Morgunblaðið - 25.05.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAI 1974
7
~jpr
(
V.Í—;
THE OBSERVER
c?:^'w<s
Eftir
Roland
Huntford
i 7 -------
'M& THE OBSERVER
C?'!KJZi*
Olof
Palme
forsætisráðherra.
Andstæðingar Palme
eru engin andstaða
EINRÆÐISHERRAR og forsætis-
ráðherrar koma og fara, en í Sví-
þjóð — sem ber oll einkenni þing
bundins lýðræðis — situr sami
flokkurinn endalaust að voldum.
Eftir 42 ára stjórn virðist sænski
jafnaðarmannaflokkurinn enn
fastur í sessi þótt fylgi lians liafi
rýrnað nokkuð.
Erlendir fréttamenn verða oft
furðu lostnir, er þeir kynnast
sænska þinginu þar sem stjórnar-
andstaðan virðist bráðna í burtu í
hvert skipti, sem stjórnin er í
hættu. Einn vonsvikinn sænskur
íhaldsmaður orðaði þetta svo: „í
öðrum londum vinnur stjórnarand-
staðan að því að koma ríkisstjórn-
inni á kné; hér slakar hún á kröf-
um sínum til að jafna deilurnar. "
Þessi skýring er jafn góð öðrum
skýringum á ástandinu í Svíþjóð.
Á óllum stigum þjóðfélagsins, í
ollum samskiptum — opinberra
aðila jafnt sem einkaaðila — ríkir
ötti við að þurfa að eiga í deilum
til að standa fyrir máli sínu. Á
þessum ótta byggist styrkur þess,
sem heldur um stjórnartaumana.
Alls eiga 3 50 þingmenn sæti á
sænska þinginu, Riksdagen.
Borgaraflokkarnir eiga þar 175
fulltrúa, og jafnaðarmenn og
stuðningsmenn þeirra einnig 175.
Samkvæmt stjórnarskránni ber að
láta hlutkesti ráða þegar atkvæði
eru jofn við afgreiðslu mála á
þingi. Til þessa hefur stjórnin haft
heppnina með sér þegar þannig
hefur staðið á, en engum dettur í
hug, að heppnin verði Olof Palme
forsætisráðherra alltaf jafn hlið-
holl. En allt frá þingkosningunum í
september í fyrra hefur stjórnar-
andstaðan vísvitandi forðazt að
vera í andstoðu.
Greinilegast hefur þetta komið
fram hjá Miðflokknum. Fylgi hans
jókst mjog i kosningunum, og hef-
ur styrkur hans ekki verið jafn
mikill undanfarna hálfa old Hlaut
flokkurinn 90 þingsæti, og jók
atkvæðamagn sitt um 5%, þannig
að hann hlaut nú 26% heildarat-
kvæðanna. Er flokkurinn nú lang
stærstur andstoðuflokkanna. En
mjog hefur verið hljótt um Tor-
bjorn Falldin flokksleiðtoga frá þvi
á kosningadaginn.
í hvert skipti, sem ríkisstjórnin
hefur átt i erfiðleikum, hefur hann
gripið til tilslakana til að styðja við
bakið á Palme. Gott dæmi um það
er frumvarpið um að rikið keypti
hlutabréf i einkafyrirtækjum.
Þetta frumvarp jafnaðarmanna fól
i raun i sér nýja leið til þjóðnýting-
ar, og flokkur Falldins á að heita
andvigur hvers konar þjóðnýtingu.
Fálldin greip þó til þess ráðs að
semja við Palme á bak við tjoldin
um orðalag frumvarpsins þannig
að Palme fékk sinu fram. Komið
var i veg fyrir atkvæðagreiðslu um
vantraust, og stjórninni forðað frá
falli.
Þótt undarlegt megi virðast
hlaut Fálldin mikið lof fyrir
frammistoðu sína, ekki sízt frá
stuðningsmónnum sinum, þvi ,,til-
slokun er lykilorðið i sænskum
stjórnmálum
Almenningur i Svíþjóð er
hræddur við breytingar. Hann ótt-
ast þær af því liann trúir því, að
þær geti stofnað óryggi hans i
hættu. Oryggi — „trygghet" á
sænsku — er undirstaða stjórn-
málarekstursins í landinu. Það er
oryggi móðurlifsins. Að sumu, en
ekki ollu leyti, er þac' afleiðing
velferðarrikisins. I óratíma hef-
ur hver Svii vanizt þvi að njóta
umhugsunar, ekki aðeins líkam
legrar, heldur ekki siður andlegr-
ar, og þannig vill hann hafa það.
Allt, sem ógnar þessu oryggi hans,
er bannfært, og vei hverjum þeim
stjórnmálamanni, sem þvi gleym-
ir. Reyndir stjórnniálamenn á borð
við Fálldin gleyma því ekki.
Þegar Palme og flokki hans
hafði tekizt að fá samþykkt log
um ýmsar breytingar á almanna
tryggingum, sem fela meðal ann-
ars i sér lækkun eftirlaunaaldurs
úr 67 i 65 ár og hækkun
tryggingabóta, boðuðu þeir stjórn-
arandstoðuna til ráðstefnu til að
finna leiðir til að fjármagna þessi
nýju log. Litið var svo á, að úr þvi
þingið hefði samþykkt lógin, væri
frekari andstaða tilgangslaus, ef
ekki hreint og beint siðlaus.
Stjórnarandstaðan þáði boð
Palme um viðræður, og samkomu-
lag um leiðir til fjármögnunar náð
ist.
