Morgunblaðið - 21.03.1974, Síða 18

Morgunblaðið - 21.03.1974, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1974 Gunnar Thoroddsen: Sjálfstæðisflokkurinn stendur ekki að þyngingu heildarskattbyrðar GUNNAR Thoroddsen forma5ur þingflokks Sjálfstæðisflokksins gerSi við umræður í neðri deild í gær grein fyrir andstöðu þing- manna Sjálfstæðisflokksins f deildinni til frumvarps rfkis- stjórnarinnar um skattkerfis- breytingu, eins og það lá fyrir deildinni þá, en flokkurinn greiddi atkvæði gegn frum- varpinu við endanlega afgreiðslu þess. Hann sagði: „Það er stefna Sjálfstæðis- flokksins, að almennar launa- tekjur landsmanna skuli skatt- frjálsar, og að tekjuskattur sé að öðru leyti stillt svo í hóf, að hann dragi ekki Ur framtaki og vinnu- löngun. Þessi stefna er mótuð í því frumvarpi um stórfellda lækkun tekjuskatts, sem sjálfstæðismenn hafa flutt á þessu þingi. Núverandi stjórnarflokkar hafa gengið f þveröfuga átt við þessa stefnu. Vorið 1972 fengu þeir lög- festar skattabreytingar, sem lögðu stórauknar byrðar á allan almenning. Þessi skattalög vinstri stjórnarinnar hafa vakið svo magnaða andúðaröldu, að stjórn- inni er ekki stætt lengur á skatt- píningarstefnunni. Barátta stjórnarandstöðunnar, almenn- ingsálitið og nU síðast þrýstingur frá samtökum launþega hafa knUið stjórnarflokkanna til und'i'.i'.alds Ber að þakka þá við- leitni verkaiýðssamtakanna að fá leiðréttinga á hinum ranglátu skattalögum, þótt hUn hafi vegna framkomu stjórnarinnar ekki borið þann ávöxt, sem við teljum æskilegan. Stjórnarfrumvarpið, sem hér liggur fyrir, felur f sér allt of litlar umbætur á tekjuskattslög- unum. Skattprósentur eru oi háar, bilin milli þeirra, skatt- þrepin, of þröng, skattstiginn ris of ört. Þessir alvarlegu ann- markar munu valda því, að fjöldi manna með meðaltekjur mun lenda i hámarksskatti. Auk þess eru ákvæði frum- varpsins um svokallað skattaaf- sláttarkerfi gölluð og að sumu leyti ranglát. Stjórnarflokkarnir hafa hafnað sérhverri uppástungu um lagfær- ingar í þessum efnum. Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki fallizt á áætlanir ríkis- stjórnarinnar um væntanlegt tekjutap ríkissjóðs af skattbreyt- ingunni á þessu ári. Það, sem gerir áætlanir stjórnarinnar um tekjutap vafasamar í meira lagi, er meðal annars þetta: a. Stjórnin miðar ekki við þá fjárhæð tekjuskatts, sem i fjárlög- um stendur, heldur aðra miklu hærri, hugsaða upphæð, sem nUgildandi skattaólög myndu skila ríkissjóði umfram fjárlög, og hUn heimtar allan þennan umframgróða bættan. b. Allar líkur eru til þess, að álagður skattur í ár skv. stjórnar- frumvarpinu verði töluvert hærri en stjórnin vill áætla. c. Öruggt má telja að innheimta skattsins í 'ár verði miklu meiri en stjórnin áætlar. Af þessum og fleiri ástæðum teljum við, að tekjutap ríkissjóðs af breytingunni verði mun minna, svo hundruðum milljóna skiptir, en stjórnin heldurfram. Því tekjutapi, sem ríkissjóður verður fyrir, vill Sjálfstæðisflokk- urinn fyrst og fremst mæta með því að draga Ur risavöxnum Utgjöldum ríkisins. Þess vegna var flutt tillaga um 1.500 milljóna lækkun á Utgjöldum fjárlaga á þessu ári. Eftir að talsmenn stjórnarflokkanna hér í heild höfðu andmælt þessari tillögu, talið hana óframkvæmanlega með öllu, hrakti hæstv. forsætisráð- herra allar þessar fullyrðingar með atkvæði sinu í neðri deild í ræðu í efri deild. Þar lýsti hann slíkan niðurskurð framkvæman- legan og rak staðhæfingar þessara talsmanna svo kyrfilega ofan i þá, að síðan hafa þeir þagað þunnu hljóði. Þurfum við stjórnarandstæðingar engu að bæta við þá hirtingu. En samt gerist það undur, sem er raunar í samræmi við önnur furðuverk þessarar