Morgunblaðið - 26.01.1974, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1974
31
Stórt tap í fyrsta
leik Polar Cup
ISLENDINGAR léku sinn fyrsta leik f Polar Cup-keppninni f körfu-
knattleik í gærkvöldi og mættu þá Svfum. Eins og vænta mátti fóru
Svíarnir með öruggan sigur af hólmi, skoruðu 101 stig gegn 68, í
leikhléi var staðan 52:28. Þó svo að munurinn á liðunum virðist mikill,
ef litið er aðeins á tölurnar, var viðureignin þó alls ekki svo ójöfn.
Islenzka liðinu tókst sæmilega upp í varnarleiknum, en f sókninni
gekk dæmið hins vegar ekki upp. Norskur dómari leiksins dæmdi
Svfunum mjög í vil og hefur íslenzka körfuknattleikssambandið nú
neitað að leika ef hann á að dæma.
Leikurinn hófst með því, að Sví-
arnir skoruðu fjögur fyrstu stigin
og misstu aldrei forystuna í leikn-
um. Eftir 15 mínútna leik var
staðan 38:20 og síðustu mínútur
fyrri hálfleiksins juku Svíarnir
muninn í 52:28. Munurinn jókst
svo lítillega í seinni hálfleiknum
og lokatölur urðu 101:68, eins og
áður sagði.
Svíarnir eru allir mjög hávaxn-
ir, meðalhæð leikmanna er 198
sm Þessum risum varð þó lítið
ágengt undir körfunni, en hittni
þeirra fyrir utan var þeim mun
betri og aðalskytta þeirra, Ar-
ström hitti úr hverju einasta lang-
skoti sínu.
I sókninni gengu þau leikkerfi,
sem islenzka liðið hefur verið að
æfa, ekki upp gegn sterkri „mað-
ur á mann“ vörn Svíanna. Leikur-
inn var harður, t.d. þurftu fjórir
leikmanna íslenzka liðsins aðyfir-
gefa völlinn með fimm villur.
Áður er minnzt á þátt hins hlut-
dræga, norska dómara og hafði
dómfærsla hans ekki svo lítil
Frestanir
í 2. deild
TVEIMUR leikjum, sem fram
áttu að fara í kvöld í 2. deildinni í
handknattleik, hefur verið
frestað þangað til í næstu viku.
Eru það leikir KR og Breiðabliks,
sem fram fer á þriðjudaginn og
leikur Þróttar og Gróttu, sem
fram fer á fimmtudaginn. Þá hafa
tveir frestaðir leikir í 1. deild
kvenna verið settir á þriðjudag-
inn, leikirnir KR—FH og
Valur—Fram. Hefst fyrri kvenna-
leikurinn klukkan 19.30 á þriðju-
daginn og leikurinn í 2. deild að
leikjum stúlknanna loknum.
áhrif á að skapa þennan mikla
mun. Enda var svo komið í
íþróttahöllinni, að áhorfendur
púuðu á hann í hvert skipti, sem
hann blés í flautu sína.
Bezti maður íslenzka liðsins var
Þorsteinn Hallgrímsson, sem átti
stórleik bæði i vörn og sókn. Þá
SKÍÐAKAPPARNIR þrír,
Haukur Jóhannsson, Árni Óðins-
son og Hafsteinn Sigurðsson,
kepptu í sínu þriðja móti nú í
vikunni. Fyrstu tvö mótin höfðu
verið í Evrópubikarkeppninni og
lentu þeir félagarnir um miðju. 1
þriðja mótinu, sem var sterkt al-
þjóðlegt skíðamót í Sestriere á
Norður-ltaliu, gekk þeim mun
betur og er greinilegt, að þeim
fer fram með hverju móti.
í stórsviginu varð Haukur
Jóhannsson í 14. sæti af 86
keppendum, en bæði Árni og Haf-
steinn voru dæmdir úr leik. I
sviginu náði Haukur svo 7.sæti og
það tryggði honum fjórða sætið í
Göngumót
GÖNGUMÓTIÐ, sem fresta varð
um síðustu helgi vegna veðurs,
verður haldið við Skíðaskálann í
Hveradölum ef veður leyfir.
