Morgunblaðið - 16.03.1974, Side 32
Verkfall
offsetprent-
ara boðað
GRAFISKA sveinafélagið sam-
þykkti á fundi sfnum f gær að
boða til verkfalls frá miðnætti
n.k. föstudagskvölds 22. marz.
64% kjörsökn var hjá félaginu,
en félagar eru um 70 talsins. t
féiaginu eru offsetprentarar,
prentmyndasmiðir og Ijósmynd-
arar í prentmyndagerðum.
Þá var haldinn fundur í Hinu
fslenzka prentarafélagi og þar var
tillaga, sem atvinnurekend ur
höfðu lagt fram, felld með 96
atkv. gegn 80. Atkvæði prentara á
Akureyri eru talin þar með, en í
Reykjavík urðu úrslit þau, að 94
sögðu nei, og 65 já, en á Akureyri
sögðu 15 já og 2 nei.
Félag fslenzka prentsmiðjuiðn-
aðarins hélt einnig fund f gær og
greiddi atkvæði um fyrrgreinda
iv'iögu, sem stjórn og samninga-
nefnd höfðu gengið frá, en hún
var felld með yfirgnæfandi meiri-
hluta þeirra 70 aðila, sem eru f
félaginu.
9600 tonn í gær
FRÁ miðnætti f fyrrakvöld þar til
í gærkvöld var búið að veiða 9600
tonn af loðnu af 36 bátum. IVIest
loðnuveiðin var á Breiðafirðin-
um, en einnig smávegis á Faxa-
flóa. Flestir bátanna fara til
Reykjavíkur með aflann.
„EG lýsi ábyrgð á hendur rfkis-
stjórninni vegna þeirra afleið-
inga, sem svo óbilgjörn vinnu-
brögð hafa f för með sér. Rfkis-
stjórnin hefur stefnt málinu f
sjálfheldu. Allt útlit er fyrir, að
frumvarpið verði fellt f neðri
deild, og ef ekkert verður að gert.
verður tekjuskattur lagður á
landsmenn samkvæmt skattalög-
gjöf vinstri stjórnarinnar, sem
hún hefur hrósað sér af að hafa
sett og ber alla ábyrgð á, en hefur
í för með sér óbærilegar skatt-
byrðar á allan almenning í iand-
inu.“ Svo fórust Geir Hallgrfms-
syni formanni Sjálfstæðisflokks-
ins orð á fundi í efri deild f
gærkveldi, þegar frumvarp ríkis-
stjörnarinnar um skattkerfis-
breytingu var til 3. umræðu.
Þá hafði stjórnarmeirihlutinn
sett aftur inn í frumvarpið
ákvæðin um 5%-stiga hækkun
söluskatts og Vá% launaskatt,
sem renni í rfkissjóð. Þá felldi
meiri hlutinn út úr frum-
varpinu ákvæðið um 1500
milljón kr. niðurskurð á útgjöld-
um fjárlaga, en þetta ákvæði var
sett inn í frumvarpið f neðri deild
------------ Framhaid á bls. 18
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
FUNDI neðri deildar, sem halda
átti að loknum fundi f efri deild f
gærkvöldi, var frestað þar til á
mánudag. Kemur þvf frumvarpið
til einnar umræðu f neðri deild
þá.
3 ára telpa
fyrir bíl
3 ÁRA telpa varð fyrir bifreið á
móts við húsið Nökkvavog 19 um
kl. 15:30 í gær. Var hún flutt í
slysadeild til rannsóknar og síðan
lögð inn f Borgarspítalann. Var
hún óbrotin, en hlaut áverka á
höfði.
