Morgunblaðið - 11.01.1974, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JANUAR 1974
35
lÍÞIiÚntfRfniB MOBGIMBLAÐSmiS
Ragnheiður Lárusdóttir skorar eitt af 2U morkum Vals I leiknum gegn Pör.
Stórleikur Sigrúnar
er Valur vann Þór
An erfiðleika unnu Valsstúlk-
urnar lið Þórs í 1. deild kvenna í
fyrrakvöld, leiknum lauk 20:7 eft-
ir að staðan hafði verið 7:4 í hálf-
leik. Sigrún Guðmundsdóttir var í
„banastuði" í þessum leik og
sendi knöttinn 12 sinnum í net
Þórs.
Dwight Stones frá Bandarfkj-
unum var kjörinn bezti frjáls-
íþróttamaður ársins 1973 í
kosningu, sem ítalska tímaritið
Tuttosport gekkst fyrir. Sem
kunnugt er, setti Stones nýtt
heimsfnet í hástökki s.l. sumar
og stökk þá 2,30 metra. Tíu
efstu sætin í kosningu þessari
skipuðu:
1) Dwight Stones,- USA, 2)
Marcello Fiasconaro, ítalíu, 800
metra hlaupari, 3) Ben Jipcho,
Lið Þórs virðist ekki vera sterkt
og ef ekki verður breyting á leik
liðsins, bíður Iiðsins það eina
verkefni að berjast við Viking um
botnsætið i deildinni. Uthaldsleysi
hrjáir liðið greinilega, eins og sést
á þvi, að þær eru aðeins þremur
mörkum undir í leikhléi, en 13 í
Kenía, 3000 metra hindrunar-
hlaupari, 4) Filbert Bayi,
Tanzaníu 1500 metra hlaupari,
5) David Bedford, Bretlandi
10.000 metra hlaupari, 6) Rod
Milburn, USA, grindahlaupari,
7) Steve Williams, USA 100 og
200 metra hlaupari, 8) Klaus
Wolfermann, V-Þýzkalandi,
spjótkastari, 9) Rick Wohlhut-
er, USA, 800 metra hlaupari og
10) B. Foster, Bretlandi, 5000
metra hlaupari.
leikslok. Þá er ekki mikil breidd í
liðinu og sömu 8 stúlkurnar léku
allan leikinn.
Björg Guðmundsdóttir lék ekki
með Val að þessu sinni, en Sigrún
systir hennar var tveggja manna
maki í leiknum svo fjarvera
Bjargar gerði ekki svo mikið til.
Auk Sigrúnar átti Inga Birgis-
dóttir í markinu mjög góðan leik
og varðí hvað eftir annað mjög
vel.
Sigur Vals hefði getað orðið
enn stærri, en þær misnotuðu 5
vítaköst í leiknum og af þeim
varði markvörður Þórs þrjú. I liði
Þórs átti Sigfríð beztan leik og
var jafnframt markhæst meðþrjú
mörk, en auk hennar skoruðu
Anna Gréta (2), Aðalbjörg og
Guðrún mörk liðsins.
Fyrir Val skoruðu Sigrún 12,
Ragnheiður 3, Sigurjóna og Elín
2, og Harpa 1.
Stones beztur
Naumur KR-sigur
KR-ingar máttu þakka fyrir
sigur í leik sfnuni 1 2. deild
Islandsmótsins í handknattleik
gegn Fylki, sem fram fór í
Laugardagshöllinni að loknum
leik Vals og Þórs í fyrrakvöld.
Það varð þeim fyrst og fremst til
bjargar, að Fylkismenn brutu
heldur klaufalega af sér í vörn-
inni og var einum bezta ..kik-
manni liðsins, Einari Agústssyni,
vfsað tvívegis af velli, samtals í 7
mínútur, og oft voru Fylkismenn
einum færri inni á vellinum f
leiknum.
KR-liðið er greinilega mun
slakara nú en það var í fyrra, er
það féll niður í 2. deild, og má það
taka sig verulega á, ef það ætlar
að endurheimta sæti sitt í deild-
inni. Fylkisliðið er hins vegar í
mikilli framför, og má raunar
segja, að það sé annað lið f saman-
burði við það, sem það var í fyrra,
þótt það sé að mestu skipað sömu
leikmönnum.
l'ylkir hafði yfir framan af
leiknum, mest þrjú mörk, er stað-
an var 6:3. KR-ingar sigu svo á,
og höfðu náð tveggja marka for-
skoti í hálfleik, 10:8. Jafnt var á
11:11, en síðan náði KR forystu og
hélt henni leikinn út, þótt oftast
væri mjótt ámununum.
