Morgunblaðið - 07.02.1974, Síða 24
24
Olafur Breiðfjörð
Þórarinsson —Mnning
Fæddur 11. október 1916.
Dáinn 26. janúar 1974.
Mig setti hljóðan, þegar ég var
boðaður í simann 26. jan. siðast-
liðinn, og mér tilkynnt, að minn
elskulegi vinur Ölafur B. Þórar-
insson bifreiðastjóri, Digranes-
vegi 36, Kópavogi, væri látinn.
Ég var svo heppinn að eiga
hann að vini og velgjörðarmanni
meginhluta ævinnar. Ölafur var
þéttur á velli og þéttur i lund,
vinur vina sinna, góður maður og
framúrskarandi hjálpfús og vildi
allra vandræði leysa.
Ólafur B. Þórarinsson var fædd-
ur 11. okt. 1916 í Reykjavík. Ung-
ur að árum fór hann á Bændaskól-
ann á Hvanneyri og útskrifaðist
þaðan búfræðingur. Ekki gerði
hann samt landbúnaðinn að at-
vinnugrein sinni, en fór að stunda
sjóinn og vann á togurum bezta
tima ævinnar, hann var einn af
þeim, sem fóru i hafið, þegar tog-
arinn Vörður sökk 1950, en var
bjargað. Ólafur náði aldrei sömu
heilsu eftir það áfall.
30. nóv. 1943 kvæntist Ólafur B.
Þdrarinsson eftirlifandi konu
sinni, Jóhönnu Ingimundardóttir,
og varð þeim fimm barna auðið,
sem öll voru mannvænleg og góð
börn.
Að svo mæltu bið ég almáttugan
Guð að blessa sálu þessa fram-
liðna vinar míns og flytja hana til
Ijóssíns heimkýnna á land friðar-
ins.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Ég bið ennfremur almáttugan
himnaföðurinn að blessa og varð-
veita ekkju hans, börnin þeirra og
háaldraða móður og veita þeim
hjálp og styrk í lífsbaráttunni.
Einlægur vinur,
Dagbjartur Björgvin Gíslason.
Þann 26. janúar sl. andaðist í
Landspítalanum Ólafur Breið-
fjörð Þórarinsson, eftir stutta
legu þar, en var búinn að vera
veikur heima og eflaust meira
þjáður en hann lét á bera. Ólafur
var fæddur í Reykjavík 11. okt.
1916, en fluttist ársgamall með
foreldrum sínum, Sigurrósu Guð-
mundsdóttur og Þórarni Ólafs-
syni, að Rauðstöðum í Arnarfirði
og þaðan að Naustabrekku á
Rauðasandi, þar sem ólst hanh
upp.
Eíns og gengur í sveit vandist
hann öllum algengum bústörfum
og ákvað að fara i bændaskóla.
Hann varð búfræðingur frá
Hvanneyri 1940, en ekki lagði
hann fyrir sig störf bóndans,
heldur gerðist sjómaður.
Ólafur var allmörg ár skipverji
á b.v. Verði frá Patreksfirði, og
var hann einn þeirra, sem af kom-
ust, er togarinn fórst í janúar árið
1950. Eflaust hefur hann aldrei
borið þess bætur, er hann varð
fyrir þar, en aldrei heyrðum við
hann nefna þann atburð. Eftir
það hætti Óli Þór, eins og hann
var kallaður, sjómannsstarfinu og
gerðist vörubílsstjóri, fyrst á Pat-
reksfirði og síðan hér í Reykjavík
hjá Vörubílastöðinni Þrótti, og
þar starfaði hann til dauðadags.
Öli Þór var vel gefinn og fróður
maður, og mikið var hann búinn
að lesa um þann sjúkdóm, er að
lokum leiddi hann til dauða, og
það vitum við, að Óli vissi vel að
hverju stefndi.
ÓlPÞór var á bezta aldri, aðeins
57 ára, og við, sem eftir stöndum,
finnum vel það skarð, sem komio
er í hópinn. Ekki datt okkur í
hug, er Óli skrifaði minningar-
grein um tengdaföður sinn sL vet-
ur, að svo stutt yrði þar til við
t
Móðir okkar
UNAG.Þ. ÞORSTEINSDÓTTIR,
andaðist að Hrafnistu aðfaranótt 6 febrúar
Ragnhildur, Birna og Kristin Guðmundsdætur.
t
Eiginkona mín og móðir,
KRISTÍN PÁLSDÓTTIR,
Nesvegi 82,
sem lézt á Borgarsjúkrahúsinu þann 29. janúar s.l., verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni föstudaginn 8 febrúar kl 1 3.30
Jón G. Guðjónsson,
Hreggviður Jónsson.
t
Bróðir okkar
GUÐMUNDUR ÞÓRDARSON
frá Þorkelshólí,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju laugardaginn 9. febrúar kl.
