Morgunblaðið - 06.12.1973, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1973
Þeir hafa skipulagt varúðarráðstafanir, t.f.v. Gunnar Ólafsson frá eldvarnaeftirlitinu, Rúnar
Bjarnason slökkviliðsstjóri, Stefán Jóhannsson varðstjóri, Tryggvi Þorsteinsson læknir, Pétur
Hannesson, forstöðumaður hreinsunardeildar Re.vkjavíkur, Gunnar Sigurðsson varaslökkviliðs-
stjóri og Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn.
V arúðarráðstafan-
ir vegna hátíðanna
EINS og fram hefur komið
Morgunhlaðinu efndi slökkvi-
liðsstjóri til blaðamannafundar
hér á dögunum til að vekja
menn til umhugsunar um þá
slysa- og eldhættu, er einatt
fylgir jólum og áramótum. A
fundinum var einnig fjallað
um viðbúnað af hálfu slökkvi-
liðs, lögreglu og eldvarnaeftir-
lits til að koma í veg fyrir slík
óhöpp vfir hátfðirnar, og var
þar m.a. rætt um jólatrés-
skemmtanir, sölu á skoteldum
og slysahættu af þeirra völdum.
Jólatrésskemmtanir
Eins og undanfarin ár mun
slökkviliðið annast brunavakt
á opinberum jófatrés-
skemmtunum í samkomuhús-
um. Þeir, sem standa fyrir
þessum skemmtunum verða að
sækja um leyfi til slökkviliðsins
og fá leiðbeiningar um öryggis-
búnað, svo sem útgönguleiðir
og slökkvitæki. Sagði Gunnar
Sigurðsson varaslökkviiiðs-
stjóri, að slökkviliðið legði sér-
staka áherzlu á að vara þá aðila,
sem að jólatrésskemmtunum
standa, við skrauti úr eldfimum
efnum svo sem pappír og plasti
og því að vera ekki með opinn
eld eins og kertaljós. Slökkvi-
liðið beinir og þeim tilmælum
til foreldra barnanna, að þeir
stilli sig um tóbaksreykingar á
þessum skemmtunum.
Sala á skoteldum
Sala á skoteldum er aðeins
leyfð á timabilinu frá 27. des-
ember til 6. janúar og þarf í því
sambandi að sækja um sérstakt
leyfi til eldvarnaeftirlitsins.
Leyfið er bundið ákveðnum
skilyrðum varðandi gerð,
geymslu og afgreiðslu skoteld-
anna. Algjört bann er víð sölu
svonefndra kínverja eins og
verið hefur undanfarin ár,
enda eru þeir stórhættulegir
eins og reynslan hefur sýnt.
Frestur til að sækja um leyfi á
sölu skotelda rennur út hinn
15. desember.
Slys yfir hátíðirnar
Tryggvi Þorsteinsson læknir
á slysadeild Borgarspítalans
gerði grein fyrir viðbúnaði
vegna hugsanlegra slysa yfir
hátíðirnar. Sagði Tryggvi, að
reynslan hefði sýnt, að flest
slys hlytust af skoteldum og
sprengjum. Einnig væru nokk-
ur brögð á því að húsmæður
brenndust illa i viðskiptunum
við jólasteikina á aðfangadags-
kvöld, og heyrarskemmdir af
völdum sprenginga væru ekki
óalgengar. Slysum yfir
hátíðirnar hefur farið fjölgandi
hin síðari ár, þótt minna sé um
alvarleg slys. Slysadeildir
spítalanna munu búa sig undir
hugsanleg slys á svipaðan hátt
og undanfarin ár.
— Dönsku
kosningarnar
Framhald af bls. 1
gjarnri stjórnarandstöðu gagn-
vart hugsanlegri minnihluta-
stjórn borgaraflokkanna.
Þar beinist athyglin sérstaklega
að formanni Venstre. Poul Hart-
ling. sem væntanlegum forsætis-
ráðherra. Leiðtogi hins nýja Mið-
demókrataflokks og fvrrverandi
þingntaður jafnaðarmanna, Er-
hard Jakobsen, segir, að Hartling
sé „lykilmaðurinn", sem sé vel
hæfur til að fá fleiri til að taka
þátt í nauðsynlegri og sk.vnsam-
legri stjórnmálamótun. Hann er
þeirrar skoðunar, að meira að
segja jafnaðaremnn hljóti að
finna til ábyrgðar vegna mikilla
efnahagsvandræða Danmerkur og
muni sýnaslíkri minnihlutastjórn
sanngirni.
