Morgunblaðið - 05.06.1974, Síða 16

Morgunblaðið - 05.06.1974, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JUNl 1974 Haukar unnu á ísafirði 2:1 ANNARRAR deildar lið Hauka í knattspyrnu fór til ísafjarðar á laugardaginn og sótti þangað tvö d.vrmæt stig. 2:1 fyrir Hauka urðu úrslit leiksins, eftir að heima- menn höfðu haft mark yfir í hálf- leik. Leikurinn var fremur slakur frá knattspyrnulegu sjónarmiði, en bæði liðin hiirðust þó allvel á köflum. ísfirðingar hafa orðið fynr miklu mannfalli frá því í fyrra, þar sem fimm af þeim leikmönn- um sem þá voru fastir í liðinu eru ýmist fluttir burt eða hættir að leika með líðinu. Meðal þeirra er Björn Helgason, sem lengi hefur verið kjölfasta ísafjarðarliðsins. Hann leikur nú með 3. deildar liði Súgfírðinga. Er greinilegt að Is- firðingar eru ekki með eins gott lið nú og í fyrra, hvað sem verður þegar fram á sumarið kemur og hinir ungu leikmenn, sem nú eru að taka við, öðlast meiri reynslu. Það var Rúnar Guðmundsson sem skoraði mark Isfirðinga í fyrrí hálfleik, og var nokkuð vel að því marki unnið. Yfirleitt höfðu Haukar þó betur í fyrri hálfleiknum og átti t.d. Björn Svavarsson hörkuskot á mark Is- firðinga, en á sfðustu stundu hrökk knötturinn í höfuð eins varnarleikmanns þeirra og þann- ig var hættunni bægt frá. Í seinni hálfleik var leikurinn jafnari. Fljótlega' kom að því að Haukarnir jöfnuðu og var þar Arnór Guðmundsson að verki. Þvaga hafði myndast fyrir fram- an mark isfirðinga og úr henni náði Arnór knettinum og skaut góðu skoti sem markvörður isfirð- inga átti enga möguleika á að taka. Eftir markið lifnaði míkið yfir Haukunum og áttu þeir held- ur meira í leiknum næstu mínút- urnar. Þar kom einnig að þeir bættu öðru marki við og var þar Guðjón Sveinsson að verki, með skoti af stuttu færi. A lokamínútunum reyndu ís- firðingar ákaft að jafna, en Hauk- arnir vörðust vel, og tókst að fara með sigur af hólmi. Beztu menn Haukanna í þess- um leik voru þeir Björn Svavars- son og Ólafur Torfason, en einnig komst Arnór Guðmundsson vel frá leiknum. Beztur isfirðinga var Tryggvi Sigtryggsson og Gunnar Pétursson kom einnig vel frá þessum leik. Gunnar var marka- kóngur þeirra ísfirðinga i fyrra, ungur og lipur leikmaður, sem vafalaust á eftir að láta verulega að sér kveða í framtíðinni. -stjl Islands- mótið 2. deild Úr leik Þróttar og Breiéabliks. MARKVÖRÐIJRINN BJARGAÐI ÞROTIl HAFI nokkur leikmaður nokkru sinni forðað liði sfnu frá tapi þá var það hinn ungi markvörður Þróttarliðsins, Jón Þorbjörnsson, er lið hans lék við Breiðablik I 2. deildar keppni íslandsmótsins f knattspyrnu á Þróttarvellinum við Sæviðarsund á föstudags- kvöldið. Þessi ungi piitur, sem reyndar hefur fengið góða reynslu með unglingalandsliðinu I knattspyrnu, þeyttist stanganna á milli og hirti alit sem að marki hans kom, og var það hreint ekki lítið. — Þetta var hreint frábær markvarzla, sagði Reynir Karls- son, þjálfari Breiðabliksliðsins, eftir leikinn. Leikurinn á föstudagskvöldið mótaðist annars nokkuð af að- stæðunum, en hvasst var, og stóð FH BIJRSTAÐIVÖLSUNGA FH-INGAR áttu ekki I erfið- leikum með Völsunga frá Húsa- vík, er liðin mættust á Kapla- krikavellinum f 2. deildar keppni Islandsmótsins í knattspvrnu á laugardaginn. Úrslitin urðu stór- sigur FH 6:0, eftir