1 0.30 f.h. Blóm vinsamlegast afþökkuð
Anna Þórðardóttir, Ingibjórg Þórðardóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
INGIBJÖRG SUMARRÓS GUÐMUNDSDÓTTIR,
Efstasundi 38,
sem andaðist þann 1. febrúar verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 8 febrúar kl 10 30
Guðmundur H, Ágústsson, Ólafur Þ. Ágústsson,
Sigriður S. Ágústsdóttir, Ágúst S. Ágústsson,
tengdabörn, barnabörn og bróðir.
stæðum í sömu sporum og þá.
Margs er að minnast frá sam-
verustundum, er við hittumst i
fjölskyldufagnaði, því að fjöl-
skyldurnar frá Yztu-Tungu héldu
vel saman og alltaf var Öli Þór
hrókur alls fagnaðar, hann var
svo traustvekjandi og öllum leið
vel í návist hans. Við geymum öll
Ijúfar minningar um Óla Þór og
biðjum góðan guð að leiða hann á
þeim vegi, er hann nú gengur.
Ólafur kvæntist 30. nóv. 1943
Jóhönnu Ingimundardóttur frá
Yztu-Tungu, Tálknafirði, og eign-
uðust þau 5 börn, 3 tengdabörn og
6 barnabörn. Bjuggu þau fyrst á
Patreksfirði og síðan í Kópavogi.
Nú er Öli Þór horfinn okkur
yfir móðuna miklu, við, sem eftir
stöndum, kveðjum hann með
þakklátum huga og öskum honum
góðrar heimkomu til þess staðar,
sem okkur er öllum ætlaður.
Við sendum innilegustu samúð-
arkveðjur til þín Hanna mín,
barna þinna og fjölskyldnaj
þeirra. Eins vottum við háaldr-
aðri móður hans, er býr i
Hafnarfirði, samúð okkar og
biðjum góðan guð að i' blessa
þau og vonum, að geislar hækk-
andi sólar megi ylja hjörtum
þeirra.
Það er stórt skarð í ættargarð-
inn við fráfall Ólafs Þórarinsson-
ar. Blessuð sé minning hans.
Farðu í friði
friður guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Systkinin frá Yztu-Tungu
og fjölskyldur þeirra.
Ólafur Breiðfjörð Þórarinsson
var fæddur í Reykjavík, 11.
október 1916, þriðja barn foreldra
sinna, hjónanna Guðmundinu Sig-
urrósar Guðmundsdóttur frá
Sauðeyjum í Breiðafirði og
Þórarins Kristjáns Ólafssonar frá
Múla í G ufudalssveit.
t
Hugheilar þakkir fyrir okkur
sýnda samúð við andlát og útför
konunnar minnar,
BJARGAR MARÍU
ELÍSABETAR
JÓNSDÓTTUR
Vegna barna okkar og annarra
vandamanna
Meyvant Sigurðsson, Eiði.
Arsgamall fluttist hann með
foreldrum sínum að Rauðsstöðum
í Arnarfirði. Fljótlega var stórbú
á Rauðsstöðum og vandist Ólafur
snemma öllum störfum til sjós og
lands, því faðir hans gerði út bát
haust og vor. Snemma bar á því að
Ölafur var með afbrigðum fjár-
glöggur og var honum ungum fal-
in f járgæsla og fór honum það vel
úr hendi því bæði var hann sam-
viskusamur og alla tíð fram úr-
skarandi snyrtimenni.
Árið 1935 flytur fjölskyldan að
Naustabrekku á Rauðasandi og
vann hann þar við bú foreldra
sinna í nokkur ár. 1938 fór hann i
Bændaskólann á Hvanneyri og
lauk þaðan búfræðiprófi. Ekki
varð þó af því að hann staðnæmd-
ist við búskapinn og lá leið hans
til Patreksfjarðar. Þar kynntist
hann glæsilegri stúlku Jóhönnu
Ingimundardóttur frá Ystu-
Tungu í Tálknafirði. Þau gengu i
hjónaband 1943. Ungu hjónín
settust að á Patreksfirði og þar
fæddust börnin þeirra fimm, Þóra
Friðrika, Kristbjörg, Þórarinn
Kristján, Guðjón og Guðmundína
Sigurrós.
Ólafur stundaði sjó á Patreks-
fjarðartogaranum Verði og var
einn þeirra manna, er björguðust
úr hinu hörmulega slysi, er togar-
inn sökk. Þá slasaðist hann mikið
og var lengi veikur. Er hann hafði
náð sæmilegri heilsu fékk hann
sér vörubil og varð vörubílaakst-
ur hans starf til æviloka.
1963 flutti hann hingað suður
með fjölskyldu sína og keypti
íbúð á Digranesvegi 36 í Kópa-
vogi. Þar áttu þau hlýlegt heimiíi,
þar sem öllum þótti gott að koma
og var það ætíð margt um mann-
inn á hátíðisdögum fjöl-
skyldunnar og nutu allir þar
ágætustu gestrisni.
