Morgunblaðið - 08.06.1974, Síða 13
MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JUNI 1974
13
Menntaskólinn á ísafirði
útskrifar fyrstu stúdentana
Mun sakna
skólans og
skólafélaga
VIÐ skólaslitin í Alþýðuhúsinu
voru afhent fjölmörg verðlaun
fvrir góðan námsárangur. Það
— Og hvernig hefur þér líkað?
„Alveg ljómandi vel. Ég bjó I
Húsmæðraskólanum fyrsta vetur-
inn, og líkaði vel, þótt þar gildi
strangar reglur. Ég hef svo búið á
heimavistinni tvo síðustu vet-
urna. Ég var I félags- og viðskipta-
fræðikjörsviði og tel mig hafa
haft mikið gagn af náminu þar.“
— Tókstu mikinn þátt I félags-
lifi skólans?
„Nei, frekar lítinn. Mér hefur
virzt sem það séu vissir hópar
innan skólans sem hafi verið virk-
ir í félagslífinu. Annars hafa
skólameistarahjónin ætíð verið
félagsstarfinu hliðholl, og
Bryndís starfað af krafti".
— Ætlarðu að halda áfram
námi?
„Ég hef engar ákvarðanir tekið
enn í því efni. Fyrst um sinn ætla
ég að slappa algjörlega af. Ég hef
sótt um vinnu í Frakklandi, og
býð eftir svari. Og hvort sem það
verður jákvætt eða neikvætt er ég
ákveðin í þvi að fara eitthvað út á
þessu ári“.
vakti athvgli, að ung geðþekk
stúlka, Herdls Hiihner, fékk alls
fimm verðlaun, flest f.vrir góðan
árangur I málum. Foreldrar
hennar eru Halldóra Finnbjörns-
dóttir og Erie Húhner. Herdís var
á félagsfræðikjörsviði.
„Ég hef haft sérstaka ánægju af
málunum,'1 sagði Herdís við Mbl.
„Og þegar á heildina er iitið, hef
ég haft gagn og ánægju af dvöl
minni hér í skólanum."
— Ertu héðan frá tsafirði?
„Ég er ættuð héðan, en bjó í
Kópavogi. Eg útskrifaðist úr
Verzlunarskóla Islands, og kom
svo inn í 3. bekk hér. Ég var orðin
ósköp þreytt á höfuðborgarsvæð-
inu, og langaði til að breyta tii.
Því fór ég hingað."
— Og þú hefur kunnað vel við
þig?
„Já, ég hef kunnað mjög vel við
mig hér á Isafirði, allt frá því ég
kom hingað fyrst. Fyrsta veturinn
minn hér bjó ég í heimavistinni,
en í vetur hef ég búið i leiguíbúð
ásamt manninum mfnum Hrafni
Norðdahl og barni."
— Var ekki erfitt að hugsa um
barn samhliða námi?
„Jú, það var að vissu leyti erfitt,
en ég fékk mikla hjálp, t.d. voru
kennararnir og skólameistara-
hjónin mjög hjálpleg."
— Hvað tekur nú við?
,,Ég mun fyrst um sinn jafna
mig eftir próftörnina sem var anzi
strembin. í haust byrja ég svo
kennslu við Gagnfræðaskóla tsa-
fjarðar. En ég mun örugglega
sakna skólans og skólafélaganna.
Þetta hefur vírið einstaklega
samstilltur hópur."
Halldór Jónsson ásamt foreldrum
sfnum, Hildi Fálmadóttur og Jóni
Páli Halldórssyni.
Aðaláherzla
á tónlistina
MARGRÉT Gunnarsdóttir hlaut
næst hæstu einkunn á stúdents-
prófi frá >11 að þessu sinni, 7,8.
Hún var nemandi í félagsfræði-
kjörsviði. Foreldrar hennar eru
Gunnar Jónsson og Jónína Ein-
arsdóttir.
