Morgunblaðið - 08.06.1974, Qupperneq 32
]&&KIR RUKR
UlflSKIPTin SER1
k RUCIVSRÍ
JBíremníílaSíitiu
nuGivsmcnR
^Ur-«22480
LAUGARDAGUR 8. JÚNl 1974
Eðvarð Sigurðsson:
„Kerfið ekki undir það
búið að taka við þessu”
Sænski leikflokkurinn frá Dramaten á Keflavíkurflugvelli. Fremst má greina
leikhússtjórann Erland Josepson, leikstjórann Gunnel Lindblom, Ulf Johans-
son, Solveig Ternström og fleiri fræga leikara. Aftan við hópinn stendur
Baldvin Tryggvason, formaður Listahátíðarnefndar.
LISTAHATIÐ 1974
hefst í dag 8. júní
Isl. verk frumflutt — 5 listsýningar
„ÞETTA kerfi var engan veginn
undir það búið að taka við þessu.
Ég persónulega var ekki með-
mæltur að taka það upp, en úr því
sem komið er, tel ég alveg fráleitt
að afskrifa þetta kerfi vegna byrj-
unarörðugleika. lVIenn verða að
hafa biðlund." Þetta sagði Eðvarð
Sigurðsson formaður Dagsbrúnar
í ga*r, er Mbl. ræddi við hann um
nvja orlofsfyrirkomulagið, en
eins og fram kom í Mbl. í gær,
hefur nokkur ruglingur orðið á
orlofsgreiðslum í ár.
Nefnd sú, sem endurskoðaði or-
lofslögin og gerði tillögur um
breytingar virðist hafa tekið mjög
stuttan tfma í það, eða aðeíns tvo
mánuði. Þessar upplýsingar fékk
Mbl. í Félagsmálaráðuneytinu.
Eðvarð Sigurðsson sagði, að
fjölmargar kvartanir hefðu borizt
til Dagsbrúnar út af nýja kerfinu,
og skrifstofur félagsins hreinlega
fyllzt stuttu eftir að ávísanirnar
til orlofsþega voru sendar út í vór.
„Mestar kvartanirnar eru þær, að
hjá ágætum fyrirtækjum þar sem
orlofsmerkjakerfið var í ágætu
lagi hefur þessi breyting ekki orð-
ið til bóta, en hins vegar kemur
hún þúsundum annarra að not-
um, sem ekki hafa notið þessara
hluta áður. Hins vegar hafa orðið
Kaffibrennslurnar
lokaðar:
r
Arsgamalt
kaffiverð
fæst ekki
hækkað
KAEFIBRE.NNSLUK hafa lar-
ið l'ram á hækkun kaffiverðs.
en verðlagsnefnd heimilaði
síðast ha'kknn á kaffiverði l!l.
júlí í fyrra. Kaffibrennslur
telja sig ekki geta selt kaffi á
því verði og því eru allar kaffi-
brennslur lokaðar nema
Bragakaffi, en það er rekið af
Samhandi íslenzkra samvinnu-
félaga.
Kaffibrennslurnar, sem eru
lokaðar, eru Kaffibrennsla
Kaaber, Kafl'ibrennsla Blönd-
als, Kyden, Arnarkaffi og
Frimaeo (Friðrik Magnús-
son). Bragakaffi mun selja
l'iistum viðskiptavinum kaffi.
en mun ekki hafa bætt við sig
viöskipta vinuin.
Kaffibrennslurnar hafa ósk-
að eftir ha'kkun kaffiverðs. en
frá því er bráðabirgðalög rfkis-
st.jórnarinnar voru sett, hefur
verðlagsnefnd ekki komið
saman til fundar — og því
hafa engar verðhækkanir ver-
ið heimilaðar.
13 hval-
ir á land
I <>.ER voru komnir á land 1:{
hvalir í Hvalfirði. Þessar upp-
lýsingar fékk Mbl. hjá Magnúsi
I). Olafssyni verkstjóra. Skiptist
al'linn í H búrhvali og 7 langreyð-
ar.
