Alþýðublaðið - 12.08.1920, Qupperneq 1
Alþýðublaðið
Grefið tít af Aiþýðuflokkuum.
1920
Fimtudaginn 12. ágúst.
182. tölubl.
Flotið sofandi að feigðarósi.
Á Islandsbanki að draga landið með sér á höfuðið?
Svo að segja með hverjum
degi sem líður, ágerist peninga-
kreppa sú er íslandsbanki hefir
sett landið í, aðallega með því
að lána Fiskhringnum innstæðufé
almennings til þess að braska með.
Og nú er loks svo langt komið,
að það fæst svo að segja ekki
einn eyrir fluttur út úr landinu,
þar sem íslandsbanki hefir neitað
hvorttveggja, að yfirfæra fé til
útlanda fyrir landsbankann og
fyrir póststjórn, þó hann sé til
hvorugtveggja skyldugur.
Ekki hefir heyrst að lands-
stjórnin hafi ennþá gert neinar
tryggilegar ráðstafanir til þess að
kippa í lag þessu óþolandi ástandi
sem nú rfkir á peningamálum
landsins.
Síðan erfiðleikarnir byrjuðu —
erfiðleikarnir, sem allir vita að
eru óviturlegum og óverjandi
ráðstöfunum íslandsbanka að
kenna, hefir bankastjórnin framið
þau axarsköft, að fyllilega er
Ijóst, að hún er með öllu ráð-
þrota, og má þar til nefna það
uppátæki hennar, að auglýsa
erlendis, að íslandsbankaseðlar
yrðu ekki innleystir, og mundi
sú athöfn ein, sem var algerlega
óþörf, næg til þess að baka land-
inu hið mesta tjón. Því þó ekkert
væri að, um peningamálin, mundi
slíkt tiltæki nóg til þess að glata
fjárhagsáliti landsins erlendis —
slíkt er fljótt að koma, en lengi
að fara aftur.
En þó nú að bankastjórn ís-
iandsbanka væri hin vitrasta, þá
er vfst, að hún gæti ekki ráðið
fram úr málunum eins og þau
nú eru komin. Stjórn landsins —
ef hún er til, nema að nafninu —
þarf tafarlaust að taka í taumana,
en hér dugar ekkert ráðleysisfálm
tit f loftið. Hér þarf að snúa sér
’°eint að þvf, sem er meginörsök
ólánsins, en það er það, að ís
landsbanki hefir lánað Fiskhringn-
um (Copland), til fiskbrasks, fé
það er almenningur hefir trúað
bankanum fyrir. Það sem þárf
að gera er því það, að lands-
stjórnin, með góðu eða illu, (hún
hefir þau ráð í hendi sér) knýji
fram:
a. að fé það er fiskhringurinn
fær fyrir fisk sem hann selur,
gangi inn í íslandsbanka, en sé
ekki notað til nýrra „spekúlasjóna".
b. að óseldar íslenzkar afurðir
séu seldar fyrir lægsta viðunandi
boð, jafnótt og þau koma, en ekki
beðið f óvissu eftir því að betri
boð fáist.
Viðvíkjandi lið a. er þess að
geta, að það er almælt, að hr.
Qopland hafi íslandsbanka svo al-
gerlega í vasanum, að hann inn-
borgi aðeins í bankann það sem
honum gott þyki. Með öðrum orð-
um, að hann borgi ekki inn í
bankann alt það sem hann fær
fyrir fisk sem hann selur, heldur
noti það til nýrra „spekúlasjóna",
og hafi jafnvel getað hjálpað kunn-
ingja sínum sem er heildsali, um
stóra upphæð, sem honum hafi
legið á.
Viðvíkjandi lið b.: Þegar seldar
eru ísl. afurðir, verður það, hvort
verðið sé viðunandi, að skoðast
frá sjónarmiði núverandi peninga-
kreppu, en alls ekkert tillit að
takast til þess hvort fiskhringur-
inn tapar á því (eða íslandsbanki).
Hér dugar ekki að láta hagsmuni
alls Iandsins sitja á hakanum fyrir
hagsmunum einstakra fárra gróða-
brallsmanna, þó mektugir séu.
Hvað hefir landsstjórnin gert til
þess að reyna að fá lán erlendis?
Þvf er fleygt manna á milium að
það sé ómögulegt, en hver getur
vitað það fyrirfram? Hver veit
nema hin norrænu ríkin vildu
hiaupa undir bagga með okkur et
þau vissu gerla, hve okkur riði á
því. En hvað sem því nú líður
þá er víst að það dugar ekki að
landsstjórnin reyni að humma mál-
ið fram af sér, því það er að láta
íslandsbanka skella um koll og
draga alt landið með sér í fallinu.
fritar í vænínm.
Khöfn, 12. ágúst.
Símað er frá London að Pólland
sé reiðubúið til þess að semja
vopnahlé og frið í Minsk,
Bandamenn ætla að bíða árang-
ursins.
Verklýðsstjórnin í Rússlandi er
fús til að viðurkenna skuldir keis-
araveldistímanna.
Bolsivíkar hafa lagt vopnahlés-
skilyrðin fyrir ensku stjórnina:
Sjálfstæði Póllands tekið til greina;
pólska hernum sé fækkað niður í
50 þúsund; allar hergagnaverk-
smiðjur séu lagðar niður, sem
slfkar.
Símað frá Berlín að bolsivíkar
séu aðeins 2 kfiometra frá Varsjá.
Um daginn 09 vegii.
Flugan er nú því nær alveg
benzfnlaus, hefir ekki meira en
sem svarar io fimm mfnútnaferðir.
Reynt hefir verið, en árangurs-
laust, að fá flugbenzín bæði í
Englandi og Danmörku. En þar
sem stríðshættan virðist nú um
garð gerðin, er ekki ómögulegt,
að úr þessu rætist.
Beskytteren er nú farinn að
rannsaka, hve mikil brögð eru að
tundurduflahættunni fyrir Austur-
landi.