Morgunblaðið - 06.12.1973, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1973
Mynd þessi var tekin
þegar Karl prins var
í heimsókn í
Alhambra á Spáni
um næst síöustu
helgi. Aftast á mynd-
inni, til hægri, sést
lafði Jane Wellsley.
Næsta drottning
Bretlands
ÞAÐ hlaut að koma að því. Nú
þegar Anna prinsessa er
hamingusamlega gift, velta
menn því fyrir sér i vaxandi
mæli, hver verði brúður bróður
hennar, Karls erfðaprins. Karl
prins, sem er eftirsóknar-
verðasti piparsveinn Bretlands,
er nú orðinn 25 ára, og það er
spennandi að velta því fyrir
sér, hver verði væntanleg
drottning Karls konungs III.
Eins og er, snúast
getgáturnar aðallega að lafði
Jane Wellsley, 23 ára dóttur
hertogans af Wellington. Hafa
þau Karl oft sézt saman á opin-
berum stöðum undanfarin tvö
ár. Þegar svo lafði Jane og Karl
prins hittust á Spáni skömmu
eftir brúðkaup Önnu, fðru að
heyrast sögur um, að ef til vill
væri annað konunglegt brúð-
kaup á næsta leiti.
Lafði Jane og Karl prins hafa
hvað eftir annað neitað því, að
nokkurt ástarsamband sé í
uppsiglingu þeirra í milli, en
erfitt er að kveða niður
sögurnar og spárnar um, að
lafði Jane verði ofarlega í huga
erfðaprinsins, þegar hann fer
til Austurlanda i janúar til að
gegna herþjónustu um borð í
freigátunni Jupiter, (sem kom
við sögu í nýafstöðnu þorska-
striði).
Lafði Jane hefur margt sér til
ágætis, og ekki sakar það, að
bræður hennar fjórir eru allir
nánir vinir prinsins.
Ur því Karl prins er nú
orðinn 25 ára, þarf hann ekki
lengur samþykki móður sinnar
til að kvænast sinni útvöldu.
Lögum samkvæmt verður hann
þó að tilkynna leyndarráðinu
fyrirætlanir sínar með árs
fyrirvara, en siðan getur hann
kvænzt ef ekki komi til mót-
mæli frá annarri hvorri deiid
þingsins.
Liklegt er talið, að Karl prins
velji ekki þá leiðina að kvænast
erlendri prinsessu, þótt í ljós
komi að spárnar um lafði Jane
reynist ekki réttar, enda eru
reglurnar um, að konungsborið
fólk verði að kjósa sér maka af
konungsættum orðnar úreltar.
Brezku prinsessurnar —
Margaret, Alexandra og nú
siðasta Anna — hafa allar gifzt
mönnum, sem ekki voru tigin-
bornir.
Óheppilegt er fyrir Karl
prins, að lögin frá 1701 útiloka,
að hann geti kvænzt einhverri
þeirra þriggja prinsessa, sem
annars gætu vel komið til
greina. Samkvæmt þessum lög-
um má hann ekki kvænast
kaþólskri konu, svo verði þeim
lögum ekki breytt eru prins-
essurnar þrjár úr leik, en þær
eru: Caroline prinsessa af
Monaco, sem nú er 16 ára,
Maria. Christine prinsessa af
forum
world features
Eftir
Ian Brown
Belgíu (22 ára), og Astrid
prinsessa af Luxembourg (21
árs).
Sennilega er Margarita prins-
essa, dóttir Michaels fyrrum
konungs Rúmeníu, eina prins-
essan, sem kemur til greina.
Hún sturvdaði nám í Englandi
og er nú 24 ára. Hittust þau
Karl prins í brúðkaupi
Konstantins Grikkjakonungs,
og fór vel á með þeim.
Áður en lafði Jane Wellsley
kom til sögunnar umgekkst
Karl prins mikið Rosie Clifton,
sem er 21 árs og starfar við
fasteignasölu í London. Hún er
dóttir fyrrum ofursta i hernum,
og nú síðast í októbermánuði
dvöldust þau saman yfir helgi i
Balmoral-höll. Frönsk blöð hafa
mjög spáð í það, að Georgiana
Russell verði næsta drottning
Bretlands. Hún er 25 ára, dóttir
brezka sendiherrans á Spáni,
og var oft í fylgd með Karli
prinsi árið 1972. Móðir hennar
var eitt sinn ungfrú Grikkland.
Georgiana talar sjö tungumál
og leikur prýðisvel á gítar.
