Morgunblaðið - 07.02.1974, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1974
35
* *
IÞROTIAFRETDR MOUnSIIIIS
Donald Baird, stangastökkvari frá Ástralfu, kann greinilega tökin á fiber-glass stönginni sinni,
sem tekur á sig fagurlegan boga og sveiflar honum sfðan upp í loftið. Baird varS sigurvegari í
stangastökkinu á samveldisleikunum f Cristehurch í Nýja-Sjálandi á dögunum, og stökk hann 5,05
metra.
Mamma Atje Evrópumeistari
ATJE Keulen-Deelstra, eða
IVIainma Atje, eins og hún er köll-
uð f heimalandi sínu, Hollandi,
sigraði örugglega á Evrópu-
meistaramóti kvenna í skauta-
hlaupum, sem fram fór f Alma
Ata um sfðustu helgi. Atje Keul-
en-Deelstra er nú U5 ára, og er
þriggja barna móðir og fylgja
börnin henni jafnan á keppnis-
ferðuin henriar. Hún hlaul sam-
tals 183.135 stig í keppninni. Önn-
ur varð Nina Statkevitjs frá
Sovétríkjunum, sem hlaut
184.226 stig, þriðja varð Tatjana
Sjelekova frá Sovétrfkjunum með
185.803 stig, fjórða varð Ljudmila
Savrulina, einnig frá Sovét-
ríkjunum ineð 186.038 stig.
Urslit i einstökum greinum urðu
þau, að Keulen-Deelstra sigraði
í 500 metra hlaupi á 43.78 sek.,
Monika Pflug frá VesturÞýzka-
landi varð önnur á 43,99 sek. og
Nina Statkevitjs frá Sovétrikj-
unum þriðja á44,53 sek.
I 1500 metra hlaupi sigraði
Keulen-Deelstra á 2:15,84 mfn.,
Statkevitjs varð önnur á 2:17,41
min. og Tatjana Sjelekova frá
Sovétríkjunuin þriðja á 2:17,49
mín.
I 1000 metra hlaupinu varð
Keulen-Deelstra einnig sigurveg-
ari, hljóp á 1:28,26 mín., Sjele-
kova frá Sovétríkjunum varð önn-
ui' á 1:28,69 mín. og þriðja varð
Averina frá Sovétrfkjunum á
1:28,84 mín.
Sigurvegari i 3000 metra hlaup-
inu varð svo Statkevitjs á 4:54,98
tnfn., Savrulina varð önnur á
4:55,97 mín.
Reykjavíkur-
mót í innan-
hússknattspyrnu
REYKJAVÍKURMÓT meistara-
flokks í innanhússknattspyrnu
fer fram f Laugardalshöllinni á
sunnudaginn og hefst klukkan
14.00. Þátt i mótinu taka 8 félög
og leika þau í tveimur riðlum, í a-
riðli leika Armann, Fylkir, Þrótt-
ur og Fram, en í b-riðli KR, Vik-
ingur, Valur og Hrönn. Sömu
reglur gilda í Reykjavíkurmótinu
og í íslandsmóti. Hver leikur
verður 2x10 mínutur og ræður
markatala úrslitum í riðlunum.
Verði jafntefli í úrslitaleikjum
verður framlengt i 2x3 mínútur,
ef þá verður enn jafnt fer fram
vítaspyrnukeppni, fimm tilraunir
á hvort lið. Keppt verður um hik-
ar gefinn af tBR og verður hann
farandbikar. Urslitaleikir Reykja-
vikurmótsins hefjast klukkan 20
á sunnudagskvöldið.
Jórunn vann
stórsvigið
í ÍÞRÖTTABLAÐI Morgunblaðs-
ins i fyrradag var m.a. sagt frá
úrslitum i fyrsta punktamóti
vetrarins á skíðum. Var sagt að
Margrét Vilhelmsdóttir hefði
sigrað i stórsvigi kvenna. Þetta er
ekki rétt, heldur var það hin efni-
lega Reykjavikurstúlka Jórunn
Viggósdóttir, sem sigraði. Við
biðjumst velvirðingar á þessum
mistökum og birtum mynd af Jór-
unni í stórsvigskeppninni.
NÆR OG FJÆR
VUORENMAA
SIGRAÐI
FINNSKI langhlauparinn
Matti-Vuorenmaa sigraði i hinu
árlega maraþonhlaupi, sem
fram fer i Kyoto i Japan, en það
var háð um síðustu helgi. Tími
'■ :.ns í hlaupinu var 2:15,10,5
klst. Annar varð Japaninn
Nobuyoshi Takada á 2:16,26,0
klst. og þriðji varð Suður-Kóreu-
búinn Cho Jae Hyung á
2:16,26,0 klst.
