Morgunblaðið - 06.12.1973, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1973
-Stefnt skal að
Framhald af bls. 19
skattur hækki um rúm 40%. Jafn-
framt er áætlað að skattvísitalan
hækki aðeins um 20%. Bendir
þetta ótvírætt til þess, að mun
stærri hluti en áður af tekjum
fólks lendi i hátekjuskatti. Til
þess hljóta samtök launþega að
líta og kröfur þeirra að verða
hærri en ella, nema breyting
verði þar á.
Beinir skattar
óþjóðhollir
Eg geng þess ekki dulinn, að
ýmsar mótbárur verða gegn
afnámi beinna skatta. Kemur það
til af ýmsu. Sumir vilja halda i
það gamla, af því að þeir eru
hræddir við allar breytingar.
Aðrir vilja viðhalda kerfi, er geti
sem oftast skapað misræmi, öfund
og úlfúð í þjóðfélaginu i þeirri
von, að það geti orðið þeirra
óþjóðlegu einræðisstefnu til
framdráttar. Og svo eru þeir, sem
telja þörf fyrir beina skatta til
tekjujöfnunar, sem er fallegt orð,
og til að draga úr kaupgetu, þegar
spenna skapast i efnahagslifinu.
En eigi slíkir skattar að hafa áhrif
i þeim efnum verða þeir að leggj-
ast til hliðar, en ekki að fara til
aukinna útgjalda hjá skattheimtu
aðilanum eins og jafnan hefur
verið gert. Hvatning til sparnaðar
og samdráttur í útlánum verða i
þjóðfélagi eins og okkar íslend-
inga miklu sterkara hagstjórnar-
tæki en hin beina skattlagning.
Tækifæri til úrbóta
Eg lít svo á, að nú sé tækifæri
til mikilla og jákvæðra átaka til
að koma efnahagsmálum okkar
á traustari grundvöll. En til þess
þarf að gera ýmsa róttæka hluti. I
fyrsta lagi þarf að stefna ákveðið
og í stórum skrefum að afnámi
beinna skatta. I öðru lagi þarf að
hækka lágu launin, en kjara-
bætur til þeirra betur launuðu
komi að mestu leyti fram í skatta-
lækk.un. í þriðja lagi þarf að gjör-
breyta kaupgreiðsluvísitölunni, í
það form, sem áður er vikið að. í
fjórða lagi þarf að dreifa valdinu
og draga þannig stórlega úr þeim
milliliðakostnaði, sem miðstýr-
ingin veldur. Fleira mætti nefna
en það er ekki hægt í stuttu máli.
Verði þetta gert er það skoðun
mín, að sú breyting yrði mjög til
hagsbóta. Meira jafnvægi mundi
skapast í efnahagsmálum og
stjórnun þeirra verða einfaldari,
verðlag yrði stöðugra, kaup-
máttur launa mundi aukast og
verða varanlegri, afkastageta
þjóðarinnar f heild verða meiri
o.fl.mætti telja.
25
Þarf nýja menn?
Það er þvi sannarlega þess virði
að skoða þessi mál vandlega og
þora að ráðast á kerfið og rífa þau
út úr þvi. Manna sig upp í að
takast á við vandann í stað þess að
velta honum á undan sér með
meiri og minni bráðabirgðaráð-
stöfunum. Séu stjórnmála-
mennirnir hvar i flokki sem þeir
standa orðnir svo samdauna kerf-
inu, að þeir sjái ekki hvar skórinn
kreppir eða svo þreyttir. að þeir
nenni ekki að takast á við vand-
ann, þá er sannarlega kominn
timi til að þjóðin geri sér grein
fyrir ástandinu og fái aðra menn
til að taka við.
Páll V. Daníelsson.
DREGIÐ
EFTIR
2 DAGA
SKYNDIHAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
10 OTVARPSTÆKl
KASSETTU
' V'
HEILOARVERÐMÆTl KR. 827.000.00
OkZGiÚ 8. OES6MSE8 im
UmTSlNGA* ISIMA ITHO m<»hk n oonx nuk» wstmw. .1
• •
DREGIÐ
EFTIR
2 DAGA
DRÆTTI EKKI FRESTAÐ
VINSAMLEGAST GERIÐ SKIL. SKRIFSTOFAN, LAUFÁSVEGI 47.
ER OPIN TIL KL. 10 í KVÖLD. SÍM117100.
ANDVIRDI MIDA SÓTT HEIM, EF ÓSKAÐ ER.
Skyndihappdrætti Sjálfstæðisflokksins.
■