Mótið á að hefjast klukkan 14, en
nafnakall verður klukkutíma
fyrr. Mótsstjóri verður Jónas
Ásgeirsson og brautarstjóri
Haraldur Pálsson.
stóðu þeir Þórir Magnússon, Kol-
beinn Pálsson, Kristinn Jörunds-
son og Gunnar Þorvarðsson allir
vel fyrir sinu — einkum þó í
vörninni.
Stighæstir leikmanna íslenzka
liðsins voru Þorsteinn Hallgrims-
son, með 12 stig, Kristinn
Jörundsson, með 10 stig, og þeir
Gunnar Þorvarðsson, Jón Sigurðs-
son og Þórir Magnússon með 8
stig hver.
Arström skoraði mest fyrir Svi-
ana, eða 25 stig, og Hanson skor-
aði 16 stig.
í dag leikur íslenzka liðið við
Finna og á morgun við Norð-
menn.
Alpatvíkeppninni. Árni varð
niundi og Hafsteinn kom 14. i
mark. Sigurvegari í báðum grein-
unum varð Svisslendingurinn
Hemmí.
Um helgina taka þeir þátt i móti
f Evrópukeppninni, sem fer fram
í Sviss.
Svanasöngur
Mary Peters
Frjálsíþróttakonan fræga, Mary
Peters, hefur nú ákveðið að draga
sig í hlé frá iþróttaiðkunum.
Peters, sem vann fimmtarþraut
kvenna á Ólympíuleikunum i
Múnchen, keppti hér á landi i
sumar í Evrópubikarkeppninni.
Það var að loknum sigri i
fimmtarþraut Samveldisleikanna
í gær, að hún tilkynnti, að þessi
keppni hefði verið hennar siðasta.
— Þetta var minn svanasöngur,
sagði hún, þetta hefur verið dá-
samlegur timi, en nú er ég hætt.
Eg ætla mér að helga íþróttaæsk-
unni í Norður-Irlandi krafta mina
í fraintíðinni.
Haukur varð 4.
í Alpatvíkeppninni
Kolbeinn Pálsson, fyrirliði landsliðsins, átti ágætan leik gegn hinu
sterka landsliði Svíanna.
Blak;
Forkeppninni að ljúka
Blakmenn verða mikið á ferð-
inni um helgina, og fara þá fram
siðustu leikirnir í forkeppni ís-
landsmótsins — Suðurlandsriðli
— og leikið verður til úrslita um
það, hvaða lið úr Norðurlands-
riðli komast í lokakeppnina.
Fjögur lið af sex í Suðurlands-
riðlinum komast í úrslitin, og má
fullvíst telja, að það verði lið
UMF Biskupstungna, UMF
Hvatar, IS og Víkings. Öll þessi
lið keppa um helgina. I dag,
laugardag, hefst keppni í íþrótta-
húsi Háskólans kl. 14.00 og keppa
þar fyrst lið HK og UBK og síðan
leika lið tS og Vikings. Má ætla,
að báðir þessir leikir verði hinir
jöfnustu og skemmtilegustu. Á
morgun leika svo á Laugarvatni
lið UMF Biskupstungna og lið
UMF Laugdæla og er það jafn-
framt barátta um sigurinn i riðl-
inum.
Á Akureyri verður leikið bæði í
dag og á morgun. Keppa fyrst lið
IMA og HSÞ, síðan verður leikur
milli UMSE og HSÞ og loks leika
svo IMA og UMSE.
Unglingameist-
aramót
Unglingameistaramót i lyfting-
um fer fram í Laugardalshöllinni
23. febrúar næstkomandi og hefst
klukkan 14.30. Þátttaka tilkynnist
fyrir 12. febrúar Öskari Sigur-
pálssyni í síma 72382. Þátttöku-
gjald er krónur 200.
Bekkjardeildir
keppa í Breið-
holtshlaupi
Fyrsta Breiðholtshlaup IR, það
er fara átti fram siðastliðinn
sunnudag, en fresta varð vegna
færðar, svellbunka og foræðis á
hlaupabrautinni, fer fram á morg-
un ef færð leyfir. Hlaupið á að
hefjast klukkan 14 og skrásetning
byrjar klukkan 13.30. Akveðið
hefur verið að koma á keppni í
hlaupinu á milli bekkjardeilda í
Breiðholtshverfi. Sigurvegari i
þeirri keppni verður sú bekkjar-
deild, sem fær bezta þátttökuhlut-
fall miðað við stærð deildarinnar.
