Morgunblaðið - 07.02.1974, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1974
Fréttabréf úr Stykkishólmi
Höfðindeff
g* -
sjúkrahússins
Stykkishólmi, 3. febr.
LAUGARDAGINN 2. febr. sl. af-
henti Lionsklúbbur Stykkishólms
sjúkrahúsinu í Stykkishólmi
vandað lækningatæki að gjöf. Er
þetta fæðingarhjálpartækí, keypt
frá Danmörku og mjög verðmætt.
á. Erfitt hefir oft verið fyrir áætl-
unarbifreiðina, sem gengur milli
Reykjavíkur og Stykkishólms, að
halda áætlun veðurs vegna, en
reynt hefir verið að hafa þrjár
ferðir f viku suður og þrjár til
baka, en fjallið er ekki mokað
nema á þriðjudögum og föstudög-
um. Heydalur er í vetur alltaf fær
og hafa menn notfært sér það, en
sá galli er á fyrir Stykkishólm og
nágrenni að Alftafjörðurinn tepp-
ist oft.því aðþareru vegir slæmir
og snjóalög tið og þarf þar að
moka eins og í Kerlingarskarði, ef
vel á að vera. Því er það
draumur okkar hér, að sá txmi sé
ekki langt undan, að brú verði
sett á Álftafjörðinn bæði til að
stytta vegalengdina og svo vegna
öryggisins, sem er aðalatriðið.
Hefir þetta verið til athugunar
um skeið og liður nú senn
að niðurstöðum þessa máls,
eftir því sem Vegagerð ríkisins
hefir upplýst.
Skelfiskveiðar hafa verið stund-
aðar héðan í janúarmánuði og 4
til 5 bátar á þeim veiðum. Annars
eru allir bátar að buast hér á
vetrarvertið, en fleiri bátar verða
nú gerðir út frá Stykkishólmi en
oft áður.
Rækjuvinnsla er svo f undir-
búningi. Hér hefir verið stofnað
féiag um rækjuvinnslu, Rækju-
nes h.f. og hefir það fengið leigt
til bráðabirgða fiskskemmu
Kaupfélags Stykkishólms, þar
sem áður var saltfiskverkun, en
Kaupfélagið mun ekki verka fisk
í salt nú eins og áður á vetrarver-
tíðum.
Rækjunes mun vélvinna rækj-
una og hefir tryggt sér næga báta
til að veiða og leggja upp afla.
Fréttaritari.
Við þetta tækifæri ávarpaði Einar
Karlsson formaður Lionsklúbbs-
ins forstöðukonu sjúkrahússins,
lækna og \iðstadda starfsmenn og
lýsti þakklæti Stykkishólmsbda
og þeirra, sem sótt hafa sjúkra-
húsið. fyrir það óeigingjarna og
mikla mannbóta- og menningar-
starf, sem þar er unnið, bæði með
hjúkrun og lækningu sjúkra svo
og barnaheimili og smábarna-
skóla, sem þar starfar að vetrin-
um, vinsæll og vel sóttur. Þá gat
hann um þau stórátök i bygging-
arframkvæmdum, sem átt hefðu
sér stað að undanförnu, og þær
aðstæður, sem þær systur, sem
reka sjúkrahúsið, hefðu skapað.
Þakkaði iæknum ágæt störf, en
nú gegnir sjúkrahúslæknisstarfi
Jón Níelsson læknir, en héraðs-
læknisstörfum gegnir Viðar
Strand og eru þeir báðir ötulir i
sínu stai'fi og hefir orðið vel á-
gengt.
Príorinnan, systir Hildegonda,
flutti ræðu, þar sem hún þakkaði
höfðinglega gjöf til sjúkrahússins
og minntist um leið starfsemi og
velvildar Uonsklúbbsins frá
fyrstu tíð. Kvað hún menningar-
starf slikra klúbba um heim allan
hafa borið ríkulega ávexti, þar
sem það væri unnið i þágu krist-
insdóms og mannkærleika. Óskaði
hún klúbbnum og Stykkishólmi
allra heilla og kvað það systrun-
um ánægju að starfa hér að líkn-
armálum.
Helmingi sterkari grind en áður, sem er samt fimm
kg. léttari á hvern metra. Nýtt hús, sem gerir
nýtingu framöxulþunga betri, - nú 6,5 tn.
Minni fjarlægð frá pallenda til framöxuls gefur
600 mm. meira pallrými - dýrmætir mm.
Talið við Jón Þ. Jónsson í Volvosalnum um yfír-
burði Volvo N.
Til
solu strax
Viðstödd við þetta tækifæri var
ljósmóðir staðarins, Elín Sigurð-
ardóttir. Héraðslæknirinn, Viðar
Strand, sýndi síðan viðstöddum,
hvenig tækið ynni og hvers mætti
af því vænta. Kvað það vandað að
öllu leyti að gerð og búnaði. Þakk-
aði hann einnig fyrir hönd læknis-
héraðsins. Áður hefir Lionsklúbb-
ur Stykkishólms gefið sjúkrahús-
inu lækningatæki.
Laugardaginn 2. febr. kom til
Stykkishólms körfuknattleikslið
frá xMenntaskólanum á Akureyri
til keppni í 2. deild, en nú fer
fram um land allt slík keppni.
Keppt var í nýinnréttuðu húsi,
sem nokkrir Hólmarar hafa unnið
að i sjálfboðavinnu, en þetta var
áður braggi stór, sem notaður var
til að smi'ða i fiskiskip. Hafa þeir
unníð að þessu í sjálfboðavinnu
frá í haust og hefur húsið nýlega
vex-ið tekið í notkun. Er það vel
rúmt og hægt að leika þar flesta
landsleiki. Fóru leikar svo, að
ungmennafél. Snæfell bar sigur
af hólmi með 92 stigum gegn 56.
Keppnísliðið frá Akureyri kom
með flugvél frá Tryggva Helga-
syni og hélt heimleiðis strax að
keppni lokinni.
Það sem af er þessu ári hefir
tiðarfar verið mjög rysjótt hér i
Stykkishólmi og við Breiðafjörð.
Vegir hafa oft teppzt og Kerling-
arskarði hefir orðíð að halda opnu
með snjómokstri. Þott lftill snjór
sé f byggð, eru svellalög þeim
mun meiri og engin beit fyrir
fénað, enda hann á gjöf. Þeir eru
teljandi á annarri hendi þeirdag-
ar, sem logn og stilla hefir verið