Morgunblaðið - 29.11.1973, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÖVEMBER 1973
3
VEITINGAMENN IHUGA GER-
BREYTINGU Á REKSTRI
A FUNDI Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda með frétta-
mönnum f gær kom fram, að ýms-
ir veitingamenn hyggja á miklar
breytingar á rekstri sínum.
Loftleiðir íhuga nú að loka veit-
ingasölum sínum fyrir almenn-
ingi og hafa þar aðeins matar- og
vínveitingaþjónustu fyrir hótel-
gesti. Síld og Fiskur hefur yfir-
tekið rekstur hins nýja salar
Hótel Holts, Þingholts, og mun
leigja hann undir veizlur og aðra
mannfagnaði. Konráð á Sögu
hyggst bjóða salarkynni Hótel
Bókin Fiskvinnsla
á Islandi komin út
BÓKAVERZLUN Sigfúsar
Eymundssonar hefur nýlega sent
frá sér bókina Fiskvinnsla á Is-
landi, — sem hefur aðgeyma sjö
erindi, er voru flutt f Rfkisút-
varpinu á vcgum Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins í byrjun
árs 1973. í bókinni eru erindin
birt f þeirri röð, sem þau voru
flutt.
Þórður Þwbjarnarson fjallar
um fiskiðnaðinri og rannsókna-
stofnanir hans. Geir Arnesen um
salt og saltfisk, Páll Pétursson um
niðursuðu og niðurlagningu sjáv-
arafurða, Björn Dagbjartsson um
frystingu og frystigeymslu, Páll
Ölafsson um framleiðslu og notk-
un fiskimjöls og lýsis, Jónas
Bjarnason um næringargildi
sjávarafurða og Guðlaugur Ilann
esson um gerlarannsóknir á freö-
fiski.
Bókin Fiskvinnsla á íslandi er
139 bls., hún er sett og prentuð í
Rfkisprentsmiðjunni Gutenberg,
en bundin í Sveinabókbandinu.
Torfi Jónsson teiknaði kápu.
Sögu til leigu fyrir félagasamtök
og aðra aðila. Auglýsir hann i dag
eftir fólki til starfa við slikan
rekstur. Þá skýrði Konráð frá þvi,
að hann hefði í gær tekið ákvörð-
un um að halda ekki áramótafagn-
að á Hótel Sögu með því sniði,
sem verið hefur undanfarin ár.
Glæsibær ihugar að taka einungis
upp salarleigu, eins og var fyrstu
6—9 mánuði eftir að það var opn-
að. Var að heyra á veitingamönn-
unum, að verkfallið hefði skapað
neyðarástand fyrir þá og rekstur
þeirra og gera yrði ráðstafanir til,
að lítill hópur manna gæti ekki í
framtíðinni lamað starfsemi stór-
fyrirtækja. T.d. skýrði Konráð á
Sögu frá þvi, að brúttótap á viku
hjá sér næmi rúmum 5 milljónum
króna.
Framkvæmdastofnun ánægð
að losna við 10% lánin
„AÐ SJALFSÖGÐU er þetta
stjórn Framkvæmdastofnunar-
innar ánægjuefni, “ sagði Bergur
Sigurbjörnsson, einn þriggja
framkvæmdastjóra Fram-
kvæmdastofnunar rfkisins, í við-
tali við Mbl. f gær um þá ákvörð-
un iðnaðarráðuneytisins að fela
stjórn Iðnlánasjóðs að annast út-
hlutun og afgreiðslu á 10% lán-
um vegna skipasmfða innanlands,
en afgreiðsla þeirra lána var áður
f höndum Framkvæmdastofn-
Staða forstöðumanns
Litla-Hrauns laus
DÖMS- og kirkjumálaráðuneytið
hefur auglýst lausa til umsóknar
stöðu forstöðumanns Vinnuhælis
ins að Litla-Hrauni. Samkvæmt
lögum skal skipa i starfið öðrum
fremur Jögfræðing eða félagsráð-
gjafa og skulu þeir sérstaklega
hafa kynnt sér fangelsismál.
Staðan veitist frá 1. júlí 1974, en f
auglýsingu ráðuneytisins segir,
að væntanlegir umsækjendur
þurfi að vera reiðubúnir til að
fara erlendis til að kynna sér
rekstur fangelsa eigi síðar en 1.
marz 1974. Umóknarfrestur er til
20. des. nk.
