Morgunblaðið - 16.03.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1974
15
Þeir félagar Leonid
Brezhnev, leiðtogi
sovézka kommúnista-
flokksins, og Georges
Pompidou, Frakklands-
forseti, voru á toppfundi
við Svartahaf nú í vik-
unni, og var ekki annað
að sjá en þeir væru
býsna hressir hvor yfir
öðrum þegar sá síðar-
nefndi mætti til leiks.
Hins vegar herma fróðir
menn, að ekki hafi þeir
kvaðst með neinum sér-
stökum virktum að
fundi loknum.
Háskólar í pól-
itíska sóttkví
Buenos Aires 15. marz—AP
í GÆR samþykkti Juan Peron,
forseti Argentínu, ný lög, sem
gera það að verkum, að hinir
vinstrisinnuðu háskóiar landsins
eru settir í eins konar pólitíska
sóttkvf. Þessi Iög hafa það f för
Framhald á bls. 18
„Sé ekki eftir neinu”
Sagði japanski hermaðurinn,
sem var 1 stríði 30 árum of lengi
„ÉG er hamingjusamur yfir þvf
að liafa varið mikilvægasta
skeiði ævi minnar f það, sem ég
trúi á. Foreldrar mfnir höfðu
sagt mér, að maður skyldi alltaf
gera sitt bezla. Það hvarflaði
aldrei að mér að gefast upp án
þess að fá skipun um það."
Þetia sagði japanski liðsforing-
inn Hiroo Onoda, sem dvalizt
hafði I felum f frumskógum
Filipseyja 29 árum of lengi, —
eða frá lokum sfðari heims-
styrjaldarinnar —, er hann
kom heim til Japans sl. þriðju-
dag með sérstakri þotu frá
Japan Airlines.
A flugvellinum i Tókýó tóku
á móti Onoda fulltrúar
japanskra stjórnvalda,
foreldrar hans, sem bæði eru á
níræðis aldri, og um 7000
manns að auki, sem fögnuðu
þessum týnda sauði forkunnar
vel. Onoda er sjálfur að verða
52 ára.
Onoda hélt stuttan blaða-
mannafund á flugvellinum, en
fór síðan f læknisskoðun. A
blaðamannafundinum lá við að
Onoda bugaðist.þegar hann tal-
aði um dauða félaga síns í út-
legðinni, Kozuka að nafni, en
hann var skotinn niður af
filipseysku lögregluliði árið
1972. Sagði hann, að það hefði
verið sín versta reynsla á öllum
þessum tíma. Annar japanskur
félagi Onoda var drepinn árið
1954.
Onoda sagði, að hann hefði
aldrei hugsað um, að Japan
gæfist upp. „Ef ég hefði hugsað
um það, þótt ekki hefði verið
nema smávegis, þá hefði ég
ekki getað verið áfram á eynni
og gegnt skyldum mínum."
ÞegarOnoda var spurður um,
hvernig honum virtist Japan
við fyrstu sýn eftir um 30 ár
svaraði hann, að það væri orðið
„svo stórkostlegt land". Og
hann bætti því við, að honum
þætti það ekki skipta máli,
hvort Japan hefði unnið eða
tapað stríðinu, fyrst það dafn-
aði svona vel.
Varðandi sínar eigin áætlanir
um framtiðina sagði Onoda, að
þær væru engar enn þá.
að ný veiðiskip í flota Færeyinga
fái ekki að veiða innan 50 mílna
markanna.
Þetta nær t.d. til þriggja nýrra
ferskfisktogara, Vestfinns og
Norðfinns frá Vestmannahöfn, og
Hallarkletts frá Þórshöfn. A það
er bent i færeyskum blöðum, að
aðeins þrír af þeim níu færeysku
togurum, sem mega veiða innan
50 mflnanna við Island, gera það.
Þá hafi einn þessara togara verið
tekin úr umferð, og ekki hefur
fengizt veiðileyfi fyrir hina nýju.
Þetta telja Færeyingar bæði
fáránlegt og óskiljanlegt. Þjóð-
veldisflokkurinn telur einnig, að
leita beri eftir samningum við ís-
lendinga um takmarkað leyfi til
loðnuveiða við ísland.
