Morgunblaðið - 22.02.1974, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.02.1974, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22.-FEBRÚAR 1974 Fa 'AIAJm 22*0-22- RAUOARÁRSTÍG 311 BILALEIGA CAR RENTAL "Er 21190 21188 /p BÍLALEIGAN ^SIEYSIR CAR RENTAL *24460 í HVERJUM BÍL PIONŒIEn ÚTVARP OG STEREO KASSETTUTÆKI SKODA EYÐIR MINNA. Shodr LEIGAN AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. BÍLALEIGAN BOIStt CAR RENTAL S 24 700 BORGARTÚNI 19 Bílaleiga CflR BENTAL Sendum 41660-42902 ,,u— DRGLECn Dæmi úr „fréttum” Þjóðviljans ÞJÓÐVILJINN þykist vilja kalla sig fréttablaö. Þeir, sem fylgjast með fréttaskrifum blaðsins vita, að ekki er skrifuð svo frétt I blaðið, að ekki fylgi með pólitísk túlkun viðkom- andi blaðamanns á því, sem hann skrifar um. í Þjóðviljan- um sl. miðvikudag birtist „frétt“ frá umræðum á Alþingi um ræðu þá hina endemis frægu, sem Magnús Kjartans- son flutti á fundi Norðurlanda- ráðs. Þessi „frétt“ Þjóðviljans sýna mætavel, hvert siðferði ríkir þar á blaðinu í fréttaskrif- Fyrirsögnin er: „Forsætisráð- herra um ræða Magnúsar: Eðli- legt að færa þessi mál í tal á Norðurlandaráðsþingi." Menn sjá líklega sjálfir, hversu trú- verðug mynd er þarna dregin upp af skoðun forsætisráðherra á málinu, sem einmitt stóð upp á eftir Magnúsi Kjartanss.vni á Norðurlandaráðsfundinum til þess sérstaklega að frábiðja sér það, að fslenzk varnarmál yrðu tekin til umræðu á fundinum, eins og Magnús Kjartansson hafði gert. Hér fara á eftir nokkrar til- vitnanir í umrædda ,Jrétt“ Þjóðviljans og þarf ekki að hafa nein orð um fréttagi ldið: „Það, sem einkum hefur verið áberandi við þessar um- ræður er móðursýkis- og hræðslukennd reiði íhaldsins yfir því, að ríkisstjórnin skuli ekki vera farin frá út af einu máli eða öðru. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur sem kunnugt er verið stærðar sinnar vegna þungamiðja íslenzkra stjórn- mála í marga áratugi, og frá þvf að núverandi stjórn var m.vnd- uð hefur æ greinilegar komið fram hjá íhaldinu sjúkleg hræðsla við, að langlífi slíkrar stjórnar, sem íhaldið ætti ekka aðild að, hefði lamandi áhrif á baráttukjark stuðningsmanna flokksins. Þessi skelfing aðal- flokks hérlends peningavalds hefur komið einkar skýrt fram á Aíbingi undanfarna daga.“ „Benedikt Gröndal kvaddi sér þá hljóðs og lét í Ijós mikla reiði yfir skoðanafrelsinu inn- an rfkisstjórnarinnar." „Geir Hallgrímsson var áber- andi sár yfir því, að ríkisstjórn- ir skyldi ekki ætla að refsa Magnúsi og snakkaði svo eitt- hvað um, að „kommúnistar" vildu koma áeinræði." „Ragnhildur Helgadóttir, Jó- hann Hafstein og Bjarni Guðnason töluðu næst og var málflutningur þess síðast- nefnda að því leyti líkur mál- flutningi íhaldsmannanna, að hann virtist altekinn af eins- konar máttvana vonsku yfir því, að ríkisstjórnin skyldi ekki rjúka til og segja af sér af einhverri ástæðu eða engri.“ Fleiri dæmi er hægt að taka úr þessari „frétt“ Þjóðviljans, sem sýna vinnubrögðin, en þetta ætti að nægja. Spurning- in, sem eftir stendur er sú, hvort lesendur Þjóðviljans hafi virkilega ekki minnsta áhuga á að vita um hvað umræðurnar í þinginu raunverulega snerust. Ekki er gerð minnsta tilraun til að skýra frá því. Þjóðviljinn telur þeim sýnilega nóg að fá að heyra sínar túlkanir á um- ræðunum og þeim alþingis- mönnum, sem tóku þátt í þeim. Þar fyrir utan er svo um beinar falsanir að ræða, þar sem ein- stakir þingmenn eru sagðir hafa sagt hluti, sem þeir létu sér aldrei um inunn fara. I þessu tilfelli er um svo augljós- ar falsanir að ræða, að varla lætur nokkur blekkjast af þeim. Hver trúir því t.d., að Benedikt Gröndal hafi „látið í ljós mikla reiði yfir skoðana- frelsinu