Eðvarð Sigurðsson S|||| g\í Q ín TTIVdI
um samningana: l'UL X d JdJ.XI.Vv7X
að meira misrétti
„ÞAÐ verður að segjast, að þeir
lægstlaunuðu báru ekki mest
úr býtum í þessum samnihgum
og er það afleit þróun,“ sagði
Eðvarð Sigurðsson formaður
Verkamannasambands tslands
og formaður samninganefndar
ASl f viðtali við IWbl. f gær. ,JÉg
harma persónulega, að ekki
skvldi takast að setja nein þau
mörk, hvorki varðandi launa-
hækkanir né heldur vfsitöluna,
sem spornuðu eitthvað gegn
verulega ójafnri þróun í launa-
málunum."
Eðvarð sagði, að helztu ástæð-
ur fyrir því, að ekki tókst til
dæmis að setja þak á vísitöluna,
hefðu verið tvær og hefðu þær
báðar komið fram meðan á
samningunum stóð. Hin fyrri
voru samningarnir í Straums-
vík, þar sem beinlínis var samið
um, að þótt þak yrði sett á vísi-
töluna skyldi það ekki hafa
áhrif á prósentu milli launa-
flokka og hún haldast óbreytt.
Síðari ástæðuna kvað hann
vera kjaradóm í máli háskóla-
manna, sem farið hefði inn á
sömu braut. .Ælftir að þetta
tvennt hafði gerzt, var alveg
þýðingarlaust fyrir okkur að
vera að semja um slíkt og þess-
um málum verður þá ekki ráðið
nema með löggjöf." Þá sagði
Eðvarð, að innan raða ASÍ
hefði einnig ávallt verið viss
óvild gegn því að setja þak á
vísitöluna.
Þak í kauptöxtunum kvað Eð-
varð virka, en þegar álög kæmu
á taxtana, næði kauphækkunar-
þakið ekki til þeirra — álögin
kæmu á umsamið kaup. „Verzl-
unarmennirnir komust líka
fram hjá því, eins og iðnaðar-
mennirnir, með hærri flokka
sína.“
Morgunblaðið spurði Eðvarð,
hvort honum fyndist samninga-
gerðin hafa mistekizt, þegar
hann liti tilbaka nú. „Mistekizt
— ekki vil ég nú segja það,“
sagði Eðvarð. „Hér er um veru-
legar kjarabætur að ræða og
ýmis mál önnur en kjaramálin
höfðu framgang, og eru þau að
mínu viti mjög þýðingarmikil.
En að þessu leyti höfðu samn-
ingarnir ekki þau lok, sem ég
hafði helzt óskað og taldi, að ég
hefði helzt haft ástæðu.til að
vona. Því miður stuðlar þetta
jafnvel frekar að meira mis-
rétti heldur en hinu, sem var
nú eitt af höfuðmarkmiðunum,
að jafna laun meira og hækka
þá, sem lægstir voru. Að því
leyti verður maður að segja, að
því miður tókst það ekki.“
Þá sagði Eðvarð, að höfuð-
ástæðan fyrir því, að þetta aðal-
markmið samninganna mis-
tókst hefði verið sú, sem fram
kom undir lok samninganna,
er járniðnaðurinn hafði samið
um allhærri launahækkanir en
aðrir.
Kíttisverk-
smiðjumálið:
Heilbrigðisráðu-
neytið óskar lögbanns
HEILBRIGÐISRAÐUNEYTIÐ
hefur nú ákveðið að óska lög-
banns á framkvæmdir við
byggingu Kfttisverksmiðjunnar í
Hveragerði, en á sama tíma hafa
Sameinuðu efnasmiðjurnar
tilkynnt, að þær muni ekki hefja
byggingarframkvæmdir á kfttis-
verksmiðjunni fyrr en úr því
hefur verið skorið hvort um
mengun geti verið að ræða af
völdum kíttisframleiðslu.
