Morgunblaðið - 29.11.1973, Side 32
FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1973
3töorðijnFtot>i&
nuGivsmGMt
^-«22480
Hækkun á olíu og veið-
arfærum kostar fiski-
skipaflotann milljarð
Frá setningu aðalfundar Landssambands íslenzkra útvegsmanna á Hdtel Esju f gær. Kristján Ragnarsson
form. L.f.Ú. er f ræðustól. Ræða Kristjáns er birt f heils á bls, 17. í dag.
Ljósm. Mbl., ÓL K.M.
Halli á skuttogara er
kr. millión á mánuði
ÞAÐ blæs ekki byrlega fyrir
þeim, sem nú gera út hina nýju
skuttogara. því komið hefur í Ijós,
að haili á rekstri skuttogara er
rúmlega milljón kr. á mánuði eða
meira en 12 millj. kr. á ári. Nú
eru komnir til landsins margir
hinna nýju skuttogara af öllum
vegna verðhækk-
ana á eldsneyti
VERÐHÆKKANIRNAR á olíu
og eldsneyti á heimsmarkaði
"vunu valda geysilegri útgjalda-
aukningu hjá helztu fyrirta-kjum
hérlendis, sem stunda flutninga
landa f milli. Til dæmis er út-
gjaldaaukningin hjá Eimskipa-
félagi Islands af þcssum sökum
orðin um 188 miiljónir króna frá
þvf í júní 1972, hjá Loftleiðum
geta útgjöld vegna eldsneytrs
ha>kkað um 277 milljónir króna f
ár og hjá Flugfélagi íslands um
rúmar 60 milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum frá
Eimskipafélagi íslands hefur
olíukostnaður félagsins hækkað
frá því í júni 1972 úr 59 milljón-
um króna í 247 milljónír króna —
miðað við ársgrundvöll. Nemur
þetta sem svarar 319% og jafn-
gildirþað um 188 milijóna króna
útgjaldaaukningu vegna þessa
kostnaðai liðar í rekstri félagsins.
Eimskip gerir einnig ráð f.vrir
því, að olíuskorturinn muni geta
haft í för með sér truflun á skipa-
ferðum Eimskipafélagsins. Félag-
ið hefur haldið uppi reglulegum
áætlunarferðum vikulega frá
Felixstowe í Bretlandi, Hamborg,
Gautaborg ()g Kaupmannahöfn,
og á tíu daga til hálfsmánaðar-
fresti frá Rotterdam, Antverpen,
Kristiansand, Norfolk og fleiri
gerðum, sem verið er að kaupa. 16
verða af stærðinni 700—1000
rtfmlestir og 29 eru af minni gerð
þ.e. á milli 400 og 500 rúmlestir.
Nýi togaraflotinn telur þvf 50
skip, og ef miðað er við ársút-
gerðargrundvöli þessara skipa
yrði tapið á þeim 600 millj. kr.
höfnúm. Þessar reglubundnu
ferðir hafa verið vel nýttar af
viðskiptavinum Eimskips og yrði
því röskun á þeim til mikilla
óþæginda fyrir þá.
Hjörtur Hjartar hjá skipadeild
SIS tók mjög í sama streng og
sagði, að öll skipafélögin ættu við
þessa erfiðleika að stríða. Hann
benti á, að í ýmsum erlendum
höfnum hefði nú verið tekin upp
olíuskömmtun, þan.nig að skipa-
félögin fengju úthlutað ákveðn-
um kvóta af olíu. Hann kvað nú
Rafmagns-
skömmtun
austanlands
Fáskrúðsfirðu 28. nóv. 73.
IJTIÐ hefur verið um atvinnu
hér að undanförnu. Ogæftir hafa
verið hjá smábátum og má segja
að skuttogarinn Ljósafell sé eina
skipið, sem gert er út héðan.
í dag landaði skipið um 100
lestum af fiski, sem tekinn verður
til vinnslu.
