Morgunblaðið - 29.11.1973, Page 7
' MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1973
7
Jakobsen spáð
29 þingsœtum
Þannig lýsir teiknari
sænska biaðsins Afton-
bladet þvf hvernig Er-
hard Jacobsen (til
hægri) hefur klippt
fylgið af Anker Jörgen-
sen.
ÞINGKOSNINGAR verða í
Danmörku á þriðjudag í næstu
viku, eins og fram hefur komið
i fréttum, og ef eitthvað er að
marka skoðanakannanir leiða
þær til mikilla breytinga á skip-
an þingsins. Observa-stofnunin
danska gerði skoðanakönnun
nú um miðjan mánuðinn á veg-
um Morgenavisen Jyllands-
Posten, og niðurstöður hennar
voru þær að flokkamir fimm,
sem nú eiga fulltrúa á þingi,
tapi alls 51 þingsæti, og að
þrír flokkar fái nú fulltrúa
á þingi. Nýju flokkarnir
eru Miðflokkur Erhards
Jacobsens, þess er klauf jafnað-
armannaflokkinn, sem talið er
að verði næst stærsti flokkur-
inn, Framfaraflokkur Mogens
Glistrups og svo kommúnistar,
sem talið er að fái nú 2% at
kvæða og fjóra þingmenn. Til
þess að flokkur fái mann kjör-
inn á þing, þarf hann að fá að
minnsta kosti 2% atkvæða.en
það hefur kommúnistum ekki
tekizt síðan i kosningunum
1957, er þeir fengu 6 menn
kjörna. Samkvæmt Obserua-
skoðanakönnuninni ættu at-
kvæði (í þús.) og þingsæti að
skiptast þannig milli flokk-
anna. í svigum eru úrslitin frá
kosningunum 1971:
Jafnaðarmenn ........
Róttæki Vinstri .....
Vinstri .............
Ihaldsfl.............
Sósialiski þjóðarf ..
Miðflokkur (C.D.) ...
Framfarafl ..........
Kommúnistar .........
Eins og á þessu sést, er mestu
tapi spáð hjá jafnaðarmanna-
flokki Ankers Jörgensens, 30
sæta tap, og hjá ihaldsmönnum,
sem ættu að tapa 11 sætum. En
hafa ber í huga, að könnunin er
gerð rúmum hálfum mánuði
fyrir kosningar, og margt getur
enn breytzt. Þá eru hér ekki
taldir með þingmenn Græn-
lands og Færeyja, en tveir
menn frá hvoru landi eiga sæti
í danska þjóðþinginu.
Observa-stofnunin reiknar
hér með óvenju mikilli kjör-
sókn, eða að 90% af 3.450.000
skráðum kjósendum greiði at-
kvæði. Skýrir stofnunin þessa
miklu kjörsókn þannig, að nú
bjóði alls ellefu flokkarfram til
þings, og hljóti því flestir kjós-
endur að finna meðal þeirra
einhvern flokk, sem þeim líkar.
Af flokkunum fimm, sem nú
eiga sæti á þingi, virðast aðeins
Róttæki vinstriflokkurinn og
Sósíalski þjóðarflokkurinn ætla
nokkurn veginn að halda sinu,
því spáð er, að þeir missi aðeins
eitt sæti hvor.
Erfið stjórnar-
myndun
Alls verða þingmennirnir
179, að meðtöldum fulltrúum
Grænlands og Færeyja, og
minnsti meirihlutinn því 90
þingmenn. Ef úrslit kosning-
anna verða svipuð Observa-
spánni, er erfitt að ímynda sér
hvernig unnt verður að mynda
nýja ríkisstjórn, með meiri-
hluta þings að baki sér. Þannig
hefðu til dæmis Jafnaðarmenn,
Miðflokkur og Sósíaliski þjóð-
arflokkurinn aðeins 85 sæti, og
samsteypa Róttæka vinstri-
flokksins, Vinstriflokksins,
íhaldsflokksins og Framfara-
flokksins 86 sæti.
Observa-stofnunin kannaði
einnig hvaðan nýju flokkarnir
tveir, Miðflokkurinn og Fram-
faraflokkurinn, fengju aðailega
atkvæði sín. Kom í ljós, að um
helmingur þeirra, sem nú segj-
ast ætla að kjósa Miðflokk Er-
hards Jacobsens greiddu jafn-
aðarmönnum atkvæði i kosn-
ingunum I september 1971.
Virðist Jakobsen því hafa á
réttu að standa þegar hann
heldur þvi fram, að aukin
vinstristefna Ankers Jörgen-
sens hafi fælt fjölda kjósenda
frá jafnaðarmönnum. Auk
þessa er talið, að Jakobssen fái
um 60 þúsund atkvæði frá hvor-
um flokkarma, Róttæka vinstri-
flokknum og íhaldsflokknum,
50 þúsund atkvæði frá Vinstri,
35 þúsund frá Sósíalska þjóðar-
flokknum. Er hér um að ræða
kjósendur, sem höfðu ætlað að
greiða þessum flokkum at-
kvæði áður en flokkur Jakobs-
ens kom til sögunnar fyrr í
þessum mánuði.
