Morgunblaðið - 21.06.1974, Síða 35

Morgunblaðið - 21.06.1974, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNl 1974 35 r Setti Islands- met í Hannover Ragnhildur Pálsdóttir hlaupa- kona úr Garðahreppi dvaldi sfð- astiiðinn mánuð við æfingar I borginni Hannover f Vl>ýzka- landi. Tók hún þátt f einu móti þenn- an tíma og setti þá met í 800 metra hlaupi. Hljóp hún vega- lengdina á 2:17.6, en eldra met hennar var 2:17.8. t 1500 metra hlaupi var hún ekki langt frá meti sfnu 4.53.7, en hún fékk tfm- ann 4:55.0. Ragnhildur verður meðal þeirra íslenzku frjálsíþrótta- kvenna, sem tekur þátt í Norður- landameistaramótinu, sem fram fer í Osló 25. júní n.k. Að líkindum mun hún keppa þar í 3000 metra hlaupi á NM, en að mótinu loknu dvelur Ragn- hildur áfram í Noregi við æfingar með norska kvennalandsliðinu fram í miðjan júlí. Myndin til hliðar er af Ragnheiði. Helmut Schön: Undir- búum okkur fyrir aðalátökin mm 74 — FRÁ okkar bæjardyrum séð var þetta góður leikur, sagði Rale Rasic þjálfari ástralska landsliðs- ins eftir leik liðs hans við Vestur- Þýzkaland f fyrrakvöld. Markið, sem Overath skoraði, verkaði reyndar illa á lið mitt og nokkur taugaóstyrkur greip um sig. Þegar leikmennirnir jöfnuðu sig og ró færðist yfir þá náðu þeir að sýna sitt bezta. Helmut Schön þjálfari véstur- þýzka liðsins var ekki eins ánægð- ur. Hann lét þó lofsyrði falla um Ástralfubúana og sagði, að þeir væru góðir og harðir leikmenn og það væri ekkert auðvelt að leika gegn þeim. — 'En við áttum að skora fleiri mörk, sagði Schön. — Þvf má svo ekki gleyma, að f þessum Ieik voru stigin mikilvæg- ust — við erum aðeins að undir- búa okkur undir erfiðari átök. — Þótt V-Þýzkaland sé nú öruggt f úrslitakeppnina er ég viss um, að leikurinn við A-Þjóð- verja verður mjög harður og tvf- sýnn, sagði Uwe Seeler fyrrum fyrirliði v-þýzka liðsins, er blaða- menn ræddu við hann f fyrradag. — Það verður örugglega ekkert eftir gefið f þeim leik. Hann vildi sem minnst um leik landa sinna við Ástrali segja. — Það voru a.m.k. hreinar lfnur að áhorfend- ur vildu fá að sjá miklu meira af mörkum frá okkar mönnum og þeir voru f nokkrum rétti með það, sagði Seeler. Brasilíumenn vonsviknir „Hvað næst — 0—0 jafntefli gegn Zaire?“ Þannig hljóðaði fyrirsögn í brasiliska blaðinu Ultima Hora á miðvikudaginn og vonbrigðin yfir tveimur mark- lausum jafnteflum heimsmeistara Brasilíu gegn Júgóslavíu og Skot- landi leyndi sér hvorki í fyrir- sögninni né greininni, sem á eftir fór. „Enn einn meðalmennsku- leikur liðs, sem eitt sinn var hið sterkasta í heiminum. Jafntefli Brasilíu gegn Skotlandi er tákn þess, að tímarnir eru breyttir." Annað blað í Brasilíu ásakaði heimsmeistarana fyrir að leika staðnaða knattspyrnu, allt fmyndunarafl væri fyrir bí vegna heimskulegra leikaðferða þjálfarans Zagalo. „Varnarleikur Brasilíumanna leiddi það eðlilega af sér, að Skotar réðu lögum og lofum á vellinum og það var aðeins kraftaverk að heims- meistararnir töpuðu ekki.“, sagði blaðið Jornal do Commercio eftir leikinn gegn Skotum. Það fer vfst ekki á milli mála, að þeir eru blóðheitir Brasiliu- mennirnir, enda ekki vanir öðru en lið þeirra sé í sérflokki knatt- spyrnuliða í heiminum. Þeim er ekki nóg, að lið þeirra sé nú komið með tvö stig og þurfi aðeins að vinna Zaire 3:0 til að komast í milliriðil. Sumir Brasi- líumenn halda því fram, að bezt sé fyrir brasilíska landsliðið að koma strax heim, á þann hátt einan verði komið í veg fyrir enn meiri hneyksli. Uppskeruhátíð vasa þjófa MIKIL uppskeruhátfð stendur nú yfir hjá vasaþjófum f Vestur- Þýzkalandi. Daglega berast þýzku lögreglunni óteljandi kærur frá mönnum, sem þessir iðjusömu náungar hafa hnuplað einhverju af. Blanda þjófarnir sér f áhorf- endahópana á knattspyrnuleikj- unum og þegar eitthvað spenn- andi er að gerast á veilinum grfpa þeir tækifærið. Einn þjófanna var gómaður á leik Italíu og Haiti og reyndist fengur hans hafa ver- ið þessi: 175 þýzka mörk, 181 doll- ari, 210 rúblur, 210 franskir frankar og 80 austurfskir shilling- ar. Bærilegar tekjur þann dag- inn! IBA ’64 vann ÍBA ’74 l.DEILDAR LIÐÍBA lék á 17. júnf gegn liði ÍBA eins og það var skipað 1964. „Gömlu" mennirnir sýndu f þessum leik að þeim er enn ýmislegt til lista lagt, og þó þeir hafi flestir lagt skóna á hilluna var rykið á þeim ekki orðið það þykkt, að þeír næðu ekki að sigra arftaka sfna. Liðið frá 1964 sigraði með þremur mörkum gegn engu og skoruðu þeir Magnús Jónatans- son, Steingrfmur Björnsson og Skúli Ágústsson mörkin. r Armann — Breiðablik EINN leikur fer fram í 2. deild- inni f knattspyrnu i kvöld. Ar- mann leikur við Breiðablik á Ármannsvellinum við Sigtún. í þriðju deild fara fram tveir leikir í kvöld. Fylkir leikur gegn Grindvfkingum á Árbæj- arvelli, og á Háskólavelli mætir ÍR liði Stjörnunnar. Konurnar verða einnig á ferðinni f kvöld, Stjarnan leik- ur gegn Þrótti og Viðir við Fram. Allir fyrrnefndir hefjast klukkan 20.00. UL í golfi ÁRlÐANDI æfing og fundur fyrir unglingalandsliðið f golfi verður á Nesvellinum á mánu- daginn klukkan 18. Að lokinni æfingu verður rætt um fyrir- hugaða Finnlandsferð. Vormót UÍA VORMÖT UÍA í frjálsum iþróttum fer fram á Eiðum sunnudaginn 30. júnf og hefst keppnin klukkan 14.00. Þátt- tökutilkynningar skulu sendar til Jóns Stefánssonar, Eskifirðf fyrir fimmtudag 27. Ffíl SKOKKIÐ 1SJUNI - 30 JULI 1974

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.