Landsstjórn Færeyja hefur
skýrt frá því, að hún hafi haft
samband við islenzku ríkisstjórn-
ina, og að hugsanlega hefjist
nýjar samningaviðræður um fisk-
veiðiréttindi I apríl.
Týndi sonurinn snýr aftur. — Hiroo Onoda hittir foreldra sfna
aftur. Faðirinn, Tanejiro Onoda (f miðju), 86 ára að aldri, og
móðirin, sem er 88 ára (til hægri). Tilvinstri er mágkona Onodas.
Flugræn-
ingjar gripnir
LÖGREGLAN í Libanon handtók
fimm menn fyrir að hafa ætlað að
ræna hollenzkri farþegaþotu af
Júmbó gerð sem fljúga átti frá
Beirut til Lahore i Pakistan með
mörg hundruð farþega innan-
borðs. Höfðu þeir I hyggju að taka
sprengiefni með um borð, og hóta
að sprengja vélina i loft upp ef
ekki yrði orðið við kröfum þeirra,
sem, að sögn góðra heimilda,
voru, að Arabalöndin afléttu ekki
olíubanninu á Bandaríkin. En
upp um þá komst áður en þeim
varð kápan úr því klæðinu. Menn
þessir voru allir Palestínu-Arab-
ar.
Þórshöfn 15. marz.
Frá fréttaritara Mbl.
Jogvan Arge:
ÞJOÐVELDISFLOKKURINN f
Færeyjum hefur lagtfram tillögu
f þinginu, þess efnis, að lands-
stjórn Færeyja ásamt þingmönn-
um hefji að nýju viðræður við
fslenzku rfkisstjórnina um fisk-
veiðiréttindi Færeyinga við
tsland. Segir flokkurinn, að þörf
sé á því að endurskoða
samninginn milli tslands og
Færeyja, þar eð ísiendingar hafi
veitt öðrum löndum viss réttindi
og þar eð það hafi verið staðhæft
Yfirmenn hersins í
Portúgal settir af
Lissabon 15. marz — NTB.
YFIRMAÐUR landvarna í Port
úgal, Francisco da Costa Gomes,
hershöfðingi, og varaformaður
herráðsins, Antonio de Spinola,
hershöfðingi, voru f dag sviptir
embættum sfnum, vegna mikilla
pólitískra deilna um hvernig
skipuleggja beri starfsemi hers-
ins f stríði gegn fbúum hinna
afrfkönsku nýiendna Portúgals.
Ekki var Ijóst hvort hershöfðingj-
arnir tveir hefðu einnig verið
handteknir, en þeir hafa ekki sézt
opinberlega í sólarhring. Allir
hermenn í Portúgal hafa fengið
fyrirmæli um að halda sig f her-
skálum sínum, og herinn þannig
settur í viðbraðgsstöðu.
Forsaga þessa máls er sú, að
fyrir þremur vikum sendi de
Spinola, hershöfðingi frá sér bók,
eins og fram hefur komið i frétt-
um, þar sem hann kemst að þeirri
niðurstöðu, að Portúgal geti ekki
unnið hernaðarlegan sigur yfir
skæruliðasamtökunum í Moz-
ambique, Angola og Portúgölsku
Guíneu.
Bók þessi hefur orðið tilefni
mikilla umræðna innan hersins
og meðal stjórnmálamanna. Að
því er haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, mun da Costa Gomes,
yfirmaður varnarmála, hafa verið
sammála þessu sjónarmiði de
Spinola, svo og talsverður fjöldi
yngri yfirforingja.
Hins vegar mun ríkisstjórn
Marcelo Caetanos, forsætisráð-
herra, hafa einsett sér að halda
átökunum við skæruliðasveitírn-
ar í nýlendunum áfram, og því
var gripið til þess ráðs að hreinsa
svolítið til innan forystu hersins,
að þvi er góðar heimildir i Lissa-
bon hermdu í dag.
Færeyingar
hafna síld-
veiðikvótanum
Þórshöfn, 15. marz.