Það er á þennan hátt, sem jafn-
aðarmenn liafa getað haldið vold-
um allan þennan tíma. Þeir eru
raunar i minnihluta á þingi. Af
þeim 175 þingmönnum, sem
I styðja Palme, eru aðeins 1 56 jafn
| aðarmenn; 19 eru þingmenn
kommúnista. Enginn kommúnisti
á sæti i rikisstjórninni, en sam-
vinna rikir milli flokkanna.
Úr því Palme getur farið sínar
leiðir við þessi skilyrði, er
skiljanlegt, að jafnaðarmenn
skuli hafa setið að völd
um i Sviþjóð lengur en svo til allar
aðrar rikisstjórnir, i austri eða
vestri, en stjórn Sovétrikjanna er
sú eina, sem á sér fleiri ár að baki.
Eldhúsinnrétting til sölu er meðalstór eldhúsmn- rétting nýleg, stálvaskur og elda- vél fylgja. Til sölu á sama stað er Hansahurð. Upplýsmgar í sima 24642 eftir kl. 6. BIRKIPLÖNTUR Tll SÖLU Urvals birkiplöntur í morgum verð- flokkum. Opið til kl. 10 virka daga og til 6 á sunnudogum JÓN MAGNÚSSON, Lynghvammi 4, Hafnarfj. Sími 50572.
Til sölu 1 3,8 fm hústjald. Nýlegt Copper reiðhjól og notaður barnavagn. Upplýsingar i sima 37650 CITROEN 2 CV árg. 71 til sölu. — Hagstæður bill. Upplýsingar i sima 27808 og 31070
Keflavík — IVIjarðvík Húsnæði vantar 1. herbergi eða litla ibúð Upplýsingar i sima 92 — 1 188—2740. 2VÍ tonna góð trilla til sölu. Veiðarfæri geta fylgt. Uppl. í síma 51 608.
Pingoin-garn Margar gerðir, þolir þvottavéla- þvott. VERZL HOF, ÞINGHOLTSSTRÆTI Bókhaldsþjónusta Get bæ.tt við bókhaldi fyrir smærri fyrirtæki. Upplýsingar í sima 38233 frá kL 1 7 — 19.
Sendibtlstjórar Nýlegur gjaídmælir ásamt laus- merki til sölu. Einnig talstöð á sama stað. Upplýsingar í síma 5241 8. Vörubilstjórar. Til sölu 18 feta stálpallur og 10 tonna santi poul sturtur, hvoru- tveggia mjög gott Simi 96—61309.
Keflavík Til sölu ný 2ja herb. ibúð. Stærð 75 fm. Fullfrágengm, sérmngang- ur. Laus fljótlega. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, simar 1263 og 2890. Rakarastofa til leigu á góðum stað á Suðurnesjum. Upplýsingar i sima 1185, Kefla- vik, eftir kl. 1 9.00.
Hiaf—krani 2'/2 tonn miðjukrant. Verð kr. 200 þús. Aðalbílasalan, Skúlagötu 40, sími 1 5014. Gerum við kaldavatnskrana og WC-kassa. Vatnsveita Reykjavíkur, Sími 27522.
Flutningavagn (stólvagn) 2ja hásinga, 1 2 m. langur. Skjól- borð 1. m. (sturtulaus). 22ja tonna. Verð kr. 450 þús. Aðalbilasalan, sími 15014. Vil kaupa Mazda 818 eða 6 16 coupe árg. 72 til '73. Uppl. í síma 92-8066
Til sölu sendiferðabifreið þriggja tonna Ford (bensin). Bif- reiðin er lítið ekin og með ágætu álhúsi. Uppl. i sima 25592. 10—13 ára telpa óskast til að gæta 2ja ára drengs i sumar I Hvassaleitishverfi. Upplýs- ingar í sima 82770.
Til sölu er nýleg sjálfvirk BTH þvottavél. Uppl. i síma 72448. Til sölu gamalt enskt sófasett, 2ja sæta sófi. Notaður kvenfatnaður nr. 14. Uppl. i sima 1 2 502
Til sölu Volkswagen 1300 L, árg. '69, ný vél, hiti á afturrúðu, bólstrað mælaborð, upphá sætisbök. Mjög hágst. greiðsluskilm. Uppl. i S. 37093 kl. 1 6 —21 i dag og næstu daga. Ferðaútvarpstæki (Radionette — Kurer) tapaðist frá Víðimel 60 þann 29. marz s.l. Skilvís finnandi hringi í síma 1 5443 eða 50661. Fundarlaun.
Til sölu ný ensk heilsárskápa. Frekar stórt númer. Á kr. 5000-. Einnig nýtt gólfteppi kr. 15000-, 3.70x3.70. Upplýsingar i sima 1 9046. Vörubifreið 3ja—-5 tonna óskast til kaups. Sími 21296 og 42540.
Sunbeam Alpina sport model til sölu strax. Uppl. i sima 34839. |Ror0unbIöbib ÍNmBRCFBLDBR I ITtBRKflÐVÐBR
Aðalfundur félags áhugamanna um sjávarútvegsmál verður haldinn fimmtudaginn 30. maí í Tjarnarbúð uppi kl. 20.30. 1 . Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lagabreytingar. 3. Stjórnarkjör 4. Jón Arnalds ráðuneytisstjóri heldur erindi um stöðu mála á væntanlegri hafréttarráð- stefnu í CARACAS og svarar fyrirspurnum. Stjórnm.