stjórnar, að þessi tillaga, sem forsætisráð- herra samþykkti og mælti fyrir, var felld út úr frv. i efri deild, og nú hefur forsætisráðherra látið i ljós, að hann mundi ekki sam- þykkja tillöguna hér í annað sinn. Það er vist ærið átak að fylgja rödd skynseminnar einu sinni í sama máli. Skattafrumvarpið á að hækka launaskatt úr2‘/4%: Launaskattur leggst þungt á atvinnureksturinn, m.a. á þann ísl. iðnað, sem keppir við erlendar iðnaðarvörur. i reynd verkar hann sem verndar- tollur fyrir erlendan iðnað. Sjálf- stæðisflokkurinn vill ekki hækka launaskattinn og flytur þá tillögu, að 2% renni í Byggingarsjóð og H% til rikissjóðs, eða samtals 2l/i% eins og nU er. Rfkisstjórnin setti Alþingi Urslitakosti. Annað hvort 5 sölu- skattsstig eða ekkert tekjuskatts- frumvarp. Hæstv. fjármálaráð- herra tók vel upp í sig: Ef 5 stigin falla, mun stjórnin sitja, en ríkis- sjóður fara á hausinn. Vegna hinnar ákveðnu sam- stöðu stjórnarandstöðunnar hefur stjórnin látið undan síga og lækkar sig nU i 4stig. Sjálfstæðis- flokkurinn telur heildarskatt- byrðina allt of þunga fyrir og vill ekki bæta ofan á hana. Hann litur svo á, að 5% og 4% söluskattur muni gera töluvert meira en vega á móti tekjuskattslækkuninni og því þyngja heildarskattbyrðina. Ef frumvarpið við endanlega at- kvæðagreiðslu felur í sér 5 eða 4 söluskattsstig, vill Sjálfstæðis- flokkurinn ekki standa i slfkri skattheimtu og mun þvi greiða atkvæði á móti frumvarpinu. r Matthías A. Mathiesen: 65—70% gjaldenda í efsta þrepi skv. tillögum ríkisstjórnarinnar VIÐ umræðuna í neðri deild í gær um .skattafrumvarpið mælti Matthías Á. Mathiesen fyrir breytingartillögum, sem hann flutti ásamt Ásberg Sigurðssyni fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins við frumvarp rikisstjórnarinnar um skattkerfisbreytingu. I upphafi ræðu sinnar sagði Matthías, að sjálfstæðismenn hefðu við fyrri meðferð málsins gert tilraunirtil að fá fram breyt- ingar á frumvarpinu til samræmis við þá stefnu sína í skattamálun- um að létta skattbyrðina. Þá hefðu þeir ennfremur gert grein fyrir, hvernig bæta ætti tekjutap ríkissjóðs. Nokkrar af tillögum sjálfstæðismanna hefðu verið samþykktar í neðri deild, en nU kæmi frumvarpið nánast óbreytt frá því það var lagt fram i fyrstu á þinginu, frá efri deild. Fjármálaráðherra flytti nU breytingartillögu við frumvarpið um, að 4%-stiga söluskattsauki komi í stað 5%-stiga. Með þessari tillögu væri ein meginforsenda hans brostin, þ.e.a.s. sU, að 5% þyrfti til að króna kæmi á móti Geir Hallgrímsson: Ekkert tillit tekið til tillagna sjálfstæðismanna um meiri lækkun tekjuskatts ÞEGAR skaltkerfisbreytingin kom til lokaafgreiðslu I efri deild í gær tók formaður Sjálfstæðis- flokksins til máls og gerði eftir- farandi grein fyrir því, hvers vegna þingmenn flokksins f deildinni greiddu atkvæði gegn frumvarpinu að felldum öllum breytingartillögum sjálfstæðis- manna: „Við Sjálfstæðismenn erum fylgjandi skattkerfisbreytingu, sem felur í sér lækkun beinna skatta, þótt það hafi í för með sér samsvarandi hækkun óbeinna skatta. Við getum þó ekki greitt þessu frv. atkvæði og munum greiða at- kvæði gegn því af eftirtöldum ástæðum: 1. Heildarskattlagning á lands- menn hefur stóraukist í tíð nUv. ríkisstjórnar. 1 stað þess að draga úr þessari skattlagningu með frumvarpinu, eru óbeinir skattar hækkaðir meira en lækkun beinna skatta nemur. 2. Ekkert tillit hefur verið tekið til breytingartillagna okkar sjálf- stæðismanna um breikkum skatt- þrepa, lækkun skattstiga og sér- sköttunar hjóna með þeirri af leið- ingu, að tekjuskattar leggjast enn alltof þungt á meginþorra skatt- greiðenda. 