Morgunblaðið - 07.02.1974, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1974
21
Prúðbúið eftirvæntingarfullt smáfólk er að koma
sér fyrir í sætunum, flest í fylgd með foreldrum,
aðallega mæðrum; feður virðast ekki mikið gefnir
fyrir að fara með afkvæmum sínum í leikhús.
I upphafi er sviðið autt, en sögumaður leiksins
galdrar fram leiktjöld og síðan hverja persónuna á
fætur annarri og harin og „drengurinn úr salnum“
sem hann fær sér til liðs að semja leikritið hafa
fljótlega misst stjórn á persónunum, sem vilja fara
sfnar eigin leiðir, enda eðlilegt að kóngurinn sjálf-
ur vilji dálftið fá að ráska með sig og sína. Maður er
nú ekki kóngur fyrir ekki neitt.
Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Og svo var slegið upp balli í höllinni og börnunum
boðið með og þá varð þröng á sviðinu og þar var
dansað af hjartans lyst.
Köttur úti í mýri
A barnasýningu
í Þjóðleikhúsinu
Árni 10 ára frá Búðardal
í Dölum var þarna með
pabba sínum og sagðist
skemmta sér vel og sér
fyndist þetta skemmti-
legra en mörg önnur
leikrit sem hann hefði
séð.
Ólafur Amarson, 10 ára með systrum sfnum Guðrúnu, sem stendur við hlið hans
önnur frá vinstri, sfðan Hlff sjö ára, Nanna 4ra ára og yngri systir Ólafs, Jóhanna
4ra ára og Hermann 9 ára. Þeim fannst ræningjarnir sniðugir, sérstaklega af því
að þeir voru nú góðir inn við beinið. Þau vonuðu öll að prinsessan myndi sleppa ef
þeim tækist að ná henni og héldu helzt að Ijónið myndi koma henni til bjargar; því
að það væri svo skemmtilegt og kátt.
Stefán og Kristinn höfðu
ákveðnar skoðanir á því
að það væri betra að
plata steluþjófana með
því að segja þeim að fara
í vitlausar áttir. Þeir
voru trúaðir á að allt
færi þetta vel að iokum
og skemmtu sér dægi-
lega.
Systurnar Áslaug 6 ára
og Unnur 4 ára voru f
sfnu ffnasta pússi, síðum
kjólum og sú yngri með
slaufu í hárinu. Þær
höfðu séð Litla Kláus og
Stóra Kláus og Ferðina
til tunglsins af fvrri
barnaleikrituni.
Kolbrá var bara tveggja
ára og sennilega með
yngri leikhúsgestum
þeunan dag, enda ekki
allt tal hennar um boð-
skap leikritsins skiljan-
legt, svona í fljótu
bragði.