Miklar frosthörkur hafa verið
hér að undanförnu, sem hafa m.a.
leitt til orkuskorts hjá Grimsár-
virkjun og rafmagnsskömmtunar
hér austanlands. Heyrzt hefur, að
hér eigi að koma upp díselraf-
Framhald á bls. 18
Þetta kom m.a. fram í ræðu Krist-
jáns Ragnarssonar á aðalfundi
L.Í.Ú. í gær.
Sagði Kristján, að ljóst væri, að
nýju skipin hefðu aflað vel og
aflaverðmæti þeirra væri um
25% hærra á úthaldsdag en eldri
siðutogara og fjöldi skipverja á
svo komið hjá skipadeildinni í
nokkrum höfnum erlendis, að
nóvemberkvótinn væri að fullu
nýttur og ekki nema örfá tonn
eftir af desemberkvótanum.
Menn gætu því rétt ímyndað sér
erfiðleikana, sem skipafélögin
ættu við að striða þessa dagana.
,,ÖI1 þau ár, sem ég hef staðið i
skiparekstri,“ sagði Hjörtur,
„hafa aldrei blasað við önnur eins
vandamál, bæði kostnaðarlega og
ekki síður rekstrarlega — hrein
barátta við að geta haldið skipun-
um úti vegna olíuskortsins."
Hjá flugfélögunum gætir
eldsneytisskorts ekki ennþá að
ráði, en þar segir hins vegar
kostnaðarhliðin rækilega til sín.
Hjá Loftleiðum fékk Morgunblað-
ið þæ>r upplýsingar, að á árinu
1972 hefði eldsneytisnotkunin
þar numið 35 milljónum banda-
rfskra gallóna og það gerðu um
3.860.000 dollara. Ekki hefðu
komið til verulegar verðhækkanir
fram eftir þessu ári, en í desem-
ber væri áætlað, að eldsneytis-
verðið hefði hækkað um 85%, þar
af næmi hækkunín síðustu 2—3
mánuði um 50%. Miðað við 35
milljón gallona eldsneytisnotkun
í ár samkvæmt desemberverðinu,
næmi hækkunin í ár 277 milljón-
um fsl. króna og samkvæmt því
verði hækkaði það enn um 167
milljónir á næsta ári.
Hjá Flugfélagi íslands fékk
Morgunblaðið loks þær upplýs-
Framhald á bls. 18
NÚ er talið, að hækkanir þær á
olíu og veiðarfærum, sem eru að
skella yfir, muni kosta fiskiskipa-
flota landsmanna um 1 milljarð á
ári. Kom þetta meðal annars fram
f ræðu Kristjáns Ragnarssonar
formans L.Í.Ú. þegar hann setti
aðalfund sambandsins f gær.
Sagði Kristján, að fyrirsjáanleg
verðhækkun á oliu ylli útgerð
bátaflotans auknum útgjöldum,
um 500 millj. kr. á ársgrundvelli
og togurum um 200 millj. Veruleg
verðhækkun veiðarfæra og erfið-
leikar í útvegun þeirra munu enn
auka á rekstarerfiðleika útgerðar-
innar. Talið er, að sú verðhækkun
geti numið 300 millj. kr. á ári.
Kristján sagði ennfremur, að
minni skipunum aðeins rúmlega
helmingur af áhöfn síðutogara.
Afli skipanna færi yfirleitt f
kassa og kæmi að landi sem 1.
flokks hráefni.
Ilann sagði, að stofnkostnaður
togaranna væri gífurlegur og
engin leið að standa við þær
skuldbindingar ,sem þeim væri
gert að búavið, þ.e. aðgreiða20%
af aflaverðmæti í vexti og af-
borganir.