Poul Hartling telur sjálfur. að
hann geti ekkert tjáð sig um mál-
ið, fyrr en þingflokkur Venstre
hefur komið saman til fundar
klukkan 14 á morgun. fimmtudag.
Hann kveðst einnig trúaður á, að
jafnaðarmenn muni sýna ótví-
ræða sanngirni í viðskiptum við
slfka stjórn. Þegar hann var um-
búðalaust inntur eftir þessu,
sagði hann, að forsenda fyrir þvl
að fara í for.vstu fyrir stjórnar-
myndun hlyti að vera, að fyrir-
frani væri mótuð ákveðin pólitísk
stefna, sem meirihlutinn fengist
til að styðja.
Vangavelturnar beinast að því
líka. að Venstre muni einir
mynda stjörn. en það mun re.vnast
22 þingfulltrúum erfitt verk að
útvega fólk í allar ráðherrastöð-
urnar, ef jafnframt á að vera
starfhæfur þingflokkur. Því er sá
möguleiki talinn sennilegur, að
Venstre og Radikale venstre verði
saman um stjórnarmyndun.
Formaður thaldsflokksins, Erik
Ninn Hansen, er þeirrar skoðun-
ar, að sigurvegarar kosninganna,
Framfaraflokkurinn, svo og Mið-
demókratar, Kristilegi þjóðar-
flokkurinn og Réttarsambandið
eiga að mynda ríkisstjórn. Ur þvi
verður þó tæplega, þar sem Miö-
demókratar vilja ekki fara í ríkis-
stjórn með Framfaraflokknum,
og KF og Réttarsambandið hafa
lýst því yfir. að þeir muni ekki
taka sæti í rikisstjórn. Mogens
Glistrup, formaður Framfara-
flokksins, hefur'einn stjórnmála-
foringja lýst sig fúsan til að
rnynda ríkisstjórn upp á eigin
spýtur. En efamál er. hvort nokk-
■'ur stuðningur fæst við þá stjórn.
— Olíukreppan
Framhald af bls. 2.
Danmörku væri mánaðarskammt-
urinn enn 57 lestir, 14 í Englandi
45 í Þýzkalandi. Þegar svona væri
koniið. gæti hver hver maður séð,
að ekki væri hægt að sigla langt,
nenia gripið væri til annarra ráða.
Skip S.I.S. hefðu notað 10 þús.
lestir af olíu s.l. ár, og því væri nú
tekin ein.s íiiikíi oiia og hægt væri
í íslenzkunt höfnum, enda sp.vrðu
menn nú ekki, hvað olían kostaði,
heldur hvort hægt væri að fá
hana.
„Guð má vita.“ sagði Hjörtur,"
hvar við stöndum eftir jól. Það’
berast sífellt fréttir um skip, sem
ekki fá afgreidda olíu í höfnum
erlendis. En eitt er víst. að núver-
andi ástand er það alvarlegasta
síðan heimsstyrjöldinni lauk.“
Öttarr Möller forstjóri Eim-
skipafélagsins sagði, að skip
Eimskipafélagsins fengju sama
magn af olíu og þau hefðu tekið
að meðaltali í erlendumhöfnum.
En olíukostnaðurinn væri nú
orðinn gífurlegur. I október á s.l.
ári hefði hvert tonn kostað 27
dollara í Hamborg, en nú kostaði
það 112 dollara.
Sagði Óttarr, að skipin fengju
enn olíu, en ekki væri vitað hvað
það yrði lengi. Þá sagði hann, að
leiga á erlendum skipum hefði
hækkað um 100% á síðustu vik-
um.
