Morgunblaðið - 18.05.1974, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.05.1974, Blaðsíða 18
18 MORG UNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAl 1974 ur ber einnig að sveigja skóla- kerfið að því að búa unga menn — ekki aðeins yfirmenn — undir þaö aö afla fisksins úr sjönum. Illa litist mér á atvinnulífið hér á Suðurnesjum, ef sá þáttur Jtrygð- ist.“ Að lokum sagði' Ingólfur: ,,Sam- starfið, sem tekizt hefur á milli allra sveitarfélaga á Suðurnesjum um byggingu þessa skóla, er vissulega mikið fagnaðarefni. Vónandi mun slík samstaða um áframhaldandi uppbyggingu framhaldsmenntunar á Suður- nesjum aukast. Núna búa 11—12 þúsund manns hér syðra og vænt- anlega fjölgar hér mjög á næstu árum. Samgöngur eru að verða góðar og fjarlægðir miili byggðar- kjarna litlar. Með lestrar- og mötuneytisaðstöðu i skólunum ætti að vera hægt að sjá fyrir flestum þörfum nemenda. Þannig virðast fiestar aðstæður vera fyrir hendi til að Suðurnesjamenn geti sótt framhaldsskóla heiman frá sér, ef slíkir skólar væru hér á Suðurnesjum, og því full ástæða til að keppa að því, að svo verði." ★ ★ ★ ★ í Keflavík eru starfandi þrjú félög sjálfstæðisfóiks. Eru það Heimir, félag ungra sjálfstæðis- manna, Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn og Sjálfstæðisfélag Kefla- víkur. Alls eru nú skráðir yf ir 400 félagar i þessum þremur félögum, en formaður fulltrúaráðs félag- anna er Ellert Eiríksson verk- stjóri. „Flokksstarf félaganna fer að mestu leyti fram á veturna," sagði Ellert, þegar við ræddum við hann og hann bætti við, „helzta verkefni fulltrúaráðsins í vetur var prófkjör vegna væntanlegra bæjarstjóranarkosninga. Siðan var listi sjálfstæðismanna við kosningarnar lagður fram eftír úrslitum þess, en taka skal fram, að úrslit prófkjörsins eru ekki bindandi. Síðan prófkjörið lá fyr- ir, hefur starfseminni verið hald- ið áfram af fullum kraftí, enda stefnum við að því að fá 5 menn kjörna í bæjarstjórn að þessu sinni og þar með hreinan meiri- hluta. Á það erum við frekar bjartsýnir, allavega virðist það vera ef miða á við þann fjölda fólks, sem hefur samband við okk- ur eða lætur innrita sig í flokkinn um þessar mundir." „Hver er ástæðan fyrir þvi, að þið gerið ykkur vonir um að fá 5 menn kjörna í komandi kosning- um?“ „Fyrst og fremst tel ég ástæð- una vera þá, að fólk er ánægt með starf bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins, eins og t.d. dagblaðið Timinn hefur skýrt frá, en á lista Sjálfstæðisflokksins er mjög frambærilegt fólk. Þá eru eining og samstarfsandi með eindæmum góð innan flokksins nú, og muna mennekki slíkt áður.“ „En hvernig er starfsemi sjálfra félaganna háttað?“ „Þar eru fundir haldnir annað slagið. Til dæmis hefur Heimir haldið opna fundi um þau mál, sem helzt eru á döfinni innan bæjarfélagsins, t.d. um hitaveit- una, skólamálin og fl. Þá hefur kvennafélagið verið með bingó og basar. Síðan hefur Sjálfstæðisfé- lagið verið með spilakvöld í sam- vinnu við kjördæmisráðið, og á þess vegum hafa þingmenn kjör- dæmisins viðtalstíma við kjósend- ur hér á staðnum. Þá standa félög- in, ásamt öðrum sjálfstæðisfélög- um á Suðurnesjum, að útgáfa blaðsins Reykjaness, sem nú hef- ur vérið endurreist undir stjórn Helga Hólm. — Þá taka þau sam- eiginlega fullan þátt f kjördæmis- ráði sjálfstæðismanna á Reykja- nesi og Heimir átti þátt f því að stofna kjördæmisráð ungra sjálf- stæðismanna á Reykjanesi." Þessi dagstund okkar f Keflavík var mjög ánægjuleg, enda gaman að kynnast bjartsýni og áræði bæjarbúa. Verkefnin eru að vfsu mörg óleyst enn, en áfram verður haldið. Á fáum áratugum hafa Keflvíkingar reist þróttmikinn út- gerðarbæ, sem iðar af lífi og starfi og þannig heldur fólk ótrautt á- fram — við að efla og fegra bæinn sinn. Þ.