Morgunblaðið - 16.03.1974, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1974
Fa
/1 ití i.t i.i:h.a\
ALUR?
22-0*22-
RAUÐARÁRSTIG 31
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
*
CAR RENTAL
n 21190 21188
LOFTLEIÐIR
14444.25555
BÍLALEIGA CAR RENTAL
ABI
ou-mru.-
Hverfisgötu 18
86060
/^BÍLALEIGAN
^IEYSIR
CAR RENTAL
-w24460
í HVERJUM BÍL
PIONŒŒJR
ÚTVARPOG STEREO
KASSETTUTÆKI
MIKIÐ SKAL
TIL
SKODA EYÐIR MINNA.
SHODR
UtGM
AUÐBREKKU 44-46.
SfMI 42600.
FERDABILAR HF.
Bílaleiga — Sími 81260
Fimm manna Citroen G. S.
station Fimm manna Citroen
G S 8—22 manna Mercedes
Benz hópferðabílar (m. bllstjór-
um).
n - . .
*T» 1
tialdsaöstoó
meðtékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
Forsætisráð-
herrann í
stjórnarandstöðu?
Sannarlega var athyglisvert
a3 fylgjast me5 umræðum um
frumvarp um skattalagabreyt-
ingar. Öllum var Ijóst, nema
rfkisstjórninni, að tillögur
hennar um fþyngingu skatta
nytu ekki meirihluta á Alþingi.
Því var búizt við, að íþynging-
artillögur stjórnarliðsins
myndu falla á jöfnum atkvæð-
um. Sá ákafi og snjalli lýðræð-
issinni Lúðvfk Jósepsson talaði
mikið um, að stjórnarandstað-
an ætlaði að „beita brögðum“
til að felia tillögur stjórnarinn-
ar. „Brögðin" sem Lúðvfk vitn-
aði til eru stjómarskráin og
þingsköp Alþingis. Enda þurfti
Lúðvík ekki að hafa áhyggjur
af „brögðunum". Því í þýðing-
armestu málum bættust stjórn-
arandstöðunni góðir liðsmenn.
Björn Pálsson studdi hana við
að koma í veg fyrir frekari
hækkun launaskatts — það var
fellt með 21 atkvæði gegn 19.
Hinn stóri liður um niðurskurð
á ríkisútgjöldum um 1500
milljónir sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hafði lagt til, var hins
vegar samþykktur með rífleg-
um meirihluta 22 atkvæðum
gegn 18 og var þar Ölafur Jó-
hannesson ásamt Birni Páls-
syni stuðningsmaður stjórnar-
andstöðunnar. Nú vill „lýðræð-
issinninn“ Lúðvík Jósepsson
láta fella þetta ákvæði i efri
deild og þar með er hann kom-
inn 1 andstöðu við eigin kenn-
ingar. Þvf ef 11 þingmenn gegn
9 fella þá tillögu í efri deild, þá
litur dæmið þannig út, að 31 er
með, en 29 á móti. Slika af-
greiðslu mun „lýðræðissinn-
inn“ Lúðvfk Jósepsson ekki
þola. Þvf hlýtur hann að standa
að því ásamt stjórnarandstöð-
unni, Ólafi Jóhannessyni og
Birni Pálssyni að fella frum-
varpið allt f neðri deild, ef
þetta mikilvæga atriði, sem
meiri hluti þingmanna vill
hafa í lögunum verður fellt
burt í efri deild. Ölafur Jó-
hannesson lýsti því yfir í neðri
deild að hann greiddi atkvæði
með 1500 milljón króna niður-
skurðinum, þar sem um væri að
ræða slíka traustsyfirlýsingu
til ríkisstjörnarinnar. Þvf er
Ijóst, að verði þetta ákvæði fellt
úr frumvarpinu f efri deild, þá
yrði þar um hreint vantraust á
rfkisstjórnina að ræða, skv.
mati forsætisráðherrans og
ekki sfður persónulegt van-
traust á hann sjálfan.
Hótunin
Svo sem öllurn er kunnugt
hefur vinstrist jórnin gripið það
til bragðs að reyna að hóta al-
þingismönnum til fylgilags við
frumvörp sfn. Sfðasta hótunin
af mörgum kom fram fyrir
nokkrum dögum og hefur hún
náð miklum vinsældum bæði á
Tímanum og Þjóðviljanum.
