Morgunblaðið - 08.06.1974, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚNI 1974 X9
—Dauðadómur
Framhald af bls. 17
kostnaðurinn í dag er a.m.k. 19%
hærri en reiknað var með um
áramót og eftir 1. júní 35% hærri.
Hins vegar hefur meðalverð
afurðanna, sem nefndar voru hér
að framan, lækkað í 6521 cent
hvert pund, eða um 6—7%, miðað
við hugmyndir um verð í marzlok.
Enn ríkir þó veruleg óvissa um
markaðshorfur. Hins vegar
bendir fátt til annars en, að þessi
lækkun sé óumflýjanleg. Þessi
lækkun ásamt líklegri hækkun
farmgjalda veldur um 620 m.kr.
tekjumissi hjá frystingunni á
heilu ári. Samkvæmt gildandi
reglum tekur Verðjöfnunar-
sjóðurinn á sig um helming þess-
arar lækkunar, en það sem eftir
stendur er meira en nóg til að
eyða öllum hagnaði í fyrri áætlun,
þótt ekki kæmi fleira til. Á móti
þessu má telja nokkur jákvæð
atriði, t.d. heldur hærra verð á
frystri loðnu en reiknað var með,
en miklu meira máli skiptir að, ef
fiskmjölsverð hefur lækkað frá
áramótum úr 10 Bandaríkja-
dölum hver eggjahvítueining, í
nálægt 8 Bandaríkjadali (og þarf
raunar bjartsýni til slíks mats),
þarf að reikna með lækkun tekna
frystingar af seldum úrgangi til
mjölvinnslu um nálægt 300 m.kr.
á heilu ári. Launahækkun — ein-
göngu til dagsins í dag — nemur
beinlínis um 550 m.kr. á ári fyrir
frystinguna og aðrar kostnaðar-
hækkanir eru varla undir 300
m.kr. Þannig blasir við stórfelld-
ur hallarekstur frystiiðnaðarins.
Við rekstrarskilyrðin í apríl-maí
1974 gæti tapið numið
1.100—1.200 m.kr. á ársgrund-
velli, eða 10—11% af heildartekj-
um. Sé reiknað með kaupgreiðslu-
vísitöluhækkun fram til 1. sept.
(sbr. töflu hér aó framan) og
kostnaðaráhrifum hennar til við-
bótar, stefnir tapið að óbreyttu
gengi í tvöfalt hærri tölur, eða
20—22% af heildartekjum. Sé
Verðjöfnunarbótunum bætt við
fara þessar taphlutfallstölur að
nálgast 25%, en i því sambandi
má nefna að afskriftir nema
nálega 3% af tekjum i þessari
áætlun.
Staða saltfisk- og skreiðarfram-
leiðslu virðist mun betri um
þessar mundir en frystingar-
innar. Saltfiskverðlag hefur
haldið áfram að hækka alveg
fram til þessa, og er nú talið um
21% hærra en það var í lok ársins
1973. Þetta veldur þvi að við
rekstrarskilyrðin í apríl-maí 1974
má telja, að afkoma saltfisk- og
skreiðarfyrirtækja sé nokkru
betri en reiknað var með um ára-
mótin og jafnframt renni
250—300 m.kr. i saltfiskdeild
Verðjöfnunarsjóðs. Hækkan-
irnar, sem fram undan eru fram
til september n.k. valda hins
vegar fyrirsjáanlega töpum
einnig i þessari grein og eins þótt
greiðsla í Verðjöfnunarsjóð af því
geysiháa verði, sem nú ríkir
minnkaði verulega. Staða fisk-
mjöls- og loðnuvinnslu var mjög
góð við upphaf ársins. Var
reiknað með að hreinn hagnaður
fyrir skatta gæti numið um 10%
af tekjum, hefði hið háa fisk-
mjölsverð haldizt. Nú virðist hins-
vegar lækkun framundan á fisk-
mjöli, sem að nokkru hefur komið
fram í lækkun á verði loðnu til
bræðslu. Með þeim kostnaðar-
hækkunum, sem orðnar eru og
bjartsýnu mati á núverandi
markaðsástandi (fiskmjölsverð
$8,00 pr. eggjahvítueiningu og
lýsi $500 pr. tonn), má telja, að
hagur þessara greina gæti verið
þokkalegur. En hvort tveggja er,
að þær kostnaðarhækkanir, sem
framundan eru, munu koma þess-
um greinum 1 tap jafnvel þótt
markaðsverðið sem að ofan var
nefnt, héldist, og eins að veru-
legar líkur eru til að fiskmjöls-
verð og lýsisverð verði til lang-
frama fremur lægra en hærra en
þetta verð.
