Morgunblaðið - 07.02.1974, Qupperneq 36
JltovðnnlblaMfr
nucivsmcnR
^<^•22480
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1974
VILJA BANNA LOÐNU-
VEIÐI AÐ NÆTURLAGI
Stór fíkniefna-
mál í rannsókn
25 SJUKIR FALKAR
TIL DANMERKUR
13,2 millj. kr.
fyrir 240 tonn
SKUTTOGARINN Ögri seldi i
gær 238 tonn LGrimsby fyrir 13,2
millj. kr., en meðalverðið var
55,51 kr. Þetta er hæsta heildar-
tala t peningum sem íslenzkt skip
hefur fengið fyrir afla sinn, en þó
ekki hæsta meðalverð á kg.
I tilefni sjötíu ára afmælis
Ragnars Jónssonar hefur
stjórn Listasafns ASÍ og mið-
stjórn Alþýðusambandsins
ákveðið að láta stækka og reisa
mvnd Sigurjóns Ólafssonar:
Kríuna i landi Mundakots á
Evrarbakka, en það er æsku-
heimili Ragnars Jónssonar.
Mvndin er af Iistaverkinu.
Hafrannsóknastofnunin hefur
farið fram á það við sjávarútvegs-
ráðunevtið, að það banni loðnu-
veiðar að næturlagi á svæðinu
milli Hrollaugsevja og Ingólfs-
höfða. Astæðan er sú, að vart hef-
ur orðið síldar í einstaka loðnu-
förmum, í mjög litlum inæli þó
eða ekki vfir 1% af afla í einu
tilviki.
Morgunblaðið leitaði í gær upp-
lýsinga hjá Jakob Jakobssyni
fiskifræðingi. Hann kvað þá ekki
ánægða með það, að sild fyndist í
loðnuaflanum, þótt þetta væri
ekki mikið magn, en Fiskmat
ríkisins á að fylgjast með tegund-
um veidds fisks. „Hafrannsókna-
stofnunín leggur þvf til," sagði
Jakob, „að umrætt svæði verði
13,5% hækkun
hitaveitunnar
IÐNAÐARRAÐUNEYTIÐ hefur
levft 13,3% hækkun á gjaldskrá
Hitaveitu Reykjavíkur frá og með
1. marz n.k. Borgarráð fór fram á
þessa hækkun 22. jan. s.L, en
hækkunin er vegna hækkaðs
reksturskostnaðar og fram-
kvæmdakostnaðar Hitaveitunnar.
Ilitaveitan stendur nú í miklum
framkvæmduin, hæði virkjun á
Revkjum, lagningU aðalæða og
dreifilagna í Reykjavík, Kópa-
vogi og Hafnarfirði að sögn
borgarstjóra, Birgis ísleifs Gunn-
lokað á nóttinni, en á daginn fer
síldin út á það mikið dýpi, að hún
er ekki veiðanleg í nót.'‘
Jakob kvað síldina vera vax-
andi. „Þetta er allt i áttina," sagði
hann. Á þessu svæði þarna við
Hrollaugseyjar og Ingólfshöfða
vorum við t.d. við rannsóknir í
haust, og þá hljóp sildin upp á
sandana á nóttinni, en út á dýpið
á daginn. Þai-na var mikið af
yngri síld, tveggja ára síld sem er
að koma til og hrygnir fyrst
1975“
Morgunblaðið hafði einnig sam-
band við Þórð Ásgeirsson, skrif-
stofustjóra sjávarútvegsráðu-
neytisins, og sagði hann ráðuneyt-
ið hafa sent tillöguna samdægurs
í gær til umsagnar Fiskifélags Is-
lands samkvæmt lögum og beðið
um skjóta afgreiðslu, þannig að
verið væri að vinna í þessu naáli,
hvernig sem það færi.
TVEIR menn, báðir fslenzkir,
sátu f gær í gæzluvarðhaldi vegna
rannsóknar á aðild þeirra að með-
ferð og dreifingu ffkniefna og
nokkrir aðrir voru f fangageymsl-
um lögreglunnar af sömu ástæð-
um, en ekki hafði verið tekin
ákvörðun um, hvort þeir yrðu
einnig úrskurðaðir í gæzluvarð-
hald eða Iátnir lausir. Undan-
farna daga hafa staðið yfrr yfir-
heyrslur hjá dómstólunum f
ávana- og ffkniefnamálum vegna
mála, sem dómstóllinn hefur
fengið vitneskju um nú síðustu
daga.
I viðtali við Mbl. í gær sagði
Ásgeir Friðjónsson dómari, að
þarna virtist um þrjú aðskilin mál
að ræða. Virtust þau mjög áþekk
þeim málum, sem dómstóllinn
rannsakaði í sumar og haust, þ.e.
nokkrir aðalmenn og margir, sem
Um 1000 pör
á íslandi?
I FYRRADAG fannst aðfram-
kominn fálki á Sóleyjargötu f
Revkjavfk og kom lögreglan hon-
um til Náttúrufræðistofnunar-
innar. Þar var fálkinn devddur
með svæfingu, þar sem ekki var
talið unnt að bjarga honum. Að
sögn Ævars Petersens dýrafræð-
ings hjá Náttúrufræðistofnun-
inni var fálkinn mjög horaður og
taldi hann möguleika á að hér
væri um sama fálka að ræða og
myndir voru birtar af í Morgun-
blaðinu í sfðustu viku, en sá fálki
var myndaður við útvarpshúsið á
Skúlagötu.
Ævar sagði, að stofnunin hefði
sent 25 fálka út til Danmerkur til
rannsóknar á þeim sjúkdómi, sem
herjar á fálkastofninn íslenzka.
