Morgunblaðið - 06.12.1973, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DKSKMBKR 1973
5
Sérstæð
bensínkaup
Edina, Minnesota 4. des. AP.
BENSÍNSKORTURINN segir
víða til sin. Fyrir þvi fann
Thomas nokkur Barrett, sem býr í
Uthverfi Edina í Minnesota, í
morgun. Þegar hann kom að bif-
reið sinni hafði bréfi verið
stungið undir aðra þurrkuna. Þar
stóð: ..Þurfti svo sárlega á bensini
að halda, að ég tók úr þínum bil.
En ég er ekki þjöfur." Hjá var
stungið 5 dollara seðli og auk þess
hafði aðilinn verið svo hugulsam-
ur að skilja nægilega mikið
bensín eftir á bíl Thomasar, að
hann komst klakklaust á næstu
bensínstöð.
Hvetur til
afgreiðslu-
banns á vörur
frá Chile
Vaneouver, 3. des. AP.
HORTENSIU ALLENDE,
ekkju Salvadors Allende, fyrr-
verandi forseta Chile, var mjög
fagnað, þegar hún hélt ræðu yfir
hafnarverkamönnum í Vancouver
i Brezku Columbiu og hvatti þá til
þess að neita að afgreiða vörur frá
Chile. Ekkjan er á ferð um
Norður-Ameríku, þar sem hún
heldur fyrirlestra, skýrir frá
stefnu eiginmanns síns, her-
foringjabyltingunni i Chile og
leitar liðsinnis kanadískra ráða-
manna við chileanska vinstri-
sinna.
Ellen Júlíusdóttir félagsráðgjafi:
Um frumvarp til laga
um fóstureyðingu
Nú standa yfir umræður á Al-
þingi um frumvarp til nýrra laga
um fóstureyðingu.
Spurningin um fóstureyðingu á
sér margar hliðar — félagslegar,
læknisfræðilegar, sálfræðilegar,
trúarlegar og fjárhagslegar.
Frumvarpið hefur sérstaklega
vakið áhuga karlmanna (!) og
þeir látið óspart til sín taka I
fjölmiðlum að undanförnu. Einna
mest hefur borið á trúarlegum
skoðunum og 'nafa þær jafnan
viljað sveigja um of til hins
óraunverulega.
í umræðunum er staða konunn-
ar aðalatriðið, og hún ákvörðuð
með þokukenndum „rökum" (til
þess einnig að auka sektarkennd
hennar) um, hvenær fóstur öðlast
manngildi í lfffræðilegum — lög-
fræðilegum — og siðfræðilegum
skilningi.
Sjálfa þungamiðju efnisins —
rétt barnsins til mannsæmandi
uppvaxtar — leggja fáir áherzlu
á.
Meðal barnalækna og sálfræð-
inga er það viðurkennd stað-
reynd, að barn, sem fæðist óvel-
komið, er í aukinni hættu að
verða fyrir skaðlegum áhrifum
allt frá upphafi fósturstigsins.
Barn, sem af þeim, er bera ábyrgð
á uppeldi þess, fæðist óvelkomið
— verður fjarnan á lífsleiðinni
fyrir sálrænum veikindum, enda
rökrétt afleiðing neikvæðs fjöl-
skyldulífs. Mörg þeirra munu
sennilega leysa vandamál sín með
árásargirni — að einhverju Ieyti í
sjálfseyðileggingu — og/eða með
heift gegn þjóðfélaginu og stofn-
unum þess.
Ef öll börn, sem fæðast, væru
raunverulega velkomin myndi þá
ekki þörfin fyrir barnageðdeildir,
geðsjúkrahús, stofnanir fyrir
drykkjusjúklinga, venjuleg
sjúkrahús og fangelsi fara ört
minnkandi? Ofbeldi og árekstrar
af öllu tagi innan fjölskyldunnar
og í þjóðfélaginu myndu einnig
fara ört minnkandi.
Hafa geðlæknar, sálfræðingar
eða prestar athugað málið frá
þessari hlið?
Þessar staðreyndir ættu að
vekja hvern þjóðfélagsþegn —
kristinn eða ekki kristinn — til
umhugsunar um það, sem raun-
verulega skiptir máli.
Þær umræður, sem hingað til
hafa átt sér stað i fjölmiðlum,
hefur skort alla virðingu fyrir
gildi mannlífsins vegna þess að
umræðurnar hafa ekki snúizt um
aðalatriðið — barnið, sem ekki er
öskað eftir.
Sá, sem veit bezt, hvar skórinn
kreppir, er konan, sem sækir um
fóstureyðingu — ekki læknirinn
— ekki presturinn — og alls ekki
stjórnmálamaðurinn — sem þö
hefir vald til þess að neita henni
um fóstureyðingu.
Þetta vandamál verður ekki
leyst af siðferðislega hneyksluð-
um konum og körlum, sem vilja
gera móðurina að syndasel.
21/11 '73.
EJ.
BorgfirÓingar
Spilakvðld og dans
Spilakvöldið sem vera átti 6 des á Hótel Esju, verður i
Félagsheimili Kópavogs, laugardaginn 8 des ki 20 30
Allir velkomnir, meðan húsrúm leyfir.
Skemmtinefndin.