Morgunblaðið - 16.03.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1974
7
Flótta-
menn THE OBSERVER
frá Eftir John de St.
Golan- Jorre
hæðum
LÍKAMI gamla mannsins var eins
og kræklótt grein, þar sem hann
stóð fyrir framan aðsetur héraðs-
stjórans í Quneitra og snökti.
Hann er einn þeirra 20 þúsund
sýrlenzkra borgara, sem hraktir
voru frá heimilum sinum í Golan-
hæðunum i októberstyrjöldinni.
Nafn hans hefur aldrei verið á
neinum lista, það hafa aldrei
heyrzt neinar alþjóðakröfur um,
að Rauði krossinn heimsæki hann,
og hvorki þekkir hann dr. Kiss-
inger né dr. Kissinger hann.
Saga hans er þessi forna saga
um saklausa áhorfendur, sem
verða styrjöldum að bráð. Alla
sina ævi hafði hann búið i þorpinu
Djeba. Hann var orðinn of gamall
til að vinna og kona hans og hann
lifðu þvi á ölmusu. Annar sonanna
lézt fyrir styrjöldina, hinn féll i
sprengjuárás. Israelarnir komu,
eyðilögðu hús hans, tóku skilriki
hans og ráku hann út úr þorpinu.
„Þeir sögðu mér, að ég væri
Ba'athisti og ég skyldi því heldur
fara og fylgja leiðtoga minum,
Assad forseta."
„Veiztu hvað það er að vera
Ba'athisti?" spurði héraðsstjór-
inn, sem sjálfur er fulltrúi þessa
stjórnmálaflokks, sem fer með öll
völd í landinu.
Gamli maðurinn hristir höfuðið,
en heldur jafnvel, að það geti
verið einhvers konar blótsyrði.
Konan hans, sem yfirgaf þorpið
með honum, er veik, og eini
sonarsonurinn er enn týndur. Það
er tvennt, sem hann er viss um:
„Jafnvel Tyrkirnir voru ekki svona
slæmir," og að þetta sé í fyrsta
skipti, sem hann hafi tárazt. Að
eigin sögn er hann 102 ára.
SÍFELLT BITBEIN
Áður en zionisminn varð ríkj-
andi bjuggu Arabar og Gyðingar
hlið við hlið í mestu vinsemd.
Zionismi Gyðinganna kveikti þjóð-
ernisstefnu meðal Palestlnu-Arab-
anna, og bardagar hófust. Frá
stofnun ísraelsrfkis árið 1948 og
fram að sex daga strfðinu 1967,
sátu Sýrlendingar og Palestinu-
Arabar i herbúðum á Golanhæðum
og vörpuðu sprengjum yfir isra-
elsk byggðalög i Efri Galileu. í júni
1967 hrakti fsraelsher Arabana
frá hæðunum og með þeim um
150 þúsund smábændur. f
októberstyrjöldinni i fyrra bættu
israelar enn við sig landsvæði i
hæðunum, og margir smábændur
urðu þá flóttamenn i annað sinn.
FRJÓSAMT LAND
Útlendingum er gjarnt að gera
sér ranga mynd af Golanhæð-
unum og fmynda sér þær sem
hrjóstruga og grýtta hásléttu, sem
um fátt er gagnleg nema sem
vigvöllur. Þvert á móti er þarna
frjósamt land, með nægu vatni og
góðu beitilandi. Eplin og nautgrip-
irnir frá Golan eru fræg [ Mið-Aust
urlöndum.
Quneitra, stærsta borgin á
þessu svæði, er orðin tilfinninga-
legt tákn í augum Sýrlendinga, á
svipaðan hátt og Strasbourg var i
augum Frakka eftir fransk-prússn-
esku styrjöldina 1870. Sýrlenzki
herinn var að því kominn að ná
borginni aftur f styrjöldinni í fyrra-
haust, en þurfti svo að láta undan
siga. Nú situr héraðsstjórinn, Naif
Naufal, ( aðalstöðvum sínum f
borginni og deilir út peningum,
teppum, yfirhöfnum og von til
gamalmennanna, sem bíða þolin-
móð utan dyra.
AFSKIPTALEYSI
Hann er bitur yfir þvi, hve
alþjóða fjölmiðlar hafa vanrækt
þetta fólk hans á sama tima og
athyglinni er svo til daglega beint
að fsraelskum striðsföngum. „Við
höfum beðið Alþjóða Rauða kross-
inn að leita að týndum börnum á
fsraelskum yfirráðasvæðum, en
ísraelar hafa neitað um samvinnu.
Öðru máli gegnir um stríðsfang-
ana. Þeir fangar, sem við höfum i
haldi, komu til að varpa sprengj-
um á okkur. Þeir fá að snúa heim
til fjölskyldna sinna — en hvað
um börnin okkar?"
Eftir síðustu heimsókn dr. Kiss-
ingers til Damaskus hafa Sýrlend-
ingar afhent lista yfir israelska
striðsfanga, sem þar eru i haldi,
og horfurnar á árangursrikum við-
ræðum um aðskilnað herjanna eru
nú góðar. Verður þá ef til vitl
einnig unnt að leysa þetta mikla
mannlega vandamál?
