Morgunblaðið - 07.02.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1974
3
Concord-
þota lendir
hér 1 dag
CONCOR D-þota lendir á Kefla-
víkurflugvelli í dag um kl. 12.40.
Þotan keinur hingað frá Touluuse
í Frakklandi, þar sem hún er
smíðuð. Þetta er æfingaflug og
gert ráð fyrir að flugvf'lin leggi af
stað um kl. 11 að íslenzkum tfma
og lendi hér eftir einnar klukku-
stundar og 40 mfnútna flug. IVIun
hún hafa um tveggja tíma viðdviil
á Keflavíkurflugvelli, en síðan
verður flogið aftur til Frakk-
lands.
Coneord er sem kunnugt er
hljóðfrá farþegaþota, sem er
hönnuð og smfðuð af Frökkum og
Bretum í sameiningu. Bæði þessi
lönd höfðu bundið miklar vonir
við þessa þotu, en siðustu árin
hefur staðið mikill styrr um ágæti
hennar til áætlunarflugs — vegna
mengunar og hávaða, sem af
henni hlýzt. Fyrir tveimur árum
stóð til að Concord-þota lenti hér
á landi, en þá varð ekki af þvf
Síminn datt út
ÖLL símanúmer i Reykjavík, sem
byrja á 25, 26 og 27, voru óvirk í
þrjár klukkustundir í gær vegna
bilunar i tæki, sem skiptir númer-
unum. Að sögn Friðriks Lind-
bergs hjá bilunum var búið að
koma kerfinu í lag um 3 leytið í
gær, en þó var ekki búið að finna
aðalbilunina, sem var í tæki, er
hefur verið i sambandi siðan
1969.
Ferðaskrifstofa ríkisins sjái um
farmiðakaup ríkisstarfsmanna
FJÁRLAGA- og hagsýslustofnun
fjármálaráðuneytisins hefur sent
umbu rðarbréf um farmiðakaup
vegna utanferða starfsmanna rfk-
isins til ailra ráðuneyta, stofnana
og fyrirtækja á þeirra vegum. I
bréfinu segir:
Ríkisstjórnin samþykkti áfundi
sínum 15. janúar sl.,að framvegis
skuli allir starfsmenn, sem ferð-
ast til annarra landa á kostnað
rikisins, láta Ferðaskrifstofu rik-
isins annast kaup á farmiðum,
enda veiti ferðaskrifstofan sam-
bærilega þjónustu ogtíðkasthefur
itjá öðrum aðilum fram trl þessa.
Tilgangur þessarar ráðstöfunar
er annars vegar að skapa betri
aðstæður en verið hafa til eftirlits
með slíkum ferðum, og hins vegar
að spara ríkinu kostnað með betri
kjörum, senl ættu að nást, þegar
sami aðili hefur öll farmiðakaup
af þessu tagi með höndum.
Er þess vænzt, að hvert ráðu-
neyti komi þessari ákvörðun til
allra stofnana og fyrirtækja, er
undir það heyra. Jafnframt hefur
rikisendurskoðun verið falið sér-
staklega að fylgjast með þessu
máli og tilkynna hlutaðeigandi
ráðuneyti þegar í stað, ef mjs-
brestur kynni að verða á fram-
kvæmdinni.
Mbl. sneri sér til Geirs H.
Zoega, forstjóra Ferðaskrifstofu
Zoega hf. og spurði hann álits á
þessari ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar. Geir sagði m.a.:
,”,Við höfum lengi haft góð og
ánægjuleg viðskipti við öll ráðu-
neytin, og ég er því að vonum
ekki hress yfir þessu. En svo er
annað. Ég sé ekki hvernig Ferða-
skrifstofa ríkisins getur annazt
þetta eins vel og t.d. við. Ég er
ekkert að grobba, en við höfum á
bak við okkur Cook's-ferðaþjón-
ustufyrirtækið með mörg hundr-
uð skrifstofur úti um allan heim.
Ferðaskrifstofa rikisins getur
vafalaust útbúið flugfarseðla, ég
efast ekki um það. En hér er bara
FIMM daga vinnuvika er áfram f
gildi í Straumsvfk. í Mbl. í gær
var sagt, að í hinum nýju kjara-
samningum við ÍSAL, hefði feng-
izt viðurkenning á fjögurra daga
vinnuviku og menn ynnu 10
klukkustundir á dag. Orsök
þessarar meinlegu villu var sú, að
blaðamaður mislas og misskildi
fréttabréf frá Samninganefnd
verkalýðsfélaganna.
I yfirliti yfir samningana átti
hins vegar að standa, að eftir-
vinna félli niður á föstudögum,
sem þýðir, að þeir starfsmenn,
sem á föstudagskvöldum hafa
fyllt 40 stunda vinnuviku, fara
um miklu meira að ræða en bara
að fylla út farseðla. Nei, þetta
minnir á tilhögunina austan-
tjalds."
strax á næturvinnukaup, þ.e. fá
80% álag á dagvinnukaup í stað
40%, sem gilti áður næstu tvær
vinnustundir eftir að dagvinnu
lauk.
Þetta leiðréttist hér með og eru
hlutaðeigendúr beðnir velvirðing-
ai- á mistökunum.
Leiðrétting
A SLAGSÍÐUNNI i blaðinu í gær
misritaðist nafn Ólafs J. Kolbeins
trommuleikara iiljómsveitarinnar
Steinblóms. Slagsíðan biður vel-
virðingar á mistökunum.
Obreytt vinnuvika hjá ISAL
Sjósóknin við Eyjar:
Einn kemur þá annar fer
Það er mikið kapp í sjómönnunum, þegar vel fiskast, en meðfvlgjandi
og fara, annar fullfermdur á Ieið í höfn, hinn galvaskur með stefnið
unum utanvert við Yztaklett, þar sem áður hefðu verið stórsjóar í
sá, sem er að fara, er ísleifur IV VE. Vestmannae.vjar eru nú aftur
myndir tók Sigurgeir í Eyjum í gær af tveimur E.vjabátum að koma
mót brælunni á miðin. Þessar myndir eru teknar frá nýju hraunhömr-
slfku veðri. Báturinn, sem er að koma frá vinstri, er Kristbjörg VE, en
orðnar lang hæsta löndunarhöfnin á vertíðinni.
Einn kemur þá annar fer.
fara þeir ekki full nálægt,
stefni í stefni.
hvað er eiginlega um að vera?
Eins og þrautþjálfað danspar, «g svo eru hliðarsporin tekin og hver heldur sína leið. Sjáumst á út og innleið aftur.