Hún er sú, að ef stjórnarand-
staðan samþykkir ekki skatta-
frumvarp ríkisst jórnarinnar
breytingalaust, þá verði þjóðin
að súpa af því seyðið, að skatta-
lög vinstristjórnarinnar, sem
Haildór E. og félagar settu
skömmu eftir að þeir komust
til valda, verði áfram f gildi.
Þannig hljómar hótunin I leið-
ara Þjóðviljans í gær:
„Stöðvi stjórnarandstaðan
þessa breytingu nú, verða skatt-
ar að sjálfsögðu lagðir á með
sama hætti og á sfðasta ári.
Finnist þá einhverjum tekju-
skatturinn sinn of hár, þá veit
sá hinn sami alveg nákvæm-
lega, hverjum hann á þá upp-
hæð að þakka. Það eru ekki
Ilalldór E. Sigurðsson eða Lúð-
vfk Jósepsson, sem þá hafa ráð-
iðupphæðinni á skattseðlinum,
heldur Geir Hallgrímsson og
Gylfi Þ. Gislason, Gunnar Thor-
oddsen og Benedikt Gröndal,
og reyndar Bjarni Guðnason
lfka.“
Það er sannarlega ástæða til
að spyrja ritstjóra Þjóðviljans,
hverjir hafi sett þessi skatta-
lög, sem nú eru reidd til höggs
eins og refsivöndur yfir þjóð-
inni? Voru það ekki þeir Hall-
dór E. og Lúðvfk Jósepsson. Jú,
svo sannarlega. Og þá fullyrtu
þeir, rétt eins og nú, að skatta-
Iögin myndu stórlega lækka
álögurnar á almenningi. Og nú
eru þessi skattalækkunarlög
notuð sem ógnun við þing og
þjóð til að neyða menn til að
samþykkja ný „skattalækkun
arlög“ þeirra félaga. En
„skattalækkunarlögin fyrri"
höfðu í för með sér meiri skatt-
píningu en menn höfðu haft
nokkur dæmi um og „skatta-
lækkunarlögin“ hin nýrri eru
sannarlega ekki glæsilegri.
Þingmenn og fóikið f landinu
hefur vítin að varast, og spyrja
má, hverjum dettur f hug, að
Halidór E. Sigurðsson muni
nokkurn tíma lækka skatta.
Engum — sízt Halldóri sjálf-
um.
Þjóðhátíðar-
tónleikar
Tónlistar-
félagsins
á sunnudag:
NÆSTKOMANDI sunnudag kl.
þrjú síðdegis verða tónleikar í
Austurbæjarbíói á vegum Tón-
listarfélagsins f Reykjavfk og
þá eingöngu flutt verk eftir
Þorkel Sigurbjörnsson,
tónskáld. Flytjendur verða auk félagsins.
Reynir Sigurðsson, Hafliði Hallgrfmsson, Robert Aitken og Þorkell Sigurbjörnsson (lengst til hægri)
ásamt Ragnari Jónssyni, forstjóra, sem frá upphafi hefur verið einn helzti forustumaður Tónlistar-
Flutt verða ný verk eftir
Þorkel Sigurbjörnsson
hans, Hafliði Hallgrfmsson,
celióleikari, Róbert Aitken,
hinn kunni flautuleikari frá
Kanada, og Reynir Sigurðsson
slaghljóðfæraleikari.
Verkin eru öll ný og flutt hér
á landi f fyrsta sinn, en tvö
þeirra hafa verið leikin
erlendis; Hafliði Hallgrimsson
hefur leikið cellóverkið .JVfild
Und (meistens) Leise“ í
London og „FOR RENÉE," Sem
skrifað er fyrir flautu, celló,
píanó og slaghljóðfæri, hefur
verið flutt í Bandaríkjunum og
Kanada. Síðast á efnisskránni
verður verkið ,,Hylling“,
skrifað fyrir flautu, celló,
píanó, slaghljóðfæri . . .“ og
áheyrendur“, samkvæmt efnis-
skrá. Það var sérstaklega samið
fyrir þessa hljómleika og til-
einkað Ragnari Jónssyni —
m.a. í tilefni sjötugsafmæli
hans og Tónlistarfélaginu. Upp-
lýsti Þorkell á blaðamanna-
fundi í vikunni, að í tónverki
þessu væri m.a. ,anorsað“
heillaskeyti til félagsins og
Ragnars og ýmislegt annað
væri þar nýstárlegra atriða.