Bettina Lindsay hefur oft
verið gestur Karls prins bæði í
Balmoral og Windsor. Hún er
22 ára, og afi hennr er jarlinn
af Crawford og Balcarres,
tignasti jarl Skotlands. Hún býr
í London, og hefur Karl oft
verið gestur hennar þar.
Lucinda Buxton er einnig
gamalll vinur prinsins. Hún er
einnig 22 ára, dóttir Aubrey
Buxton forstjóra Anglia Tele-
vision sem er vinur Filipusar
prins, föður Karls. Var hún oft i
fylgd prinsins á skólaárum
hans í Cambridge.
Ef fjölskyldutengsl hafa eitt-
hvað að segja, ætti lafði Rose
Nevill að koma vel til greina.
Hún er dóttir markgreifans af
Abergavenny, en markgreifa
hjónin hafa náin tengsl við
foreldra prinsins. Lafði Rose er
23 ára. Frænka hennar, Angela
Nevill, er 25 ára og hefur einn-
ig tengsl við konungsfjöl-
skylduna. Af öðrum, sem
nefndar hafa verið, má hérgeta
þriggja hertogadætra, en þær
eru: lafði Leonora Grosvenor,
24 ára dóttir hertogans af West-
minster, lafði Victoria Percy,
24 ára dóttir hertogans af
Northumberland og lafði
Charlotte Manners, 27 ára
dóttir hertogans af Rutland.
Listinn er svo til endalaus, og
ótalmargar ungar konur koma
til greina sem hugsanlegar
drottningar Bretlands. Ef til
vill fæst úrskurður strax á
næsta ári.
7
GÓÐU SAMBORGARAR Okkur vantar ibúð sem fyrst. Erum með eitt barn Sími 85792 eftir kl 5. BROTAMÁLMAR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði Staðgreiðsla Nóatúni 27, simi 25891
BLÖNDUNARTÆKI Til sölu eru notuð Danfoss blönd- unartæki Hótel Holt, sími 2101 1. HÚSEIGENDUR Glersetnmg. tvöföldum opnanleg fög og jarnum Setjum upp þak- rennur og önnumst allskyns lag- færingar Upplýsingar i simum 40083 og 71044
TILSÖLU Zefyr 1966 Upptekin vél Góður híll. Upplýsingar í síma 84537 eftir kl 7 e.h. RANGÆINGAR — BREIÐFIRD INGAR Munið spilakvöldið í Lmdarbæ föstudaginn 7 des kl 8 30 Dans á eftir Skemmtmefndm
ÍBÚÐTILLEIGU 3ja herbergja í'oúð með húsgögn- um til leigu nú þegar til 1 maí 1974 Bílskúr til leigu á sama stað Tilboð merkt Vesturbær 808 sendist afgr. Mbl TILSÖLU Cortina árg 1970 Keyrð 48 000 krm, Græn að lit. i' mjög góðu standi Uppl i sima 16957 eftir kl 6
18ÁRA STÚLKU vantar herb eða herb og eldhús. sem fyrst. Algjör reglusemi og góðri umgengm heitið Tilboð sendist Mbl. merkt: Góð um- . gengni — 4836 ANTIK HÚSGÖGN Borðstofusett. sófasett. stakir stól- ar og skápar Svefnsófi og skatt- hol. Selst á sanngjörnu verði. Upplýsingar i sima 1 4839
STÓR WESTINGHOUSE tauþurrkari til sölu Upplýsingar í síma 1 06 1 6 kl 7 e.h. BÍLAVÉLAVIRKI. Óskum eftir að ráða bifvélavirkja eða mann vanan bifreiðaviðgerð- um Bifreiðastöð Steindórs sf., sími 11 588.
NOTAÐAR VÉLAR Höfum notaðar. ódýrar vélar, gír- kassa, hásingar, felgur i flest allar gerðir eldri bíla Bilapartasalan, Höfðatúni 1 0, simi 11397. \£ZÍ&
Basar
Basar Borgfirðingafélagsins verður í Lindarbæ, sunnu-
daginn 9. des. kl. 2.
Ógrynni fallegra muna, prjónavörur, barnafatnaður,
hannyrðir, ýmsar jólavörur, kökur, lukkupokar, ofl.
BOKAUNNENDUR
TAKIÐ EFTIR
kj>JÓDSÖGUR
Enn ein bók i rit
safn Jóns Árna
sonar. ísafoldar
bók er góð bók.
jrÆvintýri
r\ rra bmd
L