esse Lasky.
Hún lék fyrst barnahlutverk í
kvikmyndum, en var síðan
ráðin til hins fræga kvikmynda-
félags Players-Lasky hf., sem
var fyrirrennari Paramount-
kvikmyndafélagsins. Fyrsta
fillorðinshlutverk hennar var í
kvikmyndinni „Male and
Female“ undir stjórn Cecil B.
DeMille. Hún lék með Valen-
tino f myndinni „Blóð og
sandur".
18 ára gömul giftist hún í
fyrsta skipti og var eiginmaður-
inn einnig kvikmyndastjarna,
James Kirkwood. Eftir átta ára
sambúð skildu þau og hún sneri
sér aftur að kvikmyndaleik. Á
fimmta áratugnum lék hún i
mörgum leikhúsum i New York
og víðar. Sfðari hjónabönd
hennar, með fjármálamann-
ínum Jack Peine, og síðar fjár-
málamanninum John E.
Murphy, enduðu bæði með
skilnaði.
Sonur hennar, James Kirk-
wood, er leikritaskáld og rithöf-
undur.
AZNAVOURSPAIR
í AÐRA SÆNSKA
Franski söngvarinn Charles
Aznavour hefur valdið aðdá-
endum sínum í Frakklandi
miklu áfalli með því að til-
kynna, að hann ætli að draga
sig I hlé og flytjast til Svf-
þjóðar með konu sinni Ullu,
sem er sænsk, og börnum.
Opinbera skýringin er sú, að
hann sé einfaldlega þreyttur á
að vera í sviðsljósinu og kjósi
rólegra líf f Svíþjóð, sem
honum finnst fallegt land.
Óopinber skýring er sú, að
vissulega telji Aznavour sænskt
landslag fallegt, en þó séu það
fremur ljóshærðar stúlkur, sem
heilli hann.
Er sagt, að hann hafi i fyrri
heimsóknum til Sviþjóðar oft
farið út að skemmta sér án þess
að taka frúna með sér og
mörgum sinnum hafi hann sézt
á næturklúbbum i fylgd með
ungri og enn óþekktri sænskri
leikkonu. Og nú snvria menn:
Er það hennar vegna, sem
hann hyggst flytjast til Sví-
þjóðar?
Utvarp Reykjavík *
LAUGARDAGUR
24. nóvemher
7.00 Morguniitvarp
Vc*ðurfreKnir kl. 7.00. 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20. Fréttir kl.
7.30, 8.15 (ofi forustugr. dagbl.). 9.00 o«
10.00.
MorgunhaEn kl. 7.55
Morgunstund harnanna kl. 8.45: Olga
Guðrún Árnadóttir heldur áfram að
lesa söguna „Börnin taka til sinna
ráða" eftir dr. Gormander (9).
Morgunleikfimi kl. 9.20. Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög á milli atr.
Morgunkaffið kl. 10.25: Páll Heiðar
Jónsson og gestir hans ra?ða um
útvarpsdaí»skrána. Auk þess sagt frá
veðri og vegum.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga
Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir.
14.30 íþróttir
Umsjónarmaður: Jón Ásgeirsson.
15.00 tslenzkt mál
Asgeir Blöndal Magnússon eand. ma«
talar.
15.20 Útvarpsleikrit barna og unglinga:
„Siskó og Pedró“ eftir Estrid Ott í
leikgerð Péturs Sumarliðasonar.
Fimmti þáttur.
Persónurog leikendur:
Pedro.......... ÞórhallurSigurðsson
SLskó............ BorgarGarðarsson
1. smyglari.................. Rúrik Haraldsson
2. smyglari................... Arni Tryggvason
V'arðmaður ...... Knútur Magnússon
Sögumaður....... Pétur Sumarliðason
16.00 Fréttir.
A skjánum
LAUGARDAGUR
24. nóvember 1973
17.00 íþróttir
Meðal efnis er mynd frá Norðurlanda-
móti kvenna í handknattleik og Enska
knattspyrnan, sem hefst um klukkan
18.15.
U msjónarmaður ómar Ragnarsson.
19.15 Þingvikan
Þáttur um störf Alþingis. Umsjónar-
menn Björn Teitsson og Björn Þor-
steinsson.
19.45 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veðurog augtýsingar
20.25 Brellin blaðakona
Breskur gamanmyndaflokkur. Þýðandi
Heba Júliusdóttir.