að staðan hafði verið 3:0 í hálfleik. FH sigur í leiknum hefði jafnvel getað orðið enn stærri, þar sem stundum var nánast sem eitt lið væri á vellinum, og nokkur góð tækifæri áttu FH-ingar sem þeim tókst ekki að nýta. — Það er auðséð að þjálfarinn okkar Pat Quinn, hefur náð góðum tökum á liðinu, sagði Berg- þór Jónsson, einn af forsvars- mönnum FH-liðsins og lengi ieik maður með því, í viðtali við Morgunblaðiö eftir leikinn á laugardaginn, — Quinn hefur fengið liðið til þess ao leika betur saman, og þær veilur sem sköpuðust stundum í því i fyrra sjást nú ekki lengur, sagði Berg- þór. Strax og leikurinn á laugardag- inn hófst byrjuðu FH-ingar sókn og má segja að hún hafi staðið leikinn út. Völsungarnir börðust þó nokkuð vel, en máttu sín hrein- lega lítils gegn hinum frísku FH- ingum. Fyrsta markið kom fljót- lega. Janus Guðlaugsson, fyrirliði unglingalandsliðsins, átti mestan heiðurinn af því. Hann braust upp kantínn og gaf síðan knöttinn vel fyrir markið, þar sem Leifur Helgason var vel staðsettur og skoraði með góðu skoti. Annað markið bar að á svipaðan hátt, nema nú var það Leifur sem lék upp og gaf fyrir og Ólafur Danivalsson sendi knöttinn í markið. Þriðja markið í fyrri hálf- leik skoraði svo Gunnar Bjarna- son með laglegu skoti. i seinni hálfleik skoraði Leifur Helgason tvö mörk til viðbótar og Olafur Danivalsson eitt. Vann Leifur mjög vel að mörkum sínum, óð upp völlinn, lék á varnarleikmenn og skoraði með fallegum skotum. Beztu menn í liði FH í þessum leik voru þeir Leifur Helgason sem átti þarna einn sinn allra bezta leik og ógnaði stöðugt með dugnaði sínum og hraða. Þá átti Janus Guölaugsson einnig prýði- legan leik og stjórnaði töluvert leik FH-liðsins. Vert er lika að taka eftir ungum pilti, Jóhanni Ríkharðssyni, sem tekið hefur stöðu Dýra Guðmundssonar á miðjunni. Hann kom mjög vel frá þessum leik, og hefur reyndar gert það einnig í fyrri leikjum FH. Völsungaliðið virðist heldur Okkur fer fram — Það er greiniiegt, að liðinu okkar er að fara mjög mikið fram, sagði Björn Gíslason, formaður knattspyrnudeiidar Selfoss, eftir leik Selfoss og Armanns, Óli B. Jónsson, þjálfarinn okkar, hefur náð að hefla af því ýmsa van- kanta, sem á því hafa verið, og skapa meiri liðseiningu. Ég hef trú á því í að í sumar takizt okkur að verða með í baráttunni á toppnum. Það sem skyggir mest á hjá okkur er það hversu áhorf- endurnir sækja illa völlinn hérna. Frammistaða liðsins að undan- förnu hefur verið þannig, að hún gefur vissulega heimamönnum tilefni til þess að koma og hvetja strákana, sagði Björn. slappara en það var í fyrra. Her- mann Jónasson var einna frísk- astur leikmanna og raunar sá eini sem eitthvað ógnaði. stjl. vindurinn nokkurn veginn á ann- að markið. Þróttur lék undan vindi í fyrri hálfleik, og var þá leikurinn jafnari. Breiðabliks- menn voru þó jafnan atkvæða- meiri og tókst nokkrum sinnum að skapa sér góð tækifæri og skjóta, en Jón Þorbjörnsson var sú hindrun sem þeim tókst ekki að yfirstíga. 