Sennilega hafa KR-ingar van-
metið andstæðinga sína fyrir-
fram, a.m.k. virtist það vera skoð-
un sumra leikmanna liðsins, að
óhætt væri að skjóta úr hvaða
færi sem var, til að byrja með. í
heild má segja, að alla festu hafi
skort í KR-liðið, sérstaklega í
sóknarleik þess, en vörnin barðist
hins vegar sæmilega og mark-
varzlan var á köflum góð. Vörnin
var hins vegar veikari hluti
Fylkisliðsins og opnaðist hún oft
illa. Sóknarleikur liðsins var
furðu fjölbreyttur og t.d. töluvert
reynt að leika upp á línuspil.
Mörk KR: Þorvarður Jón Guð-
mundsson 7, Haukur Ottesen 6,
Gísli Torfason 3, Björn Blöndal 2,
Bogi Karlsson 1, Sfmon Unndórs-
son 1, Sigurður Páll Ásgeirsson 1.
Mörk Fýlkis: Einar Ágústsson
5, Einar Einarsson 5, Örn Jensson
3, Kristinn Sigurðsson 2, Guð-
mundur Sigurbjörnsson 2, Jón
Magnússon 1, Stefán Hjálmarsson
1.
Beztu menn KR: Haukur Otte-
sen, Gísli Torfason og Már Frið-
steinsson.
Beztu menn Fylkis: Ásbjörn
Skúlason, Örn Jensson og Ágúst
Sigurðsson.
—stjl.
Valsmenn á mót í
Gautaborg í sumar
Valsmenn hafa fengið boð um
að taka þált í fjögurra liða hand-
knattleiksmóti í Gautaborg næsta
sumar. Er það félagið Vestra Frö-
lunda, sem gengst fyrir mótinu,
en auk Friilunda og Vals taka
Arhus KFUM og austur-þýzkt lið
þátt f inótinu.
Verður það haldið í tengslum
við Pai-tille Cup, en það er mót
yngri flokkanna og taka þátt í því
félög frá ýmsum Jöndum. Það er
einmitt vegna þátttöku yngri
fiokka Vals í Partille Cup fyrir
tveimur árum, sem Valsmönnum
er boðið nú. Auk þess að komast í
úrslit í öllum flokkunum þremur
KR-ingar
Aðalfundur frjálsíþróttadeildar
KR fer fram í Félagsheimili KR
n.k. mánudag, 14. janúar, og hefst
kl. 21.00. Félagar eru hvattir til að
mæta vel og stundvíslega.
var öll framkoma Valsfólksins til
mikils sóma.
Eins og áður segir, mun Árhus
KFUM taka þátt í mótinu í Gauta-
borg, en Valsmaðurinn Bjarni
Jónsson leikur með Árhus úrn
þessar mundir. Bjarni mun þó að
öllum líkindum ekki leika með
danska liðinu i mótinu í Gauta-
borg heldur með Val. Bjarni lýk-
ur námi í vor og leikur því með
Val næsta keppnistímabil.
Svetla Zlateva
kosin „Iþrótta-
maður ársins”
Samtök iþróttafréttamanna i
Balkanlöndunum kusu Svetlu
Zlatevu, heimsmethafa i 800
metra hlaupi kvenna „Iþrótta-
mann ársins 1973". í öðru sæti
varð tennisleikarinn Ilie Nastase
og í þriðja sæti Mater Pailov,
hnefaleikai i frá Júgóslaviu.
Borðtennis hjá KR
Borðtennisdeild KR gekkst fyr- sem keppti sem gestur á mótinu.
ir innanfélagsmóti í KR-húsinu
30. desember s.l. Þátttaka í mót-
inu var mjög góð. Keppt var í
karla- og unglingaflokki og vann
Hjálmar Aðalsteinsson sigur í
karlakeppninni. í öðru sæti varð
Hjörtur Jóhannsson úr Keflavík,
þriðjí varð Finnur Snorrason og
fjórði Gunnar Jóhannsson. I ungl-
ingaflokki sigraði Elfas Guð-
mundsson, Sverrir Herbertsson
varð í öðru sæti og Árm
Thorlacius í þriðja sæti. Þetta er
fyrsta innanfélagsmót i borðtenn-
is, sem KR efnir til.
Þorvarður Jón Guðmundsson stekkur upp og skorar eitt KR-markanna,
yfir Guðmund Sigurbjörnsson (nr. 2) Að baki Þorvarðs er Björn
Blöndal. (Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)