Ó. — Keflavík Kramhald af bls. 1 /i Framtfð Keflavíkur. Ljósm. Mbl. Heimir Stfgsson. þeim málum eftír beztu getu og á sumum sviðum hefur starfið gengið mjög vel. Fyrir nokkrum árum var komið á fót æskulýðs- heimili við Austurgötu. I því er tónlístarskóli starfandi á daginn. en annars á sá skóli við mikið húsnæðisvandamál að stríða. Langur vinnutfmi setur þö sitt mark á félagsstarfsemina. Iþróttafélögin þrjú hafa starfað með miklum blóma, og okkar vió- ieitni er sú að styðja við bakið á frjálsri félagsstarfsemi. því að það hefur alla tíð gefizt vel. Ungmennafélag Keflavíkur reistí á sínum tíma sundlaug og afhenti b;enum til rokstrar. Að- staða í sundlauginni er nú orðin óviðunandi. enda hefur sund- íþróttin dalað hér á síöustu árum. Mikil nauðsvn er nú á að b.vggja nýja sundlaug. og gert er ráð fýrir, að ný sundlaug verði reist f nýja hverfinu. Aftur á nióti hafa aðrar íþröttir. sem hér eru iökaðar, vaxið að sarna skapi eins og t.d. knattspyrnan. Þá má ekki gleyma mikilli starfsemi annari-a félaga en fþröttafélaganna eins og t.d. skáta. Til aöstoöar þessum félögum og til að nýta sem bezt I jármuni hefitr bæjarstjóri í huga að ráða sérstakan æskulýðsfull- trúa I'yrir nokkru var stofnað áhugamannafélag um málefni aldraða og hefur það ástefnuskrá sinni að eíla hag aldraða f kaup- staðnum. Það er orðin brýn nauð- syn að reisa hér gott elliheimili, en hér hefur veríð rekið elli- hetmili, sem bænum var á sínum tíma gefiö af einstaklingi. Hefur það verið rekið af miklum dugnaðí og hagsýni undir stjórn Sesselju Magnúsdóttur fyrrum bæjarfulltrúa." Endurbóta þörf í hafnarmálum ..Ef við snúum okkur aftur að útgerð og sjósókn Kefivíkinga, hvað getið þið sagt um núverandi hafnarskilyrði, sérstaklega með tiiliti til hins mikla fjölda skut- togara, sem aðstöðu hafa f Kefla- vík ?“ ..Það er hárrétt, að menn eiga nú í miklum erfiðleikum með að endurnýja skipastólinn vegna vægast sagt mjög slæms ástands í hafnarmálum. Því er það svo, að meðalaldur bátaflotans er hér 14 ár, en meðaltalið á Iandinu er 7 ár. Þá búum við við þá annmarka, að við njótum ekki fyrirgreiðslu Byggðasjóðs, sem víða hefur hjálpað mönnum með endur- nýjun skipa sinna. Þrátt fyrir þessa annmarka eru tveir skut- togárar komnir hingað og nokkrir eru í vændum. Vafalaust verða þessi skip mikil lyftistöng fyrir fiskiðnaðinn hér og bæjariffið f heild.“ Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Keflavfk. Talið frá vinstri Tómas Tómasson, Ingólfur Halldórsson og Arni R. Arnason. Ljósm. Þórleifur Ólafsson. Keflavík skólasetur Suðurnesja? A liðnu hausti fluttist Iðnskóli Suðurnesja í nýtt og glæsilegt húsnæði í Keflavík, og er byggingin nú fullnýtt og meiren það, því að tvær skólastofur eru leigðar gagnfræðaskólanum til kennslu vegna þrengsla þar. Skólastjóri iðnskólans er Ingólfur Halklórsson bæjarfulltrúi og því fannst okkur tilvalið að ræða við hann um skólamál á Suðurnesj- um, en þö fyrst og fremst iðn- námið. „Hvernig hefur afstaða iðn- skólans verið á undanförnum ár- um Ingólfur?" „Skölinn var fyrst starfræktur 1935 og ailt til ársins 1969 var hann síðdegis- og kvöldskóli, en húsnæði fékkst ávallt í húsnæði Barnaskólans og Gagnfræða- skólansí Keflavík. Haustíð 1969 var talið ófram- kvæmanlegt annað en að breyta skólanum i dagskóla. Við vorum í leiguhúsnæði á þrem og fjórum stöðum í Keflavík og Njarðvik, unz skólinn fluttíst í eigið hús- næði f apríl f fyrra, og voru það mikil og ánægjuleg umskipti bæði fyrir nemendur og kennara.