Ævar kvað þá fálka, sem hefðu
fundist með æxli í hálsi, hafa
verið senda út. Ekki er vitað, hvað
íslenzki fálkastofninn er stór, en
Ævar taldi mögulegt, að hann
kynni að vera um 1000 pör. Ekki
tengdust málunum sem kaupend-
ur eða neytendur. Málin, sem þá
voru rannsökuð, snerust um
skipulagðan innflutning og dreif-
ingu fíkniefna í ágóðaskyni, og
reyndist um 14—15 kíló af kanna-
bisefnum, aðallega hassi, að ræða.
Ásgeir kvað afar erfitt að segja
nokkuð nánar um þau mál, sem
nú væri verið að rannsaka; enn
lægju einungis fyrir nokkrar mís-
munandi lýsingar á því, sem á að
hafa gerzt. Ekki væri heldur hægt
að segja til um magn fíkniefn-
anna, sem um væri að ræða, en
þau hefðu verið í umferð síðustu
vikur og rnánuði.
Nú eru um 2‘A mánuður síðan
síðustu „lotu" i rannsókn fíkni-
efnamála lauk og siðan hafa eng-
in stór mál komið upp, fyrr en nú,
en hins vegar nokkur minni
háttar mál.
er vitað, hvort umræddur sjúk-
dómur hefur herjað lengi á stofn-
inn, þar sem engar rannsóknir
hafa farið fram á honum.
Verða Eyja-
menn utan
verkfalls-
boðunar
„ÞAÐ er ekki buið að taka
ákvörðun um verkfallsboðun hjá
okkur,“ sagði Jón Kjartansson,
formaður Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja, I viðtali við Morgun-
hlaðið í gær.
„Við höfum,“ bætti hann við,
„svo mikla sérstöðu hérna í Eyj-
um núna og það er dýr hver dag-
urinn f upphyggingunni að ég
býst við, að fullt tillit verði tekið
til þess.“
Ekki náðist f Jónatan
Aðalsteinsson, formann Sjó-
mannafélagsins Jötuns, i gær, en
mörgum finnst nóg hafa skollið á
Eyjuin að undanförnu, þótt verk-
föll bættust þar ekki við.
Mjakast hjá
togurunum
á loðnunni
TOGARINN Sigurður fékk 200
tonn í einu kasti í gærmorgun, en
byrjunarörðugleikar hafa verið
eins og við var að búazt, en engir
alvarlegir. Sigurður tekur um
1000 tonn af loðnu í lest. Annar
togari, sem kominn er á loðnu-
veiðar, Bylgjan, sem áður hét Jón
Þorláksson, hefur einnig átt við
byrjunarörðugleika að etja og
kom hann til Reykjavíkur i gær-
morgun til smávægilegra lagfær-
inga. Átti hann að fara út i gær-
kvöldi aftur, en hann er búinn að
landa einu sinni 300 tonnum af
loðnu.
KSi? 30908 undirskriftir
á fyrstu þremur vikunum
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi fréttatil-
kynning frá forgöngumönnum
undirskriftasöfnunarinnar
VARIÐ LAND:
í gær vor liðnar þrjár vikur
síðan söfnun undirskrifta hófst
undir kjörorðinu VARIÐ
LAND. Söfnunin hefur gengið
með afbrigðum vel, og í gær-
kvöldi (þriðjudaginn 5.
febrúar) höfðu aðalskrifstof-
unni i Reykjavík borist listar
ineð samtals 30.908 nöfnuin,
bæði af Reykjavíkursvæðinu og
utan af landsbyggðinni. Þótt
enn séu eftir tvær vikur, þar til
söfnuninni lýkur, er þátttaka
þegar orðin miklu meiri en
nokkur dæmi eru um i undir-
skriftasöfnun hérlendis. Sýnir
þetta, að mjög mikill áhugi er á
því ineðal fólks lun land allt, að
fram komi mótmæli gegn
ótíinabærum áformum um upp-
sögn varnarsamningsins við
Bandaríkin og brottvísun
varnarliðsins.
Undirskriftasöfnunin hefur
verið borin upp af miklum
fjölda áhugamanna, sem hafa
gefið sig fram og starfað af
dæmafáum dugnaði. í Reykja-
vik hafa þessir áhugamenn
aðallega starfað sjálfstætt að
söfnuninni, hver fyrir sig, en út
um land hafa menn víða haft
samtök sín i milli, einkanlega í
stærri bæjarfélögum. Þannig
hafa verið opnaðar sérstakar
skrifstofur á Akureyri, í Garða-
hreppi, í Hafnarfirði, í Keflavik
og í Kópavogi.
Eins og tilkynnt var í upp-
hafi, lýkur undirskriftasöfun-
inni hinn 20. febrúar. Þeim sem
vilja undirrita áskorunina um
varið land, en hafa ekki séð
undirskriftalista, er bent á að
snúa sér til næstu skrifstofu,
þar sem engin trygging er fyrir
því, að gengið verði í hvert hús.
Skrifstofan f Reykjavík er í
Miðbæ við Háaleitisbraut (sfmi
3 6031), á Akureyri að Brekku-
götu 4 (símar 22317 og
11425), Bókaverzluninni Grímu
i Garðahreppi (sími 42720),
Strandgötu 11 í Hafnarfirði
(sími 51888), Hafnargötu 46 f
Keflavík (sími 2021) og Álf-
hólsvegi 9, Kópavogi (sími
40588).
Þeir mörgu stuðningsmenn,
sem enn hafa lista með
höndum, eru hvattir til að skila
þeim sem fyrst til að auðvelda
talningu. Jafnframt geta menn
þá tekið nýia lisfa
Framhald á bls. 20.
arssonar.