innan ríkisstjórnar- innar". En falsanir Þjóðviljans eru ekki alltaf eins augljósar og hér. Blaðamenn blaðsins eru misjafnlega vel úr garði gerðir og sumum tekst betur en öðr- um að fela lygina í skrifum sínum. Þá er oft um að ræða efni, sem þannig er vaxið, að erfitt er að sannreyna, hvort rétt er með farið. Það er því nauðsynlegt fyrir alla þá, sem lesa Þjóðviljann að hafa allan vara á um sannleiksgildi þess, sem þar stendur. FRA bridgesambandi is- LANDS Mikil umsvif verða hjá Bridgesambandi íslands í sam- bandi við utanlandsferðir á ár- inu. Hefur stjórnin ákveðið þrjár utanlandsferðir. Eru þær þessar: HÓPFERÐ A HEIMSMEIST- ARAMÓT 1 TVÍMENNING Eins og kunnugt er af frétt- um, efnir Bridgesambandið til 3ja vikna hópferðar til Kanarí- eyja 2.—24. maí á sama tima og heimsmeistaramót í tvímenn- ing fer þar fram. Er ferðin skipulögð í samráði við Flugfé- lag Islands. Er nú uppselt í þessa hópferð og þátttakendur um 100. 14 spilarar, eða 7 pör, munu taka þátt i heimsmeist- arakeppninni í tvímenning, 6 pör í karlaflokki og 1 par í kvennaflokki. Réttur til þátt- töku í mótinu vinnst í íslands- mótinu i tvfmenning, sem fram fer 11.—12. apríl. EVRÓPUMÓT UNGLINGA Bridgesambandið ákvað á fundi 16. febr. s.l. að senda sveit á Evrópumót unglinga í bridge, sem fram fer í Kaup- mannahöfn 21.—28. júli n.k. Fer fram keppni um þessi landsliðssæti 9.—10. marz n.k. Ferð þessi er fjármögnuð með tekjum af Bikarkeppni Bridge- sambandsins ásamt styrk frá Reykjavíkurborg til unglinga- starfsemi Bridgesambands Reykja víkur. EVRÓPUMÓT LANDSLIÐA Evrópumótið 1974 fer fram í ísrael 2.—16. nóvemberi haust. Vegna hinnar miklu vegalengd- ar og kostnaðar stóð ekki til að senda sveit á mótið, en á síðasta Evrópumóti hafði fulltrúi frá Israel samband við fyrirliða okkar, Alfreð G. Alfreðsson, um vandamál okkar við að sækja mótið. Fyrir nokkrum dögum kom svo staðfesting á sérstakri fyrirgreiðslu af Bridgesambandi Ísraels til okk- ar. Vegna þessarar góðu tilboða ákvað stjórn Bridgesambands- ins á fundi sínum 16. febr. s.l. að senda sveit á mótið. Sérstök keppni fer fram um þátttökurétt á þetta mót 9.—10. marz og vegna ofangreindrar ákvörðunar er frestur til að skila umsóknum um að keppa um þessi eftirsóknarverðu sæti framlengdur til 23. febr., en landsliðsnefnd mun síðan velja úr umsóknum. 1000 MANNS í SÖMU BRIDGEKEPPNINNI Bikarkeppni Bridgesam- bands islands tókst með ein- dæmum vel. Samtals tóku 32 bridgefélög þátt i keppninni og varp spilað i samtals 49 riðlum, hver riðill skipaður 10 pörum. Spiluðu því um 1000 manns, víðs vegar að af landinu þessi sömu 27 spil. Þátttökufélög voru þessi, en fjöldi riðla er i sviga fyrir aft- an. Brf. U.M.F. Hrunamanna (1), Brf. Hvolsveili (1), Brf. Hellu (1), Brf. Selfoss (1), Brf. Hveragerðis (1), Brf. Keflavík- ur (2), Brf. Hafnarfjarðar (2), Brf. Kópavogs (3), Brf. Ásanna Kópav. (2), Brf. Reykjavíkur (1) auk 7.000, — kr. auka- greiðslu, Brf. T.B.K. Rvk. (3), Brf. Breiðfirðinga Rvk. (3), Brf. Kvenna Rvk. (3), Brf. Akraness (2), Brf. Borgarness (2) , Brf, Reykdæla (1), Brf. Stykkishólms (2), Brf. Patreks- fj. (1), Brf. Gosar Þingeyri (1), Brf. isafjarðar (1), Brf. Blönduóss (1), Brf. Hólmavík- ur (1), Brf. Lýtingsstaðahrepps (1) , Brf. Siglufjarðar (1), Brf. Dalvíkur (1), Brf. Akureyrar (2) , Brf. Húsavíkur (2), Brf. Mývatnssveitar (1), Brf. Vopnafjarðar (1), Brf. Fljóts- dalshéraðs (2), Brf. Fáskrúðs- fjarðar (1), Brf. Hornafjarðar (1). Stendur nú yfir útreikning- ur, sem gerður er i tölvu undir umsjón Jóns Gíslasonar, Garða- hreppi. Munu öll bridgefélög fá send úrslit keppninnar að lokn- um útreikningi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.