1 seinni hálfleik, er Breiðablik lék undan vindi, fór leikurinn nær eingöngu fram á vallarhelm- ingi Þróttar. Var þar oft mikil þvaga, sem Breiðabliksmönnum tókst sjaldan að greiða úr og skapa sér tækifæri. Kæmu þau, var það sem fyrr markvörður Þróttar sem batt þar enda á. Reyndar gerði Breiðablik mark í seinni hálfleiknum, sem dæmt var af vegna rangstöðu. — Ég er náttúrlega ekki ánægð- ur með þessi úrslit, en eigi að síður finnst mér Breiðabliksliðið vera á réttri leið, sagði Reynir Karlsson eftir leikinn, — mér finnst það vera að ná upp betra spili en áður. Spurningu um hvaða lið hann teldi að yrðu I baráttunni um 1. deildar sætið í sumar svaraði Reynir: — Ég treysti mér tæpast til að svara þessu fyrr en ég er búinn að sjá öll liðin leika. Þó held ég, að það verði Breiðablik, FH og jafn- vel Þróttur sem berjast um sætið, og ég spái því að sú barátta verði hin jafnasta og tvísýnasta. -stjl Sumarliði með þrennu w er Selfoss vann A 4:2 SELFOSS sigraði Ármann með fjórum mörkum gegn tveimur í annarrar deildar keppni Islands- mótsins I knattspyrnu. Leikurinn fór fram á grasvellinum á Sel- fossi á fiistudagskvöldið og voru skilyrði til Knattspyrnuiðkana þar þá ekki góð, suðaustan rok og rigning á köflum. Leikurinn var nokkuð jafn fyrst framan af, og um leið þóf- kenndur. Liðunum gekk erfiðlega að skapa sér hættuleg tækifæri og knötturinn gekk mest manna á milli á miðjunni. En eftir þennan þófkafla birti til t leiknum, og áður en flautað var til hálfleiks höfðu heimamenn sent knöttinn þrívegis í mark Armenninga. Fyrsta mark leiksins skoraði Sumarliði Guðbjartsson, en þá hafði verið skotið á Ármanns- markið af löngu færi. Markvörð- urinn hélt ekki knettinum, og Sumarliði sem fylgt hafði vel á eftir, náði honum og sendi hann með föstu skoti í netið. Skömmu síðar skoraði efnilegur nýliði i Selfossliðinu, Kristinn Ásgeirs- son. Kom það mark með svipuð- um hætti og fyrsta markið. Mark- vörður Armanns hélt ekki knettinum eftir skot Kristins, og hann hafði fylgt vel á eftir, náði og skoraði. Þriðja markið skoraði Sumarliði, með því að vippa knettinum yfir Ármannsmark- vörðinn, sem freistaði þess að stöðva sókn Selfyssinga með út- hlaupi. Það var sem Ármenningar hefðu fengið vítamínssprautur í hálfleik. Lið þeirra var með öllu óþekkjanlegt frá fyrri hálf- leiknum fyrstu mínúturnar í seinni hálfleik, og áður en fimm mínútur voru liðnar hafði því tek- izt að breyta stöðunni úr 3:0 i 3:2. Það var þegar á 2. mínútu seinni hálfleiksins að Ármenningar áttu sókn sem mikill þungi var í. Jón Sveinsson, markvörður Selfyss- inga, kastaði sér eftir knettinum og hafði hendur á honum, en Sigurður Leifsson, sem þarna kom aðvifandi tókst að krækja knettinum frá honum og senda hann i markið. Töldu Selfyssingar að þarna hefði verið ólöglega að farið, en dómarinn gerði enga athugasemd. Á þriðju mínútu fékk Jens Jensson stungusendingu inn á milli varnarmanna Selfoss og tókst honum að snúa á þá og skora. Eftir þetta mark færðist meira jafnvægi yfir lið Selfoss, og á 7. minútu tókst þvi að svara fyrir sig. Þar var Sumarliði enn á ferð, og brunaði hann upp allan völl, lék á hvern Ármenninginn af öðrum og lauk sókn sinni með því að skora. Nokkur harka hljóp í leikinn undir lokin, og töldu Selfyssingar að dómarinn hefði þá sleppt víta- spyrnu á Ármann, er brotið var allharkalega á Sævari innan víta- teigs. Bæði liðin bjöguðu nokkrum sinnum á línu í leiknum, þannig að ekki var hægt að segja annað en þarna hefði verið um hinn fjörugasta leik að ræða. stjl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.