Halli á togurum
í þessum athugasemdum um
stöðu fiskvinnslunnar hefur verið
reiknað með óbreyttu fiskverði.
Hin mikla hækkun launa land-
verkafólks, bæði sú, sem orðin er
og sú, sem við blasir, hlýtur að
kalla fram háværar kröfur um
fiskverðshækkun, bæði frá sjó-
mönnum og útvegsmönnum. Auk
þess er óleystur vandi oliu-
kostnaðarhækkunar á sfðari hluta
ársins, ef olíuverðið í heiminum
helzt óbreytt.
Afkoma þorskveiðibátaflotans
var talin standa i járnum við
vetrarvertíðarskilyrði eins og þau
voru áætluð um áramót. (En þá
var reiknað með, að olíuverði til
útgerðarinnar yrði haldið
óbreyttu frá haustinu 1973). Að
loónuveiðunum meðtöldum var
hins vegar um verulegan hagnað
að ræða í heild og mjög góóa stöðu
hjá loðnuflotanum. Við rekstrar-
skilyrðin í apríl-maí 1974, án þess
að reiknað sé með hugsanlegum
kostnaðaráhrifum kjarasamninga
sjómanna, sem enn er ólokið, má
ætla, að 300—400 m.kr. skorti á
hallalausan rekstur þorskveiði-
bátaflotans að óbreyttu fiskverði.
Á síðari hluta árs blasa við
frekari kostnaðarhækkanir, m.a.
hækkun kaupgreiðsluvisitölu 1.
júni og 1. september nk., og gætu
hallatölur þorskveiðanna þá
stefnt í um 700 m.kr. á ársgrund-
velli við haustskilyrðin 1974. Til
viðbótar þessu gæti komið gífur-
leg olíukostnaðarhækkun, ef olíu-
verð í heiminum lækkar ekki, því
ráðstafanir þær, sem gerðar voru
um áramót til þess að greiða niður
olíu, standa aðeins til júnííoka
(og raunar kann loðnugjaldið að
reynast ónógt til þess að standa
undir þeim kostnaði). Sú hækkun
olíuverðs, sem fyrirsjáanleg er á
næstunni gæti valdið a.m.k. 500
m.kr. kostnaðarauka hjá þorsk-
veiðibátaflotanum á ársgrund-
velli. Afkoma loðnuflotans var
talin mjög góð um siðustu áramót,
og var hagnaður áætlaður um 700
m.kr. Þessi tala gæti hins vegar
rýrnað um a.m.k. helming m.v.
haustskilyrði 1974 án tillits til
olíuverðhækkana.
Rekstur togaranna stóð mjög
höllum fæti þegar við síðustu ára-
mót og sýnilegt er, að rekstrar-
staða þeirra mun versna mjög
eftir þvi sem á árið líður. Gæti
rekstrarhalli togaraflotans numið
allt að 1.000 m.kr. á ársgrundvelli
m.v. rekstrarskilyrði í september
nk.
Sjávarútvegurinn stendur
þannig frammi fyrir stórkost-
legum rekstrarerfiðleikum, sem
skapa þarf svigrúm til að leysa.
