Morgunblaðið - 07.06.1974, Síða 34

Morgunblaðið - 07.06.1974, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JUNÍ 1974 EKKI SJÓNVARP FRÁ OL? ENN ER allt í óvissu með hvort sjónvarpað verður frá Olympíu- leikunum í Kanada 1976 til Evrópu. Kanadamenn ætla sér að vera mjög dýrir á sjónvarpsrétt- indunum, svo dýrir, að allt útlit er á þvf, að ekki verði gengið að kröfum þeirra. Þeir hafa þó þegar samið við bandarfskar sjónvarps- stöðvar og greiða þær 25 milljónir dollara fyrir réttinn. Framkvæmdastjóri BBC sjón- varpsstöðvanna, Charles Curran, sem einnig er formaður Evrópu- sambands sjónvarpsstöðva, segir, að Kanadamenn vilji ekki selja réttinn til Evrópu fyrir minna en 15 milljónir dollara, en það er 10 sinnum hærri upphæð en greitt var fyrir réttinn f leikunum í Mtinchen, og segir Curran, að ef verð þetta eigi að standa, muni fáar sjónvarðsstöðvar í Evrópu hafa efni á að kaupa myndir frá leikunum, sem þó sé ekkert vafa- mál, að sé það efni, sem mest er horft á í sjónvarpinu. Afmælissundið gegn Svíunum í kvöld ÞAÐ ER í kvöid, sem afmælis- mót Ármanns og KR f sundi fer fram í Laugardaislauginni Eins og frá hefur verið skýrt taka þátt í mótinu nokkrir af sterkustu sundmönnum Svfa. Þeir koma hér við á leið sinni frá Bahama og Miami, þar sem þeir hafa verið í æfinga- og keppnisferð að undanförnu. Allt okkar bezta sundfólk, sem fær þvf við komið, tekur þátt f mótinu og má búast við skemmtilegri keppni í ýmsum greinum. iVlótið hefst klukkan 20.00. --------------> Bakkanum náð — í kvöld mun fslenzka sundfólkið reyna hvað það getur til að verða á undan hinum öflugu sænsku sund- mönnum. V-Þjóðverjar með leynivopn VESTUR-Þjóðverjar hafa ieyni- vopn f pokahorninu f lokakeppn- inni í heimsmeistarakeppninni f knattspyrnu. Þar er um að ræða nýja gerð af knattspyrnuskóm, sem að sögn þeirra, sem fengið hafa að reyna þá, er gjörbvlting frá þvf, sem verið hefur. Skór þessir eru framleiddir af hinni þekktu verksmiðju Adidas og hefur verið unnið að gerð þeirra í þrjú ár. Eftir miklar til- raunir og vangaveltur sérfræð- inga er um það bil að hefjast framleiðsla á skóm, sem vega að- eins 125 grömm. Léttustu knatt- spyrnuskór, sem hingað til hafa verið framleiddir, eru svonefndir „Adidas Golden“ skór, en þeir vega 400 grömm. Samkvæmt útreikningum þýzkra, sem þekktir eru fyrir ánægju sína í talnameðferð og útreikningum, þarf knattspyrnu- maður að „bera“ einu tonni minna í leik, ef hann klæðist hin- um nýju skóm. Þeir knattspyrnumenn, sem notað hafa skó þessa, ljúka allir miklu lofsorði á þá. „Það er sama tilfinningin, sem grípur mann, þegar maður fer í þá, og þegar maður klæðir sig í þægilegan skinnhanzka,“ hafa þeir sagt. Skór þessir heita „Adidas Top Star“, og verða þeir ekki á sölu á frjálsum markaði fyrr en eftir 7. Jöfnunarmark rétt fyrir leikslok JUGOSLAVAR léku upphitunar- leik fyrir átök HM við Englend- inga í Belgrad f gærkvöldi. Lauk ieiknum með jafntefli, hvort liðið skoraði tvö mörk. Mike Channon tók forystu fyrir Englendinga strax f upphafi leiksins, Petkovic jafnaði skömmu sfðar. 1 upphafi sfðari hálfieiksins skoraði Oblak annað mark gest- gjafanna. Hinn markheppni Liv- erpool-leikmaður Kevin Keegan skoraði svo jöfnunarmark Eng- lendinganna litlu fyrir leikslok. júlí n.k„ þ.e. eftir úrslitaleikinn í heimsmeistarakeppninni, en vestur-þýzka landsliðið mun hins vegar nota þá í keppninni. Verk- smiðjurnar munu hins vegar dreifa þessum skóm til umboðs- manna sinna í júní n.k., með þeim fyrirmælum, að ekki megi selja þá fyrr en eftir þennan ákveðna dag. En það mun svo auðvitað kosta sitt að klæðast þessum undra- skóm. Samkvæmt því sem verk- smiðjan hefur gefið upp, mun verðið vera frá upphæð sem svar- ar til 6.200,00 fsl. króna. ROY Rees til hægri á myndinni, í miðið er Oskar Tómasson, sem að dómi Rees er eitt mesta knattspyrnumannsefni hér á landi, og til hægri á myndinni er Vfkingsþjálfarinn Anthony Sanders. (Ijósm. R. AX.) Rætt við Roy Rees um íþróttahús, íslenzka