Það vekur jafnan nokkra at-
hygli hvernig nýju kjósendurn-
ir — þeir, sem ekki höfðu feng-
ið kosningarétt við sfðustu
kosningar — skiptast milli
flokkanna. Samkvæmt
Observa-könnuninni skiptast
þessir kjósendur þannig milli
flokka í kosningunum á þriðju-
dag: Jafnaðarmenn fá 15%,
Róttæki vinstri 16%, íhaldsfl.
11%, Vinstri 5%, Retfarsam-
bandið 2%, Sósíaliski þjóðarfl.
23%, Framfaraf lokkurinn
11%,og Miðflokkurinn 17%.
Verður fróðlegt að fylgjast
með þvi í næstu viku hve
nærri sanni úrslit skoðana-
könnunarinnar reynast.
(Ur Morgenavisen J.vllands-
Posten)
683 þús. 40 þingm. (1.075 þús. 70 þingm)
435 þús. 26 þingm. ( 414 þús. 27 þingm)
373 þús. 22 þingm. ( 451 þús. 30 þingm)
342 þús. 20 þingm. ( 481 þús. 31 þingm)
279 þús. 16 þingm. ( 263 þús. 17 þingm)
497 þús. 29 þingm. ( 0 þús. 0 þingm)
311 þús. 18 þingm. ( 0 þús. 0 þingm)
. 62 þús. 4 þingm. ( 40 þús. 0 þingm)
BROTAMÁLMAR
Kaupi allan brotamálm langhæsta
verði. Staðgreiðsla.
Nóatún 2 7, sími 25891
BÍLAVIÐGEROIR
Bílaverkstæðið Bjarg Bjargi við
Sundlaugaveg, simi 38060.
Tökum að okkur allar almennar
bilaviðgerðir. Bilaverkst. Bjarg,
Bjargi, s 38060
JARÐÝTA TIL LEIGU
22 tonna ýta með Rippertil leigu i
stærri og smærri verk Upplýsing-
ar i síma 51857
UNG KONA
MEÐTVÖ BÖRN
óskar eftir að taka á leigu 2ja herb
ibúð Uppl i sima 84876 eftir kl
7 i kvöld og næstu kvöld
YTRI-NJARÐVÍK
Til sölu 3ja herb ibúð i góðu
ástandi með bílskúr Lausstrax.
Fasteignasalan,
Hafnargötu 27, Keflavik,
Sími 1420.
ÓSKA EFTIR
að ráða stúlku til afgreiðslustarfa
Torg h.f.,
Vatnsnesvegi 16,
sími 92-2674
SUÐURNES
Vil komast i fasta vinnu með
sendiferðabil, nýr bill Upplýsingar
i sima 92-2368
LITLAR TOGVINDUR
fyrir smærri báta til sölu.
Vélaverkstæði J Hinriksson hf..
Skúlatúni 6
Simar 23520 og 26590
Heimasimi 35994
KEFLAVÍK
Til sölu ný glæsileg 3ja herb ibúð
með bilskúr Skípti á minni ibúð
kemurtil greina
Fasteignasalan.
Hafnargötu 27, Keflavik
Sími 1420
ÚRVALS SÚRMATUR
Súrsaðir lundabaggar, hrútspung-
ar, sviðasulta, svínasulta. Úrvals-
hákarl, sild og reyktur rauðmagi
Harðfiskur, bringukotlar
Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2,
simi 35020
NOTAÐAR VÉLAR
Höfum notaðar, ódýrar vélar. gir-
kassa, hásingar, felgur í flest allar
gerðir eldri bila Bilapartasalan,
Höfðatúni 10, simi 11397.
ATVINNA
Reglusamur piltur eða stúlka ósk-
ast til afgreiðslust sem fyrst ■’
verzlun Axels Sigurgerssonar
Uppl gefnar i búðinni, ekki i sima
MYNDATÖKUR
alla daga vikunnar.
Pantið i sima 1 7444
Ljósmyndastofan,
Jón K Sæm
Tjarnargötu 10b
TIL SÖLU
sjálfvirk þvottavél
Uppl i sima 332 76
AKURNESINGAR
Vegna breyttra aðstæðna verður
árshátiðin haldin laugard 5
janúar að Hlégarði.
Stjórnir félaganna
TIL SÖLU
G-1 9 vökvadæla
Vélaverkstæði J Hinriksson h.f .
Skúlatúni 6
Simar 23520 og 26590
Heimasimi 35994
TIL LEIGU
Sérherbergi og litil íbúð i timbur-
húsi i miðbænum Tilboð merkt:
471 3 sendistafgr Mbl.
’ 'it.
Innilega þakka éa börnum mínum, tengdabömum, sam-
starfsfólki og öorum vinum og félagasamtökum fyrir
heimsóknir, gjafir og skeyti á 70 ára afmæli minu 13.
nóvember s.l.
Stefán Hannesson,
Hringbraut 37.
I\|ý þjónusta, Rafeindamótorstilling. Aukin
þjónusta. Bætt þjónusta.
Vinsamlegast pantið með góðum fyrirvara.
BIFVÉLAVERKSTÆÐIÐ ' flö 1
11 ÍEI 11 íl l LH
ÁRMÚLA 23 — SlMI 30690