Starfið er auglýst laust, þar sem
hinn 15. nóv. kl. var Markúsi
Einarssyni, forstöðumanni vinnu-
hælisins, veitt lausn .frá starfinu,
að eigin ósk, frá 1. júlí 1974 að
telja.
Ráðuneytið auglýsti fyrir
mörgum mánuðum eftir aðila,
sem vildi á vegum stjórnvalda
fara utan til námsdvalar til að
kynnast rekstri fangelsa, með það
fyrir augum að taka síðar við”
starfi fangelsisstjóra á íslandi, á
Hrólfur tekinn til
fanga, ný drengjabók
HJÁ isafoldarprentsmiðju er
komin út ný barnabók eftir Peter
Dan. Öm Snorrason íslenzkaði og
heitir bókin á íslenzku Hrólfur
tekinn til fanga. í fyrra kom út
bók um Hrólf, er heitir Hrólfur á
Bjarnarey. Þetta er ein af
vikingasögum ísaföldar og segir
frá tveimur drengjum, Iirólfi syni
Bjarnar víkingakonungs á
Bjarnarey og vini hans á svipuðu
reki. Þeir laumuðust um borð í
víkingaskip og komu ekki heim
fyrr en mörgum árum síðar. Serk-
ir fluttu þá nauðuga frá Hamnia-
borg og þeir lentu í ótal ævintýr-
um og hættum. Hróflur tekinn til
fanga greinir frá spennandi ævin-
týrum þeirra félaganna og þriðja
drengs, sem er frá Danmörku, og
langri sjóferð þeirra.
Litla-Hrauni eða annars staðar. I
samtali við Mbl. í gær sagði Bald-
ur Möller ráðuneytisstjóri dóms-
og kirkjumálaráðuneytisins, að
auglýsingin hefði ekki boriðþann
árangur sem skyldi og enginn
maður verið ráðinn í framhaldi af
henni. Baldur sagði, að stjórn-
völdum væri það þvi ánægjuefni
að fá nokkurn fyrirvara, áður en
nýr forstöðumaður tæki til starfa,
svo að hægt yrði að vanda val
hans og veita honum möguleika á
að undirbúa sig undir starfið með
dvöl erlendis.
unarinnar. „Þetta er gert sam-
kvæmt ósk okkar. Við óskuðum
eftir þessu í jan. sl. og rfkisstjórn-
in hefur haft þetta til meðferðar
síðan,“ sagði Bergur.
Hann sagði, að þessi lánastarf-
semi hefði á sinum tima verið sett
á Atvinnuföfnunarsjóð í hálfgerð-
um vandræðum; viðreisnarstjórn-
in hefði ætlað að setja þetta á
Fiskveiðasjóð, en stjórn hans ver-
ið andvfg þvi. Þá hefði þetta verið
sett á Atvinnujöfnunarsjóð og
ætlunin hefði verið að tryggja
honum fjármagn til þessara lána.
Siðan hefði þetta gengið til
Byggðasjóðs, þ.e. Framkvæmda-
stofnunar. En stjórn hennar hefði
réttilega litið svo á, að þessi hátt-
ur mála væri andstæður lögunum
um Byggðasjóð, því að þessi lán
dreifðust yfir allt landið, lika til
Reykjavíkur, en slíkt væri bein-
linis bannað í lögum Byggðasjóðs.
„Til viðGiátar var það, að heldur
slaklega hefur verið staðið að út-
vegun 10% fjárins og hefur það
þvi komið niður á ráðstöfunarfé
Byggðasjóðs,'1 sagði Bergur enn-
fremur. Hann sagðist telja það
eðlilegast, að þetta væri í Fisk-
veiðasjóði, sem veitir lán til fiski-
skipa, en næstbezt að þetta væri i
Iðnlánasjóði, því að þetta væri
stuðningur við islenzkan skipa-
smíðaiðnað.
Kökubasar til styrktar
peysufatadeginum
NEMENDUR 4. bekkjar Verzl-
unarskóla íslands efna til köku-
basars að Ilallveigarstöðum i
dag, frá kl. 2—6. Er hér um að
ræða nýjung í fjáröflunarleið-
um nemenda til að halda hátíð-
legan peysufatadaginn, sem er
árlegur viðburður í skólalffinu.