Afboðar
þátttöku
EINN af dönsku leikmönn-
unum sem valinn hafði verið í
handknattleikslandsliðið, sem
tekur þátt í heimsmeistara-
keppninni f handknattleik,
hefur afboðað þátttöku sína,
eftir viðtal sem birtist við
landsliðsþjálfarann í einu blað-
anna fyrir skömmu. Leik-
maðurinn er Jörgen Klitgaard,
markvörður Ahrus KFl'M og
ummæli landsliðsþjálfarans,
sem honum likuðu ekki, voru á
þá leið, að hann stæði hinum
markvörðunum að baki, og færi
aðeins til þess að sitja á vara-
mannabekknum og vera til
taks.ef eitthvað bæri útaf.
Borg sigraði
HINN 17 ára sænski tennisleik-
ari, Björn Borg, varð 200 þús-
und krónum ríkari eftir þátt-
töku sfna f opna norska
meistaramótinu í tennis, sein
fram fór um helgina, en þar
sigraði hann SuðurAfríkubú-
ann Ra.v Moore í úrslitum 2:6,
6:4, 6:4 og 6:1.
Sovézkur sigur
IRINA Rodnina og Alex Zaizev
frá Sovétríkjunum sigruðu í
parakeppni i listhlaupi á skaut-
um í Evrópumeistaramótinu í
þessari grein, sem nýlega er
lokið i Zagreb í Júgóslavíu. I
öðru sæti urðu Romy Kermer
og Rolf Kermer frá AÞýzka-
landi, og sovézka parið Lyud-
mila Smirnova og Alexej Ula-
nov urður í þriðja sæti.
1 listhlaupi karla sigraði lánn
18 ára Austur-Þjóðverji Jan
Hoffmann, og hlaut haiin
233,73 stig. I öðru sæti varð
Sergej Volkov frá Sovétrfkjun-
um með 228,75 stig, og þriðji
varðJohn Curryfrá Bretlandi.
Góður hástökks-
árangur
ÞRÍR sovézkir hástökkvarar,
sem nú eru i keppnisferð i
Bandarikjunum, náðu mjög
góðum árangri á möti, sem
fram fór í Kaunas um s.l.
helgi. Kestutis Sjapka sigraði,
stökk 2,23 metra, Vello Lumi
stökk 2,18 metra og sömu hæð
stökk Juri Tarmak. Olympiusig-
urvegarinn i þessari grein.
A sama móti sigraði Kjell
Isaksson frá Svíþjóð i stangar-
stökki, stökk 5,26 metra, en Bob
Richards jr, varð annar, stökk
5.03 metra.
Eþíópíumaðurinn Mirus Yift-
er sigraði i 2ja milna hlaupi á
8:43,3 mín, en annar varð
Frank Shorter frá Bandarikj-
unum á 8:47,6 min.
SVÍAR RASS-
SKELLTUDANI
EINS og kunnugt er verða Dan-
ir með íslendingum í riðli
Heimsmeistarakepp'úinnar f
handknattleik í A-Þýzkalandi í
byrjun næsta mánaðar ásamt
Tékkum og V-Þjóðverjum.
Danir léku i f.vrrakvöld við
Svfa í Kaupmannahöfn.
en riðu ekki feitum hesti
frá þeirri viðureign, töpuðu
leiknum 10:16, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 10:6 Svfum
f vil. Björn Anderson skoraði
mest fyrir Svíana, 4 mörk, en
Flemming Hansen var mark-
hæstur Dana með 3 mörk.
tslendingar léku við Svía hér
á landi í nóvember og töpuðu
tvfvegis naumlega f slökum
leikjum hér í Reykjavík.
Belgíska
knattspyrnan
URSLIT leikja i 1. deild i Belg-
iu um síðustu helgi urðu þessi:
Diest—Waregem 3—1
Standard L. — Antwerpen 0—0
Briigge—Beerschot 3—2
Beveren — Malines 0—1
Lierse — Liegeois 0—0
Truiden — Anderlecht 1—1
Berehem — Cercle 0—0
Molenbeek — Beringen 1 — 1
Vestur-þýzka
knattspyrnan
URSLIT leikja i vestur-þýzku 1.
deildar keppninni i knatt-
spyrnu um síðustu helgi urðu
þessi:
Frankfurt — Boclnim 3—1
Wuppert. — Bayern
Munch. 1—4
Hannover — Hamburger
SV 2—2
Werder—Kickers 0—2
Schalke 04 — Borussia M. 2—0
FC Köln — Stuttgart 5—2
Hertha — Fortuna, Köln 1—1
Duisburg — Kaiserlaut. ' 2—1
Dússeld. — RotWeissE. 3—0
Bayern Munchen hefur mi
tekið forvstu í keppninni og er
með 31 stig eftir 22 leiki, hefur
skorað 63 mörk en fengið á sig
41. I öðru sæti er Frankfurt
með 30 stig eftir 22 leiki,
Borussia Mönehengladbaeh er í
þriðja sæti ineð 29 stig og FC
Köln i fjórða sæti ineð 26 stig.
Neðstu liðin í deildinni eru
Duisburg með 15 stig og Fort-
una, Köln með 14 stig.