Morgunblaðið - 06.12.1973, Qupperneq 36
H*
Ham
R H A F I O IVI EO
Á 10 Daga Fresti Fra
Hamborg og Antwerpen
HAFSKIP H.F.
Finnskur kristall frá
híis(;a(;navkk/i,un
< KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
l aiuiaviidi Kt Kcykjiivik simi 25870
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1973
Maður drukknaði á
Norðfirði — annar
bjargaðist nauðulega
EINN maður drukknaði,
þegar vélbátnum Hafrúnu
NK-46 hvolfdi á miðjum
Norðfirði síðari hluta dags
í gær. Annar maður var á
bátnum og bjargaðist hann
upp í fjöru á lóðabelg og
bauju, og var hann þá að-
framkominn af vosbúð og
þreytu. Aftakaveður og
blindbiiur var er þetta
gerðizt.
Margir litlir línubátar frá Nes-
kaupstað voru á sjó í gærdag, og
var bezta veður þegar bátarnir
héldu í róður. Bátarnir lögðu
flestir línuna um 4 sjómílur út af
Norðfjarðarhorni og voru þeír að
draga línuna, þegar veðrið skall á
um kl. 10 í gærmorgun. Skipverj-
ar á öllum bátunum skáru strax á
linuna, og hófu siglingu til Nes-
kaupsstaðar. Jafnhliða þessu
hafði Tilkynningaskyldan sam-
band við togara á þessum slóðum i
gegnum Nesradío og bað þá um að
fyigjast með bátunum til hafnar.
15% hækkun á
húsaleigu og
skipagjöldum
A FUNDI verðlagsnefndar í gær-
morgun var samþykkt að heimila
hækkun á flutningsgjöldum
skipafélaganna erlendis frá og
jafnframt var heimiluð hækkun á
húsaleigu íbúðar- og verzlunar-
húsnæðis til samræmis við hækk-
un vísitölu byggingarkostnaðar.
Hækkunin á flutningsgjöldum
nemur um 15% og í nefndinni var
samþykkt að taka óskir skipafé-
laganna um meiri hækkun til
frekari athugunar. Varðandi
heimild til hækkunar á húsaleigu
er þess að geta, að í febrúar sl. var
samþykkt hækkun á húsaleigu
íbúðarhúsnæðis í samræmi við
hækkun vísitölu byggingarkostn-
aðar úr 119 stigum og í 149 stig,
en þet! a samsvarar 25% hækkun.
Núna var samþyKkt að heimila
hækkun á húsaleigu íbúðarhús-
næðis til samræmis við þetta um
14,77% hækkun. Hækkun húsa-
leigu verzlunarhúsnæðis hafði
ekki verið reiknuð í gær.
Meðal skipa, sem voru úti af
Norðfjarðarhorni, var skuttogar-
inn Barði frá Neskaupstað. Sigldi
Barði strax að bátunum og fylgdi
þeim. Siglingin inn fyrir Norð-
fjarðarhorn gekk mjög hægt sök-
um óveðursins. Eftir það gekk
siglingin inn fjörðinn betur.
Barði var samslða Hafrúnu allt
inn á miðjan fjörð, en Hafrún
ætlaði inn í nýju höfnina, sem er í
fjarðarbotninum. Þegar skipin
voru úti af „Innribæjarbryggj-
unni“, sem kölluð er, þá sneri
Barði við. Örskömmu seinna kom
heljarmikil vindhviða, sem skellti
Hafrúnu á hliðina.
Mennirnir tveir, sem voru á
Hafrúnu, voru báðir i brúnni og
komust þeir báðir út. Urðu þeir
þar viðskila og náði annar þeirra,
sem einnig er mjög góður sund-
maður, taki á lóðabelg og bauju.