Margrét er Isfirðingur, og hún
var alltaf ákveðin I þvf að fara I
menntaskólann þar, fremur en að
leita sér stúdentsmenntunar I
öðrum landshluta. Það kom fram
f ræðu skólameistara við skóla-
slitin, að Margrét var sú f.vrsta
sem sótti um skólavist. Var hún
skólameistara sem himnasending
undir kvöld fvrsta innritunar-
dagsins, en hann hafði þá setið á
kontór sfnum allan daginn, án
þess nokkur gerði vart við sig.
Var skólameistari að niðurlotum
kominn er Margrét birtist, fvrsti
nemandinn.
— Og hvernig hefur þér svo
líkað vistin?
„Nokkuð misjafnlega, yfirleitt
þó vel, en það hefur líka verið
svolítið erfitt að vera nokkurs
konar tilraunadýr. Allar námstil-
Ætlar að
læra í
Noregi
næsta vetur
GUÐMUND Guðjónsson frá Akra-
nesi hittum við að máli f skíða-
skálaveizlunni. Hann var þar
ásamt foreldrum sfnum, Sjöfn Jó-
hannesdóttur og Guðjóni
Guðmundssyni. Guðmundur var
nemandi f náttúrufræðideild, og
eins og allir þeir stúdentar sem
Mbl. hitti að máli, var hann mjög
ánægður með dvöl sfna á tsafirði.
„Það var nú einskonar tilviljun
að ég lenti hér“, sagði Guðmund-
ur. „Ég vann fyrsta veturinn eftir
landspróf, hafði hugsað mér að
fara í iðnskóla, en ekki mennta-
skóla. En ég komst ekki í þá iðn
sem mig langaði helzt að stunda,
og því dreif ég mig á síðustu
stundu til isafjarðar, og hafði ég
þó eins og flestir aðrir hlegið að
þeirri hugmynd að reisa hér
menntaskóla. Um Isafjörð vissi ég
það eitt, að þar var húsmæðra-
skóli með margar fallegar stelp-
ur.“
— Og þú hefur kunnað vel við
Þig?
„Já, ég hef kunnað mjög vel við
mig í skólanum og er ánægður,
þótt maður gangi nú ekki frá
prófborðinu með neina glæsiein-
kunn. Einkunnirnar i heild eru
ekki háar, en mjög jafnar".
— Þú hefur starfað talsvert að
félagsmálum hér í skólanum?
„Já, ég hef gert töluvert af því.
T.d. var ég kosinn formaður
skólafélagsins fyrsta árið, lfklega
vegna þess að engin þekkti mig!
Annars átti félagsstarfsemi í skól-
anum nokkuð erfitt uppdráttar
lengi vel vegna húsnæðisskorts.
Það.var t.d. ekki fyrr en á 2. ári að
skólafélagið fékk afnot af læstri
skúffu, og á 4. ári fékk það loks
afnot af einu herbergi. Annars
hefur félagslif verið nokkuð gott,
fámennara en í öðrum skólum en
jafnframt samhentara. Það er viss
kjarni sem er uppistaðan eins og
annars staðar, en þátttakan að ég
held almennari en í öðrum
menntaskólum".
— Býrð þú á heimavist?
„Ég bjó á heimavist fyrsta árið,
við heldur frumlegar aðstæður,
en síðan hef ég leigt úti í bæ, en
það er töluvert algengt meðal
nemenda. Annars kunna nemend-
ur vel við sig á heimavistinni,
enda frjálslegar reglur þar i gildi.
Þá eru reglur um tímasókn mjög
frjálslegar líka, og nemendur
ánægðir með það“.
— Þú ert úr náttúrufræðideild?
„Já, þar hefur námið verið
mjög lærdómsríkt. Það hefur ver-
ið reynt að hafa það í eins miklum
tengslum við atvinnulifið i bæn-
um og hægt er. T.d. höfum við
heimsótt fiskvinnslustöðvarnar
hér, og einnig tók deildin að sér
mælingar á rækju fyrir Hafrann-
sóknastofnunina. Þannig hefur
þetta verið mjög í tengslum við
það sem við erum að læra."
