Morgunblaðið - 29.11.1973, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1973
„Aðalsmerkið
verður að vera
sannleiksgildi
frásagnanna”
Rætt við Steinar J. Lúðvíksson um
verk hans Þrautgóðir á raunastund
EINS og frá hefur verið skýrt í
Morgunblaðinu, er komið út
hjá bókaforlaginu Öm og
Örlygur fimmta bindi sjóslysa-
og björgunarsögu Islands,
Þrautgóðir á raunastund eftir
Steinar J. Lúðvíksson blaða-
mann og íþróttafréttastjóra
Morgunblaðsins. Þetta bindi er
hið síðasta f bili og þvf spjölluð-
um við stuttlega við Steinar um
þetta mikla ritverk hans og þau
fimm ár, sem hann hefur unnið
að því, sem hann hefur unnið
að því, en verkið nær yfir árin
frá 1928—1958.
— Hvert var upphafið að út-
gáfu Þrautgóðir á raunastund?
— Hugmyndina að verkinu áttu
þeir Örlygur Hálfdánarson út-
gefandi og Hannes Hafstein hjá
Slysavarnafélagi lslands. Það
varð svo úr, að ákveðið var að
ráðast i samningu þessa rit-
verks og ég féllst á að taka það
að mér, án þess að gera mér
minnstu grein fyrirþvf, hversu
gífurlega umfangsmikið verk-
efnið væri. Upphaflega var gert
ráð fyrir að bindin yrðu 3, en
þau eru nú orðin 5 og verður
hér látið staðar numið í bili.
Samt sem áður tel ég höfuð-
galla ritverksins, hve oft hefur
orðið að stikla á stóru og það
hefur jafnvel ekki verið hægt
að gera meiriháttar atburðum
nema mjögtakmörkuð skil.
— Hvernig hagaðir þú undir-
búningsvinnu og svo samningu
verksins?
— Það fyrsta, sem ég gerði,
var að fara í skýrslur SVFÍ og
kynna mér það, sem þar var
skráð. Sfðan fletti ég i gegnum
öll dagblöð frá þeim tíma og
vann svo út frá þvi. Ég notaði
einnig mjög mikið sjóréttar-
próf, þar sem þau voru til stað-
ar. Ég reyndi svo eftir megni,
að hafa samband við sem flesta
aðila, sem ég hafði grun um, að
gætu veitt mér nánari upplýs-
ingar. Síðast en ekki sízt var
það mér ómetanleg aðstoð, að fá
formenn Slysavarnafélags-
deildanna úti um landsbyggð-
ina til að lesa handritin að bók-
unum, sem þeir hafa jafnan
gert og þeir hafa borið ýmis
atriði undir kunnuga menn á
hverjum stað. Þetta tel ég eitt
veigamesta atriðið, 'til að
tryggja sannleiksgildi frásagna,
sem hlýtur að verða að vera
aðalsmerki ritverks sem þessa.
Það gefur samt auga leið, þegar
sagt er frá svo gífurlegum
f jölda atburða að það vill henda
að hallað sé réttu máli. Við höf-
um lagt mikla áherzlu á, að þeir
sem rækjust á slíkar villur,
hefðu samband við útgefanda
um leiðréttingu og erum við
ákaflega þakklátir þeim mönn-
um, sem það hafa gert og í
þessu síðasta bindi eru leiðrétt-
ingar og viðaukar við ýmsar
frásagnir fyrri binda.
— Þú ert nú hættur í bili,
hver er ástæðan?
— Það þykir ekki rétt að svo
komnu máli, að fara nær sam-
tímanum. Hins vegar hafa
margir skorað á útgefendurna
að rekja sig aftur í tfmann og er
það f athugun. Það yrði auðvit-
að mun erfiðara að vinna slíkt
verk vegna þess, að minna er
um heimildir.
— Hvað er þér minnisstæðast
i sambandi við þetta 5 ára starf
þitt?
— Það er ekkert vafamál, að
það er sá þáttur, sem f jallar um
björgunina við Látrabjarg. Ég
er alveg viss um það, að þeir,
sem ekki hafa komið á staðinn
og séð við hvaða aðstæður
björgunin var framkvæmd,
gera sér ekki nokkra grein fyrir
því afreki, sem þar var unnið.
Frásögn bátsmannsins á
Dhoone, en það var nafn togar-
ans, er einnig mjög minnisstæð.