Menn í Neskaupstað sáu ekki,
þegar slysið átti sér stað, en það
heyrðist kallað á hjálp. Var þá far
ið að athuga um bátana og kom í
Framhald á bls. 20
Traustsyfirlýsingin
fékkst ekki samþykkt
Hrakfarir Framsóknar-
forustunnar á Sauðárkróki
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
hefur síðustu daga efnt til nokk-
urra funda í Norðurlandskjör-
dæmi vestra kjördæmi formanns
flokksins, Ólafs Jóhannessonar
forsætisráðherra, þar sem störf
og stefna flokksins hefur verið á
dagskrá. Frummælendur á fund
um þessum hafa verið Steingrfm
ur Hermannsson, Guðmundur G
Þórarinsson, Elías Snæland Jóns
son og Ólafur Ragnar Grímsson
Eðlilega hefur klofningurinn inn
an flokksins og Möðruvallahreyf
ingin mjög verið til umræðu á
þessum fundum.
Á sunnudag var einn slíkur
fundur haldinn á Sauðárkróki og
sóttu hann fáeinir tugir manna. Á
þessum fundi sem öðrum þar
nyðra urðu snarpar umræður,
einkum milli Steingrims Her-
mannssonar og formælenda
Möðruvallahreyfingarinnar,
þeirra Elíasar og Ólafs. Þá
bar það til tíðinda,
að fimm fundarmanna, þar
á meðal þrír bæjarfulltrúar
Framsóknarflokksins á Sauðár-
króki, báru fram á fundinum til-
lögu, sem í fólst traustsyfirlýs-
ing á forustu Framsóknarflokks-
ins og stefnu. Stóð þá upp einn
fundarmanna og bar fram- dag-
skrártillögu um að vísa fyrri til-
lögunni frá. Var síðan gengið til
atkvæðis og var frávísunartillag-
an samþykkt með 13 atkvæðum
gegn tíu. Einn bæjarstjórnarfull-
trúanna vildi ekki una þessum
úrslitum og krafðist þess, að kosið
yrði aftur. Ekki tókst þá betur til.
Frávísunartillögunni bættust
tveir fylgismenn og var hún
endanlega samþykkt með 15 at-
kvæðum gegn tíu.
Hinir hagsýnu eru þegar farnir að hugsa fyrir kaupum á jóla-
gjöfum, og Ijósmyndari Morgunblaðsins rakst f gær á einn slfkan
borgara í einni af verzlunum borgarinnar, þar sem hann var að
kanna, hvað væri á boðstólum.
100 íbúðum úthlutað
í Vestmannaeyjum
Öll bvggingaráform Vestmanna-
eyjakaupstaðar voru samþykkt á
fundi bygginganefndar bæjarins
í gær og jafnframt voru með-
fylgjandi teikningar og skipu-
lagsuppdrættir staðfestir þar. Um
leið var úthlutað 60 lóðum undir
einbýlishús og parhús, og 40 lóð-
um verður væntanlega úthlutað
öðru hvoru megin við helgina. Að
sögn Magnúsar Magnússonar,
bæjarstjóra, er þó samþykkt
bygginganefndar bæði varðandi
byggingaáætlunina og lóðaúthlut-
un háð staðfestingu bæjarstjórn-
ar.
Fyrstu 60 lóðunum var úthlutað
byggingasamvinnufélagi, sem 70
Vestmannaeyingar standa að,
eiga flestir afélagsmanna það
sameiginlegt að hafa misst hús
sín I jarðeldunum. Munu þeir
hafa I hyggju að semja sameigin-
lega við byggingaraðila um hrað-
smiði á húsum á þessum lóðum.
Lóðirnar standasyðstog vestast á
nýja svæðinu, sem skipulagt hef-
ur verið.