— Og hvað tekur nú við?
„Við höfum fjórir samstúdentar
sótt um inngöngu i háskóla i
Tromsö í Noregi, þ.e. þá deild
skólans sem kennir ýmislegt hag-
nýtt i sambandi við stjórn á út-
gerð og fiskvinnslu. Þetta nám er
í beinu framhaldi af náminu í
náttúrufræðideildinni. Það er
mikil aðsókn að háskólanum í
Tromsö, og því alveg óvíst á þessu
stigi málsins hvort við komumst
að eða ekki“.
Bergrós Asgeirsdóttir ásamt for-
eldrum sfnum, Bergrósu Jóhanns-
dóttur og Ásgeiri Jakobss.vni.
Jóhannes Laxdal með unnustu
sinni, Jónínu S. Guðmundsdóttur.
og móður sinni, Éster Laxdal.
Margrét Gunnarsdóttir.
raunir hafa verið reyndar á okk-
ur."
— Hvaða fög heldur þú mest
uppá?
„Ég hef haft sérstakt dálæti á
hagfræði, og einnig hafði ég
mikla ánægju af því að læra
frönsku og latinu.
— Mér skilst að þú hafir mikinn
áhuga á tónlist?
„Já, ég hef lært á píanó í Tón-
listarskólanum frá þvi ég var 8
ára. Ég tók reyndar lokapróf frá
skólanum nú I vor, samhliða
stúdentsprófinu, og var það vissu-
lega strembið. (Þess má geta, að
dúxinn Halldór Jónsson tók einn-
ig lokapróf frá Tónlistarskólanum
á sama tíma og Margrét).
— Og hvað hyggstu f.vrir í
haust?
„Ég fer í Tónlistarskólann í
Reykjavík. Ég ætla að leggja aðal-
áherzlu á tónlistina fyrst i stað, en
einnig langar mig til að lesa
frönsku við Háskólann."
Herdfs Hubner og dóttir hennar
Ilalldóra Björk.
Skólinn
annað
heimili
HALLDÓR Jónsson var dúx skól-
ans, með 8,0 í aöaleinkunn. Hann
er sonur Jóns Páls Halldórssonar
og Hildar Pálmadóttur. Halldór
var nemandi í eðlisfræðikjör-
sviði, og hann fékk langflest verð-
laun f raungreinum. Hann hefur
alla tíð búið á Isafirði, og því
spurðum við í fyrstu, hvort það
hefði aldrei hvarflað að honum að
hlusta á raddir svartsýnismanna,
sem spáðu skólanum illu gengi,
og leita sér stúdentsmenntunar
annars staðar.
„Nei, ég ætlaði mér alltaf í skól-
ann hér á Isafirði. Pabbi var í
undirbúningsnefnd skólans, og ég
Guömundur Guðjónsson ásamt
foreldrum sfnum Sjöfn Jóhannes-
dóttur og Guðjóni Guðmundssvni.
vissi því að hann myndi settur á
stofn um það leyti sem ég hæfi
menntaskólanám."
— Og þú hefur væntanlega ekki
séð eftir þvi?
„Nei, svo sannarlega ekki. Ég
hef ekkert út á skólann að setja.
Það var sérstaklega gaman hér
fyrstu árin, þá vorum við svo fá
og skólinn þvi nánast eins og ann-
að heimili manns. Maður var svo
blessunarlega laus við ftroðsluað-
ferð skyldunámsskólanna. Kenn-
ararnir hér litu á okkur sem
krakkana sina, og það átti ekki
sizt þátt i því, hversu ánægjuleg
skólaveran hefur verið."
— Eru raungreinarnar þitt
uppáhald?
„Eg hafði gaman af reikningi í
barnaskóla, en siðan missti ég
allan áhuga á stærðfræðinni
þegar farið var að kenna tölur og
mengi. En áhuginn blossaði upp á
Framhald á bls. 18