Eins og undanfarin ár verður
keppnin öllum opin, sem vilja
reyna sig. Hljóta allir þeir, sem
ljúka 4 hlaupum, verðlaun, en alls
verða hlaup vetrarinssex aðtölu.
Kraftlyftingamót
KRAFTLYFTINGAMÓT KR fer
fram í Melaskólanum í dag og
hefst kl. 16.00.
„Styðjum landsliðið”
segir íþróttaunnandi og sendir 10 þús. kr. gjöf
MORGUNBLAÐINU barst ný-
lega bréf, og fylgdi því ávísun
að upphæð 10.000,00 kr. Er þar
um að ræða gjöf til landsliðsins
í handknattleik, og hvetur bréf-
ritari alla til þess að styrkja
landsliðið myndarlega f.vrir
heimsmeistarakeppnina i Aust-
ur-Þýzkalandi. Segir hann, að
viðtal sem birtist f Morgunblað-
inu við Viðar Símonarson, hafi
orðið hvati þess, að hann fór að
hugsa um. hvort almenningur
ætti ekki að láta þetta inál til
sín taka og leggja fram fé,
þannig að unnt va>ri að búa
landsliðið sem bezt undir átök-
in í A-Þýzkalandi.
Gjöfinni fylgir bréf, sem stíl-
að er til landsliðsmannanna,
en þar sem það er nokkuð
langt, er því miður ekköhægt
að birta það í heild. En bréfrit-
ari vitnar m.a. til viðtals í
iþróttaþætti Jóns Ásgeirssonar
í útvarpinu, þar sem kom fram,
að tóbaksreykingar í Laugar-
dalshöllinni séu meiri háttar
vandamál og hvetur hann hand-
knattleiksmenn að neita að
leika í húsinu, nema tekið verði
þar fyrir reykingar og bendir á
þá leið að fá unglinga úr
íþróttafélögunum til þess að
vera verði á áhorfendapöllun-
um. Hvetur bréfritari landsliðs-
mennina einnig til algjörrar
reglusemi á áfengi og tóbak.
Síðar í bréfi sinu bendir bréf-
ritari fólki á leiðir til þess að
finna fjármagn til þess að
styrkja með landsliðíð og segir
þá:
1. Ætlum við að kaupa ein-
hvern hlut, frestum því og
styðjum landsliðið, með
myndarlegu framlagi.
2. Skölaæska: Vilduð þið
neita ykkur um dansleik eða
t.d. sælgæti í eina viku o.s.frv.
og syðja í þess stað landsliðið
með framlagi. Margt smátt ger-
ir eitt stórt, en verið heilshug-
ar.
3. Reykingamenn! Hvernig
væri að hætta reykingum einn
dag eða eina viku og styðja i
þess stað landsliðið með fram-
lagi?
4. Víndrykkju- og veitinga-
húsagestir. Hvernig væri að
neita sér um „eina ferð" i vín-
búð eða veitingahús og styðja i
þess stað landsliðið?
Svona mætti telja áfram.
Treysti skólaæskunni að setja
af stað öfluga hi'eyfingu í öllum
skólum og helzt eiga allir að
vera með. Neitið ykkur um eitt-
hvað og þið eflið hugarstyrk
ykkar til i fórn fyrir aðra og
styðjið landsliðið. Þeir eru
beztu fulltrúar okkar, sem við
getum sýnt umheiminum. Svo
sting ég upp á því, að HSI láti
útbúa merki, sem á verði letr-
að: Styð landsliðið. Allir, sem í
verki styðja landsliðið, beri
merkið, enda verði það selt
ódýrt, t.d. 10 kr. eða 25 kr.
Þannig fæst samhugur."
Nokkur fleiri atriði fjallar
bréfritari um. Framlag hans er
hið myndarlegasta og öðrum til
éftirbreytni. Verður því komið
til fjáröflunarnefndar þeirrar,
sem starfar á vegum HSÍ vegna
landsliðsins.