Hvalvertíðin hófst á sunnu-
daginn. Hvalbátarnir fjórir þurfa
að sækja hvalinn langt. Hann
hefur mest haldið sig djúpt útí af
Faxaflóa og undan Vestfjörðuin.
margvísleg vandkvæði á fram-
kvæmdinni. Það hefur t.d. orðið
nokkur misbrestur á því, að at-
vinnurekendur hafi staðið í skil-
um, en það er afar mikilvægt að
þeir geri það. Þó stendur það al-
riði betur en áður,“ sagði Eðvarð.
Hann sagði ennfremur, að aug-
ljósir gallar hefðu komið fram,
sem þyrfti að leiðrétta. t.d.
væri það augljóst að ekki væri
hægt að borga út til sama dags og
útborgun á að hefjast.
Hjá Hallgrími Dalberg ráðu-
neytisstjóra í fjármálaráðuneyt-
inu fékk Mbl. þær upplýsingar í
Framhald á bls. 18
Afetaða Dana
alveg óbreytt
DÖNSK yfirvöld ítrekuöu í
vikunni kröfu sína um full
gajínkvætn réttindi í sam-
bandi viö leiguflug milli
íslands og Danmerkur.
Brynjólfur Ingölfsson
ráöuneytisstjóri tjóði Mbl.
þetta í gærkvöldi.
Samkvæmt þessu er
engra brevtinga að vænta í
sambandi viö ieiguflug
Sunnu til Danmerkur.
Sunna hefur flogið með
hópa sína til Hamborgar,
og ekið þeim þaóan til
Kaupmannahafnar í bílum.
Að sögn Brynjólfs er
ekki að vænta viðræðna
um þetta mál milli danskra
og íslenzkra yfirvalda á
næstunni. utan hvað það
mun væntanlega bera eitt-
hvað á göma í viðræöum
norrænna ráðuneytisstjóra
hér á íslandi um næstu
mónaöamót.
FYKSTU erlendu geslirnir ern
komnir á listahálíð. I gær kom
meö flugvél 30 manna leikflokk-
ur frá Dramalen í Slokkhólmi, til
aö sýna hér Vanja frænda. Um
leiö og hópurinn steig úl úr vél-
inni málti þar greina andlit. sem
viö þekkjum úr k\ikmvndum Ing-
mars Bergmanns. Þarna var sjón-
varpsleikkonan Solveig Tern-
Þessi andlit þekkjum við
af skerminum — Erland
Josepson úr hjónabands-
þáttum Bergmanns og
Gunnel Lindblom.
Listahátfó í Reykjavík 1974
hefst f dag með opnunarhátfð í
Háskólabfói kl. 4, þar sem Sin-
fóníuhljómsveit frumflytur
Athvarf, eftir Helbert H.
Ágústsson. Jafnfram verða opnað-
ar allar listasýningarnar, Islenzk
myndlist í 1100 ár á Kjarvalsstöð-
um, málverkasýning Nfnu
Tryggvadóttur í Listasafni
tslands, norræn vefjarlist í
Norræna húsinu, fslenzk alþýóu-
list í SÚM-sal og Asmundarsal og
ström og (iunnel Lindblom, sem
hefur sett Vanja frænda á svið og
við þekkjum t.d. úr Sjöunda inn-
siglinu, Jómfrúrlindinni og fleiri
mvnduni. Og fararst jórinn er
leikhússtjóri Dramaten Erland
Josepsson, sem m.a. varð vinsæll
á Islandi þegar hann var eigin-
maðurinn í hinum vinsælu þátt-
um í sjónvarpinu Svipmvndir úr
hjónabandi.
— Já. hafa þeir þættir verið
sýndir hér' sagði hann. er blaða-
maðurinn hafði orð á því. að þð
hann hefði aklrei til Islands kom-
ið. þá mundi fólkið á götunni
þekkja andlit hans. — Já. í Dan-
mörku ræddi bílstjóri við mig um
hjónabandið mitt, sagði hann og
hló við. Svíum fannst ég mesti
skúrkur og alveg ömögulegur eig-
inmaður, en Dönum fannst ég
bara nokkuð göður maður. Með
hvoru okkar hjónanna í m.vndinni
var fólk hér?
