Morgunblaðið - 22.02.1974, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.02.1974, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1974 /fr(i//isiírt}tír-hniijbtr MfrwTnfl ar-ysfe: \ l.ntnfn 'iiiftiatti tuník/ir^^ ittiHi/k, 81 <i Frmmu n nix»- .Afréfhu k . «00 kf\<Zh/ii/(irii- >Wi/j/(f/i/ikrnk,< r' umfaíÍMj VíprðutVíj •5aiiAFeil Mi ?Kl^t ördr-d^' 'ÍBrfclI* iíitórt l> l! ifin/tv wkh* •fav OrrtuM/fn i ýi/duttf,. Vk‘í kálijhais •**■ ■*/' ihirt)TLfli l^fUiíjóh/iLii .'C^j Orama(/&r'h. itú.rbiu|i f ns . ihfarnafknúkar‘fy "[ ^C- ‘ 'ffli ->67 WtlúiðáfVll fúitttrktiv (StfttÓflÍA/ufj »*44 St’titu* tbu*ir Ýíí/jujt*otirj' ChMm wtu kniarfúilAi (tifíZn HofknoAiU\ Á |{ a, 't|.i*l<t|ló«i>\'i^u tí<t'(j<inúr Stói'íiSo! AtrHótoi* , A*4 k/ahájvir^éýÁf. [ItiiníjnoiAiíVn Pálmi Jónsson og Gunnar Gíslason: Næsta stórvirkjun verði á vestan- verðu Norðurlandi Þingmenn Sjálfstæðis- flokksins^ í Norðurlands- kjördæmi vestra Pálmi Jónsson og Gunnar Gísla- son hafa lagt fram á Al- þingi tillögu til þingsálykt- unar um að næsta stór- virkjun íslendinga verði á vestanverðu Norðurlandi, annaðhvort í Blöndu eða Jökulsá eystri og vestri í Skagafirði. í greinargerð með tillög- unni leggja flutningsmenn áherzlu á eftirfarandi atriði: □ Tímabært er og nauð- synlegt að taka þegar ákvörðun um næstu stórvirkjun lands- manna, þar sem talið er að raforka frá Sigöldu- virkjun verði fullnýtt á 1. eða 2. ári eftir að sú virkjun tekur til starfa og Kröfluvirkjun muni einungis fullnægja þörf á Norðaustur- og Aust- urlandi. □ Rannsóknir benda til, að virkjanir Blöndu og Jökulsánna í Skagafirði séu með hagkvæmustu virkjunarkostum hér á landi. Yrði vinnslu- kostnaður orkunnar 1/6—1/3 minni miðað við kwh en frá Sigöldu- virkjun. □ Dreifing orkuvera um landið er nauðsyn- leg út frá öryggissjónar- miðum. Benda þeir á, að Búrfellsvirkjun og Sig- ölduvirkjun séu báðar á mesta eldgosasvæði landsins. □ Blöndu- eða Jökulsár- virkjun eru vel í sveit settar ineð tilliti til flutningslína og valda- mál af völdum ístrufl- ana og aurframburðar eru hverfandi lítil. Þingsályktunartillagan hljóðar svo: „Alþingi ályktar aS fela ríkis- stjórninni að láta hraða svo sem mögulegt er öllum nauðsynlegum undirbúningi, til þess að unnt sé að taka ákvörðun um stórvirkjun á vestanverðu Norðurlandi, er verði næsta stórvirkjun lands- manna og verði annaðhvort í Blöndu eða Jökulsá eystri og vestri í Skagafirði. Skal allur undirbúningur, þar á meðal loka- rannsóknir og hönnun, við það miðaður, að hefja megi virkjun- arframkvæmdir eigi síðar en árið 1977. Þá skal og við það miða, að sem minnst spjöll verði á landi, og hafa um þau efni náið samráð við hlutaðeigandi sveitarstjórnir og gróðurverndarnefndir.“ Hér fer greinargerðin með til- lögunni áeftir íheild: ORKUKREPPAN KNYR A „A undanförnum mánuðum hefur fátt valdið meiri umræðum, bæði á Alþingi og utan þess, en orkumál. Kemur þar öðru fremur tvennt til. Eftir að oliukreppan reið yfir heiminn fyrir lok síðast árs, vöknuðum við íslendingar til nýs og aukins skilnings á því, að við höfum vanrækt óhæfilega vinnslu eigin orkulinda á síðustu mikilvægur þáttur þessa máls, sem ekki verður rætt um hér. Erfitt er að sjá fyrir, hve orku- þörfin vex ört á komandi árum. Síðustu ár hafa allar spár um það efni brugðist að þvi leyti, að orkunotkunin og orkuþörfin hafa farið langt fram úr öll- um áætlunum þar um. Víst er þó, að nú verður stökkbreyting á þessu sviði, vegna þess að liklegt er talið, að olíuverðið hækki upp í 13—14 kr. á næstu mánuðum. Af því leiðir m.a., að nálega allir þeir lands- menn, sem ekki eiga þess kost að hita upp hús sín með jarðvarma munu óska eftír að taka upp raf- hitun í stað olíukyndingar. Olíukreppan leíðir einnig til þess, að stóraukin eftirspurn verður eftir raforku til orkufrekr- ar