Akvæði um
þjóðaratkvæða-
greiðslu
FELAGIÐ Valfrelsi hefur
skrifað forsætisráðherra bréf,
þar sem þess er óskað, að hann
flytji eða láti flvtja frumvarp
til laga um breytingar á 25.
grein stjórnarskrárinnar. Verði
þar bætt inn i ákvæðum um
þjóðaratkvæðagreiðslu. Sam-
kvæmt hinni nýju lagagrein
verði skylt að fram fari þjóðar-
atkvæðagreiðsla á næsta al
mennum kjördegi undirriti
einn hundraðasti hluti kjós-
enda áskorun um það, en til
þess að þjóðaratkvæðagreiðslan
fari fram á öðrum degi en al-
mennum kjördegi verður einn
tíundi hluti kjósenda að rita
undir áskorunina. Urslit verða
bindandi, ef 60 af hundraði
kjósenda eru málinu fylgjandi,
en ráðgefandi, ef 40 af hundr-
aði kjósenda eru því hlynntir.
Guðmundur H. Garðars-
son formaður Samtaka
um vestræna samvinnu
SAMTÖK um vestræna samvinnu
(SVS) héldu aðalfund sinn 1 lok
síðasta mánaðar. Þar voru fráfar-
andi formanni þökkuð störf í
þágu samtakanna. Ný stjórn var
kosin á fundinum, sem nú hefur
skipt með sér verkum.
Stjórnin er þannig skipuð: For-
maður er Guðmundur H. Garðars-
son, sem kosinn var sérstaklega á
aðalfundi, varaformaður Björg-
vin Vilmundarson, ritari Styrmir
Gunnarsson, gjaldkeri Heimir
Hannesson, en meðstjórnendur
þeir Ásgeir Jóhannesson, Björn
Bjarnason, Jón Abraham Ólafs-
son, Kristján G. Gislason, Leifur
Sveinsson og Tómas Karlsson.
Framkvæmdastjóri er Magnús
Þórðarson.
Á aðalfundinum voru gerðar
tvær ályktanir. Hin fyrri er svo-
Guðmundur H. Garðarsson.
Sinfónían í
Hlégarði
TÓNLISTARFÉLAG Mosfells-
sveitar efnir til hausttónleika í
Hlégarði fimmtudaginn 6. desem-
ber, kl. 21. Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leikur á tónleikunum og
mun hún leika verk eftir Mozart,
Brahms, Hándel, Kaldalóns og
fleiri. Stjórnandi hljómsveitar-
innarverður Páll P. Pálsson.
Tónlistarfélagið hefur ávallt
stefnt að því að efna til tónleika
vor og haust.
hljóðandi: „Aðalfundur SVS,
haldinn 28. nóvember 1973, minn-
ir á nauðsyn þess, að lýðræðis-
sinnuð öfl á íslandi standi traust-
an vörð um öryggis- og sjálf-
stæðismál þjóðarinnar, og að þeir
stjórnmálaflokkar, sem aðhyllast
lýðræðislega stjórnarhætti, efli
samstarf sín á milli í þessum efn-
um.“
1 hinni síðari er fjallað um land-
helgismálið og NATO-rikin og
segir þar m.a., að aðalfundurinn
fagni því, að bráðabirgðasam-
komulag hafi tekizt f landhelgis-
deilunni við Breta. Lítur aðal-
fundur SVS svo á, að þáttur ríkis-
stjórna aðildarríkja NATO og
framkvæmdastjóra þess hafi ver-
ið mjög mikilvægur í þeirri lausn.
— Maður
drukknaði
Framhald af bls. 36
Ijós, að Hafrún var ekki enn kom-
in inn í höfn. Hófst leit þegar í
stað og tveir menn sem voru að
koma frá höfninni heyrðu kallað
hjálp, þegar þeir voru stutt fyrir
utan frystihús Síldarvinnslunnar.
Var annar þeirra með sterkan
ljóskastara og fóru þeir með kast-
arann niður í fjöru og fóru að lýsa
út í myrkrið. Sáu þeir þá, hvar
maðurinn hékk á lóðabelgnum
stutt frá landi. Hafði hann borizt
með vindinum inn fjörðinn í átt
að landi. Mönnum tókst þarna að
ná manninum upp í fjöruna, og
var hann þá aðframkominn af
þreytu og vosbúð, eins og fyrr
segir, og mátti ekki tæpara
standa.