Peysufatadagurinn, stærsta
hátíð nemenda i 4. bekk, er
haldinn á vorin og er jafnan
kærkomin tilbreyting i hvers-
dagsleik borgarlífsins. Er því
ástæða til að hvetja menn til að
líta inn hjá „verzlingum" að
Hallveigarstöðum i dag, bragða
á gómsætum kökunum og
styrkja um leið nemendur til að
viðhalda hefð peysufatadags-
ins.
Þrjárnýjarljóða-
bækur frá AB
ALMENNA bókafélagið hóf árið
1968 að gefa út sérstakan flokk
ljóðabóka i samstæðum og smekk-
legum búningi, en jafnframt til-
tölulega ódýrum. Var tilgangur
félagsins einkum sá að koma á
framfæri ljóðum ungra skálda, en
einnig hafa eldri höfundar og
kunnari komið þar við sögu. Hafa
nú alls komið 20 bækur i þessum
flokki og eru þá taldar með þær
þrjár nýju ljóðabækur, sem
Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar
leikur á fullveldishátíðinni í Osló
ÍSLENDINGAR í Osló halda
ávallt mikla skemmtun á full-
veldisdaginn, 1. desember. A3
þessu sinni verður vandað vel til
skemmtihaldsins og hljómsveitin
er sótt heim til Islands. Er það
hin vinsæla hljómsvcit Þorsteins
Guðmundssonar, sem leika á fyrir
dansi á fullveldishátfðinni n.k.
laugardag.
Hljómsveitin heldur utan á
föstudagsmorgun, og á föstudags-
og sunnudagskvöldið eiga Þor-
steinn og félagar að leika fyrir
dansi á einum vinsælasta dans-
staðOslóar, Chatau Neuf.
Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem
hljómsveit Þorsteins Guðmunds-
sonar leikur fyrir dansi á full-
veldishátiðum íslendinga erlend-
is, þvi i fyrra lék hún á fullveldis-
hátið íslendinga i " Gautaborg.
Myndin er af þeim félögum. Talið
frá vinstri: Þorsteinn Guðmunds-
son, Ilaukur Ingibergsson og
Kristinn Alexandersson.
félagið sendir frá sér þessa
dagana, en þær eru:
Grænt líf eftir Ragnheiði Erlu
Bjarnadóttur, ungan Re>kvíking
(f. 1953). Ragnheiður varð stúd-
ent úr náttúrufræðideild Mennta-
skólans í Reykjavík vorið 1973.
Hún stundar nú nám i líffræði við
Háskóla íslands. Þetta er fyrsta
bók Ragnheiðar, en ljóð og sögur
eftir hana hafa áður birzt í skóla-
blöðum.
Leit að tjaldstæði eftir Þóru
Jónsdóttur (f. 1925). Þöra varð
stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1948, stundaði nám við
háskólann i Kaupmannahöfn,
lauk kennaraprófi frá Kennara-
skóla íslands 1968. Þetta erfyrsta
bók Þóru, en á sinum tíma skráði
hún æviminningar Bjargar Dal-
mann í timaritið Heima er bezt.
Gerðir eftir Gísla Ágúst
Gunnlaugsson, ungan Hafnfirð-
ing (f. 1953). Gfsli varð stúdent
úr máladeild Menntaskólans við
Tjörnina vorið 1973. Hann
stundar nú nám i sagnfræði og
bókmenntum við háskólann í
Norwich i Bretlandi. Þetta er
f yrst bók Gisla, en ljóð hans hafa
birzt í skólablaði M.T.
Allar eru þessar 3 ljóðabækur
prentaðai- í Odda og bundnar í
Sveinabókbandinu. Auglýsinga-
stofa Kristinar Þorkelsdóttur
gerði káðuteikningar.
GOÐ SALA SNORRA
STIJRLIJSONAR
ANNAR Skuttogari Bæjarút-
gerðar Reykjavikur, Snorri
Sturluson, seldi aflann úr sinni
fyrstu v'eiðiferð í Þýzkalandi í
gærmorgun.
Snorri seldi 150.4 Iestir fyrir
256.900 mörk og var meðalverð
fyrir hvert kfló kr. 54.30. Er
það mjög gott meðalverð fvrir
þetta mikinn afla. Hluti aflans
var f kössum.