Páll Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri sagði í viðtali við Morgun-
blaðið í gær, að sú ákvörðun hefði
verið tekin f samráði við Pál
Halldórsson sýslumann í Árnes-
Alvarleg bilun
í Bjarnaflagi
AFLVÉLIN við gufuborholuna
í Bjarnaflagi er alvarlega biluð
að sögn Knúts Ottersted rafveitu-
stjóra á Akureyri og er útlitfyrir,
að svo verði um sinn. t gærkvöldi
var von á erlendum sérfræðing-
um til landsins til þess að kanna
hilunina og verður þá ákveðið
hvað gert verður. Framleiðsla
Bjarnaf lagsholunnar var um 3000
kw og er það einn sjöundi hluti af
grunnaflinu, sem er 21 mw.
„Við höfum þó nóg af raf-
rnagni," sagði rafveitustjóri, „og
heppnin hefur verið með okkur,
því víð höfum ekki þurft að keyra
mikið dísilvélarnar, en í dfsilvél-
unum höfum við 3 mw. Ef allar
dísilvélarnar eru keyrðar á fullu
kostar það um 200 þús. kr. á dag
svo að þetta getur verið stórt fjár-
hagslegt atriði".
Vélin, sem bilaði, er komin vel
á fjórða áratuginn.
sýslu, að ekki komi til lögreglu-
stöðvunar I málinu, heldur verði
farið fram á lögbann. Verður lög-
bannskrafan væntanlega lögð
fram í næstu viku. Páll sagði, að
þar yrði farið fram á, að fram-
kvæmdir yrðu stöðvaðar þar til
hreppsnefndin væri búin að upp-
fylla þau skilyrði undir efnaverk-
smiðju, sem ráðneytið telur að
eigi að uppfylla, þ.e. leggja beiðni
fyrir heilbrigðisráðherra og gögn
um það, sem á að framleiða.
Ólafur Þorgrímsson stjórnar-
formaður Sameinuðu efna-
smiðjanna sagði í viðtali við
Morgunblaðið i gær, að fyrirtækið
hefði afhent sýslumanninum á
Selfossi yfirlýsingu þess efnis, að
félagið hæfi ekki byggingu kittis-
verksmiðju fyrr en úr þvf fengist
skorið hvort um mengun gæti
verið að ræða af kíttisframleiðslu.
„Hins vegar,“sagði Ólafur, ,,mun-
um við ijúka við jarðvinnslu þá,
sem þegar er hafin, þannig að
hægt sé að sá í landið og fyrir-
byggja moldryk, ef það varðar þá
ekki við lög að græða Iandið. Þess
má einnig geta, að byggingin við
Breiðumörk er verzlunar- og
skrifstofuhúsnæði, sem fellur
ekki undir lögin um eiturefni og
varnir gegn mengun."
Heybruni í
Hörgárdal
Akureyri, 15. marz.
ELDUR kom upp f heystæði á
bænum Skriðu i Hörgárdal
skömmu eftir hádegið i dag. Þar
sem heyið stóð nálægt bæjarhús-
unura, var óðara kallað á Slökkvi-
lið Akureyrar, sem hefur verið að
slökkvistörfum þar á bænum síð-
an og þangað til þetta er skrifað,
um kl. 20:30. Heygaltinn brann
allur, 60—70 hestar, en húsum
tókst að bjarga, þótt eldurinn
stæði mjög nærri þeim, bæði ibúð-
arhúsi og fjósi.
Særður smyr-
ill flúði í hús
Fyrir nokkrum dögum flaug
særður smyrill inn í vinnustof-
una hjá Sverri Haraldssyni list-
málara í Ilulduhólum. Var
hann illa særður á brjósti og
mjög máttlftill. Myndin var
tekin af honum þar sem hann
tyllti sér á skipslfkan, sem
Sverrir er að smíða, en svarti
flekkurinn ábrjósti fuglsins er
sárið. Smyrillinn er nú að
braggast eftir að hafa verið tek-
inn til læknismeðferðar.
Ljósmynd Mbl. — á.j.
Geir Hailgrlmsson:
Lýsi ábyrgð á
hendur ríkisstjórninni