“ „Miðað við skólabyggingar al- mennt, þá hefur þessi bygging risið með næstum ævintýralegúm hraða, hvernig var undirbúnings- vinnunni háttað?" „Á árunum 1967—'69 vann nefnd á vegum sveitarstjórna á Suðurnesjum að lausn húsnæðis- mála skólans. I henni voru Aðal- steinn Gíslason, Sandgerði, Þor- bergur Friðriksson, Keflavfk, og Ingvar Jóhannsson, Njarðvík. Þeir unnu vel að þessum málum, enda þörfin mikil, en þvi miður varð ekki mikið úr framkvæmd- um, þrátt fyrir starf þeirra og áhuga Suðurnesjanna, einkum félagssamtaka iðnaðarmanna auk þáverandi skólastjóra, Hermanns Eiríkssonar. Hermann gegndi skólastjórastarfinu í nær þrjá ára- tugi og átti tvímælalaust stærstan þátt í eflingu iðnfræðslu hér syðra á liðnunt árum, þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður. Ymissa orsaka vegna hefur iðnfræðslu og raunar flestum þáttum verk- menntunar of lítið verið sinnt ennþá af yfirstjórn fræðslumála, og fyrir því hafa þessir menn sjálfsagt allir fundið.” „En hvenær komst skriður á málið?“ „A fjárlögum 1971 fékkst fyrsta framlag til bygginga, 200,000 kr. að frumkvæði Sverris Júliusson- ar. Var nú unnið af krafti við að koma á samstarfi um byggingu og rekstur skólans. Allar sveitar- stjórnirnar samþykktu að vera með og aðalatriði samkomulags- ins voru þau, að stofn- og rekst- urskostnaði skipta sveitarfélögin í hlutfalli við fólksfjölda 1. des. árið áður, að því viðbættu að Keflavík borgar 5% af framlagi hinna sveitarfélaganna vegna staðsetningar skólans í Keflavík, og 0,7% af framlagi hvers þeirra fyrir hvern km vegna fjarlægðar þeirra frá Keflavík. Að fenginni þessari samstöðu reyndist mun auðveldara að koma málum skólans áfram hjá fjárveit- ingavaldinu og viðkomandi ráðu- neyti. Byrjað var á byggingunni 28. júní 1972, sex stofur teknar f notkun haustið 1973 og fyrsti á- fangi allur, 860 fermetrar, um síð- ustu áramót. Ekki þarf iðnskól- inn á öllu þessu húsnæði að halda enn, og í vetur höfum við leigt gagnfræðaskólanum húsnæði fyr- ir 150 nemendur, en í iðnskólan- um sjálfum eru um 150 nemend- ur.“ „Hvað var byggingakostnaður- inn mikill og hvernig stóðst bygg- ingaráætlunin?" „Hann virðist ætla að standast áætlun, um 26 millj. kr„ og vonir standa tíl, að kostnaður verði nokkuð lægri og kemur það sveit- arfélögunum einum til góða. I öðrum áfanga skólans verður aðstaða tíl verknámskennslu og vonandi verður hægt að byrja fljótlega á honum, helzt næsta vor. Það er því ástæða til að fagna því, sem áunnizt hefurog vel tek- izt, en ennþá eru mörg óleyst verkefni ás'viði skólamála." „Hvernig telur þú að haga beri uppbyggingu framhaldsmenntun- ar á Suöurnesjum?" „Menntakerfi okkar er í sí- felldri endurskoðun og þróun. Við verðum að vinna að því að byggja upp framhaldsmenntun hér og allsekki vanrækja þá þætti menntunar, sem gæti orðið undir- stöðuatvinnuvegunum tíl efling- ar. Ég vil leggja áherzlu á, hvað iðnnám og þar með fiskiðnfræði, auk verk- og tæknináms, er mikil- vægt fyrir íbúa Suðurnesja. Okk-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.