Hafrún var 10 lestir að stærð,
smíðuð út furu og eik árið 1962.
Morgunblaðið sneri sér síðan til
Hannesar Hafstein, framkvæmda-
stjóra Slysavarnafélagsins og
spurði hann um þátt Tilkynninga
skyldunnar i þeim viðbúnaði,
sem hafður var fyrir austan, þeg-
ar óveðrið skall á. Hannes sagði,
að það hefði verið um hádegi 1
gær, að skyndilega skall á ofsa-
veður þar eystra og samkvæmt
upplýsingum Tilkynningarskyldu
fsl. fiskiskipa hjá SVFI hafði
fjöldi minni fiskiskipa farið 1 róð-
ur frá verstöðum á Austfjörðum
fyrr um morguninn.
Þegar veðrið skall á, hóf Nes-
radíó að kalla bátana upp og spyrj
ast fyrir um ferðir þeirra og Til-
kynningaskyldan hafði samband
við Fylki NK-102, sem er 92
tonna bátur, og bað hann að koma
þeim skilaboðum til stærri togara
og fiskiskipa á þessum slóðum og
fylgjast með ferðum minni bát-
anna, ef þeir þyrftu á aðstoð að
halda.
Fylkir fór síðan til aðstoðar
Dofra NK-100 og fylgdi honum
síðan inn til Neskaupstaðar. Tog-
skipið Barði fór til aðstoðar Haf-
rúnu NK-48 og lagði af stað
ásamt henni áleiðis til Norðfjarð-
ar. Ofsaveður var á þessum slóð-
um um þetta leyti og sóttist ferðin
seint. Klukkan 16.40 tilkynnti
Nesradíó Tilkynningaskyldunni
að Hafrún og Barði væru komin
inn á Norðfjarðarflóann og kl. 17
fékk Tilkynningaskyldan skeyti
um, að skipin væru komin til
Neskaupsstaðar. I. sama mund
varð hið sviplega slys, er
grejnt er frá hér að ofan. Togskip-
in Hinrik KÓ-7 og Arinbjörn
RE-54 ásamt Sæþór SU-175,
sem er 11 tonna bátur, höfðu sam-
flot til Eskifjarðar, og samkvæmt
beiðni Tilkynningaskyldunnar
var Hvanney, sem var á leið frá
Hornafirði til Seyðisfjarðar feng-
in til að fylgja Blíðfara frá Seyðis-
firði og Þóri Dan NS-10 til
Seyðisfjarðar og sóttist ferðin
þangað slysalaust. Bátarnir frá
verstöðvunum á Suðurfjörðunum
áttu hins vegar léttara með að ná
til hafnar og sagði Hannes Haf-
stein, að ekki væri vitað um nein
önnur slys eða óhöpp á þessum
slóðum. Hannes sagði, að starfs-
menn Tilkynningaskyldunnar
vildu sérstaklega þakka starfs-
mönnum á Nesradíói fyrir fram-
lag þeirra f gær — en þeir voru 1
stöðugu sambandi við bátana,
meðan þeir voru á heimsigling-
unni. Eins bæri að þakkka skip-
stjórnarmönnunum á stærri bát-
unum fyrir það, hversu þeir
fylgdust vel með minni bátunum.
— Ekkert gert
Framhald af bls. 3.
þeim eru samfara. Afturkippur 1
útgerð og stöðvun hennar myndi
með öllu kippa grundvellinum
undan ríkjandi vesæld þjóðarinn-
ar og góðri afkomu hennar um
ófyrirsjáanlega tima.
Þar sem augljóst er, að útgerð
verður ekki stunduð á næsta ári,
nema nauðsynlegar ráðstafanir
séu gerðar til að tryggja öruggan
rekstrargrundvöll hennar, og þar
sem enn er með öllu óljóst, hvaða
ákvarðanir verða teknar, telur
undurinn, að heildarsamtökin
undir forystu sambandstjórnar-
innar verði að hafa vakandi auga
með framvindu mála, og sé þvf
ekki fært að slíta fundinum, fyrr
en úrlausn hefur fengizt, og sam-
þykkir þvi að fresta honum.“