Morgunblaðið - 26.01.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 26. J ANUAR 1974
7
Egypzkir og ísraelskir herforingjar ræða' skipulagningu aðskilnaðar herjanna við
Súez-skurð.
Árangurinn af sáttaferðum
Henry Kissingers utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, sem leiddu
til aðskilnaðar herja Egypta og
ísraela við Súez-skurð, hefur vald-
ið ýmsum bandamönnum Egypta
miklum áhyggjum.
Það var undirstöðuatriði í til-
raunum Kissingers að koma á að-
skilnaði hersveitanna á austur-
bökkum skurðarins, og láta gæzlu-
sveitir Sameinuðu þjóðanna taka
sér stöðu á milli þeirra. Nú er það
ætlun ráðherrans að reyna að
koma á sams konar aðskilnaði á
sýrlenzku vígstöðvunum og draga
þannig úr hættunni á frekari átök-
um ísraela og Araba
Kissinger og Anwar Sadat for-
seti Egyptalands — sem nú virð-
ast sammála um flest — telja
nauðsynlegt að minnka hættu-
ástandið á sýrlenzku vigstöðvun-
um áður en friðarviðræður hefjast
á ný í Genf. Þrátt fyrir nokkra
óánægju Sýrlendinga með
samninga ísraela og Egypta, virð-
ast horfur á, að það takist.
Áður en það verður þarf Sadat
forseti að sannfæra bandamenn
sina um, að aðskilnaður hefjanna
við Súez-skurð sé hvorki uppgjöf
né fyrsta skrefið að sérstökum
friðarsamningi Egypta og ísraela. í
því skyni sagði liann nýlega í orð-
sendingu til bandamannanna:
,,Við erum nú i sterkri aðstöðu.
Við höfum mætt ísraelum á vig-
völlunum (með góðum árangri), og
þvi skyldum við ekki geta mætt
þeim við samningaborðið?"
Gagnrýnendur lians heima og
heiman telja, að þótt aðskilnaður-
inn við Súez-skurð megi teljast
ávinningur (þar sem ísraelar draga
her sinn frá skurðinum), slái liann
sterk vopn úr hendi Araba, mögu-
leikana á að herja styrjöld á ný.
Svar egypzku stjórnarinnar við
þessari gagnrýni er, að þótt dregið
verði úr styrk egypzka hersins á
austurbakka skurðarins, sé ekkert
því til fyrirstöðu að senda þangað
liðsauka fyrirvaralaust. Því er þó
ekki að neita, að á meðan gæzlu-
lið Sameinuðu þjóðanna er i varð-
stöðu milli herjanna og ísraelski
herinn í Giddi og Mitla fjallaskörð-
unum er hernaðarstaða Egypta
mun óhagstæðari en hún var fyrir
októberstyrjöldina eða á fyrstu
vikum vopnahlésins.
Efasemdirnar meðal annarra
Arabaþjóða í garð Egypta
(samningar Kissingers liafa einnig
valdið miklum deilum í ísrael)
stafa ekki livað sízt af þeirri miklu
leynd, sem hvfldi yfir samninga-
viðræðunum. Sadat hefur reynt að
draga úr þessum efasemdum með
íSSiH, THE OBSERVER
Éftir
John de st. Jorre
skyndiheimsóknum til hinna
Arabaríkjanna til að skýra málið.
Hann leggur áherzlu á, að
samningurinn við Israela sé
hernaðarlegs eðlis og að stjórn-
málahlið málsins, sem varðar öll
Arabaríkin og Palestinu-Araba,
verði aðeins leyst með sameigin-
legu átaki Araba á friðarráð-
stefnunni í Genf.
Kissinger og Sadat virðast telja
óþarft að hlusta á gagnrýni frá
Libýu og írak og róttækari sam-
tökum Palestinu-Araba, en þeim
beri að leggja aðaláherzluna. á að
ná samningum um Sýrland. Sadat
liefur mestan áhuga á að hefja á
ný viðræðurnar i Genf, en Kissing-
er að draga úr spennunni á sýr-
lenzku vígstöðvunum og fá Feisal
konung Saudi-Arabíu til að af-
nema bannið við sölu á oliu til
Bandarikjanna.
Egyptaland og Sýrland þurfa að
standa saman. Án stuðnings
egypzka hersins stafar ísrael
engin ógnun af Sýrlandi, og Assad
Sýrlands forseti veit, að lionum
reynist erfitt að koma málum sín-
um á framfæri i Genf án stuðnings
Egypta. Á liinn bóginn þarfnast
Egyptar enn stuðnings Sýrlend-
inga, bæði vegna þess, að hugsan-
legar hernaðaraðgerðir — sem nú
eru taldar mjög óliklegar — væru
ekki jafn líklegar til að bera árang-
ur án þátttöku Sýrlendinga, og
vegna þess, að stuðningur Sýr-
lendinga auðveldar Sadat að sann-
færa aðrar Arabaþjóðir um hag-
kvæmni friðarstefnunnar. Það má
því búast við, að næsti þáttur i
leik þeirra Kissingers og Sadats
gerist i Damaskus.
