Alþýðublaðið - 09.10.1930, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 09.10.1930, Blaðsíða 4
4 AEÞÝÐOBLAÐIÐ Karlmannafötf . .. Soffíubúð Skólaföt, Kyk- og Regn-frakkar, s Jóhapnesdóttir> Matrósaföt, jakkaföt, Vetrarfrakkar. Mesta úrval. Beztar vörur. Drengjafrakkar. ákveöna afstöðu með Alþý’ðu- flokknum. Það er skoðuu okkar, sem lengst höfum starfaö í félaginu, að það hafi aldrei verið eins öfl- ugt og nú. Fram til starfa, ungir alþýðu- menn, tíl eflingar alþýðusamtök- unum. V. S. V. „Ægir“ tekur Færeying. Seyðisfirði, FB., 8. okt. „Ægir“ kom inn fyrir helgina með færeyska fiskiskútu, sem tek- in var fyrir landhelgisveiðar. Dómur féll þannig, að skipstjór- inn var dæmdur til þess að greiða 12 300 íslenzkar krónur, en afli og veiðarfæri var gert upp- tækt. Skipstjórinn var dæmdur fyrir botnvörpuveiðar í Jandhelgi. Hann áfrýjaði dóminum. Af Austfjörðum. Seyðisfirði, FB„ 8. okt. Einsdæma langvinnum rigning- um létti um 20. sept. Náðust þá inn hey, en viða stórhrakin. Hey- afli tæplega í meðallagi víðast á Austurlandi. Fiskþurkun gengið mjög treglega vegna ótíðarinnar, þó sæmiiega í hálfan mánuð. Aflalítið að undanförnu. Sauðfjárslátrun minni hér en áður, en meiri á Reyðarfirði. S. Sýning og skyndisala á ostum og smjöri frá mjólkur- búum Eyfirðinga, Flóamanna og ölfusinga er auglýst hér í blað- inu í dag. Þetta eru alt nýtízku mjólkurbú, sem fyllilega sam- svara þeim kröfum, sem gerðar ieru til hinna beztu mjólkurbúa erlendis. Bú Eyfirðinga tók til starfa 1928, Flóabúið 1929 og Ölfusbúið í vor. Fyrir búununi. standa þaulæfðir smjör- og osta- gerðarmenn (ieinn fslendingur, einn Dani og einn Norðmaður), svo eigi þarf að efa, að það, sem boðið er, eru að eins góðar vörur. Tilgangurinn með sýningu þess- ari er aðallega sá að gefa mönn- um kost á að sjá og reyna hverja t>sta búin framleiða. Á sýningunni ^efst mönnum kostur á að femakka á ostunum, og um leið geta menn fengið keypta heila eða hálfa osta fyrir verð, sem eigi hefir þekkst áður hér í Reykjavík. Ostamir eru mest hin- ir svo nefndu feitu ostar (Gauda, Edámer) með mismunandi fitu- magnii (10—30°/o). Söluverð þeirra verður þessa sýningardaga frá kr. 1,10—1,90 pr. kg. ÞaÖ er nær hálfu minna en nú tíðkast í smá- sölu á tilsvarandi ostategundum. Auk þessa verður selt nokkuð af mysuosti og smjöri. Þetta lága verð er sett til þess, að sem flestum gefist færi á að kaupa og reyna ostana. í sumar byrjaði Bjarni á Reykj- um á þedrri nýlundu að selja garðávexti á sölutorgi. Þetta þótti vel gefast. Nú koma mjólk- urbúin og fara líkt að. Vér höfum á undanförnum árum flutt inn mjólkurafurðir árlega fyrir nær 700 000 kr„ þar af osta fyrir nær 150000 kr. Vegna hinnar auknu ræktunar vex nú mjólkurfram- leiðslan hröðum skrefum, svo vér getum nú farið að verða sjálf- bjarga. Því þá eigi að kaupa imn- lenda osta, sem að gæðum geta fyllilega staðið á sporði þeim út- lendu, en verða nú seldir mikið ódýrari. S. Sigurdsson. Naot drepa tvo :menn. í Lisboa, höfuðborg Portúgals, var um daginn verið að fara með nautahjörð til slátrunar. Kom hræðsla að hjörðinni, og mistu menn þeir, er mað hana fóru, tangarhald á henni. Drápu nautin hesta og tvo menn, er urðu á vegi þeirra, og léku nokkra menn aðra illa, þó ekki væm það banasár, er þeir fengu. Það er búiÖ að éta öll þessi naut nú. Um dafglnss ofj weffiíais. ÍÞAKA í kvöld kl. 8V2. Friðrik Björnsson annast hagnefndaratriði. Nœturlæknir )er í nótt Ólafur Helgason, Ing- ólfsstræti. 