Morgunblaðið - 12.07.1974, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.07.1974, Blaðsíða 14
Hringvegurinn opnaður á sunnudag, 21 mánuði eftir að framkvæmdir hófust MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JULÍ 1974 Hinn 36 kflómetra langi vegarkafli yfir Skeiðarársand, þ.e. frá Lðmagnúp að Skafta- felli, verður formlega opnaður til umferðar n.k. sunnudag kl. 14.00. Það með er þessi lang- þráði vegur orðinn að veru- leika. Ekki eru nema þrjú ár sfðan farið var að undirbúa sjálfa framkvæmdina og þvf má segja, að verkið hafi sðtzt ðtrúlega vel, og hér hefur það sýnt sig, að tslendingar eiga afbragðs verkfræðinga, aðeins ef þeir fá að spjara sig og fjár- magn er fyrir hendi til að leysa hlutina fljðtt af hðlmi. Alls eru brýrnar sem eru á ánum yfir Skeiðarársand um 1700 metrar á lengd, og lengst er brúin yfir Skeiðará, að sjálfsögðu, rúmir 900 metrar. Frumáætlun Vega- gerðar rfkisins gerðu ráð fyrir, að framkvæmdirnar kostuðu 500 milljðnir kr., en nú er Ijðst, að þær muni kosta 800 millj. kr. og er það vegna hinnar miklu verðbðlgu, sem hér er. Húgmyndin um gerð vegar yfir Skeiðarársand er ekki ný af nálinni, en ekki var farið að ræða hana f fullri alvöru, fyrr en búið var að brúa fljötin milli Skaftafells og Hafnar f Hornafirði. Mál þetta var sfðan tekið fyrir á alþingi og þann 11. marz 1971 samþykkti alþingi, að vegurinn skyldi lagður, að mestu eftir þingsályktunartil- lögu Jðnasar Péturssonar, en hún gerði ráð fyrir, að fjár- magns til vegagerðarinnar skyldi afla með happdrættis- skuldabréfum. Hinsvegar er hætt við að gerð mann- virkjanna á Skeiðará hefði ekki gengið eins vel og raun ber vitni, ef almenningur hefði ekki sýnt málinu einstakan áhuga. Flestir landsmenn virðast hafa keypt skuidabréf og þar með farið eftir ðskum þjððhátfðarnefndar um, að vegurinn yrði fullgerður á þjöðhátfðarárinu. 580 millj. kr. boðnar út Alls hafa nú verið gefnir út fjörir flokkar happdrættis- skuldabréfa að upphæð 580 millj. kr. og eru þessi skulda- bréf nú uppseld. Stefán Þórarinsson aðalfé- hirðir Seðlabankans sagði í samtali við Morgunblaðið, að hafa verið mörg og margvísleg. Ávallt hefur þó tekizt að ráða við þau, og nú er verkinu lokið á 21 mánuði. Helga hittum við að máli f byrjun vikunnar, en þá var hann nýkomin austan af Skeiðarársandi frá þvi að líta eftir síðustu verkefnunum þar í bili, en enn á eftir að ljúka við nokkra frágangsvinnu. „Undir- búningsframkvæmdir vega- lagningar á Skeiðarársandi hóf- ust f október 1971,“ sagði Helgi er við röbbuðum við hann. „Þá fól þáverandi samgöngumála- ráðherra Vegagerðinni að gera frumáætlanir um vegagerð á Skeiðarársandi og athugun á því, hvort hægt væri að ljúka þessari mannvirkjagerð annarsvegar á 3 árum og hins- vegar á 4 árum. Nú, við hófumst þegar handa við verkið og var því lokið í janúar 1972; þó var einn fyrirvari á þessari áætlun. Grímsvatnahlaup höfð- um við ekki fengið, en slíkt hlaup varð að koma til þess að kynnast Skeiðará f hlaupi. Og sem betur fer lét hlaupið ekki á sér standa, það kom f marz á sama ári. Hlaupið reyndist svip- að því og við höfðum reiknað, og f kjölfar þess og frum- áætlunarinnar var ákveðið að ráðast f þetta verkefni og ljúka því á árinu 1974. Framkvæmdir