Áætlanir um rekstur almenns
iðnaðar, verzlunar og þjónustu-
starfsemi í árslok bentu til þess,
eins og nefnt var hér framar, að
launahækkunum þeirra yrði án
efa að mestu velt út í verðlagið á
heimamarkaði. Samkeppnisstaða
þeirra greina, sem eiga í sam-
keppni utan að, setur þó mörk
fyrir möguleika til verðhækkuna
á þessu og þar með fer að koma að
því, að þær greinar, sem ekki
njóta fjarlægðarverndar (eða
annarrar verndar), lenda í
rekstrarerfiðleikum. Verulegar
verðhækkanir erlendis að undan-
förnu hafa þó dregið úr þessu
aðhaldi, en á næstu mánuðum
hljóta áhrif launasamninganna að
segja til sín einnig að þessu leyti,
þótt til þessa hafi hér fyrst og
fremst verið um verðbólguvanda
að ræða. Útflutningsframleiðsla
fyrirtækja í prjóna- og fataiðnaði
og skinnaiðnaði átti öróugt upp-
dráttar á árinu 1973 og stóð mjög
höllum fæti í árslok. Þótt unnt
verði að ná 10—15% hækkun á
útflutningsverði á prjónavörum,
eins og horfur eru taldar á,
hrekkur það skammt á móti inn-
lendum kostnaðarhækkunum.
Rekstrargrundvöllur útflutn-
ingsiðnaðar er því í þann veginn
að bresta, og þar með verður
þungt undir fæti til þróunar
nýrra iðngreina.
i) Hér var t.d. spáð 84 c. verði pr.
pund af þorskblokk.
2> Hér er nú t.d. spáð 75 c. verði
fyrir pund af þorskblokk.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Lff mitt hefur orðið tómt og snautt, eftir að ég missti
manninn minn. Hvernig get ég lifað llfinu, þegar eini maður-
inn, sem ég annaðist um, er horfinn?
Það er alltaf erfitt að þola ástvinamissi, en þetta
verður hlutskipti okkar fyrr eða síðar. Ég veit, að
þetta dregur ekki úr sorg yðar né hitt, að sumir bera
þyngri byrðar en þér. Það er einnig gagnslaust að
reyna að lækna sár sín með einhverri innantómri
athafnasemi. Nýtt umhverfi og ný áhugamál geta
hjálpað sumum, en lækna þó aldrei einmanaleikann
og örvæntinguna.
Leitið þess í stað að kristinni vinkonu og tjáið
henni sorg yðar. Eða talið við prestinn yðar. Reynið
ekki að grafa sorgina í djúpi hjarta yðar. Shake-
speare hafi rétt fyrir sér, þegar hann talaði um, að
sorgin væri að hálfu leyti læknuð, þegar við hefðum
sagt öðrum frá henni. Gleymið því ekki, að Jesús er
allra vina beztur og skilningsrfkastur. Hann veit,
hvað hryggð er. Farið til hans með hryggð yðar.
Leitið þvínæst að einhverjum, sem þarf á hjálp að
halda, og reynið að flytja svolítið sólskin inn í tilveru
hans. Guð hefur komið þvi svo fyrir, þegar við færum
öðrum gleði, að þá endurspeglast eitthvað af henni í
sál okkar sjálfra.
Þér verðið að sætta yður við missi yðar. Biðjið Guð
að hjálpa yður að bera byrðina. Biblian segir: ,,Þú
skalt og að þínu leyti illt þola eins og góður hermaður
Krists Jesú“ (2. Tím. 2,3). Spyrjið Guð, hvernig þér
getið notað þennan erfiðleikatíma til þess að bera
vitni um hann.
metíSi,
§?*wd
Hjólbaröar
j . \; i | Sölustaðir: Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns Glslasonar, j Laugavegi 171, Reykjavlk. ! Gúmmlviðgerðin, j Hafnargötu 89, Reykjavík. Bifreiðaþjónusta Hveragerðis v/Þelmörk, Hveragerði. P. Stefánsson h.f., Hverfisgötu 103, Reykjavík. í STÆRÐIR: VERÐ: 560x13 2.596 - 590x13 2.596 - | 640x13 2.984,- J 590x14 2.981,- | 560x15 2.724,- l 165x15 3.598 - t
HEKLA Laugavegi 1 70—172 Simi 21240.