Snemma á síðastliðnu ári gekk
Ólafur undir magaaðgerð og eftir
það náði hann heilsu um nokkurn
tíma. En um mitt sumar fór heilsu
hans að hraka og um mánaðamót-
in nóv. des. var hann orðinn mjög
veikur og fluttur á Landspítalann
viku fyrir jól. Eiginkona hans
hefur verið óþreytandi að veita
hinum alla þá hjálp, sem í mann-
legu valdi stóð og sat hjá honum
hvern einasta dag þar til yfir
lauk.
Nú er skarð fyrir skildi hjá öll-
um ástvinahópnum og eins og
alltaf, þegar góður maður kveður
okkur, missa þeir mest, sem næst-
ir honum standa og hafa notið
ástar og umhyggju hans. Ég veit
að Guðstraustið er huggun harmi
gegn.
Börnin sjá á baki góðum og
umhyggju sömum föður og mikill
er missir litlu barnabarnanna,
sem hafa notið þeirrar hamingju
að njóta ástúðar hans.
Einnig sér á eftir honum móðir
hans háöldruð, 95 ára, sem barn-
ung missti foreldra sína og lærði
þá strax að treysta Drottni og
hans forsjá. Allir sem hana þekkja
vita hversu mikinn andlegan
styrk hún á til, er þeir einir hafa,
sem eiga sterka trúarvissu. Kom
það best í ljós þegar hún mörgum
sinnum kom að sjúkrabeði sonar
síns. G uð blessi hana og styðji.
Um leið og ég kveð Ölaf mág
minn vil ég minnast á ríkan þátt í
eðli hans, hann var mjög frænd-
rækinn og gerði mest allra til að
halda fjölskyldutengslunum sam-
an og fyrir nokkrum árum stóö
hann fyrir því ásamt frændum
sínum að stofna til ættarmóts og
hefur það síðan verið venja að
hittast á hverjum vetri og fara
saman í skemmtiferð að sumrinu.
Framhald á bls. 25.
Asa Baldursdóttir
Minningarorð
F. 24. febrúar 1906
D. 26. janúar 1974.
Leiðir okkar Asu lágu ekki sam-
an fyrr en árið 1963 að ég réðst
til forstöðu rannsóknarstofu
Mjólkursamsölunnar, f Reykja-
vík, en þar vann hún þá. Ása var
að eðlisfari fremur fáskiptin og
ræddi ekki eigin hagi, — en hún
var trúuð kona með fastmótaða
lund.
Þó átti hún bæði til að glensast
og gleðjast með glöðurn, en gat
t
Þökkum auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
JÓNS ANTONSSONAR,
Akureyri,
Halldóra Kristjánsdóttir,
Margrét Jónsdóttir,
Magnús Ottósson,
Gunnlaugur M. Jónsson,
Ingunn Baldursdóttir.
t
Móðir mín og tengdamóðir
SIGURLAUG SIGVALDADÓTTIR,
Urðarstig 8,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 7. febrúar kl.
3 e.h.
Margrét Lilja Eggertsdóttir,
Sveinn Sveinsson.
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför
móðurokkar, tengdamóður og ömmu,
ÖNNU INGVELDAR MAGNÚSDÓTTUR,
Miðbraut 32, Seltjarnarnesi.
Dætur, tengdasynir og bamabörn.
jafnt haldið óbifanlega fram
skoðunum sínum.
Þegar ég nú, að leiðarlokum, lít
til baka, kemur mér einkum í hug
hve gott var að vinna með Ásu
vegna þess, að hún sýndi jafnan
óvenjulega trúmennsku í öllu
starfi sinu.
Ása var ein þeirra manneskja,
sem treysta mátti til fulls; með
slíku fólki er gott að vinna og
stjórna.
Þó aldurtnn væri ekki hærri,
var mér ljóst, að hún var vinnulú-
in, enda hafði hún átt við erfiðan
sjúkdóm að stríða frá unga aldri.
Þó vann Asa fulla vinnu og skil-
aði sínu dagsverki, allt þar til hún
lagðist banaleguna, fyrir tveimur
mánuðum síðan.
Þeim, sem eru trúaðir, er hugg-
un í því, að þreytt jarðarbörn fái
hvfld og góða heimkomu, en hana
á þessi grandvara kona vísa.
Við öll, sem með henni störfuð-
um, kveðjum hana og þökkum
gott samstarf og kynni.
FriðurGuðs blessi Ásu Baldurs-
dóttur.
Guðbr.E. Hlíðar.
dýralæknir.
Utför Ásu fer fram í dag,
fimmtudag 7._ febrúar frá Dóm-
kirkjunni og jarðsett yerður hún
frá gamla kirkjugarðirjum yið
Suðurgötu.