Morgunblaðið - 07.02.1974, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1974
Mótmælt stærð
byggingar, en
ekki elliheimili
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi athugasemd frá íbúum
við Asvallagötu 19.—29 og
Blómval lagötu 10 og 10A:
Á baksíðu Morgunblaðsins 2.
febr. sl. er viðtal við Gísla Sigur-
björnsson undir fyrirsögninni:
Undirskriftasöfnun gegn elli-
heimilisbyggingu. Er þar gróflega
hallað réttu málu enda hefur
blaðið ekki fyrir því að kynna
skoðanir hins aðilans í málinu.
Verðaþær væntanlega bezt skýrð-
ar með því að birta orðrétt undir
hvað hefur verið skrifað. En það
er svohljóðandi:
„Við undirrituð, húseigendur
við Ásvallagötu og Blómvallagötu,
höfum heyrt, að hugsanlega verði
á næstunni beðið um leyfi til að
byggja upp í bil að (Brávalla-
gata 30?), sem er á milli Brávalla-
götu 40 og Blómvallagötu 12. Ef
úr byggingarframkvæmdum yrði
á þessum stað, þá skiptir það okk-
ur miklu, hvernig þeim yrði hag-
að. Við búum I þéttbýlasta hverfi
borgarinnar svo að af þeim ástæð
um má litlu sem engu bæta við af
byggingum hér. Hitt skiptir þó
enn meira máli, að ekki dragi
verulega úr sólarljósi I gluggum
okkar vegna hugsanlegrar ný-
byggingar.
Af þessum ástæðum leggjum
við ríka áherzlu á, að alls ekkki
verði leyfð hærri bygging á um-
ræddum stað en tvær hæðir með
mjög lágu þaki (sbr. nýja húsið
að Ásvallagötu 42). Sérstaklega
viljum við mótmæla risþaki, eins
og er á Brávallagötu 40, sem hug-
myndir kynnu að koma fram um
til samræmis. Slíkt „samræmi"
yrði í engu samræmi við nútíma-
hugmyndir um sómasamlegt rými
fyrir hús og viðunandi birtu í
íbúðum.
Til viðbo'tar má svo benda á, að
jafnvel tveggja hæða hús, sem
næði eftir allri lóðinni (Ióðin er
792 ferm. og rúmlega 30 m löng)
mundi ofnýta lóðina samkvæmt
síðari tíma skipulagshugmyndum
í Reykjavík. Þess vegna þyrfti
hugsanlegt hús líklega að vera
laust við áðurnefnd nágrannahús
I annan endann eða báða. Mundi
þá skapast rými eins og myndað
hefur verið milli Asvallagötu 40'
og Ásvallagöru 42.“
Eins og sjá má er ekki einu orði
minnzt á elliheimili i skjali þessu.
Enda er i hæsta máta óheiðarlegt
að haida því fram, að þetta fólk,
sem margt hefur búið í góðu
nábýli við Elliheimilið Grund i
yfir fjóra áratugi, sé að mótmæla
slikri starfsemi.
Hitt er svo annað mál, að flest-
um mun annt um að fá nokkra sól
í suðurglugga sina, og ekki er gott
að láta loka fyrir allt útsýni.
Þannig var því afar illa tekið af
ibúum í nágrenninu fyrir nokkru,
þegar hugmyndir komu fram uin
að byggja á Landakoststúninu við
Hólavallagötu, svo dæmi sé tekið
úr þó miklu rýmra hverfi. Vonum
við, að fólk muni almennt skilja
afstöðu okkar, þegar það litur i
eigin barm.
vetrarútsala Mikil verðlækkun. Einnig ný sending af pelsum og aðskornum pelskápum. Kápu- og dömubúðin, Laugavegi 46. Bllkranl óskast Viljum kaupa 1 5 tonna bílkrana í góðu lagi. Upplýsingar í síma 1 9325 á skrifstofutíma.
Tll sðlu sérverzlun í einni af stærstu verzlunarmiðstöð borgarinnar. Áhuga- samir leggi nöfn sín inn á afgr. Mbl. merkt: „Trúnaðarmál 1430". Tll sðlu Nlercedes Benz vörubíll 1519, frambyggður, árg. '72. Keyrðurca. 50 þús. km. Billinn er í ágaetu ástandi og verður til sýnis að Stóragerði 22 milli kl. 7 og 8 í kvöld og ánnað kvöld. Upplýsingar í sima 85857 eða 33188 milli kl. 1 2.30 og 1 í dag og á morgun hjá Stefáni Jónssyni.
Jæja. Nú opnum við á nýja
staðnum. Að Skúlagötu 61
með nýjum mynstrum og
nýjum litum
ALAFOSS
TEPFADEILD SKÚLAGÖTU 61, SÍMI 2 20 90
Trésmi&jan VlÓir hf. auglýsir—Seljum næstu daga
lítið gðlluð húsgögn, vegna
brunaskemmda
Mlklll atsiáttur— Notið betla tæklfæri og gerlð góð kaup
Trésmiójan Víóir hf., Laugavegi 166, simar 22222 —22229.