3. Launaskattur er hækkaður á sama tíma og viðurkennt er að gera þurfi sérstakar ráðstafanir til þess að atvinnuvegirnir verði reknir hallalaust.og engu er sinnt tillögu okkar sjálfstæðismanna að Byggi ngarsjóður ríkisins fái fremur hluta þess launaskatts, sem áður rann til ríkissjóðs. 4. Þótt tillaga okkar sjálfstæðis- manna um niðurskurð á rlkisUt- gjöldum um 1 'A milljarð hafi ver- ið samþykkt í neðri deild, m.a. með atkvæði forsætisráðherra, þá er nU búið að fella niðurskurð á ríkisUtgjöldum burt Ur frum- varpinu. Slfk lækkun ríkisUt- gjalda hefði leitt til lægri heildar- skatta á landsmenn alla, einstakl- inga jafnt sem atvinnuvegi. 1 stað þessa hefur frumvarpið um skatt- kerfisbreytingu í för með sér þyngingu heildarskattbyrða landsmanna og var þó ekki á þær bætandi. Með tilvísun til þess, sem hér hefur verið sagt, greiða þingmenn Sjálfstæðisflokksins atkvæði gegn frumvarpinu. krónu. Kvaðst þingmaðurinn vilja minna á afgreiðslu tollskrárinnar fyrir jólin, þegar ríkisstjórnin hefði talið sig þurfa 1% söluskatt til að mæta tolltekjutapi. I ljós hefði komið, að það sem sjálfstæð- ismenn héldu fram í því máli var rétt. Tolltekjurnar hefðu verið svo vanáætlaðar, að gert hefði meira en að duga til að mæta muninum á áætlun fjárlaga og tollalækkun frumvarpsins, enda hefði það verið afgreitt frá þing- inu án bráðabirgðaákvæðisins um 1% söluskattsauka. Svona væri málum vafalaust einnig háttað nU um þetta frumvarp. Með þvi að lækka söluskattsaukann um 1% væri fjármálaráðherra að gefa yf- irlýsingu um, að upphaflega hafi hann ætlað að afla aukatekna að upphæð 700 milljónir kr. Þingmaðurinn gerði næst grein fyrir þeim breytingartillögum, sem sjálfstæðismenn enn freist- uðu að koma fram við frumvarpið við þessa umræðu. í fyrsta lagi vildu þeir breyta skattþrepunum í frumvarpinu þannig að af fyrstu 150.000,00 kr. skattgjaldstekjum greiddust 20%, af 150.000,00 kr til 300.000,00 kr. greiddust 30%, en af tekjum yfir 300.000,00 greiddust 40%. Sagði hann að skv. tillögum ríkisstjórnarinnar um þetta efni yrðu menn komnir í hæsta skattþrep, áður en þeir vissu af. Væri þessi tillaga flutt til að forðast það. i annan stað flyttu þeir nU til- lögu um að söluskattsákvæðið hljóðaði á 3% í stað 5% i frum- varpinu. Þetta væri til að mæta tekjutapi ríkissjóðs, ef frumvarp- ið yrði að lögum með þeim breyt- ingum, sem sjálfstæðismenn flyttu. Utreikningar sýndu, að þessi söluskattshækkun myndi nægja. Loks gerðu þeir tillögu um, að launaskattur yrði áfram 2‘A% og rynnu 2% í Byggingarsjóð en H% ! ríkissjóð. Nú rennur 1 ‘A% launaskattur í rfkissjóð og 1% i Byggingarsjóð, en skv. frumvarpi ríkisstjórnarinnar á að bæta við 1% i Byggingarsjóð en halda launaskatti í ríkissjóð óbreyttum þannig að launaskattur á að hækka um 1 % f hei ld. , Matthías A. Mathiesen kvað það gleðiefni, að launþega- hreyfingunni hefði tekizt að knýja ríkisstjörnina frá skattránsstefnu sinni með því að flytja tillögu um, að skatt- leggja fremur eyðslu manna en tekjur. Þetta væri og í samræmi við þá stefnu, sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefði haft forystu um að móta. Það væri hins vegar ekki f samræmi við stefnu Sjálf- stæðisflokksins að auka heildar- skattbyrðina, eins og ótvírætt yrði um að ræða jafnvel þó söluskattur yrði hækkaður um 4%. Það ætti eftir að sýna sig, þegar fólk fengi skattseðla sina, að skattar yrðu mun hærri en f fljótu bragði mætti ætla. Skattþrepin væru svo brött, að 65—70% gjaldenda yrðu i hæsta skattþrepi ef frumvarpið yrði samþykkt á móti 72% skv. nUgildandi lögum. Að lokum lýsti þingmaðurinn þeirri von sinni að breytingartil- lögur sjálfstæðismanna næðu fram að ganga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.