í byggingaáætlunum Vest-
mannaeyjakaupstaðar er gert ráð
fyrir alls um 600 íbúðum. Bæjar-
sjóður Vestmannaeyjakaupstaðar
verður sjálfur stærsti aðilínn að
smíði þessara íbúða — eða alls um
350 íbúða, sem rísa skulu á næstu
2-3 árum. Hins vegar kvað
Magnús bæjarstjóri vel koma til
greina, að bæði einstklingar og
félög gætu gengið inn í þessa
áætlun bæjarsjóðs. Hins vegar
Fastaráð NATO:
Skorar á ísland og Bandaríkin að tryggia
Atlantshafsbandalaginu hér aðstöðu áfram
BANDALAGSRÍKI Banda-
ríkjanna og Islands f fastaráði
NATO samþykktu í gær að
beina þeirri áskorun til
landanna tveggja, að þau
tryggðu Atlantshafsbanda-
laginu áframhaldandi afnot af
Keflavíkurflugvelli, að því er
segir í einkaskeyti til Morgun-
hlaðsins frá AP-fréttastofunni i
Brússel. Kemur fram í áskorun
hinna aðildarríkjanna, að
Keflavíkurflugvöllur er talinn
nauðsynlegur hlekkur til að
tylgjast með sovézkum kafbát-
um og herskipum, er sigla upp
að ströndum Ameríku.
Áskorun þessa efnis var sem
fyrr segir samþykkt í fastaráði
Atlantshafsbandalagsins i gær
— að viðsöddum Donald
Rumsfeld, fulltrúa Bandaríkja-
stjórnar, og Tómasi Tómassyni,
fastafulltrúa íslands hjá
Atlantshafsbandalaginu. Tals-
maður Atlantshafsbanda-
lagsins tjáði fréttamönnum, að
í áskoruninni væru þessu tvö
lönd hvött til þess að vinna að
samkomulagi, sem tryggði
bandalaginu áframhaldandi
afnot af varnaraðstöðu á
íslandi — með þeirri tilhögun,
er báðir aðilar gætu sætt sig
við.
I viðtali við Morgunblaðið f
gær vildi Einar Agústsson utan-
ríkisráðherra ekki tjá sig um
þess áskorun. Hann sagði, að
eðlilega hefði islahd ekki átt
neinn þátt að afgreiðslu
þessarar tillögu — þar sem það
var anqað landið, sem þar átti
hlut að máli. Hins vegar kvað
hann næsta fund íslenzkra og
bandarískra stjórnvalda um
varnarsamninginn vera
áformaðan í janúar.
væru ofangreindar 100 lóðir, sem
nú væri verið að úthluta, ekkert á
vegum bæjarsjóðsins.
Magnús kvað mikið ríða á, að
hraðuppbygging íbúðahúsa gengi
greiðlega, því að fyrirsjáanlegt
væri mikill húsnæðisskortur í
Eyjum. Taldi hann, að húsnæði
vantaði fyrir hátt á tvö þúsund
manns. Húsnæði, sem fyrir væri í
Eyjum, rúmaði rétt rúmlega þrjú
þúsund manns, en búizt væri við
að strax á vertíðinni í vetur yrði
íbúatalan í Eyjum komin upp f
2400 manns. Sennilega myndu um
1500 manns til viðbótar vilja
flytjast til Eyja með vorinu, þann-
ig að þá þegar yrði um að ræða
húsnæðisskort, sem síðan ætti
stöðugt eftir að aukast nema vel
væri haldið á spöðunum við íbúð-
arbyggingar í Eyjum.
Fárviðri
FÁRVIÐRI gekk yfir Austfirði í
gær. Veðrið skall á skömmu eftir
hádcgi og um kl. 19 fór það að
lægja. Tjón mun hafa orðið nokk-
uð á landi f þessu veðri, en ekki
er vitað enn, hve miklar skemmd-
ir hafa orðið.
I Neskaupstað er þó vitað um
nokkrar skemmdir. Þakplötur á
Viðlagasjóðshúsum þar flettust
af, en húsin standa utarlega í
bænum.
Blindbylur fylgdi veðrinu í
Neskaupstað, og er vitað um bíla,
sem fóru út af veginum af þeim
sökum.