Ekki vildi Þorkell ræna áheyr-
endur allri eftirvæntingu með
því að skýra nánar, hver þau
væru, en hann gerir sér von
um, að þeir taki þátt i flutningi
þess með því, að hver maður
hefji upp sína raust og syngi
með.
Þeir Robert Aitken og Haf liði
Hallgrimsson koma gagngert
erlendis frá til að taka þátt í
þessum tónleikum. Hafliði
kemur frá London, þar sem
hann kvaðst að undanförnu
hafa spilað mikið, sérstaklega
kammermúsik m.a. með
English Chamber Orchestra og
sömuleiðis sinnt tónsmíðum
eftir því sem tök væru á og timi
til.
Róbert Aitken, sem er íslend-
ingum að góðu kunnur frá fyrri
heimsóknum til landsins,
kemur frá Kanada, þar sem
hann starfar bæði sem flautu-
leikari og tónskáld og að öðrum
greinum tónlistarmála, ekki
sízt Utbreiðslu og kynningu
nútímatónlistar. Þetta er
sjöunda heimsókn Aitkens til
íslands. Fyrst kom hann hingað
fyrir átta árum á Ieið í hljóm-
leikaför tilEvrópu. Síðan hefur
hann flutt margs konar músik,
bæði sígilda og nútímatónlist,
erlendra og íslenzkra höfunda.
Reynir Sigurðsson er slag-
hljóðfæraleikari hjá Sinfóníu-
hljómsveit Islands. Hann
sagðist hafa byrjað að fást við
jazz 17 ára gamall, fór svo í
söngkennaradeild Tónlistar-
skólans og útskrifaðist þaðan'
1965. Um hríð vann hann sem
söngkennari, var í Svíþjóð við
framhaldsnám eitt ár,
1968—69, og réðst til Sinfóníu-
hljómsveitarinnar 1969.
Þess má geta, að eitt af verk-
unum á efnissrkánni, FOR
RENÉE“, er tileinkað dansk-
bandarískri konu, sem er fram-
kvæmdastjóri stofnunar er
nefnist „Center for the
Creative and Performing Arts“,
og starfar sjálfstætt innan
vébanda rikisháskóla New
York-ríkis í Buffalo. Þar
dvaldist Þorkell fyrri hluta
þessa vetrar við tónsmíðar, í
boði stofnunarinnar. Hann
sagði, að i tilefni 10 ára afmælis
hennar hefði verið ákveðið að
koma á og framkvæma áætlun
um að bjóða ungum hljóm-
listarmönnum þangað til
nokkurra mánaða dvalar í senn,
þar sem þeir þyrftu ekki að
hafa áhyggjur af daglegu
brauðstriti og gætu unnið að
vild. Hann sagði engar kröfur
hafa verið gerðar um árangur:
„Menn gætu gert þarna það,
sem þeir vildu, notað tímann til
tónsmiða, náms eða hljóðfæra-
leikarar gátu æft upp einhver
tímafrek verkefni, sem erfitt er
að gera með fullu starfi. Yrði
hinsvegar lítið úr verki hjá ein-
hverjum, skipti enginn sér af
því. Mönnum var sem sagt gefið
þarna tækifæri til að vinna og í
sjálfsvald sett hvernig það væri
nýtt. En reynslan af þessu
hefur verið sögð mjög góð.“
Þess má að lokum geta, að
þessir hljómleikar Tönlistar-
félagsins eru haldnir í tilefni
þjóðhátíðarafmaelisins á þessu
ári.
Tónlistarfélagið hefur tals-
vert gert af þvi undanfarið að
gefa innlendum listmönnum
tækifæri til tónleikahalds, að
því er forráðamenn þess upp-
lýsa. Tónleikarnir nú eru hinir
sjöttu á starfsárinu. Fram til
vors verða væntanlega tvennir
tónleikar auk tónleikanna á
sunnudag — þá fyrri annast
Rögnvaldur Sigurjónsson,
pianóleikari, og koma þar ýmsir
aðrir hljóðfæraleikarar fram,
en síðan leikur píanóleikarinn
Ann Schein, sem til islands
hefur áður komið oftar en einu
sinni.