Hann hafði aldrei talað um at-
burðinn fyrr en Páli Heiðari
Jónssyni tókst að komast að
honum og tók frásögnin svo
mikið á þessa hæruskotnu
kempu, að hann varð hvað eftir
annað að gera hlé á máli sínu
vegna klökkva.
— Ef þú værir að byrja á
verkinu i dag, myndirðu fara
eitthvað öðruvísi að?
— Eg held að það sé ekki
hægt að fara öðru vísi að, nema
þá að gera verkið miklu viða-
meira. Innan þess ramma, sem
Steinar J. Lúðvfksson
verkið er f, held ég, að ekki
hefði verið hægt að fará aðra
eða betri leið.
— Ertu ánægður með verkið í
heild?
— Maður er auðvitað aldrei
ánægður og finnst alltaf að
hægt hefði verið að gera betur
og hefði átt aðgera betur.
— Hverju þakkar þú þær
góðu viðtökur, sem verkið hef-
ur fengið?
— Fyrst og fremst þeim
mikla og lifandi áhuga Islend-
inga á slysavarna- og
björgunarmálum. En hiðöfluga
starf SVFI um allt land erþess
lifandi vottur. SVFl hefði
aldrei orðið það stórveldi, sem
það er, ef áhugi landsmanna
væri ekki svo almennur.
— Nú hlýtur svo mikið verk
að vera talsvert mikill hluti af
sjálfum þér. Nú þegar þú ert
hættur í bili, ertu með eitthvað
annað í bígerð?
— Auðvitað leggur maður
sjálfan sig í slíka ritsmíð og
kannski of mikið, þvf þarna er
um mjög tímafrekt verk að
ræða. Undanfarin tvö ár hef ég
verið að reyna að skrifa skáld-
sögu, sem óhjákvæmilega hefur
orðið hornreka. Nú ætla ég að
reyna að reka smiðshöggið á
hana.
— Þýðir nokkuð að hnýsast í
efni hennar?
— Ekki að svo stöddu.
— Og þá hið klassíska, að
lokum?
— Ég vil nota tækifærið til að
ítreka þakkir mínar til allra
þeirra, sem hafa veitt mér
ómetanlega aðstoð við samn-
ingu þessa verks, sem hafa um-
borið kvabbið í mér bókstaflega
hvenær sem er og fórnað tíma
og vinnu í að aðstoða mig.
-ihj.
Athugasemd
MBL. hefur borizt eftirfarandi at-
hugasemd frá bóksölunefnd
LlM, en hana skipa Skafti
Harðarson og Þórarinn Þörarins-
son, báðir nemendur í Mennta-
skólanum í Reykjavík:
Sfðastliðinn þriðjudag birtist í
Mbl. frétt, þar sem greint er frá
ályktunum landsþings íslenzkra
menntaskolanema. Þar á meðal
annars sagt frá því, að þingið hafi
samþykkt, að hver r.emandi skuli
greiða ákveðið gjald til bóksölu
sambandsins.
I samþykktinni er vikið að því,
að nokkur rekstrarhalli hafi verið
á Bóksölunni sl. ár.
Þarna gætir þó nokkurs mis-
skilnings, Enginn halli var á
Bóksölunni í fyrra, en vegna
mjög óvæginnar samkeppni bóka-
verzlana sat Bóksalan uppi með
nokkurn iager í vor. Þetta leiddi
til tímabundins rekstrarfjár-
skorts, en þeir erfiðleikar hafa nú
að mestu verið yfirstignir.
Allt frá stofnun sambandsins
hefur verið innheimt árgjald-
meðaJ nemenda. Hefur upphæð
þess ýmist verið ákveðin af stjórn
LIM, eða landsþingi. Tekjur sam-
bandsins eru síðan notaðar til að
standa straum að kostnaði við
rekstur þess, þar á meðal Bók-
sölu. Samþykkt þingsins var því
einungis ákvörðun 'á upphæð
þessa árgjalda og Bóksölunni
með öllu óviðkomandi, sem slfkri.
Bóksölunefnd L.Í.M.