6, sími 2128. Veðrið. Kl. 8 í morgun var hitastígið 0 í Reykjavik. Heitast var 3 stig, á ísafirði, iSeyðisfirði og í Vest- mannaeyjum. Útlit viðJFaxafióa og BreiðafjörðCÍ/Suðaustan- og austan-kaldiji Skýjað loft, en úr- komulaust. Skip lendir i stórsjó. Fisktökuskip kom hing.a,ð í gæ,r. Hafði það ætlað frá Isafirði til Norðurlandshafna, en á ledðinni lenti það í stórsjó og brotnaði talsvert. Meiddust nokkrir skip- fverjar nokkuð í aialli þessu, bæbi stýrimenn og hásetar, en þó ekki mjög mikið. Skipið fór síðan hingað til viðgerðar. Skipverjar eru norskir. D áttarskipið „Magni" kom aftur i gœrmorgun vestan af Dýrafirði með vélbátinn „Haf- örnina“ frá Vestmannaeyjum. Var vélaröxull vélbátsins brotinn. Verð- ur gert við hann hér. Ný bök. Nýkomin er út bók eftir séra Signrð Einarsson, Átthagafræði, leiðbeiningar handa kennurum. Er bókin hin fyrsta í sinni grein á ísienzku og bætir úr brýnni þörf. Bókarinnar verður getið nánar síðar. Verkamannafélagið „Hlíf“ í Hafnarfirði, Fundur verður haldinn annað kvöld kl. 8V2 í Bæjarþingsalnum. Rætt verður um kaupgjaldsmal og því áríðandi að allir félagsmennjnæti. Skemtun verður haldin annað kvöld kl. 8 ‘/s í kvikmvndahúsinu í Hafnar- firði. Eggert Stefánsson syngur og séra Sigurður Einarsson flytur fyrirlestur. Allur ágóði afskemtun- inni rennur til styrktarsjóðs sjúklinga í hressingarhœlinu í Kópavogi. Þarna fer því saman góð skemtun og styrkur við nauð- synjamál. Vélbáturinn, sem strandaði á Meðallandsfjörum á föstu- dagskvöldið, náðist elrki út aftur. Varð „Ægir“ að koma aftur í gær við svo búið. Skyndisalan í Mjólkurfélagshúsinu heldur á- fram. Lesið augl. í blaðinu á morgun! Hvað er að fréíta ¥ ___________________ » Skipafréttir. „ísland“ fór í gær- kveldí til Austfjarða og fer þaðan utan. Kolaskip kom i gær til „Kola og Salts“. Hjónaband. Á sunnudagian voru gefin saman í hjónaband Sigriður Arnórsdóttir og Stefán Stephensen bifreiðarstjóri. Hjúlprœðisherinn. Norsk sam- koma verður kl. 8 í kvöHdi í sajm- komusal Hjálpræðishersins. Frú Agnetha Jónsson stjómar. Til Strandarkirkju. Áheit frá B. G. 5 kr. Gömul hjón í svedf sátu saman. „Hvað ertu að hugsa, Sigríður mín?“ sagði Jón. Ufor og hforta ódýrnst. KLEIN, Baldursgötu 14. Sími 73. Niðnrsuðnglos góð og ódýr fást hjá Vald. Poulseí., Klapparstíg 29. Sími 24 Kiist on Bjarnarson læknir, Pósthússtræti 7, 4. hæð, stofa 33 (hús Nathans & Olsens). Viðtals- tími kl. 4—6. Símar: 1 lækn- ingastofunni 1066. Heima 1604. MUNIÐ: Ef ykkur vantar hús- gögn ný og vönduð — einnig notuð —, þá komið í fornsöluna, Aðalstræti 16, sími 1089 eða 1738. Dívanar beztir og ódýrastir. Einnig teknar viðgerðir á stopp- uðum húsgögnum. Bárugötu 8. ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN Hvarftsgötu 8, simi 1204, tekur að sér alls ko> ar tækifærisprentuB svo sem erflljóð, að gðngumiða, kvlttaali reiknipga, bréf o. s frv„ og afgretðti vtnnune ’jótt og vtð réttu ve, ðt. „Ég var bara að hugsa mn hvað lengi við værum búin að vera saman og að einhvern tima hlyti það að taka enda og dauð- inn að sækja anna'ðhvort okkar,“ sagði Sigríður. „En til hvers er að vera að hugsa um það?“ sagði Jón. „Nei; það er nú satt,“ sagði Sigríður, „en mér datt í hug, að þegar að því kæmi, væri fult svo ódýrt fyrir mig að leigja mér herbergi í. Reykjavík.“ Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Haraldur Guðmundsson. Alþýðuprentsmiðjan.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.