Frá fréttaritara Mbl.
Jogvan Arge:
STJÓRNVÖLD f Færeyjum
hafa enn ekki tekið afstöðu til
tilboðsins um síldveiðar f
Norðursjónum, sem lagt var
fram á fundi nefndarinnar um
fiskveiðar i Norður Atlants-
hafi, en honum lauk f London
á miðvikudag. Samkvæmt til-
lögunni geta Færeyingar veitt
40.000 tonn af síld i Norðursjó
frá 1. júlf f ár til 1. júli næsta
ár. A fundinum i London
héldu færeysku fulltrúarnir
því fram, að þetta væri of lítið
f hlutfalii við hámarkskvót-
ann. Hlutur Færeyinga ætti
a.m.k. að vera 6000 tonnum
meiri.
Móðir Bukovskys
skrifar Podgorny
Moskvu 15. marz — AP.
MÓÐIR sovézka andófsmannsins
Vladimir Bukovskys, sem nú er í
fangelsi, hefur sent sfmskeyti til
Nikolai Podgorny, forseta Sovét-
ríkjanna, þar sem hún biður hann
um hjálp til handa synisfnum.og
kveðst hún vera „niðurbrotin
vegna hinnar ómannúðlegu
grimmdar" fangabúðayfirvalda,
að þvf er heimildir meðal andófs-
manna í Moskvu hermdu í dag.
Frú Bukovsky á að hafa sent
Podgorny símskeytið 8. marz, og í
því sagt, að yfirvöldin væru að
reyna að eyðileggja son hennar,
Vladimir, sem er kunnastur fyrir
gagnrýni sína á notkun geðveikra-
hæla fyrir heilbrigða andstæð-
inga stjórnvalda. Hann var dæmd-
ur f 12 ára fangelsisvist fyrir
tveimur árum siðan, og til útlegð-
ar í Síberíu fyrir meinta andsov-
ézka glæpi.
1 skeytinu segir frú Bukovsky,
að sonur sinn þjáist af hjartasjúk-
dómi og lifrarkvilla. Hann hafi
nýlega verið úrskurðaður f 15
daga einangrun, og siðan fluttur í
smáklefa í þrjá mánuði, „til þess
að láta hungur og kulda refsa
honum."
Biður ffú Bukovsky forsetann
um að grípa í taumana áður en
sonur hennar verði eyðilagður.
Ekki er vitað til, að Podgorny hafi
orðið við þessari ósk.
Hermdarverk
eftir valdatöku forsetans
Caracas, Venezuela
15. marz — AP.
VINSTRISINNUÐ skæruliðasam-
tök, sem nefna sig „Rauða fán-
ann“, lýstu sig f dag ábyrg á
fjölda eldsvoða og sprenginga,
sem sfðustu þrjá daga hafa m.a.
eyðilagt stóra verzlunarmiðstöð í
Caracas, valdið skemmdum á
vörumarkaði einum f eigu banda-
rfsku Rockefellerfjiilskyldunn-
ar, og valdið tjóni á allmörgum
oliuleiðslum f höfuðborginni.
í gærkvöldi gjöreyðilagðist í
eldi verzlunarmiðstöð, sem sam-
anstóð af átta byggingum, en mið-
stöðin var í verkamannahverfi i
úthverfi Caracas. 1 þessum bruna
slösuðust 17 slökkviliðsmenn við
björgunarstörf. Þá segir lögregl-
an, að bæði slökkviliðið og ýmsir
sjálfboðaliðar, sem að slökkvi-
starfi unnu, hafi orðið fyrir skot-
um leyniskyttna. Herlögregla
landsins hefur hafið víðtæka leit
að leyniskyttum þessum, svo og
að öllum liðsmönnum þessara
skæruliðasamtaka.
Þessi hermdarverkastarfsemi
hófst s.l. þriðjudag, en þann dag
tók hinn nýi forseti Venezuela,
Carlos Andres Perez úr hinum
mið-vinstrisinnaða, lýðræðislega
baráttuf Jokkj við völdum.
Rætt á ný um veið-
ar F æreyinga hér?