Morgunblaðið - 25.05.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAI 1974 3
Jóhann Hafstein:
Hvatning á örlagastund
skulum áfram slá skjaldborg um Revkjavík meö því aö halda þar
samstæöum og ötulum meirihluta sjálfstæöismanna í borgarstjórn,
svo aö málefni hennar veröi ekki skotspónn sundurlyndis og
glundroöa, sem seint yröi fyrir bætt.
Ég árna hinum unga borgarstjóra, Birgi Isleifi Gunnarssyni,
heilla og giftu í hinni örlagaríku baráttu, sem hann er nú oddviti
fyrir. Ég bið þess, aö enginn úr sveit sjálfstæöismanna liggi á liöi
■sínu og hvet Reykvíkinga til aö veita styrkum málstaö brautar-
gengi. Enginn á meira í húfi en hiö unga fólk, æska Revkjavíkur.
Andvaraleysi má meö engu móti veröa til tjóns í kosningabar-
áttunni. Sérhver verður þar að leggja sig fram af þeirri einurö og
atorku, sem hann á mesta. í því mun felast gæfa Revkjavíkur.
Leikslokin í höfuöborg landsins munu nú sem fvrr hafa ótvíræö
áhrif á stjórnmálaþróunina í gjörvöllu landinu.
Heilir hildar til!
VIÐ lokasennu hinnar örlagaríku kosningabaráttu vil ég segja
nokkur hvatningarorö. Frambjóöendur hafa þegar reifaö málstaö
sinn. Fulltrúar Sjálfstæöisflokksins hafa haldiö uppi merki sjálf-
stæðisstefnunnar meö heiöri og söma.
Þaö er taliö sjálfstæðismönnum til áfellis aö hafa stjórnaö
málefnum höfuöborgar landsins um hálfrar aldar skeið. Hitt mun
sönnu nær, aö í því felist sæmd þeirra og viröing. Viö getum litiö
yfir hina fögru borg okkar og séö, hvernig hún hefur þróazt úr litlu
þorpi í myndarlega höfuöborg. Sú þróun hefur veriö ævintýri
líkust, en bærinn hefur aö sönnu ekki losnað viö ýmsa vaxtarverki,
svo sem eölilegt veröur aö teljast. Stefnufesta og einbeitni hafa
ríkt. Borgin hefur oröiö íbúunum kær.
Viö komumst ekki hjá því aö bera þetta saman viö þaö stefnulevsi
og þann úrræðaskort, sem einkennt hefur feril andstæöinga okkar
sjálfstæöismanna. Ekki hvaö sízt hefur sú oröiö raunin, þegar þeir
hafa tekiö höndum saman á þjóðmálasviöinu. Oft hefur þaö endaö
meö skelfingu og þó líklega aldrei eins og nú, enda ofbýður
mörgum þeim, sem áöur höföu nokkra trú á vinstra samstarfi
svonefndu.
Viö sjálfstæðismenn skulum ganga einaröir og einbeittir til
kosninganna á morgun og láta engan bilbug á okkur finna. Viö
Hvers vegna ég kgs
Sjálfstœðisflokkinn
Því er fljótsvarað.
Frjálslyndari flokkur er
ennþá ófæddur.
í þessum samtökum
hef ég liðinn aldar-
fjórðung kynnzt fjöl-
mörgu fólki á öllum aldri,
heilbrigðu og iðjusömu
frjálshyggjufólki, sem
eins og ég er að basla við
að rækta garðholuna sína
og reyna að láta sér fara
það sæmilega úr hendi.
Hér sitja við sama borð
bændur og kaupsýslu-
menn, verkamenn og
iðjuhöldar, útgerðar-
menn og listamenn og
annað skapandi fólk,
sumt með fangið yfirfullt
af risa áformum. En það
hefur flest öðrum og
skemmtilegri áhugamál-
uin að sinna en níða
skóinn niður af náungan-
um, þó að það haldi fast i
þann geðfellda, íslenzka
veikleika að langa til að
eiga í pokahorni fyrir
fjölunum, sem þaó að
síðustu veröur flutt á
héðan, ef ,,Ríkið“ leyfir
þá áfram svo góða for-
sjálni.
Mér lýst ágætlega á
listann okkar. Þó að
framfarir hafi orðið
meiri hér undanfarin ár
en nokkurn gat dreymt
um, gæti þetta unga,
glæsilega fólk átt eftir að
Ivfta Grettistaki.
r.j, y Ragnar Jónsson í Smára.