Henry Kissinger
og Anwar Sadat.
vilj a frið
FRAMTALSAÐSTOÐ Veitum aðstoð við gerð skattfram- tala einstaklinga og fyrirtækja Tölvfs h.f., Hafnarstræti 18, Simi 22477 ÍBÚÐTIL LEIGU 4ra herb íbúð í Breiðholti til leigu i 6 til 7 mán. Uppl í sima 93 — 6313
SKATTFRAMTÖL Önnumst skattframtöl Guðjón Steingrímssom hrl., Ólafur Jóhannesson, Linnetsstig 3, Hafnarfirði, símar 53033 og 52760 KJÖTBÚÐ ÁRBÆJAR, Rofabæ 9, Sími 81270. býður yður úrvals þorramat i árshátiðir Komum með matinn Munið okkar vinsæla kalda borð Afgreiðum Þorrakassann eftir pöntunum
SKATTAFRAMTÖL * Veitum aðstoð við skattframtöl Pantið tíma sem fyrst Fasteignasalan Hús og Eignir, Bankastræti 6, símar 16516 og 16637. FÓLKSBIFREIÐ TIL SÖLU Benz árg. 19 74, týpa 190 diesel, engin útb. eri mánaðargreiðslur. skipti koma til greiria. Uppl. i sima 71 725 og 99-3250.
SKATTFRAMTÖL Veitum aðstoð við skattframtöl Pantið tima sem fyrst. Símar 41095 og 85789 Framtalsþjónustan MagnúsÁ. Bjarnason, Þórólfur Kristján Beck. ÍBÚÐ ÓSKAST 2ja — 3ja herb ibúð óskast til leigu strax Fyrirframgreiðsla, ef óskað er. Upplýsirigar i sima 18451
BIFREIÐASTÆÐI til leigu i miðborginni. Upplýsingar i sima 1 9999 SKATTFRAMTOL Veiti aðstoð við skattframtöl og reikningsskil eiristaklmga og fyrir- tækja. Jón 0. Hjörleifsson, viðskiptafræðirigur, simi 33313
ÍBÚÐ Á LEIGU Ung barnlaus hjón óska eftir að taka á leigu 2ja eða 3ja herbergja íbúð Fyrirframgreiðsla fyrir hendi, ef óskað er. Nánan upplýsingar i sima 21 779. BORÐSTOFUSETT Borðstofuskápur ásamt borðstofu- borði m/lengingarmöguleikum og sex stólum Gott verð Uppl i sima .83239
MERCURY COMETÁRG. '72 til sölu. Sjálfskiptur, vökvastýri og Iftil 8 cyl. vél. Litið ekinn. Uppl. i sima 23355 milli kl. 14 — 1 7 i dag og næstu daga UNG KONA óskar eftir vinnu fyrir hádegi Allt kemur til greina, einnig húshjálp Tilboð sendist afgr Mbl merkt „3104"
EINBÝLISHÚS 3ja herb. og eldhús ásamt bilskúr til sölu Lítil útborgun Laust fljót- lega. Uppl. i síma 5925, Hellu, Rang HÚSGOGN 12 hansahillur. skrifpúlt, viriskáp- ur, 6 léttbyggðir stólar og skrif- borð. Sanngjarnt verð. Uppl. i sima 83239.
RÁDSKONUSTAÐA óskast til vors, helst í nágrenni Reykjavikur. Upplýsingar i sima 72405, kl 10—12 f.h. næstu daga TILSOLU Skania Vabis vörubifreið árg. 1964 i mjog góðu ástandi Upp- lýsingar i simum 93-1494 og 93- 1830
Til sölu
bátavél (ásamt gear) Scania Vabis 200 ha. vel með farin í
góðu lagi.
Uppl. ísíma 96-33130 eða í 96-331 26.
Félag lárnlðnaðarmanna
w
ALLSHERJAR-
ATKVÆDAGREIRSLA
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Félags járniðnaðarmanna fyrir
næsta starfsár.
Frestur til að skila tillögum rennur út kl. 1 8.00
þriðjudaginn 29. janúar n.k.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn
félagsins og auk þess um 1 4 menn til viðbótar í
trúnaðarmannaráð og 7 varamenn þeirra.
Tillögum skal skila til kjörstjórnar í skrifstofu
félagsins að Skólavörðustíg 16, 3. hæð, ásamt
meðmælum a.m.k. 70 fullgildra félagsmanna.
Stjórn
Félags járniðnaðarmanna.