20.50 Ugla sat á kvisti
Skemmtiþáttur með söng og gleði.
Meðal gesta eru hljómsveitin Lítið eitt
Magnús Sigmundsson og Jóhann
Helgason.
16.15 Veðurfregnir.
Tfu á toppnum
Öm Petersen sér um dægurlagaþátt.
17.15 Framburðarkennsla í þýzku
17.25 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55
Tilkynningar.
19.00 Veðurspá.
FréttaspegiII
19J20 Framhaldsleikritið: „Snæbjörn
galti“ eftirGunnar Benediktsson.
Fjórði þáttur. Leikstjóri: Klemenz
Jónsson.
Persónurog leikendur:
Asleif........... Þóra Friðriksdóttir
Agata...... Margrét Guðmundsdóttir
Eðna ........... Bryndís Pétursdóttir
Jórunn.... Guðbjörg Þorbjamardóttir
Hallbjörn........ Gunnar Eyjólfsson
Tungu-Oddur Jón Sigurbjörnsson
Hallgerður......... Kristbjörg Kjeld
Snæbjörn galti Þorsteinn Gunnarsson
Alfur............... Pétur Einarsson
Dagur............... Gísli Alfreðsson
Geirlaug..................... Guðrún Stephensen
Sögumaður..................... Gísli Halldórsson
19.50 Vínarvalsar
Hljómsveit Alþýðuóperunnar i Vín
leikur valsa eftir Fucik. Waidteufel.
Kalman og Lehar. Stjórnandi: Josef
Le o G rube r.
20.15 Urnýjum bókum
20.50 Frá Norðurlöndum
Sigma r B. Hauksson talar
21.15 Hljómplöturabb
Þorsteinn Hannesson bregður plötum á
fóninn.
22.00 Frétti r
22.15 Veðurfregnir
22.30 Danslög
23.55 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok.
*
Umsjónarmaður Jónas R. Jónsson.
Stjóm upptöku Egill Eðvarðsson.
21.20 Serengeti lifir
Bresk fræðslumynd um dýralíf í
Serengeti-þjóðgarðinum í Tansaniu í
Afríku.
Þýðandi og þulur Gísli Sigurkarlsson.
21.50 Égheiti Jerfkó
(Je m’apelle Jerico)
Frönsk bíómynd, byggð á sögu eftir
Catherine Paysan.
Aðalhlutverk Marie Dubois, Jules
Borkon, Michel Simon og Yves
Lefebvre. Leikstjóri Jacques
Poitrenaud. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
Aðalpersónur myndarinnar eru ung
hjón. Sambúð þeirra hefur gengið
heldur brösótt, og þau hafa ákveðið að
skilja, en dag nokkurn fá þau óvænt
boð frá afa gamla i sveitinni, sem biður
þau að koma og eyða sumarleyfinu hjá
sér.
23.30 Dagskrárlok
fclk i
1 fjclmiélum
*
G Kl. 21.15 er Þorsteinn
Hannesson með Hljómplötu-
rabb. Þorsteinn sagðist að
þessu sinni eingöngu ætla að
leika lög úr óperum, sungin af
John McCormack. Hann var
irskur að uppruna. og var einn
mesti tenórsöngvari á sínum
tíma. Hann fæddist árið 1884,
og fékk fyrstu tilsögn sína í
söng við dómkirkjuna í Dyfl-
inni, en nam síðar í Mflanó.
Hann söng slðar við Covent
Garden, víðs vegar í Evrópu og
Ameríku. I fyrstunni söng
hann aðallega í óperum, en
sneri sér síðan að því að syngja
„Lieder“ og önnur sönglög.
John McCormack lézt árið 1945.
l] í kvöld kl. 20.25 er síðasti
þátturinn með Shirley McLaine
í hlutverki brellnu blaða-
konunnar á dagskrá Sjónvarps-
ins. Blaðakonan hefur verið
reglulegur gestur á skjánum
siðan í fyrra, en að undanförnu
hefur hún verið á ferðinni í
Hong Kong. Að þessu sinni er
henni fengið það yerkefni að
gera úttekt á skemmtanalifi
bandarískra hermanna í Hong
Kong. Hún kemst i kynni við
stúlku af kínverskum ættum,
og hefur sú lent i kasti við
fjárkúgara. En nú segjunt við
ekki meira, þvi að þá væri víst
lítið eftir til að skemmta sér
við.