Erland Josepsem hefur verið
leikhússtjóri Dramaten í 8 ár og
er nú að hætta. Ekki sagði hann
neitt ákveðið hvað hann mundi
Framhald á bls. 18
sýning fagurra handrita i Lands-
bókasafni. I kvöld frumsýnir
Leikfélag Reykjavíkur nýtt
fslenzkt leikrit, Selurinn hefur
mannsaugu eftir Birgir Sigurðs-
son, og í Þjóðleikhúsinu er fyrsta
sýning Dramaten-leikhússins f
Svfþjóð á Vanja frænda eftir
Tjechov. Sfðdegis verða fyrstu
kammertónleikarnir — kl. 4 á
Kjarvalsstöðum, en frá þeim er
sagt nánar annars staðar f
blaðinu.
Opnun listahátíðar, sem standa
mun fram til 21. júní, hefst i
Háskólabíói með verðlauna-
verkinu Athvarf eftir Herbert H.
Agústsson, sem Sinfóníuhljóm-
sveit tslands flytur undir stjórn
Páls P. Pálssonar. Einsöngvari er
Elisabet Erlingsdóttir og upp-
lestur annast Gunnar Eyjólfsson.
Þá flytur borgarstjórinn i Reykja-
vík, sem er formaður Lista-
hátíðarstjórnar, ávarp. Kór félags
íslenzkra einsöngvara syngur
undir stjórn Garðars Cortes. For-
seti Islands, Kristján Eldjárn,
flytur ræðu. Þá leikur Sinfóníu-
hljómsveit Islands Chaconne eftir
Pál ísólfsson og athöfninni lýkur
með því að Kór félags fslenzkra
einsöngvara og Sinfóníuhljóm-
sveit Islands flvtja Island eftir
Sigfús Einarsson.
Þar með er hafin þriðja lista-
UNDANFARID hafa staðið vfir
viöræöur milli bæjarf ulltrúa
Sjálfstæðisflokksins og Félags
óháðra borgara um inyndun
meirihluta í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar. Að því er Arni Grétar
Finnsson, efsti maður á lista
Sjálfstæöisflokksins, tjáði Mbl. í
&«:i muiui, er þess að vænta, að
þessum viðræðum Ijúki um helg-
hatíðin, sem haldin er í Reykja-
vík, með mjög fjölbreyttri
dagskrá, sem flutt er af innlend-
um og erlendum listmönnum.
Von er á mörgum heimsfrægum
gestum, og eru sumir þeirra
komnir.
„Tilgangur Listahátíðar er
margþættur", segir Birgir ísl.
Gunnarsson í dagskránni. „Þar
gefst landsmönnum kostur á að
njóta margs af því bezta, sem er
að gerast í listalífi annarra þjóða
og einnig okkar íslendinga
sjálfra. Listahátfð á að vera lyfti-
stöng íslenzkrar listsköpunar,
hún á að vera likleg til að skapa
heilbrigðan metnað meðal ís-
lenzkra listamanna og færa þeim
mark til að keppa að. Reynslan
hefur og sýnt, að á fyrri Lista-
hátíðum hafa komið fram mörg
íslenzk verk, sem líkleg eru til
langlífis."
Framkvæmdastjórn listahátíð-
ar skipa nú: Baldvin Tryggvason
formaður, Þórður Einarssori,
Andrés Björnsson, Hannes Kr.
Daviðsson, Sveinn Einarsson.
Framkvæmdastjóri er Jón
Steinar Gunnlaugsson. Ýmsir
aðilar tengdir listum og listalífi
eru þátttakendur i listahátíð, en
borg og ríki skiptast á um að veita
henni forstöðu, Reykjavíkurborg
að þessu sinni.
ina, og fyrsti fundur bæjarstjórn-
ar verði haldinn á þriðjudaginn.
I bæjarstjórnarkosningunum
fengu sjálfstæðismenn 5 menn
kjörna í Hafnarfirði og óháðir 2
menn. Fulltrúar eru alls 11. A
síðasta kjörtimabili m.vnduðu
óháöir, framsóknarmenn og Al-
þýðuflokkur meirihluta í Hafnar-
firði. Framhald á bls. 18
Kunnugleg andlit
meðal fyrstu gesta
Sjálfetæðismenn og óháðir
ræða saman í Hafnarfírði