Morgunblaðið - 11.01.1974, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. JANUAR 1974
Laus staía
Staða ritara við embættið er laus til
umsóknar. Kunnátta í meðferð bók-
haldsvéla æskileg. Laun samkvæmt
kjarasamningum ríkisstarfsmanna.
Umsóknin, er greini menntun og
fyrri störf, berist skrifstofu minni,
Vatnsnesvegi 33, Keflavík, fyrir 25.
janúar n.k.
Bæjarfógeti Keflavíkur,
Sýslumaður Gullbringusýslu.
Laus staða
Staða deildarstjóra við launa- og
tekjustofnadeild bæjarskrifstofunn-
ar í Kópavogi er laus til umsóknar.
Umsóknum skal skila til undirrit-
aðs, sem veitir allar nánari uppl.
Kópavogi 10. janúar 1974.
Bæjarritarinn í Kópavogi.
Kópavogskaupstaður
Óskar eftir að ráða eftirfarandi
starfsmenn:
1. Tvo tæknifræðinga til stjórnunar
og eftirlitsstarfa.
2. Einn arkitekt til starfa við miðbæ
Kópavogs.
Upplýsingar gefa bæjarverkfræð-
ingur og rekstrarstjóri.
Umsóknir sendist til bæjarverk-
fræðings Kópavogs fyrir 25. janúar
1974.
Okkur vantar
stúlku, helzt vana fatapressun, hálf-
an daginn. Upplýsingar í síma 32165
kl. 7 — 8 í kvöld.
Stúlka
óskast til aðstoðar við sníðingar,
helzt vön. Upplýsingar hjá verk-
stjóra.
Dúkur h.f.,
Skeifan 13.
Iðnskóli ísafjarðar Vélskólinn
Vélstjórar
Að Vélskólanum og verknámi Iðn-
skólans vantar okkur góðan og
reyndan mann, með vélstjóramennt-
un, 4. stig eða rafmagnsdeild, til
kennslu í smíðum og verklegri vél-
fræði.
Nánari uppl. gefur skólastjóri sími
3815.
Umsóknir sendist til Iðnskóla ísa-
fjarðar fyrir 20. janúar.
Skrifstofuhúsnæói
óskast.
Byggingaverkamenn
Byggingaverkamenn óskast að
Höfðabakka 9.
Upplýsingar í síma 83640 og á staðn-
um.
íslenzkir aðalverktakar s.f.
LAUSAR STÖÐUR
Hjá tollgæzlunni í Reykjavík eru
lausar til umsóknar:
Nokkrar tollvarðastöður
Æskilegt er, að umsækjendur hafi
lokið einhverju framhaldsnámi og
séu á aldrinum 20 til 30 ára. Ráðið
verður í störf þessi til reynslu fyrst
um sinn.
Ein varðstjórastaða
Umsækjendur þurfa að hafa lokið
prófi frá Tollskóla ríkisins.
Umsóknarfrestur er til 28. jan. 1974.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
tollgæzlustjóra.
Reykjavík 8. jan. 1974.
Tollgæzlustjóri.
Hollenzk kona 24 ára óskar eftir
heilsdagsstarfi sem
einkaritari
Góð vélritunarkunnátta, hraðritun,
enskar, þýzkar og hollenzkar bréfa-
skriftir. Tala einnig ofangreind mál.
Er að læra íslenzku. Tilboð sendist
afgr. Mbl. merkt: „649“.
Bæjarverkfræðingur Kópavogs.
Óskum eftir að ráða
SmurbrauBsdömu
og aðstoðarstúlku í eldhús.
Uppl. veitir yfirmatreiðslumaður.
Veitingahúsið Glæsibæ.
II. vélstjóra
matsvein og háseta vantar á m/b
Reynir frá Þorlákshöfn. Uppl. í síma
99—3619 og 27741.
AfgreiBslufólk
Viljum ráða fólk til afgreiðslustarfa
í verzlun okkar að Nýbýlavegi 8.
Upplýsingar á staðnum.
Byggingavöruverzlun Kópavogs.
Fyrirtæki óskar að taka á leigu 3
samliggjandi skrifstofuherbergi við
Suðurlandsbraut eða næsta ná-
grenni.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 20. janúar
merkt „648“.
Skrifstofustúlka óskast
til almennra skrifstofustarfa. Vél-
ritunarkunnátta nauðsynleg. Upp-
lýsingar um menntun og fyrri störf
sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 14.
þ.m. merkt „Skrifstofustúlka 3078“
Atvinnurekendur
Maður um þrítugt óskar eftir vel
launaðri, öruggri atvinnu, Má gjarn-
an vera úti á landi. Er vanur
verzlunarstjórn og innkaupum,
einnig vélum og bifreiðum. Meira-
próf og góð tungumálakunnátta. Get
hafið störf nú þegar. Tilboð merkt:
994 sendist Mbl. fyrir 18. þ.m.
Reglusamur karlmaöur
óskast til starfa í verksmiðjunni
strax. Maður vanur sykursuðu hefði
forgang. Gott kaup. Upplýsingar á
skrifstofunni Lindagötu 12,
Sælgætisgerðin Freyja.
SölumaBur
Viljum ráða karl eða konu í
byggingavörusöluna að Kársnes-
braut 2.
Verkefni: Sala og útskriftir á
byggingavörum. (Timbur, stál ofl.).
Upplýsingar gefnar á skrifstofunni,
Nýbýlavegi 8.
Byggingavöruverzlun Kópavogs.
Skrifstofustúlka
óskast. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Verzlunarskólamenntun eða stúdentspróf æskilegt.
Nánari upplýsingar gefnar á Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen s.f., Ármúla 4, Reykjavik.
Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen s.f.