Eftir sfðustu heimsókn dr. Kiss-
ingers til Damaskus hafa Sýrlend-
ingar afhent lista yfir israelska
stríðsfanga, sem þar eru i haldi,
og horfurnar á árangursríkum við-
ræðum um aðskilnað herjanna eru
nú góðar. Verður þá ef til vill
einnig unnt að leysa þetta mikla
mannlega vandamál?
Þótt samningar tækjust drægju
þeir ekki úr þörfinni á að ráða yfir
Golanhæðum. Þær hafa mikla
hernaðarlega þýðingu. bæði fyrir
Israel og Sýrland, þvi að þaðan má
drottna yfir sléttum Efri Galileu i
vestri, en i austri teygja hlfðar
Golanhæðanna sig til Damaskus.
ENN
EFTIRSÓKNARVERÐAR
Styrkur sóknar Araba i október-
styrjöldinni og stöðug þróun I
hernaðrartækni hafa grafið undan
mörgum gömlum hernaðarlegum
kenningum i Mið-Austurlöndum.
„Það eru ekki til neinn örugg
landamæri á þeim timum, þegar
maðurinn getur komizt til tungls-
ins," segir héraðsstjórinn i
Quneitra. En jafnvel þótt svo sé
eru Golanhæðirnar enn eftir-
sóknarverðar frá hernaðarlegu
sjónarmiði.
ísraelska rikisstjórnin, sem
þegar hefur komið upp sjö
byggðalögum Gyðinga I Golan,
hefur lýst þvi yfir, að hún muni
aldrei skila hæðunum afturog hafi
nú I hyggju að byggja þar nýja
meðalstóra borg. Sýrlendingar
segja á hinn bóginn. að þeir semji
aldrei endanlega um frið fyrr en
fsraelar fallist á að yfirgefa Golan-
svæðið. Einhver miðlunarlausn
með alþjóðlegu eftirliti er hugsan-
leg, en ekki sjáanleg enn sem
komið er.
★
Annar gamall maður kemur
kjagandi inn i skrifstofu héraðs-
stjórans. Hann er i þessum venju-
legu, viðu og dökku buxum, með
griðarmikið yfirskegg. Hann veit
ekki. hve gamall hann er, en seg-
ist reikna með, að hann sé kominn
vel yfir fimmtugt. Hann var úti á
engi, þegar skothriðin hófst.
Dóttir hans hafði elt hann þangað.
fsraelarnir vildu ekki leyfa þeim
að snúa aftur til þorpsins, þar sem
kona hans og fimm synir voru. Ef
til vill eru þau nú fátin. Vildi hér-
aðsstjórinn vera svo vænn.
TILSÖLU FORD CORTINA árg 1970. Ekinn um 54 þús km Bakki ásamt smur- og hleðslu- mæli Áhugamenn hringi i síma 32696. TILSÖLU Escort '73 vel með farin og litið ekinn Upplýsingar að Lindargötu 30, slmi 21445 og 17959
1 — 2JA HERB. ÍBÚD óskast á leigu. Húshjálp kemur til greine Upplýsingar í síma 20389 milli kl. 5—7. MAVERICK 70 — '71 fallegur 2ja dyra sportbíll, sjálfsk 6 cyltil sölu Samkomulag með greiðslu, Simi 16289
VÖRUBIFREIO TILSÖLU. Til sölu Benz 1519 árg 1973 ekinn km 30.000 Upplýsingar i sima 95-5243 i dag og næstu daga LAGTÆKIR MENN óskast til verksmiðjustarfa í Kópavogi, vesturbæ Góð kjör Upplýsingar i sima 37800
Árshátlð FIL og Byigfunnar
verður haldin í Félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 16. marz
og hefst kl. 21.00 stundvislega.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Skemmtiatriði.
Skemmtinefndin.
Amerískir bllar
Úrval af nýinnfluttum amerískum bílum á mjög hag-
stæðu verði vegna hagstæðrar gengisskráningar í dag.
Notið tækifærið, aflið upplýsinga í síma 24984 í dag og
næstu daga.
ÚTSÝNARKVðLD Á
NORDURLANDI
Kynning ódýrra utanlandsferða í máli og myndum:
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar.
Ferðabingó: Vinningar 3 glæsilegar Útsýnarferðir til
Kaupmannahafnar, Italíu og Costa del Sol, Spáni.
Dans
Á HÚSAVÍK — laugardaginn 16. mara kl. 21.00
stundvíslega.
Á AKUREYRI — sunnudaginn 17. marz kl. 21.00
stundvíslega.
FERÐASKRIFSTOFAISI
ÚTSÝN
Opið
á laugardögum
í STAÐ ÞESS AO LOKA Á
LAUGARDÖGUM HÖFUM VIÐ
ÁKVEÐIÐ AÐ HAFA
VERZLUNINA OPNA FRÁ
KL. 10—12 VIÐSKIPTAVINUM
OKKAR TIL HAGRÆÐIS.
TÍZKUVERZLUN LAUGAVEGI 47 SÍM117575