stóriðju. NÆSTA STÖRVIRKJUN A VESTANVERÐU NORÐURLANDI Talið er að raforka frá Sigöldu- virkjun, sem lokið verður við á síðari hluta áratugsins, verði full- nýtt á 1. eða 2. ári, frá því að sú virkjun tekur til starfa. Sömu sögu er að segja um jarðgufu- virkjun á Kröflusvæðinu, sem vonandi kemst upp fyrir lok þessa áratugs, að hún muni einungis fullnægja þeirri þörf, sem þá verður fyrir hendi á Norðaustur- og Austurlandi, miðað við liklega þróun þessara mála. Virkjun Jökulsár eystri og vestri í Skagafirði. Stífla í Jökuisá eystri við Hraunlækjartorfu. Lón þaðan og mun Vestri polla. Safnað í það kvíslum úr Hofsjökli. Veitt þaðan í skurði um Orravatnsrústir, Rústakvfsl að stíflu við Stafnsvatnshæðir. Anni veitt með skurði úr lóni í Giljamýrum og Stafnsvötnum út Giljamúla að stöðvarhúsi í Vesturdal eftir 400 m fall. Virkjun 150 IMW. Stífla í Vesturdal hjá Bjarnastaðahlíð. Jarðgöng yfir í Austurdal gegnt Merkigili. 100 m há jarðvegsstífla undan Stekkjarflötum. Virkjun 25—30 MW, sem unnt er að tvöfalda. Augljóst er því, að tímabært er og nauðsynlegt að taka sem allra fyrst ákvörðun um næstu stór- virkjun landsmanna. Slíka ákvörðun verður að taka út frá nokkrum meginforsendum, og eru hagkvæmni og öryggi veiga- mest. Meðal annarra þátta, sem verð- ur að hafa i huga, er að forðast svo sem verða má að spilla landi eða náttúruminjum og valda vistfræðilegri röskun. Einnig er réttmætt að taka tillit til byggða- sjónarmiða. Með tillögu þeirri, sem hér er flutt, er lagt til, að næsta stór- virkjun landsmanna verði á vest- anverðu Norðurlandi, annað tveggja með virkjun Blöndu eða Jökulsár eystri og vestri í Skaga- firði. Til þessa liggja veigamiklar röksemdir. Rannsóknir benda til þess, að virkjanir Blöndu og Jökulsánná í Skagafirði séu einhverjir hag- kvæmustu virkjunarkostir, sem um er að ræða hér á landi. Þessar rannsóknir eru nokkru skemmra á veg kómnar á Jökulsársvæðinu en við Blöndu og gefa því ekki jafnmikið öryggi, en samt virðist ótrúlega margt líkt með þessum tveimur virkjunarkostum. Blönduvirkjun er áætluð 150 mw eða liðlega ‘4 minni en Búrfells- virkjun (210 mw). Hún er talin sérlega einföld í framkvæmd og örugg og hagkvæmnin slík, að vinnslukostnaður orkunnar yrði 1/6—1/3 minni miðað við kwh en frá Sigölduvirkjun. Það munar um minna. Jökulsárnar í Skaga- firði eru taldar bjóða upp á svip- aða kosti, bæði að því er snertir framleiðslumagn og verð orkunn- ar, með virkjun í Vesturdal, auk þess sem auðvelt virðist og hag- kvæmt að virkja 25—30 mw virkj- un skömmu ofar en árnar koma saman, undan Stekkjarflötum á Kjálka. Þá virkjun mætti tvöfalda síðar. í þessum fallvötnum er því um mikla orku að ræða, sem mjög hagkvæmt er að beisla. ÐREIFING ORKU- VERA NAUÐSYNLEG Öryggið er ekki minna um vert. Flm. telja, að dreifing orkuvera Framhald á bls. 14. Blönduvirkjun Stífla í Blöndu undan Reftjarnartungu og stífla í Kolkukvfsl við Kolkuhól. Lón í Kolkuflóa. Anni veitt þaðan í skurð um Þrístilku, Smalatjörn, Eystra-Friðmundarvatn og Gilsvatn í lón f Eldjárns- staðaflá, sem myndast við stíflu við Heygarðsás. Jarðgöng með315 m falli að stöðvarhúsi skammt frá Eiðsstöðum. Virkjun 150 MW. árum, og í annan stað afhjúpaði kuldakastið í nóv. og des. sJ. orkuskortinn i landinu mjög greinilega. Öllum ætti nú að vera ljóst, að taka verður á þessum vandamál- um með a.m.k. tvennum hætti: í fyrsta lagi með því að grípa til allra skynsamlegra ráða til þess að vega á móti þeim bfáða vanda, sem nú blasið við m.a. með því að hraða virkjunum, sem fullhann- aðar eru, þótt smáar séu. í öðru langi verður að taka föstum tökum undirbúning að fram- tíðarlausn þessara mála með ákvörðun um næstu stórvirkjun landsins. Nýting jarðvarm- ans er auðvitað stórkostlega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.