— Rafmagns-
skömmtun
Framhald af bls. 32
stöð. Eru skiptar skoðanir um
ágæti þess, því að vélar þessar eru
kældar með vatni frá bæjarveit-
unni og óttast sumir, að í miklum
frosthörkum eins og nú er, gætí
komið að þvf, að bærinn yrði
vatnslaus. Segja gárungarnir að
þegar bæjaryfirvöld voru að hafa
orð á því við rafmagnsveituna, að
þeir yrðu að nota sjókælingu á
nýju rafstöðina, hafi rafmagns-
veitumenn svarað: „Ef þið takið
af okkur vatnið, tökum rið af
ykkur rafmagnið."
— JAPANIR
Framhald af bls. 2.
að þó væru olíuerfiðleikar Japana
síður en svo leystir. Talsmaður
utanríkisráðuneytisins sagði, að
Arabar litu enn ekki áJapan sem
„vinveitt" ríki þrátt fyrir ákvörð-
unina.
Japanir gera ráð fyrir því að fá
30% minni hráolíu en venjulega í
desember. Að sögn talsmanns við-
skiptaráðuneytisins neyðast þeir
til að gera ennþá strangari
sparnaðarráðstafanir en hafa
verið gerðar í Vestur-Evrópu.
Tanaka forsætisráðherra sagði
á fyrsta blaðamannafundi sínum
síðan hann gerði viðtækar breyt-
ingar á stjórn sinni vegna óða-
verðbólgu og áfalla af völdum
olíubanns Araba, að stjórnin
mundi senda sérlegan sendimann
til Arabalanda til þess að útskýra
stefnu Araba í deilum þeirra og
ísraela. Japanir framleiða sjálfir
aðeins 1% þess eldsneytis, sem
þeir þurfa, og fá 85% frá löndum
við Persaflóa.
. I l,^t 'C 1 »11
Stangveiðimenn
vilja banna leigu
til útlendinga
AÐALFUNDUR Landssambands
Stangaveiðifélaga 1973 var hald-
inn laugardaginn 24. nóvember.
Jón Finnsson, sem verið hefur
formaður sambandsins sl. þrjú
ár, gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs og var Hákon Jóhannsson
kosinn formaður.
Á fundinum voru samþykktar
fjölmargar tillögur og ályktanir
og voru þessar helztar: Áskorun
til Alþingis um að afnema laga-
heimild til að leigja erlendum að-
ilum veiðiár og vötn, tilmæli til
landbúnaðarráðherra um aukið
eftirlit með sótthreinsun veiði-
tækja, áskorun til landbúnaðar-
nefnda Alþingis varðandi breyt-
ingar á lögum og reglugerð um
lax- og silungsveiði, sem tekur til
lánaaðstoðar, byggingar veiði-
húsa, útsetningar fiskræktarseiða
og banns við netaveiði á laxi í
straumvötnum á tímabilinu frá
20. júní til 3. júlí, ennfremur allr-
ar netaveiði á laxi á ósasvæðum
ótimabundið. Auk þess skoraði
fundurinn á landbúnaðarráð-
herra að nota sem fyrst laga-
heimild til að ráða sérfræðing i
fiskasjúkdómum að Tilraunastöð
Háskólans i meinafræði að Keld-
um, og skorað var á Alþingi að
samþykkja framkomið frumvarp
til laga um Iax- og silungsveiði,
þar sem afnumdar eru allar
undanþáguheimildir um laxveiði
í sjó.
Nokkrar fleiri tillögur voru
samþykktar um friðunar- og fisk-
ræktarmál og um félagsstarf sam-
bandsins.
Kjörin var ný stjórn og skipa
hana, auk formanns, þeir Friðrik
Sigfússon, Birgir Jóhannsson,
Gunnar Bjarnason og Bergur
Arnbjörnsson. Fulltrúi Lands-
sambands stangaveiðifélaga i
veiðimálanefnd til fjögurra ára
var kjörinn Guðmundur J.
Kristjánsson.
— Grikkland
Framhald af bls. 1
landsins sé nú Dimitrios Ioanni-
des, yfirmaður herlögreglunnar.
Hann er sagður erkióvinur komm-
únistá, en átti einnig i deilum við
Papadopoulos fyrir valdatöku
nýju stjórnarinnar.
Sjálfur er Papadopoulos enn í
haldi, og er haft eftir óopinberum
heimildum, að hann hafi nú verið
fluttur frá heimili sinu til hótels
eins í þorpinu Pikermi nálægt
Aþenu.