Hóflega bjartsýnir á úrslitin
segir Theodór Blöndal efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins á Seyðisfirði
„Eitt brýnasta verkefni ný-
kjörinnar bæjarstjórnar veröur
aö koma betra skipulagi á fram-
kvæindir hæjarins, en stærstu
verkefnin eru á sviöi heilbrigöis-
mála og húsnæöismála."
Þetta sagöi Theoilór Blöndal
tæknifræöingur, efsti maöur á
lista Sjálfstæöisflokksins á
Seyðisfirði f samtaii viö Morgun
blaöiö í gær. „Atvinnuástand hér
er mjög gott" hélt Theodór áfram
„og hefur svo veriö sföustu árin,
enda allur atvinnurekstur í hönd-
um einstaklinga og hlutafélaga.
IVIá þar helst nefna frystihúsin,
útgeröina og skipasmlöar. Fram-
kvæmdir á vegum bæjarins hafa
ekki verið aö sama skapi miklar.
en þó hefur veriö byrjaö í ýmsum
frainkvæmdum. en þeim miöaö
Iftiö áfram."
,,Á Seyöisfirði bjóöa nú fjórir
aöilar fram lista til bæjar-
stjórnar; Sjálfstæðisflokkurinn,
Framsóknarflokkurinn, Fram-
boðsflokkurinn og sameiginlegur
listi kommúnista, Alþýöuflokks
og óháðra kjósenda. — Síðasta
kjörtímabil höföu meirihluta í
hæjarstjórn Alþýðuflokkur og
svokallaðir óháðir kjósendur."
sagði Theodór, ,,en sfðar kom í
ljós að þeir voru stuðningsmenn
Hannibals i SFV, en óljóst er hvar
þeir lenda nú i öllum þeitn
sviptingum sem eiga sér stað hjá
vinstri tnönnum siðustu daga."
— Hvaða verkefni verða stærst
á sviói heilbrigðismála?
„F.vrir dyrum stendur að
byggja heilsugæzlustöð og
hjúkrunarheimili, sem taka á við
verkefni sjúkrahúss Seyðis-
fjarðar, sem nú er orðið 70 ára
gömul stofnun. Einnig er nýtt
holræsakerfi og umhverfismál
ofarlega í hugum okkar þegar
heilbrigðismál eru annars vegar.”
— Hvað um önnur verkefni?
„Húsnæöisskorturinn er mál-
efni sem kaupstaðurinn verð-
ur að láta til sin taka í æ ríkari
mæli á næstunni. Einnig er
bygging nýs barnaskóla orðið að-
kallandi verkefni svo og gatna-
gerð og skipulagsmál. Þaö er
alveg augljóst að á næstu árum
veröa miklar framkvæmdir á veg-
um kaupstaðarins og þvi að-
kallandi aö styrkur meirihluti
fáist út úr þessum kosningum.
Við sjálfstæöismenn vorum eini
flokkurinn sem viðhafði prófkjör
og stillti upp samkvæmt því. Við
erum hóflega bjartsýnir á úrslitin
og tilbúnir að takast á vió
verkefnin eftir kosningar." sagöi
Theodór að lokum.
Efstu menn á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Seyðisfirði eru. auk
Theodórs Blöndal. Gunnþórunn
Gunnlaugsdóttir húsmöðir; Jón
Gunnþórsson bifreiðastjóri;
Bjarni B. Halldórsson símritari og
Ingibjörg Einarsdóttir húsmöðir.
Kosninga-
sjóður
Tvennar kosningar eru
framundan. Sjálfstæði.s-
flokkurinn þarf á miklu fé
að halda til að
standa straum af kostn
aði við kosn-
ingarnar. Því leitar
flokkurinn til stuðnings-
fólks síns um fjárframlög
til baráttunnar og hvetur
flokksmenn til að samein-
ast um að leggja fé af
mörkum til að ná sem bezt-
um árangri. Þeir. sem vilja
leggja eitthvað af mörkum
nú eða í næsta mánuði, eru
vinsamlega beðnir að snúa
sér til skrifstofu flokksins,
Laufásvegi 46, sími 17100,
en þar er framlögum veitt
móttaka.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Theodór Blöndal
A
%
KJOSUM PAL GISLASON
í BORGARSTJÓRN — X-D
m ' >