knattspyrnu og fleira HÉR á landi dvaldist sfðustu 10 daga Englendingurinn Roy Rees og var hann hér í boði Knatt- spyrnuféiagsins Víkings. Auk þess sem Rees aðstoðaði við þjálfun meistaraflokks Vfkings, gaf hann Vfkingum góð ráð f sam- bandi við uppbyggingu fþrótta- svæðis félagsins og fþróttahús, en Rees hefur taisvert fengizt við að hanna slfk verk í Englandi. Roy Rees er fyrrverandi atvinnuleik- maður f knattspyrnu og lék með Swansea f 2. deild árin 1955—57. Nú er hann kennari við Háskóiann í Norður-Wales og hef- ur undir sinni stjórn 20 manna starfslið. Rees var hér á ferðinni í fjórða skiptið og er orðinn hnút- um vel kunnugur í sambandi við fþróttamál hér á landi þvf hann vinnur að ritgerð um samanburð á fþróttum á Bretlandi, Þýzka- landi og Norðurlöndunum. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Rees í vikunni og spurði fyrst hvað hann vildi segja um byggingu íþróttahúsa hér á landi. — Mér finnst það liggja ljóst fyrir, að hús eins og KR og Valur hafa upp á að bjóða, eru byggð fyrir nútiðina, en ekki framtíðina. I þessum húsum er í rauninni ekkert, sem laðar fólk að, og íþróttafélög verða að hafa upp á eitthvað að bjóða, sagði Rees. — Það er ekki nóg að fólk komi á æfingar, aðstaða verður að vera fyrir veitingasölu og gufubað svo eitthvað sé nefnt. Þvi stærri sem íþróttahúsin eru, því betra og um- fram allt verður að vera i þeim aðstaða fyrir áhorfendur. Iþrótta- félög eru ekki lengur byggð ein- göngu upp á þeim, sem iðka íþróttirnar, heldur einnig af fólk- inu, sem stendur að baki keppnis- fólkinu. Roy Rees hefur kynnt sér áform Víkinga í sambandi við byggingu íþróttahúss og vallagerð. Hafði hann með sér hugmyndir Víkinga út til Englands, vinnur úr þeim næstu vikur sendir síðan Víking- um sínar tillögur. Um knattspyrn- una hér á landi sagði Rees, að Islendingar væru talsvert á eftir flestum öðrum Evrópuþjóðum hvað leikskipulag snerti og eins skilning leikmanna á leiknum. Hins vegar hefðu íslenzk lið stgrk- um leikmönnum á að skipa og hann sagðist öfunda okkur af þeim mikla fjölda ungra pilta, sem æfa knattspyrnu hér á landi. Sagði, að fjöldinn væri meiri hér en margar stórar þjóðir gætu státað af. Við vikum tali okkar að ritgerð þeirri, sem Rees vinnur að, og sagði Rees, sem er frá Wales, en ekki Bretlandi, eins og hann sagði sjálfur, að ótrúlega margt væri líkt í fari Islendinga og Walesbúa. — Það er ekki aðeins útlitið, sem ýmsir skapgerðareiginleikar og f íþróttunum er auðvelt að finna hliðstæðu á milli Wales og tslands. Tökum sem dæmi glímuna, hún var mikið iðkuð í Wales og er enn iðkuð hér á landi. Þá má ekki gleyma þjóðarstolt- inu, sem þjóðirnar eiga sameigin- legt og er líklega komið frá því, að þær hafa verið undirokaðar um aldir og Walesbúar eru í rauninni enn þá. Ef Walesbúi er kallaður Englendingur spennir hann út brjóstkassann og tilkynnir hvert sé sitt rétta föðurland og það sama gerir Islendingurinn að þvi að mér er sagt. — Það hefur verið gaman að vinna að þessari rit- gerð, en ég á enn miklu verki ólokið, ef til á ég eftir að koma hingað aftur fljótlega í efnissöfn- un, sagði Rees að lokum. Hvað gera Ármenningar á heimavelli sínum? — VIÐ höfum hugsað okkur að vinna FH-ingana í kvöld, það er víst kominn tími til að við vinn- um. Þetta sagði Bragi Jónsson formaður Knattspyrnudeildar Ár- manns er við ræddum við hann 1 gær. Ármenningar leika á heima- velli sfnum við Sigtún í kvöld og mótherjarnir verða FH-ingarnir, sem um sfðustu helgi lögðu Völs- unga að veili með 6 mörkum gegn engu. Armenningar hafa vægast sagt leikið illa það sem af er tslands- mótinu að þessu sinni, en spurn- ingin er hvort þeir standa sig betur á heimavelli. Opin kvenna- keppni hjá GR Sunnudaginn 7. júní fer fram 18 holu opin golfkeppni hjá GR í Grafarholti fyrir konur. Keppt verður með og án forgjafar og hefst keppnin klukkan 13.30. Iþróttahús hér á landi ekki byggð með framtíðina í huga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.