Minni skipin væru gerð út á
bátakjarasamninga, sem miðaðir
væru við allt aðrar aðstæður og
því yrði að semja um kjör sjó-
manna á þessum skipum fyrir
næstu áramót. Miðað við núvær-
andi fiskverð og sama afla og
skipin hafa veitt á árinu er
hásetahlutur, án orlofs, um 120
þús. kr. á mánuði. Stjórn L.Í.Ú.
hefði f arið þess á leit við sjávarút-
vegsráðherra, að skipuð yrði
nefnd til að athuga rekstrar-
grundvöll skipanna, þannig að
rekstur þeirra yrði hallalaus í
framtíðinni.
þegar ljóst hefði verið , að fram-
undan væri stórfelldar hækkanir
á olíu og vörum, sem unnar væru
úr olíu, eins og efni til veiðar-
færagerðar, hefði engum dulizt,
að allar forsendur til að veita
kjarabætur væru brostnar. Til-
raunir til að þvinga fram kjara-
samninga myndu aðeins magna
verðbólguna enn meir og því að-
eins rýra lífskjörin.
Aðalfundur Landssambands ísl.
útvegsmanna var settur í gær á
Hótel Esju. Hófst fundurinn með
kosningu fundarstjóra og var
Björn Guðmundsson frá Vest-
mannaeyjum kosinn fundarstjóri.
Síðan flutti Kristján Ragnarsson,
form L.Í.Ú. ræðu, þar sem hann
fjallaði um hin mörgu vandamál
útgerðarinnar, sem nú eru fram-
undan. A eftir ræðu Kristjáns var
skýrsla stjórnar afhent, og síðan
kosið i nefndir. Þá voru reikning-
ar L.t.Ú. og Innkaupadeildar
L.LÚ. lagðir fram, en sfðan hófust
umræður um skýrslu sambands-
stjórnarinnar. Nefndastörf föru
fram í gærkvöldi á skrifstofu
L.Í.Ú. í morgun hófst fundur kl. 9
og verður fundi haldið áfram í
allan dag.
Hamranes-
málið í salt
Saksóknari ríkisins hefur í bréfi
til bæjarfógetans í Hal'narfirði
ákveðið að krefjast eigi frekari
aðgerða f Hamranesmálinu svo-
nefnda að svo stöddu en komi
eitthvað nýtt fram, er varpi Ijósi á
afdrif skipsins, verði málinu
haldið áfram.
Þessi ákvörðun er tekin á
grundvelli sjódóms- og sakadóms-
rannsóknar og að höfðu samráði
við siglingamálastofnunina og
samgönguráðuneytið. Hamranes
RE-165 sökk sem kunnugt er í
blíðskaparveðri hinn 18. júní
1972. Skipstjórinn taldi, að dulf-
sprenging hefði valdið því, að leki
kom að skipinu, en ástæða þótti
til að rannsaka tildrög skip-
skaðans nánar.
Olíuráðherrann keypti
íslenzkar prjónavörur
AHIVIED Zali Yamani olíu-
málaráðherra Saudi-Arabíu
hefur verið f Kaupmannahöfn
undanfarna daga til viðra'ðna
við danska ráðamenn um olíu-
skortinn, eins og sást á forsíðu-
mynd Morgunblaðsins í gær.
Heimsókn hans þar f landi
væri þó varla í frásögur fær-
andi hér uppi á Fróni, ef ráð-
herrann hefði ekki komizt þar
í kynni við prjónavörur frá
Álafossi og orðið hrifinn af
þeim, svo að um munaði.
I fyrradag gerði hann sér
þannig sérstakt erindi suður
fyrir Kaupmannahöfn á
búgarð Elenor nokkurrar
Jeldorf, sem er umboðsmaður
Vilborgar Hansen, en hún er
aftur umboðsmaður Alafoss á
Norðurlöndum. A þessum bú-
garði hefur verið komið upp
sérstökum sýningarskála með
Alafossvörum. og fór Yamani
þangað gagngert til að skoða,
hvað væri þar á boðstólum.
Skoðaði hann allt gaumgæfi-
lega, lýsti hrifningu sinni á
vörunum og keypti töluvert til
að taka með sér heim.
Geysileg útgjaldaaukning
hjá skipa- og flugfélögum