Herforingjarnir byrjuðu i dag
að láta laus 300 ungmenni, sem
handtekin voru i óeirðunum síð-
ustu valdadaga Papadopoulosar,
og er það talið merki þess, að þeir
vilji koma sér vel strax i upphafi
við almenning. Og i ræðu sinni i
kvöld sagði Androutsopoulos, að
herforingjastjórnin stefndi að
því, að undirbúa þjóðina undir
það, að verða eina uppspretta
pólitísks valds í landinu.
-------
— Arabar
Framhald af bls. 1
flestar leynilegar. Forsetar Iraks
og Líbýu eru andvígir friðarvið-
ræðum við Israel og sendu enga
fulltrúa.
Anwar Sadat, forseti Egypta-
lands, sagði, að Arabar „mundu
aldrei sleppa einum þumlungi
lands“, að þeir yrðu að vera við-
búnir „takmarkalausum fórnum
til þess að tryggja sigur i réttlátri
baráttu“ sinni.
Akaft var klappað fyrir Hassan
Marokkókonungi er hann sagði:
„Von bráðar biðjumst við fyrir i
hinni heilögu borg Jerúsalem og
hyllum fána Palestínu þar.“
— Þingfréttir
í stuttu máli
Framhald af bls. 14
GJALDAVIÐAUKI
Á sama fundi mælti Halldór E.
Sigurðsson fjármálaráðherra fyr-
ir frumvarpi um heimild til að
innheimta ýmis gjöld með við-
auka. Hefur þetta mál verið af-
greitt frá efri deild.
VERÐLAGSRÁÐ
SJÁVARÚTVEGSINS
Þá mælti Lúðvík Jósepsson
sjávarútvegsráðherra fyrir frum-
varpi um breytingu á lögum um
verðlagsráð sjávarútvegsins.
Einnig þetta mál hefur verið af-
greitt í efri deild.
— Útgjalda-
aukning
Framhald af bls. 32
ingar, að eldsneytisnotkun félags-
ins á síðasta ári hefðu svarað til
97 milljóna króna, en í ár væri
áætlað að heildarkostnaðurinn
vegna eldsneytisins yrði um 160
milljónir — en þá væri að vfsu
gert ráð fyrir nokkuð auknu flugi.
------♦■» ♦-----
— Fyrirspurna-
tími
Framhald af bls. 14
Landkynningar-
starfsemi
Heimir Hannesson (F)
spurði síðan sama ráðherra:
1. Hversu miklu opinberu fé
er áætlað að ráðstafa til land-
kynningarstarfsemi Ferðaskrif-
stofu ríkisins á næsta ári?
2. Hversu há er sú upphæð, er
lögð hefur verið fram af ís-
lenzkri hálfu til að standa
straum af kostnaði við nor-
rænar kynningarskrifstofur í
Bandaríkjunum og Þýzkalandi
á undanförnum þremur árum,
og hversu miklu fé er áætlað að
ráðstafa í því sambandi á næsta
ári?
Björn Jónsson sagði, að skv.
fjárlagafrumvarpi væri ætlað
að verja 8.270.000,00 kr. í því
skyni, sem 1 tl. fjallaði um.2 tl.
fyrirspurnarinnar svaraði hann
þannig: 1970 603,5 þús. kr„
1971 1.744 þús. kr„ 1972 3.763,5
þús. kr„ 1973 5 milljónir, þar af
4,4 til skrifstofunnar í Banda-
ríkjunum. Áætlun fyrir 1974
væri 5,3 milljónir, sem væri
64% af landkynningarfénu
öllu. Þar af færu 4,7 milljónir
til skrifstofunnar i Bandarikj-
unum.
Endurskipulagning
utanríkisþjónustunnar
Heimir Hannesson (F)
spurði utanríkisráðherra:
1. Hvað líður þeirri endur-
skoðun á starfsemi utanríkis-
þjónustunnar, sem málefna-
samningur ríkisstjórnarinnar
kveður á um?
2. Hefur verið leitað álits for-
svarsmanna útflutningsaðila i
sambandi við þá endurskoðun?
Einar Agústsson svaraði: 1.
Endurskoðunin hefði verið til
athugunar að undanförnu og
ættu skýrslur að liggja fyrir
bráðlega.
2. Samráð hefði verið haft við
ýmsa útflutningsaðila.
II . ■< < I ) ilt
I I l.i« i
r i
I,