hófust síðan i apríl 1972 og voru það raunar framkvæmdir, sem ekki áttu skylt við framkvæmdirnar á Skeiðarársandi. Voru þetta framkvæmdir á veginum frá Kirkjubæjarklaustri að Lóma- gnúp, en sjálfur vegurinn og brýr á þessu svæði, þoldu ekki álagið, sem af framkvæmdun- um á sandinum hlautaðkoma. Sumarið fór því i það að byggja veg að Núpsstað og að austan- verðu var unnið við Virkisá og Skeiðará. A sjálfum Skeiðarársandi byrjuðum við i september 1972. Þá um haustið byggðum við bráðabirgðabrýr yfir Núpsvötn og Súlu, stólpa undir endanlega brú yfir Súlu, auk þess sem lítillega var byrjað á varnar- görðunum við Núpsvötn. Þá gerðum við hlé f einn og hálfan mánuð, en i lok janúar hófumst við handa á ný og rákum þá niður stólpa f brúna yfir Gígu og dekkið var sett á brúna yfir Súlu. Jafnhliða þessu var hafin fjármálaráðherra hefði falið Seðlabankanum að gefa út happdrættisskuldabréfin. Fyrsti flokkurinn, A-flokkur að upphæð 100 millj. kr, hefði verið gefin út í marz 1972 og seldust bréfin upp á nokkrum dögum, B-flokkur hefði sfðan verið gefin út f aprfl 1973. Voru það skuldabréf að upphæð 130 millj. kr. og seldust þau upp á mánaðartfma. í september 1973 voru enn á ný gefin út skulda- bréf að upphæð 100 millj. kr. og var þá búið að gefa út happdrættisskuldabréf fyrir 330 millj. kr. Stóð sala á þeim til fyrsta útdráttardags, sem var 20. desember sl. Á fjárlög- um fyrir árið 1974 fékkst heimild til að bjóða út 250 millj. kr. upphæð f skuldabréfum f fyrra formi. Skuldabréfin hafa verið til sölu síðan í vetur, en munu nú vera uppseld. Dregið verður f flokkunum, sem nefn- ist D-flokkur 14. júlí, eða dag- inn sem vegurinn verður vfgð- ur. Sagði Stefán, að hvert skulda- bréf í D-flpkki kostaði 2000 kr. Eru þau seld á nafnverði og eru endurgreidd eftir 10 ár. Bréfin eru verðtryggð og eru auk þess happdrættisvinningur. Hefur þvf mörgum þótt þetta góð fjár- festing. Við sölu á happdrættis- skuldabréfunum hefur það komið f Ijós, að sala þeirra hef- ur gengið bezt á Austurlandi og f Reykjavík eða á þeim stöðum, sem hafa mesta hagsmuni af tilkomu hringvegarins. Seðla- bankinn lét gera könnun á þvf, hvernig bréfin höfðu selst bezt, þegar sölu B-flokks var lokið og að sögn Stefáns lftur dæmið þannig út. Framkvæmdum lokið á 21 mánuði Sá maður, sem hvað mest hefur komið við sögu vegalagn- ingarinnar á Skeiðarársandi, er Helgi Hallgrímsson deildar- verkfræðingur Vegagerðar ríkisins. Hann hefur haft yfir- umsjón með verkinu, frá því að það hófst á árinu 1971. Frá þeim tfma hefur Helgi ýmist verið við urndirbúningsvinnu f Reykjavík eða fylgzt með verk- inu austur á söndum og glfmt þar við þau vandamál, sem upp hafa sprottið, en þau Kjördæmi: Fjöldi seldra bréfa Sala f hlut. við stk. % íbúafjölda. Reykjavík 76.290 58.7 91.0% Vesturlandskjördæmi 5.350 4.1 40.0% Vestfjarðakjördæmi 3.660 2.8 36.9% Norðurlandskjördæmi V. 4.770 3.7 48.4% Norðurlandskjördæmi E. 9.980 6.9 31.5% Austurlandskjördæmi 8.850 6.8 77.4% Suðurlandskjördæmi 8.500 6.5 46.4% Reykjaneskjördæmi 13.600 10.5 33.3% Fjallasýn af Skeiðarársandi er ægifögur f björtu veðrl. Myndin var tekin fyrir nokkrum dögum við brúna yfir Skeiðará, f baksýn er Hvannadalshnjúkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.